Þjóðviljinn - 13.06.1986, Qupperneq 7
Á
keyrslu
mecLi
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir
Grammið
1. The Smiths - Big Mouth strikes again
2. Peter Gabriel- So
3. Easterhouse- Insperation
4. Loyd Coaland the Commotions- Easy Pieces
5. Simply Red- Picture Book
6. New Order- Shellshock
7. Rober* Wyatt- Old Rotten Hat
8. Siouxsie and the Banshies - Tinderbox
9. Microdisney The Clock comes dawn the Stairs
10. Lou Reed- Mistral
Rás 2
1) ( 1) Lesson in love - Level 42
2) ( 2) Svart-hvíta hetjan mín - Dúkkulísur
3) (19) Re-sett-ten - Danska fótboltalandsliöiö
4) ( 4) Greatest love of all - Withney Houston
5) ( 9) Holding back the years - Simply Red
6) ( 7) Invisible toutch - Genesis
7) (18) Sledge hammer - Peter Gabriel
8) (14) Bad boy - Miami sound machine
9) ( 6) Live to tell - Madonna
10) (12) Can’t wait another minute - Five star
Robert, Davíð, Einar við trommurnar og Össur bassaleikari...
og sú sem virðist eiga
mesta f ramtíð fyrir sér af
þeim íslensku nýju sveitum
sem nú eru starfandi.
Hljómleikarnir í Unglingaat-
hvarfinu enduðu nokkuð skyndi-
lega - Röddin hvarf af sviðinu inn
í kompu baksviðs og lokaði á eftir
sér - greinilega ekki ánægð með
áheyrendur. Reyndar fannst mér
það óþarfa viðkvæmni, jafnvel
þótt einhver hefði sagt að þetta
væri fín hljómsveit ef söngvarinn
syngi betur. Ómakleg athuga-
semd því að Davíð hefur ágæta
rödd - enda heyrðust ekki fleiri
slíkar - hinsvegar jákvæð orð um
hröð lögin, sem hæfðu umhverfi
og áheyrendum vel. En það sem
mér finnst aðal Raddarinnar er
hversu melódísk lögin eru þrátt
fyrir keyrsluna og hraðann. En
nóg um þessar vangaveltur,
látum Raddardrengina leggja orð
í bönd yfir kaffiborði í Unglinga-
athvarfinu.
- Semjið þið lögin í samein-
ingu?
Össur bassaleikari: Ég sem yf-
irleitt grunnana fyrst, Róbert út-
setur svo ofan á þá - hann sér um
þetta melódíska - og Davíð
semur textana.
- Eru öll lögin ykkar svona
hröð?
- Já, nema eitt - við erum með
eitt rólegt lag á prógramminu.
- Pið spilið eingöngu frum-
samin lög - hvað eigið þið mikið
efni á lager?
- Við eigum nógu mörg lög til
að geta spilað stanslaust í tvo
klukkutíma, en það mundu fáir
halda út á okkar hraða í svo
langan tíma, sérstaklega ekki við
sjálfir - við hreyfum okkur líka
það mikið þegar við spilum að við
verðum alveg uppgefnir. Svo
mikil keyrsla dugir ekki lengi -
klukkutími er hámark í einu.
- Hvernig gengur með plötuna
sem þið œtlið að gefa út?
- Við eigum eftir að hljóð-
blanda tvö lög - hún kemur út
eftir svona mánuð. Láttu það
koma fram að fyrstu fimmtíu
... í návígi við áhorf- og heyr-endur... kammermúsik?
í Unglingathvarf inu við
T ryggvagötu 12 voru
nokkrum sinnum í fyrra-
sumar haldnir hljómleikar
og stendur til að taka aftur
til við slíkt í sumar. Fyrstu
hljómleikarnir voru á dag-
skrá síðastliðinn laugardag
og hljómsveitin RÖDDIN
fengin til að ríða á vaðið.
Ekki varð eins mikið úr
hljómleikunum og til stóð,
skúraveður og fyrirtækið
lítið sem ekkert auglýst.
Röddin spilaði þó inni í
ágætis skúr þarna í portinu
- nokkur lög fyrir nokkra
áheyrendur. Þeir sönnuðu
eins og áður þegar undirrit-
uð hefur verið viðstödd, að
hér er góð hl jómsveit á ferð
Föstudagur 13. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7