Þjóðviljinn - 13.06.1986, Síða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Hafskip
Albert kallaður fyrír?
Órói í ríkisstjórninni. Tóku stjórnmálamenn við
greiðslum afleynireikningi Hafskipsmanna?
Umræðan um möguleg tengsl
Alberts Guðmundssonar iðnað-
arráðherra inn í Hafskipsmálið
veldur nú talsverðum titringi í
ríkisstjórninni. Þessi órói jókst
eftir að Þjóðviljinn birti ít-
arlegt viðtal við ráðherrann í
gær.
Forsætisráðherra vildi sem
minnst tjá sig um málið í samtali
við Þjóðviljann í gær. Hann sagði
þó að því væri ekki að neita að
þetta mál ylli ákveðnum óþæg-
indum. Hann sagði:
„Ég vona að það sannist að eng-
inn ráðherra í ríkisstjórninni sé í
það flæktur. Ef að svo reynist
vera þá er það vitanlega mitt mál
að taka það til meðferðar og það
mun ég gera ef svo fer. En ég vil
ekki bera neinn sökum á þessari
stundu.“
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans líður nú óðum að því að
iðnaðarráðhera verði kallaður
fyrir og yfirheyrður um meintan
þátt sinn í þessu máli.
Rannsóknarlögreglan vildi
hvorki staðfesta né neita að þetta
stæði fyrir dyrum.
Hvalveiðar
Ályktun
að skapi
íslands
Ekki lagstgegn útflutn-
ingi á hvalaafurðum.
Viðrœður við Japani að
hefjast. Óljósthvort
Bandaríkjamenn sam-
þykkja að íslendingar
selji h valkjöt til Japan
Íslenska sendinefndin hafði í
gegn orðalagsbreytingu á ál-
yktun, sem lá fyrir Alþjóða hval-
veiðiráðinu, áður en ályktunin
var samþykkt síðdegis í gær á
fundi ráðsins í Malmö.
Með ályktuninni er ekki lengur
lagst gegn útflutningi á hvalaaf-
urðum, heldur er talað um að
afurðir af þeim dýrum sem drepin
eru í vísindaskyni, skuli fyrst og
fremst notaðar til neyslu innan-
lands.
fslenska sendinefndin telur að
íslendingar geti vel unað við
þessa niðurstöðu og eru nú fyrir-
hugaðar viðræður við Japani um
kaup á hvalkjöti, hinsvegar er
enn óljóst hvernig Bandaríkja-
menn bregðast við ef Japanir ætla
að kaupa hvalkjöt af Islending-
um.
-Sáf
Iðnaðarráðherra neitar því
staðfastlega að hann hafi notið
annarra greiðslna eða hlunninda
frá Hafskipi en sem nemur einni
utanlandsferð í tengslum vð sex-
tugsafmæli sitt. Helgarpósturinn
segir frá því í gær að ráðherra hafi
tekið við 117 þúsund króna ávís-
un sem greidd hafi verið út af
leynireikningi þeirra Hafskips-
manna í Útvegsbankanum. Ráð-
herra staðfestir að hafa veitt um-
ræddri ávísun viðtöku en segir að
hér hafi verið um eðlilega afslátt-
argreiðslu að ræða. Um leynir-
eikning kveðst hann ekki vita.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans munu ýmsir aðilar hafa
notið greiðslna af leynireikningi
þeirra Hafskipsmanna. Þar munu
hafa legið á vöxtum tugir miljóna
króna. Herma heimildir blaðsins
að greiðslur af þessum reikningi,
eða jafnvel reikningum, teygi sig
með fleiri en einum hætti inn í
stjórnmálalíf þjóðarinnar.
-G.Sv./ÖS
Hank Marvin, gítarleikari hljómsveitarinnar The Shadows töfraði hljóma árana fyrir tæðingu Bítlanna úr gítar sínum við
góða aðstoð hinna Skuggaspilaranna á hljómleikum á Broadway í gærkvöldi. Húsfyllir var og kunnu hljómleikagestir vel
að meta leik piltanna og var haft'á orði, að þrátt fyrir öll gítargoð, sem poppið hefur getið af sér, þá séu hljómarnir úr rauða
fendernum hans Hank Marvins einstakir í sinni röð. Mynd Ari.
GLÆTAN
FISKIMÁL
UM HELGINA
ÍÞRÓTTIR
Páll Ólafsson, landsliðsmaður í
handknattleik, er líklega á heini-
leið eftir ársdvöl hjá Dankersen í
Vestur-Þýskalandi. Hann er orð-
aður bæði við Víking og Val.
—VS
Sjá íþróttir bls. 15
Hafskipsmálið
Gæslu-
varöhald
framlengt
Sakadómur
Reykjavíkur .
samþykkti ígœr ósk
RLR um
framlengingu
gœsluvarðhalds
Ragnars
Kjartanssonar og
Björgúlfs
Guðmundssonar til
25. júní.
Úrskurðinum skotið
til Hæstaréttar
Sakadómur Reykjavíkur varð í
gær við beiðni RLR um að gæslu-
varðhald þeirra Ragnars Kjart-
anssonar og Björgólfs Guð-
mundssonar yrði framlengt til 25.
júní nk. Það átti samkvæmt úr-
skurði Hæstaréttar að renna út í
gær.
Þeir Ragnar og Björgólfur hafa
vísað úrskurði Sakadóms
Reykjavíkur til Hæstaréttar. Það
mun taka einn eða tvo daga fyrir
Hæstarétt að dæma í málinu.
Eins og menn eflaust muna var
gæsluvarðhald tvímenninganna í
upphafi ákveðið af Sakadómi
Reykjavíkur til 25. júní, en
Hæstiréttur stytti það til 11. júní.
Nú er eftir að vita hvort Hæsti-
réttur fellst á þennan síðari úr-
skurð Sakadóms Reykjavíkur.
Héðan af er úrskurðar Hæstarétt-
ár varla að vænta fyrr en eftir
helgina.
-S.dór.