Þjóðviljinn - 13.06.1986, Page 14
NRON og ASÍ/BSRB
Samanburður
á verði gisti
þjónustunnar
Talsverður munur áverði eftirstöð-
um
Neytendafélag Reykjavíkur og
nágrennis, ASI og BSRB hafa
gert könnun á verði gistingar og
annarrar þjónustu á ýmsum hót-
elum og gististöðum landsins. Var
könnunin gerð dagana 6.-11.
júní. Hér á eftir birtum við töflu
yfir stöðina sem kannaðir voru og
jafnfram skýringar frá þeim sem
könnunina gerðu.
„Vegna fjölda hótela og gistist-
aða á landinu nær könnun þessi
aðeins til hluta þeirra og er þeim
raðað þannig að byrjað er á
Akranesi og síðan réttsælis um
landið.
Sérstök áhersla er lögð á að
íburður herbergja er mjög mis-
munandi, t.d. sími, sjónvarp, ís-
skápur o.fl., og einnig önnur
þjónusta sem er í boði. Ekki er
tekið tillit til þessa í könnuninni.
Nefna má ýmsa aðra gisti-
möguleika eins og Ferðaþjónustu
bænda. Víða hjó þeim er hægt að
fá leigð sumarhús og hjólhýsi.
Eftirfarandi verð er vikuleiga á
sumarhúsunum þeirra: 3-5
manna, 9,500 kr. 6-10 manna,
11,500 kr. Hjólhýsi minnst 4
manna, 5.000 kr. á viku.
Hótel KS í Vík í Mýrdal leigir
út sumarhús sem eru með
tveimur tveggja manna herbergj-
um og er húsið leigt á 3,000 kr.
yfir nóttina.
Gistihúsið Mosfell á Heilu
leigir einnig út sumarhús og
tjaldstæði. Um er að ræða 3
stærðir húsa. Lítið 4 manna hús
kostar 1,200 kr. yfir nóttina.
Stærra 4 manna hús er leigt á
1,980 kr. og 6 manna á 2,990 kr.
yfir nótt.
Farfuglaheimilin bjóða upp á
gistingu á 19 stöðum á landinu. Á
þessum stöðum er bæði eldunar-
og hreinlætisaðstaða.
Nánari upplýsingar um gisti-
staði innanlands gefur Ferða-
málaráð íslands, Laugavegi 3,
Reykjavík.
FRETTIR
1 m. herb. 1 m. herb. 1) 2 m. herb. 2 m. herb. . 2) Aukarúm/ Svefnp. Morgun- MDla- Gos
án baðs m/baði án baðs m/baði dýna, umb. pláss veróur kaffi
Ik'itol Akr .u >cs, Akxancs i 1.100 1.500 300 220 45 50
IkStel Bifröst, Borgarfirði 1.150 1.500 1.500 1.950 300 250 250 60 70
Ik'itel Stykkisl>óInur,Stykkish. 1.890 2.350 450 250 60 100
Ik'jtcl Búðir.Sruefellsncsi 1.100 1.600 250 300 60 -35 i versl.
Mótel Búðardalur.BúðéLrdal 1.000 1.450 300 250 250 50 50
Gistih.Vegamót.Bildudal 1.000 1.500 300 250 200 30 25
llótel Hólnavik,lkf>lnavik 850 1.250 250 260 230 50 50
Hótel ísafiöróur,Isaf. 1.950 2.450 300 250 60 80
-"- heimavist,Isaf. 1.200 1.500 450
Ikf>tel Blönduós,Blönduósi 1.150 1.800 1.500 2.200 350 350 250 60 70
lkf>tel 1t>rg, Sauðárkrók 1.100 1.550 1.550 1.950 300 210 35 30
lkf>tel Ftelifell,Sauóárkrók 1.250 1.500 1.500 1.950 300 310 250 60 80
lkf>tel Höfn,Siglufirói 1.050 1.300 200 50 50
Gistlh.,Akureyri 800 1.100 300 300 200 40 35
Ikitel Akureyri,Akureyri 900 1.200 1.200 1.500 300 180 35 ^25 litið gl. ^•35 st. gl. 35/70 teria/rrats.
