Þjóðviljinn - 13.06.1986, Qupperneq 2
FRÉTTIR
Stjórnmál
Nýtt hótel opnar við Geysi í
Haukadal 21. júní. Það er
Már Sigurðsson, sem hefur látið
endurbyggja gömlu skólahúsin á
staðnum og verður hann bæði
með hótel- og veitingarekstur í
þeim húsakynnum.
Már sagði að íþróttasalurinn,
sem nú er verið að innrétta, hafi
verið byggður 1945. Þetta er um
400 fermetra húsnæði og verður
sett upp aðstaða til veitingarekst-
urs þar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
veitingarekstur er við Geysi, því
Sigurður, faðir Más, hóf veitinga-
rekstur á staðnum árið 1927.
Már hefur rekið söluskálann
við Geysi og mun halda því á-
fram. Gamlar byggingar við í-
þróttahúsið hafa einnig verið
gerðar upp og verður þar gistiað-
staða í sumar. Þá er í bígerð að
gera upp sundlaugina á staðnum
og hefur Þorsteinn Einarsson, í-
þróttafulltrúi gefið ráðleggingar
um hvernig að því skuli staðið.
Hefur hann gert drög að endur-
bótum á sundlauginni og einnig
að setlaugum sem verða hjá
sundlauginni. Er vonast til að
sundlaugin opni seinna í sumar.
í öðrum áfanga á að reisa við-
byggingu fyrir fleiri gistirými en
enn hefur ekki fengist leyfi fyrir
því. Verður hafist handa við það
á hausti komanda ef leyfi fást.
Már sagði að það væri mis-
skilningur að þeir bræður Þórir
og hann væru í fangbrögðum
vegna þess að Þórir ætlar að vera
með veitingarekstur í gróðurhúsi
sínu, einsog fram kom í Þjóðvilj-
anum í gær. Sagði hann að þeir
bræður ættu í engum illdeilum þó
skiptar skoðanir væru á milli
þeirra um hvort rétt væri að vera
með tvö veitingahús á staðnum.
Hinsvegar væri það yfirvalda að
skera úr um hvort Þórir fengi
veitingaleyfi.
„Einu fangbrögðin sem ég veit
um hér í sveit eru í sveitarstjórn-
armálunum, en mikill bardagi er
milli manna vegna sveitarstjórn-
arkosninganna, sem verða nú um
helgina,“ sagði Már.
Klofnaði sveitarstjórnin í þrjá
framboðslista og standa sjálf-
stæðismenn að einu framboði en
hinir tveir eru ópólitískir listar.
—Sáf
TORGIÐ
Tjái mig ekki að svo stöddu.
Veitingarekstur
Hótel við Geysi
Hótelvið Geysiopnaðnúíjúní. MárSigurðsson, hóteleigandi: Verðumbœðimeð
hótel- og veitingarekstur. Engin glímutök hjá okkur brœðrum.
Glímuskjálfti í sveitarstjórnarkosningunum
Ný sósíalísk
samtök
BlaðberarÞjóðviljanshafaíveturtekiðþáttísérstökuhappdrættioghefurþaðverið fastur liður í starfsemi útburðardeildar blaðsins undanfarin ári. í vor var
dregið um vinninga og voru fimm blaðberar svo hepþnir að hreppa ferð með Samvinnuferðum Landsýn til Danmerkur. í dag leggja blaðberarnir upp í ferðina
ásamt fararstjóranum Jóhannesi Harðarsyni. Hann er yst til vinstri á myndinni en síðan koma Magnús Steindórsson Vestmannaeyjum, Hjalti Guðjónsson Sand-
gerði, Arni Pálsson Reykjavík, Gunnar Sigurðsson Kópavogi, og Berglind Berg þórsdóttir Reykjavík. Yst til hægri er Helgi Daníelsson frá Samvinnuferð-
um-Landsýn.
Skólakerfið
Vantar heildarstefnumöikun
ídrögum úttektar OECD á íslenska skólakerfinu segir m. a. ekki sé til
heildarstefnumörkun fyrir nám á framhaldsskólastigi og að aukaþurfi
tengsl skóla og atvinnulífs annars vegar og skóla og heimila hins vegar
Ný sósíalísk samtök verða stofnuð
á morgun og segir í fréttatilkynn-
ingu frá undirbúningsnefnd að
helsti hvatinn að stofnun samtak-
anna sé gífurlcg óánægja með síð-
ustu kjarasamninga.
