Þjóðviljinn - 13.06.1986, Síða 16
Ríkisfjármálin
Lagður verður á óreiðuskattur
Ragnar Arnalds alþingismaður: Það er blekking að haldaþvífram að hœgtsé að komast út
úrþessum ógöngum í ríkisfjármálum án nýrrar tekjuöflunar
Eg vil ekki blekkja nokkurn
mann með því að halda því
fram að unnt sé að brjótast útúr
þessum ógöngum í ríkisfjármál-
um án nýrrar tekjuöflunar og það
liggur alveg Ijóst fyrir að hvaða
ríkisstjórn sem tekur við af þcirri
sem nú situr verður að leggja á
sérstakan óreiðuskatt, til að gera
upp óreiðuna eftir fárra ára
fjármálastjórn Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði Kagnar Arnalds alþing-
ismaður aðspurður hvað væri
framundan vegna þeirrar
ógnvænlegu stöðu sem ríkis-
fjármálin eru komin í.
Um orsakir þessa mikla vanda
sagði Ragnar:
Mikið ójafnvægi er komið á
tekjur og gjöld ríkissjóðs vegna
þess að skattar atvinnurekenda
og stóreignamanna liafa verið
lækkaðir stórlega í tíð þessarar
stjórnar.
A kranes
Gulllax í
marning
HB & Co á Akranesi hyggst gera
eitt skipa sinna, Rauðscy, út á
gulllax að ári og cr fyrirhugað að
vinna aflann í marning um borð. I
því skyni verður að koma fyrir
vélum til blokkarfrystingar og
marningsvél um borð í skipinu.
Bæjarblaðið á Akranesi hefur
þetta eftir Haraldi Sturlaugssyni
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Haraldur segist reikna með að af
þessu geti oröið næsta vor, en
gulllax veiðist aðallega á vorin.
Hann veiðist á togaraslóðum
bæði við suöur- og vesturland og
mun halda sig á svipuðum slóðum
og karfi.
Nokkuð hefur verið gert af því
að veiða gulllax hér við land, en
aðeins til vinnslu í landi, en slíkt
hefur gengið illa. Marningurinn
er mest notaður til bollugerðar og
í svokallað surimi.
—gg
Akranes
Ingimundur
bæjarstjóri
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
bandalag á Akranesi gengu í gær
endanlega frá samkomulagi um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
næstu fjögur árin.
Þar með er komin undirritun,
en ennþá á eftir að ganga endan-
lega frá nefndaskipan. Ingimund-
ur Pálsson bæjarstjóri sendi
flokkunum í gær jákvætt svar urn
að starfa áfram sem bæjarstjóri á
Akranesi. Hann gerir hins vegar
kröfu um launahækkanir og enn á
eftir að semja við hann um það.
—gg
Hallinn sem orðið hefur í þess-
ari stjórn hefur síðan myndað
langan hala af skuldum, sem ým-
ist hafa orðið til með venjulegum
lántökum eða eru hreinar óreiðu-
skuldir, eins og gildir um megnið
af skuldunum í Seðlabankanum.
Vextir af þessum skuldum eru
geysiþungur baggi á ríkissjóði og
því er ekki nóg að rétta fjár-
Iagahallann til frambúðar heldur
verðum við líka að gjalda fyrir
óreiðustefnu undanfarinna
þriggja ára.
Sagan frá seinasta áratug er
sem sagt að endurtaka sig.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn
fór með yfirstjórn fjármála á ár-
unum 1974-1978 söfnuðust líka
upp mjög miklar skuldir á þeirra
tíma mælikvarða. En síðan kom
það í okkar hlut í tveimur ríkis-
stjórnum að greiða þessar
skuldir.
Við vorum reyndar nærri því
búnir að hreinsa upp skuldina í
Seðlabankanum í árslok 1982.
Árið eftir urðu stjórnarskipti og
skuldasöfnun hófst að nýju.
Vissulega jukust erlendar
skuldir nokkuð í tíð seinustu
stjórnar vegna stórframkvæmda í
orkumálum, m.a. mikilla hita-
veituframkvæmda.
