Þjóðviljinn - 13.06.1986, Side 3
FRETTIR
Þjóðviljinn
Megn óánægja
Ritstjórnfundaði um fréttir affjölgun ritstjóra á Þjóðviljanum.
Vantraust á ritstjórnarstefnuna
Megn óánægja kom fram á
fundi, sem ritstjórn Þjóðvilj-
ans hélt í gær, vegna frétta af
mögulegum breytingum á rit-
stjóraskipan blaðsins. Aðrir fjöl-
miðlar hafa verið með fréttir um
að til standi að bæta við þriðja
ritstjóranum, við hlið þeirra
Össurar Skarphéðinssonar og
Arna Bergmann. Svavar Gests-
son, formaður flokksins hefur
verið orðaður við stöðuna og er
Vísitalan
Hækkar
um 0.66%
Verðbólguhraðinn um
24% síðustu 12 mánuði
Vísitala framfærslukostnaðar
reyndist vera samkvæmt útrcikn-
ingum Kauplagsnefndar 170.6
stig fyrir júnímánuð eða 0.66%
hærri en hún var í maíbyrjun.
Af þessari hækkun stafa 0.2%
af hækkun á verði matvöru, eink-
um vegna verðhækkunar á eggj-
um og mjólkurafurðum, en að
öðru leyti stafar hækkun vísitöl-
unnar af verðhækkun ýmissa
vöru- og þjónustuliða.
Síðustu 12 mánuði hefur vísi-
tala framfærslukostnaðar hækk-
að um 23.9%. Hækkun vísitölu-
nnar um 0.66% á frá maí til júní
svarar til 8.2% árshækkunar.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 3.0% og
svarar sú hækkun til 12.6% verð-
bólgu á heilu ári. —lg.
Trimmdagar
Ráðstefna
um
heilbrigði
í Evrópu
Þjóðviljinn minnir á Trimm-
dagana á Jónsmessu, 20. til 22.
júní. Föstudagurinn 20. júní er
dagur leikfiminnar, 21. júní er
dagur sundsins og 22. júní er dag-
ur gönguferða og skokks.
Vikuna fyrir Trimmdagana
verður haldin á Hótel Sögu Evr-
ópuráðstefna um heilbrigðismál.
Læknar og sérfræðingar frá öllum
Evrópulöndum mætast og efst á
blaði hjá þeim eru umræður um
holla hreyfingu og mataræði.
Trimmdagarnir eru hugsaðir
sem upphaf að því að sem flestir
fslendingar beini sjónum sínum í
ríkari mæli að eigin líkamlegri
velferð. Með aukinni framþróun
og tækni verða kyrrsetustörfin í
þjóðfélaginu æ fleiri og því er enn
brýnna en fyrr að standa vörð um
eigin heilbrigði og heilsu.
ljóst að ákveðnir aðilar í útgáfu-
stjórn Þjóðviljans eru þess mjög
fýsandi. Svavar hefur sjálfur ekki
látið uppi afstöðu sína opinber-
lega um málið.
Á fundinum í gær kom fram sú
skoðun að blaðamenn töldu hug-
myndina um að ráða nýjan rit-
stjóra að blaðinu, vera vantraust
á þá ritstjórnarstefnu, sem blaðið
hefur haft að undanförnu og ein-
ing verið um á ritstjórninni.
Engin ályktun var gerð á fund-
inum heldur ákveðið að bíða
átekta þar til útgáfustjórn Þjóð-
viljans hefur fjallað um málið á
mánudag. Það kom hins vegar
fram að nokkrir blaðamenn eru
ákveðnir í að segja upp störfum
verði nýr ritstjóri ráðinn í blóra
við vilja ritstjórnarinnar.
Þjóðviljinn hafði tal af Svavari
Gestssyni um málið en hann
kvaðst ekki vilja tjá sig að svo
stöddu. Sama afstaða var uppi
hjá ritstjórum blaðsins.
-ÞH/-v/-Sáf
Landbúnaður
Átak í sölu
dilkakjöts
Markaðsnefnd landbúnaðar-
ins hefur nú efnt til sérstaks kynn-
ingarátaks í því skyni að glæða
sölu og neyslu á íslensku dilka-
kjöti. Er vonast til þess að með
margþættu sölu- og kynningar-
átaki nú í sumar náist verulegur
árangur í að auka sölu á kjötinu.
Ætlast er til þess að í sumar
verði 4 ntilj. kr. varið til þessa
markaðsátaks. Verður kjötið
auglýst og selt undir heitinu „ís-
lenskt fjallalamb". Miðar her-
ferðin öll að því að undirstrika þá
sérstöðu íslenska dilkakjötsins að
vera hrein og ómenguð villibráð,
þar sem lambið nærist að mestum
liluta á villtunr gróðri og er slátr-
að að hausti án þess að hafa svo til
nokkurn tíma komið í hús.
Markaðsnefndin hefur leitað
eftir víðtæku samstarfi við
dreifingaraðila og smásala um
þetta kynningarátak. Gert er ráð
fyrir því, að sveit sérfróðra
manna í meðhöndlun og frani-
leiðslu dilkakjöts heimsæki versl-
anir um allt land nú í sumar, vinni
þar með kaupmönnum og kjöt-
iðnaðarmönnum, gefi og þiggi
góð ráð, fylli kjötborðin af til-
reiddu og lystaukandi dilkakjöti
og örvi neyslu eins og frekast er
unnt. Jafnframt verður kjötið
auglýst sem hráefni á útigrillið og
í hefðbundna matreiðslu.
