Þjóðviljinn - 13.06.1986, Side 9
HEIMURINN
S-Afríka
Neyðarástandslög í landinu
S-Afríkustjórn hefur lögleitt neyðarástandslög sem gera það að verk-
um að öryggissveitir hafa svo til óskoruð völd til að hafa upp á svo til
hverjum sem er og eru þœr nú svo til utan við lög og rétt
Lög og regla. Öryggissveitir eru nú á ferð um alla S-Afríku, en nýju lögin kveða
svo á um að nú eru sveitirnar utan við lög og rétt.
N-írland
Þingið leyst upp
Mótmœlendur hættu að starfa á hinufjögurra ára
gamla heimaþingi vegna óánœgju með ensk-írska
samkomulagið ogþað endaoimeðþvíað breska
stjórnin leysti þaðupp
London — Breska ríkisstjórnin
tilkynnti í gær að þingið á N-
Iriandi hefði verið leyst upp
þar sem því hefði ekki tekist að
leysa deilur kaþólskra og
mótmælenda.
Það var Norður-írlandsmála-
ráðherrann, Tom King sem
skýrði frá þessu í gær á breska
þinginu. Hann sagði um n-írska
þingið sem sett var á stofn fyrir
fjórum árum til þess að bera fram
tillögur um að færa landinu
heimastjórn og að hafa eftirlit
með beinni stjórn frá London:
„Nú er staðan sú að þingið sem
átti samkvæmt Norður-
London — Atvinnuleysi eykst
stöðugt í Bretlandi, eftir maí
mánuð eru 13,3 % vinnufærra
manna í landinu atvinnulausir.
Embættismenn sögðu í gær að
atvinnuleysistölur hefðu lækkað
um 54.166 manns í 3,270.892 eða
13.5 % vinnuaflsins. Þessi lækk-
un er hins vegar undir meðaltal-
slækkun í maí, þegar atvinnutæk-
ifæri aukast með komandi surnri.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra hefur hvað eftir annað
neitað kröfum um að aukin verði
fjárframlög ríkisins til sköpunar
nýrra atvinnutækifæra. Stjórnin
írlandslögum frá 1982 að leysa
tvö mikilvæg mál, hefur ekki
leyst úr neinu.“ King sagði að
ekki væri verið að afnema þingið,
aðeins verið að leysa núverandi
þing upp þannig að möguleiki
gæfist á nýjum kosningum. Hann
vildi ekkert segja um það hvenær
þær yrðu haldnar.
Upplausn þingsins er tilkomin
vegna óánægju mótmælenda á N-
Irlandi varðandi ensk-írska
samkomulagið sem breska
stjórnin gerði við írska lýðveldið
á síðasta ári. Samkvæmt því fær
stjórnin í Dublin ákveðin at-
kvæðisrétt um málefni N-írlands.
heldur því fram að slíkar ráðstaf-
anir myndu spilla fyrir áætlunum
hennar um að draga úr verðbólgu
sem nú er urn 3 %.
Talsmenn stjórnarinnar halda
því fram að frá mars 1983 þar til í
desember 1985 hafi verið sköpuð
ein milljón nýrra atvinnutæki-
færa. Gagnrýnendur hennar af-
neita þessu og segja að mörg
þessara nýju atvinnutækifæra séu
aðeins hlutastörf. Atvinnuleysi í
Bretlandi er einna mest meðal
iðnvæddra þjóða. Það er aðeins
meira meðal Hollendinga en í
Japan Bandaríkjunum og V-
Þýskalandi er það mun minna.
London — Hin hvíta minni-
hlutastjorn Suður-Afríku til-
kynnti í gær að sett hefðu verið
neyðarástandslög í landinu til
þess að ná tökum á óeirðum
sem geisað hafa undanfarið
og kunna að verða. Auk þess
handtók herlögreglan mörg
hundruð svarta herskáa rót-
tæklinga.
