Þjóðviljinn - 30.05.1986, Síða 19
ÍÞRÓTTIR
Reykjavíkurleikarnir
Betri sókn — verri vöm
Pétur Pétursson, fyrirliði íslands, í baráttu við Tékkann Kubik. Mynd: E.ÓI.
Guðmundur
„Ég er búinn að semja við Ba-
den til eins árs til viðbótar og leik
með liðinu í 2. deild næsta vetur.
Þótt við höfum orðið langneðstir í
1. deild held ég að við getum
spjarað okkur vel í þeirri ann-
„Liðið lék betri sóknarleik en
gegn írum en varnarlcikurinn var
slakari. Marktækifærin voru
ekki nýtt og mistökin í vörninni
voru of mörg. Ég er að breyta
leikstíl liðsins og það tekur tíma,“
sagði Sigi Held landsliðsþjálfari
íslands í knattspyrnu eftir 1-2 tap
gegn Tékkum í lokaleik Reykja-
vfkurleikanna á Laugardalsvell-
inum í gærkvöldi.
íslenska liðinu gekk betur að
skapa sér marktækifæri en í íra-
leiknum. í fyrri hálfleiknum
skaut Pétur Pétursson yfir af víta-
teig eftir fallega sókn, Arnór
sneri á varnarmenn og sendi inná
markteig þar sem Tékkar björg-
uðu í horn á síðustu stundu og
Gunnar Gíslason átti hörkuskot
sem Miklosko varði. Sigurður
Grétarsson var atkvæðamikill um
miðbik seinni hálfleiks, besta
færið fékk hann þegar hann fékk
góða sendingu inní vítateiginn frá
Omari Torfasyni og skaut hárfínt
framhjá fjærstönginni. Ómar átti
skalla rétt framhjá skömmu fyrir
leikslok.
Tékkar fengu tvö góð færi á
upphafsmínútunum. Friðrik
Friðriksson varði skot frá Knofl-
icek og Cina þrumaði í hliðarnet-
ið. Friðrik varði hörku langskot
frá Chovanec og í einá umtals-
verða færi Tékka í seinni hálfleik,
utan við mörkin, sló Friðrik bolt-
ann með tilþrifum yfir slána eftir
Pýski stíllinn að taka við afþeim enska. Tvö ódýr mörk
Tékka gegn skallamarki Guðmundar Steinssonar.
skalla frá Cabala úr upplögðu
færi.
En Friðrik getur ekki verið
sáttur við mörk Tékka. Það fyrra
gerði Kula með skalla eftir fyrir-
gjöf frá Levy á 54. mín. Kula var
illa valdaður af varnarmönnum
og Friðrik hikaði í úthlaupi. Cho-
vanec skoraði síðan með mein-
lausu skoti á 61. mín, af 20 m færi
og boltinn rann í fjærhornið,
öllum til mikillar undrunar.
Mark Guðmundar Steinssonar
á 84. mínútu kveikti vonarglæður
hjá áhorfendum. Sigurður sendi
fyrir markið, boltinn barst að
endalínu hægra megin þar sem
Arnór lyfti honum snyrtilega á
höfuð Guðmundar sem stóð á
markteig og skallaði í netið, 1-2.
„Þetta var frábær sending frá Ar-
nóri, boltinn fór yfir varnar-
manninn og það var auðvelt fyrir
mig að skora,“ sagði Guðmundur
um markið.
Breytingarnar á leikstíl ís-
lenska liðsins voru vel merkjan-
legar í gærkvöldi. í stað bresku
langspyrnanna framá fámenna
sóknarlínuna er nú reynt að
byggja upp rólega að þýskum
hætti. „Átta leikmanna eru varn-
armenn, en þegar við sækjum eru
sóknarmennirnir 4-6. Þegar
möguleikinn á snöggri sókn er
horfinn er betra að senda til baka
og hefja rólegt og öruggt spil og
halda boltanum,“ sagði Held um
þetta. „Ég lék í nýrri stöðu, sem
Sviss
björnsson landsliðsmaður í
knattspyrnu í spjalli við Þjóðvilj-
ann í gærkvöldi.
Guðmundur sagði að munur-
inn á 1. og 2. deild í Sviss væri
hálfgerður bakvörður með meiri
varnar- en sóknarskyldu. Mér líst
mjög vel á þessa leikaðferð og er
bjartsýnn á að hún hcnti okkur
vel,“ sagði Ómar Torfason.
Gunnar Gíslason hefur leikið
fyrir aftan Loft Ólafsson og Ág-
úst Má í þriggja manna vörn sem
síðan fær stuðning frá
kanttengiliðunum, nú Ómari og
Guðmundi Þ., og tveir miðju-
menn (Pétur O. og Ragnar) falla
síðan inní vörnina þegar and-
stæðingarnir sækja. Held og leik-
mennirnir þurfa tíma til að ná
valdi á leikaðferðinni og leikur-
inn í gærkvöld bar keim af því.
Varnarmennirnir voru mistækir,
Gunnar þó sterkur og hefur átt
athyglisverða leiki. Miðjumenn-
irnir voru allir virkir og náðu oft
ágætlega saman, Pétur P. var í
rólegra lagi en Sigurður var dug-
legur og með góðar sendingar og
er greinilega í mjög góðri æfingu.
—VS
kyrr hjá Baden
arri,“ sagði Guðmundur Þor- töluverður. í 2. deild væri nánast
Besta færi íslands — Sigurður Grétarsson sendir knöttinn framhjá Miklosko og
stönginni fjær. Mynd: E.ÓI.