í fréttatilkynningunni segir að
fyrir nokkru hafi urn 50 manns
sem hafa starfað á vinstri kanti
íslenskra stjórnmála hist, og sam-
þykkt að vinna að stofnun sósíalí-
skra baráttusamtaka. í undirbún-
ingsnefnd fyrir stofnfundinn voru
kosin þau Hjördís Hjartardóttir,
Ragnar Stefánsson, Reinold Ric-
hter, Soffía Sigurðardóttir, Stella
Hauksdóttir, Þóroddur Bjarna-
son, Þorvaldur Örn Árnason og
Þorvaldur Þorvaldsson.
Undirbúningsnefndin segir í
fréttatilkynningu að með stoínun
samtakanna sé ætlunin að snúa
sér af krafti að verkalýðsbarátt-
unni, „móta nýja stefnu í stað
þeirrar stéttasamvinnu sem nú
heltekur verkalýðshreyfinguna,
og fylgja henni eftir innan
hreyfingarinnar. Hin nýju
samtök munu væntanlega verða
alhliða stjórnmálasamtök er láta
sig varða bæði inrianlands- og al-
þjóðastjórnmál. Með þeim mun
róttæku fólki gefast kostur á að
ræða saman og sameina krafta
sína.“
Fundurinn verður haldinn á
Hótel Borg klukkan 10 árdegis á
morgun. —gg
Drög að úttekt menntamála-
nefndar Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar í París
(OECD) á íslenska skólakerfinu
hafa nú verið lögð fram, en í þeim
er bent á atriði sem sérfræðing-
unum sem unnu að úttektinni
þykir ástæða til að taka til sér-
stakar athugunar eða endurskoð-
unar.
Þeir sérfræðingar sem unnu að
útektinni hér á landi í febrúar sl.,
benda á að á tiltölulega fáum
árum hafi verið byggt upp öflugt
menntakerfi á íslandi og að frarn
hafi farið merkilegt þróunarstarf
innan skólakerfisins, einkum á
grunnskólastigi. Hins vegar væri
ástæða til þess að endurmeta
ýmsa þætti skólakerfisins og efla
sérstaklega tengsl milli skóla-
stiga, tengsl milii skóla og at-
vinnulífs og svo tengsl milli skóla
og heimila.
í þessu sambandi var m.a. lögð
rík áhersla á það að endurskoða
þyrfti skólakerfið með tilliti til
aukinnar fjölbreytni í atvinnulíf-
inu og að í framhaldsskóla- og
háskólanámi þyrfti í ríkari mæli
að bjóða upp á hagnýtt nám, en
of mikil áhersla virtist lögð á bók-
legt nám á þessum skólastigum.
Framhaldsskólarnir miðuðust of
mikið við að undirbúa nemendur
undir háskólanám og of lítið
framboð væri á stuttu hagnýtu
háskólanámi. Hvað varðar tengsl
skóla og heimila var spurt hvern-
ig íslenska skólakerfið ætlaði að
mæta aukinni þátttöku í uppeldi
barna vegna þátttöku beggja for-
eldra á vinnumarkaðinum. Jafn-
framt var minnst á það að da-
gvistunarstofnanir og forskóla-
deildir gætu e.t.v. gert meira af
því að búa nemendur undir reglu-
íegt nám í skóla.
Ymis atriði varðandi stöðu há-
skólans voru rædd sérstaklega.
M.a. voru gerðar athugasemdir
við takmarkað umfang
rannsókna í háskólanum og spurt
hvort ekki væru fyrirhugaðar
leiðir til þess að efla rannsóknar á
þeim vettvangi og hvort ekki væri
tímabært að koma á fót svoköllu-
ðu Ph. námi eða doktorsnámi við
einstaka deildir háskólans. Hið
mikla brottfall nemenda á þessu
skólastigi var tekið til umfjöllun-
ar og álíta sérfræðingarnir að það
gæti átt rætur sínar að rekja til of
mikillar sérfhæfingar á fyrsta
námsári og/eða kennsluaðferða
þar sem of mikil áhersla væri lögð
á fyrirlestra.
Staða kennara almennt, bæði
hvað varðar kjör og menntun,
var gerð að sérstöku umræðuefni
og óskað var eftir upplýsingum
um það hvernig ætlunin væri að
bregðast við vaxandi kennara-
skorti.
Að lokum var vakin athygli á
því að ekki væri til heildarstefnu-
mörkun fyrir nám á framhalds-
skólastigi og óskað var eftir um-
ræðum um áform um aukna áætl-
anagerð í skólakerfinu og aukið
almennt eftirlit með skólastarfi.
Skýrslan sem drögin eru unnin
úr er væntanleg fullunnin síðar í
sumar, en þá er fyrirhugað að
efna til sérstakra umræðna um
skólamál m.a. á grundvelli þess
sem kemur franr í skýrslunni.
-K.Ól.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. júní 1986