Þjóðviljinn - 13.06.1986, Side 15
ÍÞRÓTTIR
Brasilía-N. Irland
Loksins réttir taktar!
Tvö mörkfrá Careca í3-0 sigri. Zico kom inná
Brasilíumenn náðu loksins að
sýna eitthvað af þeirri snilli sem
knattspyrnan í heimaiandi þeirra
hefur orð á sér fyrir. I gærkvöldi
unnu þeir öruggan sigur á
Norður-írum, 3-0, og tryggðu sér
þar með sigur í D-riðli
heimsmeistarakeppninnar í Mex-
íkó. Þeir fengu ekki á sig mark í
leikjunum þremur, og það lofar
einnig góðu fyrir framhaldið hjá
þeim.
Norður-írar léku með fjóra
sóknarmenn en allt kom fyrir
ekki. Careca skoraði eftir send-
ingu frá Muller og rétt fyrir hlé
kom stórkostlegt mark. Josimar
skaut af 30 metra færi, óverjandi
þrumufleygur fyrir Pat Jennings
sem í gær varð 41 árs og lék sinn
Spánn-Alsír
Mikil haríca
Prír Spánverjar og markvörður Alsír
slösuðust
119. og síðasta landsleik fyrir
Norður-írland.
Brasilíumenn gáfu nokkuð
eftir í seinni hálfleik og Norður-
írar áttu nokkur ágæt skot á mark
þeirra. Zico kom inná hjá Brasil-
íu í fyrsta sinn í keppninni, í stað-
inn fyrir Socrates sem gekk af
leikvelli við dynjandi lófatak
áhorfenda. Careca skoraði aftur
á lokamínútunum, 3-0.
Brasilíumenn leika við Pól-
verja á mánudaginn en Norður-
írar halda heimleiðis, þeir kom-
ast ekki áfram þótt þeir hafi lent í
þriðja sæti í riðlinum þar sem þeir
hlutu aðeins 1 stig.
—VS/Reuter
Alsír tókst ekki að leika eftir
afrek nágranna sinna frá Mar-
okkó og komast í 16-liða úrslit
heimsmeistarakeppninnar. Spán-
verjar sáu til þess með því að
sigra afríska liðið 3-0 í gærkvöldi,
í leik sem einkenndist af mikilli
hörku.
Þrír Spánverjar meiddust í
leiknum, Salinas, Butrageno og
Miguel, og þurftu tveir þeir síðar-
nefndu að fara af leikvelli. Drid,
markvörður Alsír, meiddist illa á
upphafsmínútunum þegar „slátr-
arinn“ Goicoechea braut illa á
honum og var fluttur á sjúkrahús
eftir aðeins 19 mínútna leik,
meiddur á höfði, hálsi og öxlum.
„Ég hélt að dómurum hefði
verið fyrirskipað að koma í veg
fyrir ójparfa hörku í leikjunum.
Mér er sama við hverja við
Leikirnir á HM í gær, úrslit,
lokastaða, markaskorarar
og liðsuppstillingar:
D-riðill:
Brasilía-N.írland 3-0 (2-0)
Guadalajara, 12. júní
Dómari: Kirschen (A.Þýskalandi)
Áhorfendur 51,000
1-0 Careca (15.), 2-0 Josimar (41.), 3-0
Careca (87.)
Brasilía: Carlos, Josimar, Cesar, Edin-
ho, Branco, Elzo, Alemao, Junior, Socrat-
es (Zico 68.), Muller (Casagrande 27.),
Careca.
N.írland: Jennings, Nicholl, Donaghy,
ONeill, McDon íld, McCreery, Mcllroy,
Stewart, Clarke, Whiteside (Hamilton 68.),
Campell (Armstrong 72.).
Spánn-Alsír 3-0 (1-0)
Monterrey, 12. júní
Dómari: Takada (Japan)
Áhorfendur: 23,900
1-0 Caldere (15.), 2-0 Caldere (69.), 3-0
Eloy (71.)
Spánn: Zubizarreta, Renones, Camac-
ho, Victor, Goicoechea, Butrageno (Eloy
46.), Gallego, Francisco, Caldere, Salinas,
Michel (Senor 65.)
Alsír: Drid (Larbi 19.), Megharia, Manso-
uri, Korichi, Guendouz, Kaci-Said, Madjer,
Maroc, Harkouk, Belloumi, Zidane (Menad
59.)