Áhersla verður lögð á rétta með-
höndlun fyrir notkun og tilraun
gerð til þess að auka enn frekar á
vinsældir þessa einstaka sérís-
lenska hráefnis.
Björg Þorleifsdóttir og Danfríður Skarphéðinsdóttir: töldum nauðsynlegt að ísland slægist í hóp annarra Norðurlanda-
þjóða á Kílarvikunni. Ljósm. Sig.
Landkynning
ísland á Kielarviku
ísland með í annað skiptið í landkynningu sem haldin er á sumarhátíð
borgarinnar Kiel í Þýskalandi. Danfríður Skarphéðinsdóttir: Við
söknuðum Islands meðal hinna Norðurlandanna og ákváðumþví
sjálfar að taka til okkar ráða
ar á ferðaþjónustu á Islandi.
Danfríður sagði að það hefði
verið áberandi í fyrra hvað fólk
hafði mikinn áliuga á að fræðast
um landið. Þá voru þær með
myndabandasýningu í bás íslands
og m.a. var sýnt myndband um
íslenska hestinn sem vakti mikla
athygli.
Borgarstjórnin í Kiel býður
stjórnmálamönnum frá öllum
þátttökuþjóðunum og þekktust
nokkrir íslenskir stjórnmála-
menn boðið í fyrra. ______Sáf
Kynningarátakið nú í sumar er
fyrsti þáttur víðtækra aðgerða til
þess að styrkja stöðu íslenska
dilkakjötsins á marknum. Endur-
skoðun á ýmsum framleiðsluþátt-
urn og aðlögun að ýmsum óskum
og þörfurn neytenda, samfara
markvissri kynningarstarfsemi er
á næstu árum ætlað að varðveita
og efla þá afdráttarlausu sér-
stöðu, sem villt íslenskt fjalla-
lamb hefur haft meðal íslenskra
neytenda til þessa.
-mhg
Neytendasamtökin
Mótmæla nafnbirtingu
hjá happdrættunum
Nauðsynlegt að hiðfyrsta verði reglur um happdrœtti endurskoðaðar
og sett skýr ákvæði um framkvœmd þeirra
Vikuna 21.-29. júní er haldin
árleg Kielarvika í Norður-.
Þýskalandi. Hátíð þessi er sumar-
hátíð borgarbúa og er ýmislegt á
dagskrá þessa vikuna, svo sem
siglingakcppni og aðrar
skemmtanir. Miðpunktur vik-
unnar er svo alþjóðlegur markað-
ur í miðborginni í Kiel og taka um
30 þjóðir þátt í kynningunni.
Islendingar eru nú með í annað
skiptið, en það eru þrjár ungar
konur, sem allar hafa stundað
nám í Kiel, sem sjá um þátttöku
okkar íslendinga. Það eru þær
Lovísa Birgisdóttir, sent býr í
Kiel og þær Danfríður Skarphéð-
insdóttir og Björg Þorleifsdóttir,
sem eru komnar aftur heim til ís-
lands eftir nokkurra ára náms-
dvöl í Kiel.
Danfríður sagði í samtali við
Þjóðviljann, að ástæðan fyrir því
að þær réðust í þetta í fyrra væri
sú að þær hefðu saknað íslands
meðal Norðurlandanna, þegar
þær voru í Kiel á sínum tíma.
Sagði hún að þær væru allar áhug-
amanneskjur um ferðamál og
þegar þær hefðu séð hversu vel
hin Norðurlöndin voru kynnt á
hátíðinni hefðu þær ákveðið að
gera eitthvað í málinu.
í ár munu þær kynna Llenskar
lopapeysur, fiskafurðir og íslensk
skáldverk á þýsku, auk sjálfrar
landkynningarinnar og kynning-
Stjórn Neytendasamtakanna
hefur sent frá sér ályktun þar sem
harðlega eru fordæmdar allar
hugmyndir og hótanir happ-
drætta um að birta opinberlega
nöfn þeirra sem hefðu fengið
vinning meðþvíað kaupa miða.
Hvetja samtökin til þess að reglur
um happdrætti verði teknar til
endurskoðunar og sett skýr
ákvæði um hvernig þeir sem fá
leyfi til að efna til happdrættis
standi að framkvæmd mála.
Segja samtökin að full ástæða
sé til að gagnrýna söluaðferðir
happdrætta í ýmsum tilvikum. Til
dæmis þegar beitt er þeim sál-
fræðilega þrýstingi að tengja
happdrættismiða ákveðnum ein-
staklingum með því að nota sím-
númer hans eða bifreiðanúmer.
„Með þessu er einstaklingurinn
settur í þá stöðu, ef hann kaupir
ekki miða, að eiga það á hættu að
sjá númer sitt dregið til vinn-
ings."
Jafnframt benda Neytenda-
samtökin á það í ályktuninni að
einfalt sé fyrir almenning að
komast undan póstsendingum af
því tagi sem hapdrættin séu með,
með því að fara fram á það við
Hagstofuna að nafn viðkomandi
sé tekið af þeirri skrá sem notuð
er til þessara póstsendinga.
—lg-
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3