En þessar skuldir eru allt ann-
ars eðlis en óreiðuskuldir ríkis-
sjóðs. Þetta voru skuldir fyrir-
tækja, sem sjálf standa undir end-
urgreiðslum, t.d. Landsvirkjun,
án þess að skattborgarar landsins
þurfi að hlaupa undir bagga nema
í undantekningartilvikum. En
skuldir ríkissjóðs verða ekki
gerðar upp nema með greiðslum
sem fjármagna verður með
sköttum.
Þetta er eftirtektarverð Iexía
sem þjóðin hefur lært á seinustu
árum. Það kemur á daginn að
sjálfstæðismenn eru sérstaklega
ábyrgðarlausir þegar ríkissjóður
er annars vegar.
Svipuð reynsla hvað hægri
menn varðar er frá ýmsum öðrum
löndum, t.d. frá Bandaríkjunum,
en þar hefur Reagan reynst
ábyrgðarlausari í ríkisfjármálum
en nokkur annar forseti á undan
honum. -S.dór
í gær voru afhent verölaun í teiknísamkeppni grunnskólanema verðlaun. Myndefnið var hið fjölbreytilegasta og auðséð af teikningunum að
um myndskreytingar á skólamjókurumbúðir. Ovenjumikil þátt- börnin tengdu verkefnið hollustu, dýrum og íþróttum.
taka var í samkeppninni en tæplega 11 þúsund teikningar bárust. Dómnefndin ákvað að veita tveimur skólum sérstaka viðurkenningu fyrir vand-
Dómnefnd ákvað að verðlauna sérstaklega 39 börn fyrir teikningar sínar og fá aða teiknikennslu og lifandi áhuga kennara á þessu verkefni, en það eru Foss-
þau annaðhvort úttekt í íþróttaverslunum fyrir 5000 kr. eða vikudvöl í sveit í vogsskóli í Reykjavík og Laugabakkaskóli í V-Húnavatnssýslu. —lg. Mynd Ari.
Landsmót hestamanna
Kaupstaðarferð
að fomum sið
Gera út leiðangurfrá Rangárbökkum niður ímiðbce Reykjavíkur
með hesta klyfjaða smjöri, ull ogþess háttar varningi. Sundríða
Pjórsá, Rangá og Ölfusá
Reykvíkingar mega eiga von á
því nú í lok júni að sjá lcst
klyfjahesta upp á gamla móðinn í
hjarta borgarinnar og verða þar
hestamcnn í kaupstaðarferð að
fornum sið.
Framkvæmdanefnd Lands-
móts hestamanna stendur fyrir
þessari uppákomu, sem eflaust á
eftir að vekja mikla athygli. Örn
Ingólfsson sem á sæti í fram-
kvæmdanefndinni sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að lestin
myndi leggja af stað frá Rangár-
bökkum 26. júní, en þar verður
landsmótið haldið dagana 2.-6.
júlí. Þrjú fljót verða á vegi ferða-
langanna á leiðinni til Reykjavík-
ur, Rangá, Þjórsá og Ölfusá, og
verða þau sundriðin.
Áætlað er að komið verði til
Réykjavíkur 30. júní og aftur til
Hellu 4. júlí. Ferðamennirnir
verða klæddir að fornum sið, og
munu klárarnir bera klyfjar þar
sem m.a. verður að finna smjör
og ull.
Landsmótið verður sem fyrr
segir haldið 2.-6. júlí og átti Örn
von á að 10-15 þúsund manns
myndu leggja leið sína þangað,
þar af 2000 erlendir áhugamenn
um íslenska hestinn. —gg
Yfirlýsing
Geir Hallgrímsson
gerir athugasemd
vegna samtals Pjóð-
viljans viðAlbert
Guðmundsson iðn-
aðarráðherra
Ritstjórar Þjóðviljans,
Síðumúla 6,
Reykjavík.
Ég vil biðja ykkur að birta í
blaði ykkar á morgun svofellda
athugasemd:
Af gefnu tilefni í samtali Þjóð-
viljans við Albert Guðmundsson,
ráðherra, í blaði ykkar í dag, skal
tekið fram, að ég hef ekki verið
fundarstjóri á aðalfundum
Verzlunarbankans eftir að ég
varð forsætisráðherra 1974, og ég
var fyrst fundarstjóri á aðalfundi
Eimskipafélags íslands nú í ár,
eftir að ég lét af störfum utan-
ríkisráðherra.
Með þökk fyrir birtinguna,
Geir Hallgrímsson