Lokastaðan i D-riðli:
Brasilía................3 3 0 0 5-0 6
Spánn...................3 2 0 1 5-2 4
N.lrland................3 0 1 2 2-6 1
Alsír...................3 0 12 1-51
Leikir í dag
E-riðill: V.Þýskaland-Danmörk
E-riðill: Uruguay-Skotland
Markahæstir á HM:
Sandro Altobelli, ftalíu.............4
Preben Elkjær, Danmörku.............4
Careca, Brasilíu.....................3
Gary Lineker, Englandi...............3
Jorge Valdano, Argentínu.............3
leikum í næstu umferð, bara ef
við fáum dómara sem verndar
leikmennina og fer eftir reglum,“
sagði Miguel Munoz, landsliðs-
einvaldur Spánar, eftir leikinn.
Kollegi hans hjá Alsír, Rabah Sa-
adane, tók undir með honum að
leikurinn hefði verið alltof
grófur.
Ramon Caldere, sem lék í stað
hins meidda Rafaels Gordillo,
skoraði tvö markanna. Það fyrra
eftir korter, eftir sendingu frá
Salinas, og það seinna eftir miðj-
an seinni hálfleik. Varamaðurinn
Eloy sá um þriðja markið.
Spánverjar leika við sigurveg-
arann í E-riðli, Vestur-Þýskaland
eða Danmörku, í 16-liða úrslitum
en Alsírbúar hverfa heim á leið.
—VS/Reuter
Andoni Goicoechea, „slátrarlnn
frá Bilbao“ sendi markvörö Alsír á
sjúkrahús.
Kvennaknattspyrna
Fóm heim!
Flautað afí Kópavogi. Þrenna Heru
gegnÍBK
Ekkert varð af leik Breiðabliks
og Hauka í 1. deildinni í Kópavogi
í gærkvöldi þar sem þjálfari
Hauka, Loftur Eyjólfsson,
neitaði að af honum yrði. Dómar-
inn kom 15 mínútum of seint og
línuverðir mættu ekki. Þegar þeir
mættu, 36 mín. eftir að leikurinn
átti að hefjast, var Loftur búinn
að senda lið sitt heim. Dómarinn
flautaði leikinn á og af —
Breiðablik telst því sigurvegari
þar til annað kemur í ljós. Dóm-
ari var ekki boðaður á leikinn og
kemur það alltof oft fyrir, aðal-
lega þá hjá kvenfólkinu. Þarna
fór líka mikil vinna vallarstarfs-
manna fyrir lítið en hún hafði
verið mikil við að gera völlinn
leikhæfan.
Vh'sstúlkurnar áttu ekki í erf-
Handbolti
Pállá
heimleið?
Gæti leikið með Víkingi eða Val
Páll Ólafsson leikur ekki með
Dankersen í vestur-þýsku 2.
deildinni í handknattleik næsta
vetur. Stjórn félagsins ákvað að
endurnýja ekki samning sinn við
hann þrátt fyrir eindregnar óskir
þjálfara og leiknranna liðsins þar
að lútandi.
Páll hafði áhuga á að tara til
Spánar en ekkert verður af því
þarsem tímabil félagaskipta er
búið Til tals hefur komið að hann
fari til Þorbjarnar Jenssonar og
félaga í Malmö í Svíþjóð en Páll
hefur meiri áhuga á að leika hér á
landi næsta vetur. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans eru Vík-
ingur og Valur spennt fyrir því að
fá hann í sínar raðir — enda er hér
einhver snjallasti handknatt -
leiksmaður Islands á ferð.
—VS
Mexíkó
Eittsæti
em laust
Uruguay eða Skotland númer 16.
Leikum til sigurs, segir Piontek. Óhag-
stœtt V. Pjóðverjum og Dönum að sigra!
iðleikum með ÍBK á Valsvellin-
um í gærkvöldi. Þær réðu lögum
og lofum á vellinum frá fyrstu
mínútur til þeirrar síðustu og sigr-
uðu 6-0.
Fyrsta markið kom á 4. mín.
Viðstöðulaust skot Ingibjargar
Jónsdóttur hafnaði í þaknetinu.
Hera Ármannsdóttir bætti síðan
öðru við skömmu fyrir hlé. Hera
skoraði 2 í viðbót í seinni hálfleik,
Kristín Arnþórsdóttir 1 og Ragn-
hildur Sigurðardóttir 1, og segir
það nokkuð um hve yfirburðir
Hlíðarendaliðsins voru miklir.