Þessar aðgerðir komu ekki á
óvart en þær voru fordæmdar
harðlega víða um heim. Varað
var við að þær myndu hafa í för
með sér blóbað í landinu en á
síðustu 27 mánuðum hafa 1600
manns látist þar í óeirðum. Á
næstkomandi tnánudag verða 10
ár liðin frá því næstum 6oo manns
létust í óeirðum í Soweto og hafa
leiðtogar svartra hvatt til þess að
þeirra verði minnst með funda-
höldum þó svo stjórnin hafi ný-
lega sett lög sem banna þau.
Bandaríkjastjórn gagnrýndi í
gær neyðarástandslögin harka-
lega, sagði þær þvingunaraðgerð-
ir stjórnvalda gegn svörtum og að
S-Afríkustjórn hefði gert alvar-
leg mistök. Reagan stjórnin hef-
Bugojno
Karpof
vann
Bugojno — Anatólí Karpof,
fyrrum heimsmeistari frá
Sovétríkjunum varð sigur-
vegari í „sterkasta skák-
móti heims“, sem lauk í
gær.
Hann náði þeim 8,5 vinn-
ingum sem þarf til sigurs með
því að gera jafntefli við Tony
Miles frá Bretlandi. Með sigr-
inum fékk hann 6000 dollara í
verðlaun. Boris Spasskí sem
nú teflir fyrir Frakkland, gerði
jafntefli við Jan Timman frá
Hollandi og varð í öðru sæti.
Risahumar
Lifði í eina
og hálfa öld
Galveston, Texas — Risa-
humarinn, Conan, sem lifði
af bandarísku borgarastyr j-
öldina seint á 19. öld og
nýlega matarveislu í Texas,
er loksins dauður, rúmlega
150 ára gamall.
Vísindamenn áætla að Con-
an hafi orðið 154 ára gamall.
Þessi risahumar sem fannst í
Maine, á austurströnd Banda-
ríkjanna, hafði næstum lent í
matarveislu einni mikilli í
Texas en var bjargað á síðustu
stundu fyrir þrýsting frá al-
menningi sem frétti af þessum
humri í fjölmiðlum. Hann var
fluttur í stórt ker í sjódýras-
afni í Texas þar sem átti að
hafa hann til sýnis, þar lést
hann síðan í vikunni.
Conan hefur verið frystur
og verður að öllurn líkindum
grafinn í sædýrasafninu í Gal-
veston, mun það vera gert
sem virðingarvottur við hinn
aldna humar. „Hann verður
ekki étinn og hann verður
ekki stoppaður upp“, sagði
John Serivan forstöðumaður
safnsins.
ur hingað til verið talinn nánasti
af fáurn vinum stjórnvalda í S-
Afríku. Larry Speakes, talsmað-
ur forsetans sagði að Bandaríkja-
stjórn væri orðlaus yfir þessurn
aðgerðum sem eiga sér ekki for-
dæmi. Fjölmargar aðrar þjóðir
fordæmdu aðgerðirnar.
Aðgerðir S-Afríkustjórnar
voru yfirleitt túlkaðar á þann veg
að stjórnvöld hefðu ákveðið að
ögra almenningsáliti heimsins og
setja herinn til höfuðs andspyrn-
uhreyfingu svartra manna. Sam-
einaða lýðræðishreyfingin
(UDF) sem í eru tvær milljónir
manna, tilkynnti úr felurn í dag
að hún byggist við miklu blóð-
baði á mánudaginn.
Tilkynnt var um lögin hálfurn
sólarhring eftir að þau gengu í
gildi þannig að lögregla og her
næðu forskoti tii að handtaka þá
sem berjast gegn kynþáttaað-
skilnaðarstefnunni. „Botha er að
taka öryggisventilinn af,“ sagði
einn svartur fréttamaður þegar
öryggissveitir þeystu inn í hverfi
svartra til að handtaka fólk.
„Með því að handtaka leiðtogana
er hann einfaldlega að flýta fyrir
því, að rniklar ofbeldisaðgerðir
verði,“ sagði talsmaður UDF,
Murphy Morobe, en hann var í
felum eins og aðrir leiðtogar sam-
takanna.
