Þjóðviljinn - 06.06.1986, Qupperneq 13
LISTAHÁTÍÐ UM HELGINA
Jöfrarnir fveir.
Bergman og
Strindberg
Fröken Júlía sýnd um helgina
Einn af stærstu viðburðum
þessarar Listahátíðar er á dag-
skrá um helgina; uppfærsla
Ingmars Bergman á Fröken
Júlíu eftir August Strindberg
verður sýnd í Þjóðleikhúsinu
laugardag og sunnudag klukk-
an átta.
Strindberg og verk hans
þekkja allir; einhver mesti
leikritahöfundur sem Norður-
lönd hafa alið. Sömuleiðis
hlýtur Ingmar Bergman að
teljast með höfuðsnillingum
þeirra sem horft hafa í gegn-
um linsuop kvikmyndavéla, -
ekki bara á Norðurlöndum.
Báðir teljast þessir menn til
klassíkur; verk þeirra eru haf-
in yfir tíma og sígild í þessum
listgreinum.
Það er því mikill viðburður.
að sjá Ingmar Bergman kljást
við Strindberg, en þessi sýn-
ing Konunglega Dramatíska
Leikhússins í Stokkhólmi hef-
ur hlotið mikið lof. Bergman
kemur sjálfur til íslands sem
einn af heiðursgestum Lista-
hátíðar.
-pv
Lander
og
Eyron
íGamlabíóiá
sunnudag
Meiri klassík. Thomas
Lander baritonsöngvari og pí-
anóleikarinn Jan Eyron, báðir
sænskir, munu leika og syngja
í Gamla bíói á sunnudaginn
kl. 15.
Thomas Lander er aðeins
25 ára gamall og hefur vakið
mikla athygli og þykir mikið
efni. Jan Eyron hefur áður
komið til íslands;
þrautreyndur undirleikari
sem hefur unnið með mörgu
af frægasta söngfólki Evrópu.
Þeir munu flytja verk eftir
Schumann, Richard Strauss,
Gabriel Fauré og Ottorino
Respighi. —pv
Thomas Lander.
MYNDLISTIN
Picasso
Meistari tuttugustu aldar
myndlistar, Pablo Picasso á
Kjarvalsstöðum. Einstakur
stórviðburður. Opið 14-22.
Tryggvi
Yfirlitssýning í Listasafni ASÍ
áverkumTryggva
Magnússonar málara og
teiknara. Lýkur22. júní. Opið
16-20 virka, 14-22 helgar.
Thor og Örn
Þeirfélagarsýna
Ijóðmyndverk í anddyri
Norræna hússins, sem er
opið alladaga. Eina
sýningarhelgin.
Ásgrímur
Safnið hans opnar sýningu í
tilefni Listahátíðar. Aöallega
myndir málaðar á árunum
1910-1920. Opið 13.30-16
nemaLA.
Ásgrímur: Portrait of the artist as
an old man.
Einarssafn
Safn Einars Jónssonar
Skólavörðustíg eropið alla
daga nema MA13.30-16.
Höggmyndagarðurinn
daglega10-17.
Jónína
Jónína Guðnadóttir sýnir í
Gallerí Grjót, lýkur 12. júní.
Lágmyndir og skúlptúrar úr
steinleir. Opið virka daga 12-
18,helgar14-18.
Ole Kortzau og nokkur verka
hans.
Kortzau
Einn kunnasti listamaðurog
listhönnuðurDana. Fjölbreytt
og vönduð sýning. Síðasta
helgi. Opið 14-19.
Umsjón:
Páll
Valsson
Baltasar: Síðasta sýningarhelgi.
Baltasar
Sýning á teikningum
Baltasars, sem ber nafnið
Fimm þemu, er haldin í Gallen
Gangskör. Hún hefur verið
framlengd til tólfta júní vegna
góðrar aðsóknar. Opin 12-18.
Reykjavíkurmyndir
Listahátíð (og 200 ára
Reykjavík); Sýningin
Reykjavík í myndlist á
Kjarvalsstööum stendur til 27.
júlí. 60 Reykjavíkurverk eftir
33 myndlistarmenn. Opið 14-
22.
Karl Kvaran í Listasafni íslands.
Karl Kvaran
Listahátíð: Yfirlitssýning á
verkum Karls Kvaran, lýkur
29. júní. Opin daglega 13.30-
22.00. Listasafn Islands.
Austurrískt
Tíu austurríkismenn í
Nýlistasafninu Vatnsstíg,
lýkur 15. júní. Opið virka daga
16-20, helgar 14-20.
Langbrókarflækja
Samsýning aðstandenda
Langbrókar, Bókhlöðustíg 2,
skúlptúr, vefnaður, þrykk;
samheiti: Flækja. Lýkur 15.
júní. Opið daglega 14-18.
Ásmundur
Sýning Reykjavíkurverka
Ásmundar Sveinssonar í
Ásmundarsafni í Sigtúni hefst
FÖ. Opin 10-17 alla daga,
stendurframáhaustið.
Mokka
Kristján Fr. Guðmundsson
sýnir vatnslitamyndir og
olíumálverk á Mokka. Opin út
mánuöinn.
Föstudagur 30. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13