Valsliðið var mjög jafnt en í liði
Keflavíkur voru það systurnar
Helga og Katrín Eiríksdóttir
ágætar ásamt Ingu Birnu Hákon-
ardóttur.
—MHM
Nú er Ijóst hvaða lið komast í
16-Iiða úrslit heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu í Mex-
íkó, nema hvað citt sæti er laust.
Það eru Uruguay og Skotland sem
leika hreinan úrslitaleik um það í
dag í E-riðlinum, Uruguay dugar
jafntefli en Skotar þurfa sigur.
Nokkuð heilleg mynd er komin
á hvaða lið mætast, nema hvað í
dag ræðst hverjir andstæðingar
Vestur-Þýskalands og Danmerk-
ur verða, svo og mótherjar Arg-
entínu. Eftir leikina í gærkvöldi
líta 16-liða úrslitin þannig út:
Mexíkó-Búlgaría
Sovétríkin-Belgía
Brasilía-Pólland
Argentína-Uruguay eöa Skotland
Italía-Frakkland
Marokkó-Danmörk eða V.Þýskaland
England-Paraguay
Spánn-V.Þýskaland eöa Danmörk
Vestur-Þjóðverjar og Danir
leika í dag úrslitaleik um sigur í
E-riðli og Dönum dugar jafntefli.
En það er athyglisvert að báðum
þjóðum myndi sennilega gagnast
betur að lenda í öðru sæti í riðlin-
um. Liðið sem verður númer tvö
mætir Marokkó í 16-liða úrslitum
og sigurliðið þar leikur við sigur-
vegarann úr leik Mexíkó og Búlg-
aríu í 8-liða úrslitum. Sigurliðið í
E-riðli leikur hinsvegar við Spán í
16-liða úrslitum og sá sem vinnur
þann leik á yfir höfði sér viður-
eign gegn hinum sterku Sovét-
mönnum í 8-liða úrslitunum!
Það er því ógerlegt að spá um
hvernig leik við fáum að sjá í
beinni útsendingu í dag. Þó má
búast við því að rígur grannþjóð-
anna og metnaður, og hin ó-
stjórnlega leikgleði dönsku leik-
mannanna geri viðureignina líf-
legri en vænta mætti.
„Auðvitað veltir maður því
fyrir sér hverjum maður mætir
næst og það gæti verið hagstætt
fyrir okkur að tapa. Leikmenn
mínir hugsa eflaust svipað. En ég
mun skipa þeim að leika til sig-
urs, ekkert annað kemur til
greina,“ sagði Sepp Piontek,
landsliðseinvaldur Dana —VS
Knattspyrna
Prinsinn til Parísar
Enzo Francescoli meðfimm ára samning við Racing Club
Enzo Franccscoli, hinn snjalli
sóknarmaður Uruguay og
Knattspyrnunraður ársins í
Suður-Ameríku 1985, er genginn
til liðs við Racing Paris, nýliðana
í frönsku 1. deildinni. Hann hefur
undanfarin ár leikið með River
Plate í Argentínu.
Francescoli hefur ekki náð að
sýna sínar bestu hliðar með
landsliði Uruguay í Mexíkó. Það
er fyrst og fremst talið vera vegna
hinnar stífu varnarleikaðferðar
liðsins, hann fellur ekki inní hana
og hefur sjaldan náð sér á strik
með landsliðinu. Með River
Plate hefur hann hinsvegar gert
þvílíka hluti að fáir leikmenn í
heimi standast honum snúning.
Kaupverð Francescolis er 2,5
miljónir dollara. Hann fær sjálfur
4 miljónir í laun næstu 5 árin,
glæsilega íbúð í rólegasta úthverfi
Parísar, 22 flugmiða, báðar
leiðir, milli Parísar og Montevi-
deo á ári og tvær lúxusbifreiðar
með einkabílstjórum. Hann er
kallaður „Prinsinn" í Argentínu
en virðist ósnortinn af allri
frægðinni. „í mínum huga er að-
eins til ein knattspyrnuhetja og
mun verða um ókomna framtíð
— Pele,“ segir Enzo Francescoli.
—VS/Reuter
Enzo Francescoli leikur listir sínar
í Frakklandi næsta vetur. En ná hann
og félagar hans í landsliði Uruguay
stigi gegn Skotum í dag?
Föstudagur 13. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15