Jónsdómurinn
Áfiýjun skýrð
hrein áhugamennska en þess má
geta að hann er eini atvinnumað-
urinn sem slíkur hjá Baden, hinir
eru allir hálf-atvinnumenn.
—VS
Eins og fram hefur komið hefur
ÍSÍ áfrýjað til hæstaréttar þeim
dómi Bæjarþings Reykjavíkur að
bann það sem sambandið setti
Jón Pál Sigmarsson í hafi verið
ólöglegt. ÍSÍ hefur sent frá sér
greinargerð um málið.
í henni segir m.a. að áfrýjunin
sé nauðsynleg vegna þess að for-
sendur dómsins virðist vera
byggðar á veikum grunni og að
ÍSI berjist með nauðsynlegu eft-
irliti gegn ólöglegri lyfjanotkun,
eins og íþróttasambönd annarra
landa. Þá telur framkvæmda-
stjórn ÍSÍ að persónulegar skoð-
anir hafi ráðið ferðinni hjá dóm-
aranum, ekki mat á reglugerðum
ÍSÍ um eftirlit með notkun örvun-
arefna. Vakin er athygli á því að
dómarinn hafni yfirleitt kröfum
Jóns Páls en byggir dóminn fyrst
og fremst á því að honum hafi
ekki verið gefinn kostur á að
skýra mál sitt fyrir nefndinni sem
kvað upp úrskurðinn. —VS
Ísland-Tékkósl.
Leikurinn
í tölum
ísland (0) 1
Tékkóslóvakía (0) 2
Laugardalsvöllur 29. maí
Dómari Joe Worrall (Englandi), línu-
verðir Eyjólfur Ólafsson og Kjartan
Ólafsson.
Áhorfendur 1441
0-1 Kula (54. mín), 0-2 Chovanec
(61. mín), 1-2 Guðmundur Steinsson
(84. mín)
l'sland: Friðrik Friðriksson, Gunnar
Gíslason, Loftur Ólafsson (Guðni
Bergsson 72. mín), Ágúst Már Jóns-
son, Ómar Torfason, Guðmundur
Þorbjörnsson (Ólafur Þórðarson 67.
mín), Pétur Ormslev (Guðmundur
Steinsson 67. mín), Ragnar Mar-
geirsson, Arnór Guðjohnsen, Pétur
Pétursson fyrirliði, Sigurður Grétars-
son.
Tékkóslóvakía: Miklosko (Stejskal
79. mín), Hasek (Berger 67. mín),
Straka, Fiala fyrirliði, Levy, Cabala,
Cina, Chovanec, Novak (Kubik 70.
mín), Kula, Knoflicek.
Friðrik Friðriksson — 5 erfið
skot varin, 3 auðveld skot varin, 3
góð úthlaup, 1 slæmt úthlaup, 2
mörk fengin á sig.
Gunnar Gíslason — 14 góðar
sendingar, 6 slæmar sendingar,
11 unnirboltar, 1 tapaðurbolti, 1
skot varið.
Loftur Olafsson — 6 góðar
sendingar, 3 slæmar sendingar, 5
unnin návígi, 2 töpuð návígi, 1
skalliframhjá. Fórútafá72. mín.
Ágúst Már Jónsson —16 góðar
sendingar, 4 slæmar sendingar, 6
unnin návígi, 2 töpuð návígi.
Ómar Torfason — 23 góðar
sendingar, 5 slæmar sendingar, 4
unnin návígi, 3 töpuð návígi, 1
skot framhiá.
Guðmundur Þorbjörnsson —
19 góðar sendingar, 3 slæmar
sendingar, 10 unnin návígi, 4
töpuð návígi. Fór útaf á 67. mín.
Pétur Ormslev — 19 góðar
sendingar, 6 slæmar sendingar, 7
unnin návígi, 5 töpuð návígi. Fór
útaf á 67. mín.
Ragnar Margeirsson — 24 góð-
ar sendingar, 4 slæmar sendingar,
5 unnin návígi, 2 töpuð návígi, 1
skot í varnarmann.
Arnór Guðjohnsen — 26 góðar
sendingar, 5 slæmar sendingar, 3
unnin návígi, 4 töpuð návígi, 2
skot varin, 1 skot í varnarmann.
Pétur Pétursson — 19 góðar
sendingar, 7 slæmar sendingar, 4
unnin návígi, 5 töpuð návígi, 1
skot framhjá, 1 skalli framhjá.
Sigurður Grétarsson — 22
góðar sendingar, 5 slæmar send-
ingar, 1 unnið návígi, 2 töpuð ná-
vígi, 2 skot framhjá, 1 skot varið.
Guðmundur Steinsson — 2
góðar sendingar, 1 unnið návígi,
1 skallamark. Lék í 23 mínútur.
Ólafur Þórðarson — 5 góðar
sendingar, 2 slæmar sendingar, 1
unnið návígi, 2 töpuð návígi. Lék
í 23 mínútur.
Guðni Bergsson — 3 góðar
sendingar, 2 slæmar sendingar, 1
unnið návígi. Lék í 18 mínútur.
Tékkar fengu 7 hornspyrnur,
íslendingar 2. Uæmdar voru 24
aukaspyrnur á ísland, 12 á Tékk-
óslóvakíu. Tékkar voru 7 sinnum
rangstæðir, Islendingar 1 sinni.
Tékkar áttu 17 markskot, 8 var-
in, 7 framhjá, 2 mörk. íslending-
ar áttu 14 markskot, 7 varin, 6
framhjá og 1 mark.
—lbe/gsm/VS
Föstudagur 30. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19