Hótel KEA,Akureyri 2.250 3.100 615 300 41/67
Ikbtel Stefania,Akureyri 1.500 2.150 2.000 2.900 350 280 innif. 40
-"- heimavist,A.ey. 1.000 1.500
Hótel Varðborg,Akureyri 900 1.800 1.300 2.200 500 220 40 45
Hótel Reykjahliö,Mývatni 1.060 1.560 250
Hótel Reynihlið,Mývatni 1.070 1.890 1.680 2.400 440 210 60 55
lkf>tel Húsavik,Húsavik 1.100 1.700 1.650 2.300 300 250 50 50
Hótel Horðurljóe,Raufarhöfn 1.100 1.500 300 450 230
Gistih. Tangi,Vopnafirði 850 1.250 300 250 50 40
lkf>tel Egilsstaðir,Egilsst. 900 1.200 1.600 300 400 200 50
Ikf>tel Valaskjálf ,Egilsst. 1.100 1.500 1.500 1.950 600 250 250 70 60
Hótel Sn*fell,Seyóisfirói 1.300 1.600 250 250 50 50
Hótel Askja,Eskifirði 1.000 1.800 250 250 innif. 50
lkf>tel Bláfell,Breiódalsv. 1.150 1.500 300 250 250 50 35
Hótel Hi3fn,Höfn,Homafirði 1.260 1.890 1.770 2.350 500 250 50 80
Gi s t ih. He imir, Ves tm. ey j um 1.000 1.400 1.300 1.600 500 úr issk. á
Gistih.Skútinn,Ves tm.eyjum 1.000 1.300 500 400 200 75 70
lkf>tel Gestgjafinn,Vestm. 1.435 1.970 1.750 2.430 400 250 50 50
Hótel KS,Vik i Mýrdal 950 1.400 250
lkf>tel Hvolsvollur.Hvolsv. 1.150 1.500 1.950 300 450 250 50 60
Gistih.ítosfell,Hellu 1.150 1.500
lkf>tel Selfoss,Selfossi 1.450 1.950 725 250 60 80
lkf>tel hóristún.Selfossi 1.190 1.600 1.600 1.950 330 250
Ikótel Valhöll,I>ingvöllLBTi Bláa lóniö,Svartsengi 1.500 1.680 3) 1.950 2.000 3) 300 615 3) 260 60 40 e.mat 60 60 60
Hótel Keflavik,Keflavik 1.900 2.300 400 200 50
EDOU - liótclin, á 20 stöðum á landinu 1.150 1.500 1.500 1.950 300 250 250 60 40 e.mat 55
I'orðabjónusta hmda, á 72 stöóvm á landinu 1.700 31 250
llÆsta verð 1.500 2.250 2.000 3.100 725 450 300 75 100
Lagsta verð 800 1.200 1.100 1.500 250 250 180 30 21
Munur i kr. 700 1.050 900 1.600 475 200 120 45 79
Munur í l 87,5 87,5 81,8 106,7 190 80 66,7 150 376,2
Þar sem baö er ekki inni á herbergjum er yfirleitt baðherbergi frammi á
gangi.
Gjaldíö miðast við umbúið rúm eðadýnu. Yfirleitt kostar ekkert að fá
aukarúm eða dýnu fyrir börn, sofi þau í svefnpokum.
Morgunverður innifalinn í gistiverði.
HITTOG ÞETTA
Trimm
Ný aðstaða til allra handa leikfim-
is og líkamsræktar opnar í Fella-
helli. Húsið opið LA: 10-16.
Nonnahús
Starfsemin hefst með kynningu á
NonnaSU: 16. Sögustund fyrir
börn SU: 17. Sumarstarfsemin
opnarformlega LA: 14.
Hananú!
Frístundahópurinn Hana nú í
Kópavogi fer í vikulega laugar-
dagsgöngu frá Digranesvegi 12
LA: 10.