Lögreglan og öryggissveitir
hennar hafa nú öðlast geysimikið
vald í landinu og hún sýndi for-
smekkinn af því með því að loka
öllum inngönguleiðum inn í Sow-
eto hverfið fyrir þeirn sem ekki
búa þar, auk þess gefur hún nú
engar upplýsingar til fréttamanna
urn átök í hverfum svartra.
Upplýsingar lögreglunnar hafa
verið mikilvægar fyrir fréttamenn
til þess að komast að því hvað er
að gerast þar.
Oryggissveitir gerðu áhlaup
fyrir dögun í gær á aðsetur verka-
lýðsfélaga, hópa sem berjast
gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn-
unni og mannréttindahreyfinga
en fjölmargir róttæklingar höfðu
þegar farið í felur. Hvítir
stjórnmálamenn í stjórnarand-
stöðunni og menn í viðskiptum
lýstu yfir undrun sinni á lögunum
og vöruðu við því að aðgerðirnar
nryndu einangra S-Afríku enn
frekar og leiða til þess að settar
yrðu efnahagslegar þrýstiaðgerð-
ir á landið. Botha, leiðtogi stjórn-
arinnar, sem verið hefur undir
þrýstingi undanfarið frá hægri-
sinnuðunt hvítum mönnum fyrir
að reyna að friðmælast við svarta,
sagði hins vegar á s-afríska þing-
inu í gær að aðgerðirnar hefðu
verið nauðsynlegar til að komast
hjá ntiklum óeirðum sem hann
sagði að hefðu verið skipulagðar
16. til 18. júní næstkomandi.
Neyðarástandslögin eru mun
harkalegri en þau sem áður hafa
verið samþykkt, fyrri lög hafa að-
eins náð yfir hluta landsins. Nú
eru öryggissveitirnar utan ramma
laganna. Neyðarástandslögin
nýju munu verða til þess að lítið
vérður um sjónvarpsfréttamynd-
ir eða almennar fréttir af óeirðum
frá landinu.
Ólympíuleikar
Síðasta boð
Lausanne — Alþjóðaólympíu-
nefndin (IOC), bar í fyrradag
fram tillögu um að N-
Kóreumenn myndu sjá um
framkvæmd borðtennis og
bogfimikeppni á komandi ól-
ympíuleikum eftir tvö ár sem
upphafiega áttu allir að fara
fram í S-Kóreu.
Formaður nefndarinnar, Juan
Antonio Samaranch, sagði að
þetta væri lokatilboð nefndarinn-
ar til N-Kóreuntanna. Þeir hafa
krafist þess að fá jafnan hlut af
Ólympíuleikunum á við S-
Kóreu. Samaranch gaf Kóreu-
þjóðunum tveimur frest til 30.
júní til að santþykkja tilboð IOC.
Nefndin lagði einnig fram tillögu
um að 100 km hjólreiðakeppnin
myndi hefjast norðan megin og
enda í Seoul, höfuðborg S-
Kóreu. Sömuleiðis að einn hinna
fjögurra knattspyrnuriðla á
leikunum færi fram í Pyongyang,
höfuðborg N-Kóreu. N-
Kóreumenn verða aftur á móti að
samþykkja að opna landamæri
sín að fullu „meðlimum Ólympí-
ufjölskyldunnar".
í þeirri fjölskyldu eru um það
bil 30.000 manns, íþróttamenn,
þjálfarar, formenn ólympíu-
nefnda hvers lands fyrir sig og
fréttamenn. Samaranch sagði að
spurningin um ferðafrelsi áhorf-
enda yrði hins vegar aðeins rætt
þegar og ef boðið hefði verið
samþykkt.
N-Kórea hefur krafist þess að
leikarnir yrðu haldnir til jafns af
báðum hlutum Kóreu. Einnig að
skipulagsnefndin verði sameigin-
leg svo og opnunarathöfnin.
Forseti S-Kóreu Chun Doo Hwan, vill ólmur fá Ólympíuleikana til að vega upp á
móti slakri frammistöðu á forsetastóli.
Bretland
Atvinnuleysi eykst
Nú eru rúm 13 % vinnufœrra manna atvinnulausir í
Bretlandi og Thatcher neitar að setja aukiðfé í að
skapa ný atvinnutækifœri