Sjóminjasafnið
Sjóminjasafn íslands í Bryde-
pakkhúsinu í hjarta Hafnarfjarðar
er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14-18. Þar er nú sýn-
ing á gufuskipatímabilinu, milli-
landa- og strandferðasiglingum í
byrjun aldarinnar, togaraútgerð
og saltfiskverkun, upphafi stéttar-
baráttu sjómann á íslandi, ver-
kfærum til bátasmíða, líkan af
gufuvél, landhelgisgæslunni o.fl.
Þá er gestum boðið að skoða
kvikmyndina Lífið er saltfiskur
sem Lifandi myndir gerðu fyrir 50
ára afmæli FIS. Er kvikmyndin
sýnd á myndbandi, fyrri hlutinn kl.
15 og seinni hlutinn kl. 16.
Fiðlarafólk; frá vinstri Friðjón Árnason, Helga Sif Friðjónsdóttir, ZophoníasÁrnason og Gunnlaug Ottesen. Mynd G.Kr. J.
Akureyri
Nýr matsölustaður
Fiðlarinn opnaður á 5. hœð Alþýðuhússins
Á Akureyri hefur verið opnað-
ur nýr matsölustaður. Hann er til
húsa í nýja Alþýðuhúsinu við
Skipagötu og er uppi á 5. hæð.
Staðurinn hefur hlotið nafnið
FIÐLARINN. í anddyri Alþýðu-
hússins er lyfta.
Þegar komið er upp á 5. hæð er
útsýni hið besta og ætti enginn að
vera svikinn af því. Fiðlarinn er í
alla staði smekklega hannaður og
býður upp á þægilegt andrúms-
loft. Það er létt yfir innréttingum
sem eru að öllu leyti teiknaðar af
eigendunum, en smíðaðar hjá
Trésmiðjunni Þór á Akureyri.
Rúmgóðar svalir eru sunnan
við sjálfan matsölustaðinn, þar
sem gestir geta setið í „blíðunni"
og matast.
1. júlí í fyrra var fyrirtækið
„Svartfugl“ stofnað í þeim til-
gangi að hefja veitingarekstur í
Alþýðuhúsinu. Eigendur fyrir-
tækisins eru þau Gunnlaug Otte-
sen, reiknifræðingur, Zophonías
Árnason matreiðslumaður og
Friðjón Árnason hótelrekstrar-
fræðingur. Fyrirtækið rekur einn-
ig ráðstefnu- og fundaraðstöðu á
4. hæð hússins, en salurinn þar
tekur allt að 300 manns í sæti.
Þeim sal má síðan skipta niður í
tvo smærri sali.
Að sögn Friðjóns Árnasonar
hefur verið mjög gott samstarf
við eigendur hússins, sem eru
verkalýðsfélögin á Akureyri.
Hann benti líka á þann leiða mis-
skilning hjá sumum sem telja að
nafnið Svarfugl eigi við salinn á 4.
hæð. „Það er Alþýðuhúsið,"
sagði Friðjón. „Svartfugl er að-
eins rekstrarfélag."
Hjá fyrirtækinu starfa 18
manns, þar af 5 nemar í fram-
reiðslu og matreiðslu. Ekki er að
efa að Fiðlarinn á eftir að skipa
sér veglegan sess í veitingahúsa-
sögu Akureyrar, því hér er á ferð-
inni mjög smekklegur staður með
fyrsta flokks útsýni. Á matmáls-
tímum verður lifandi tónlist, en
sá liður er í höndum Michael Jóns
Clarke.
Eini ókosturinn við það að
vera kominn svona hátt upp er sá,
að þá sér maður ofan á húsþökin
við Hafnarstrætið. Það er full
ástæða fyrir verslunareigendur
við þá götu að gera sér ferð upp á
Fiðlarann og horfa á fasteignir
sínar úr lofti. Etv. sæi þá einhver
sóma sinn í því að fjárfesta í
pensli og málningardós, að mað-
ur tali nú ekki um kúbein til að slá
timbur frá áratuga gömlum
steinvegg sem blasir við.
Eins og málin horfa núna snýr
maður sér ósjálfrátt frá þessari
götumynd og lítur út yfir Pollinn.
G.A.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. júní 1986