Þjóðviljinn - 20.07.1986, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 20.07.1986, Qupperneq 16
Leikhús Shakespeares endurbyggt Globe-leikhúsið í London verður endurbyggt steinsnarfró þeim stað sem það stóð upphaflega Ákveðið hefur verið að endur- byggja Globe-leikhúsið í London, en það brann til grunna árið 1613. Veröur það endurbyggt steinsnar f rá þeim stað þar sem það stóð upphaflega á bökkum Thames. Það er bandaríski leikarinn Sam Wanamaker, sem í áratugi hefur barist fyrir því að leikhúsið verði endurreist. Sam er fæddur og uppalinn í Chicago, en fluttist til London árið 1951. Alla tíð síð- an hefur hugmyndin um að endurreisa leikhúsið átt hug hans allan. í Globe-leikhúsinu voru mörg þekktustu verk William Shakesp- eares frumsýnd. Sjálfur hefur Sam Wanamaker einusinni farið Teikning af upprunalega Globe- leikhúsinu, gerð skömmu áður en það brann árið 1613. með hlutverk í Shakespeare- leikriti, Jago í Othello. Deilur við yfirvöld Það hefur ekki gengið á- rekstralaust að fá samþykki fyrir endurbyggingunni, en ýmsir hafa sýnt henni mikinn áhuga og styrkt sjóð þann sem Wanamaker stofnaði. Derno Estates, sem sá um skipulag þess svæðis sem leikhús- ið átti að rísa á og stjórn South- wark hverfisins ákváðu árið 1981 að láta Wanamaker-sjóðinn fá landspildu undir leikhúsið. 1984 var ný bæjarstjórn kosin í Sout- hwark og ákvað hún að rifta samkomulaginu þar sem ákveðin skilyrði höfðu ekki verið uppfyllt að hennar rfiati. Derno Estates lagði þá skipulag svæðisins til hliðar, enda ætlaði hin nýja bæj- arstjórn að nota svæðið til annars en upphaflega hafði verið ráð- gert, eða undir iðnaðarhverfi og byggingar á vegum hins opin- bera. Wanamaker var óánægður með þessi málalok og stefndi So- uthwark og Derno Estates fyrir samningsbrot. Derno Estates gagnstefndi þá bæjarstjórn So- utwark og eftir fimm daga réttar- Móðir vor Metodistar eru mjög sterkir í Bandaríkjunum. Er söfnuð- urinn einn af þeim stærstu í því guðs útvalda landi. Þeir hafa nú endurskoðað sálma- bók sína og m.a. ákveðið að ritskoða burt nokkra af þekkt- ustu sálmunum, sem hafa ver- ið í miklu uppáhaldi hjá hjörðinni. Sálmurinn Áfram krists- menn krossmenn er einn af þeim sálmum sem ákveðið var að sleppa í nýju sálmabók- inni, ekki vegna vanhelgi Haf- skipsmanna á sálminum, heldur vegna þess að sálmur- inn þykir of herskár, lagið minna um of á hermars og textinn hvetja menn til átaka. Einnig var ákveðið að sleppa Baráttusálmi lýðveldisins af sömu ástæðu. Þetta mæltist ekki vel fyrir og mikil mótmælaalda reis meðal metodista og að iokum var látið undan og sálmarnir aftur settir í bókina. En það var ekki bara hern- aðarhyggjan sem fékk á baukinn í endurskoðuninni, heldur fengu kynjafordóm- arnir líka að kenna á ritskoð- uninni. Ákveðið var að breyta nokkrum hendingum í sálmin- um Góðir kristnir menn, fagn- ið, þar sem pungrottuhugsan- aháttur þótti skína í gegnum kveðskapinn. Það sama gilti fyrir sálminn Hvílið í örmum drottins kæru karlar. Trú feðra okkar varð ekki breytt, en hinsvegar stendur neðan- máls við sálminn, að leyfilegt sé að setja inn orðið mæðra okkar í stað feðra. Heittrúaðir segjast þakka sínum sæla á meðan faðirvor- inu verður ekki breytt í móðir vor. Information r «'fi# RÍKISÚTVARPIÐ Samkeppni um gerð listaverks Ríkisútvarpið auglýsir hér með samkeppni um gerð listaverks. Listaverkið skal staðsett utan- húss á torgi framan við aðalinngang Útvarps- hússins við Efstaleiti, Reykjavík. Rétt til þátttöku hafa allir íslenskir myndlistar- menn. Heildarverðlaunafé er kr. 400.000 - þar af eru 1. verðlaun kr. 250.000. Keppnisgögn fást afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar sem er Þórhallur Þórhallsson, skrif- stofustjóri Sambands íslenskra myndlistar- manna, Ásmundarsal, Reykjavík, sími 11346. Skilatrygging er kr. 1.000. Frestur til að skila tillögum rennur út 17. nóv. nk. fc^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn- ar starf skrifstofumanns (ritara). Starfið er m.a. fólgið í almennum ritarastörfum, vélritun, skjala- vörslu og símaþjónustu. Verzlunarskóla- eða sambærileg menntun æskileg. Einnig reynsla í ritvinnslu. Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf sendist deildarstjóra starfsmannahalds fyrir 5. ágúst nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 REYKJAVÍK Sam Wanamaker við líkanið af Globe-leikhúsinu. höld komust deiluaðilar að samkomulagi. Wanamaker fékk 125 ára leigurétt á landinu en Derno Estates fékk 11 milljón dollara í skaðabætur. Endurbyggt í upprunalegri mynd Arkitektinn Theo Crosby hef- ur gert teikningar og smíðað lík- an af leikhúsinu. Globe-leikhúsið var upphaflega reist árið 1599 og brann árið 1613. Verður húsið reist í sem upprunalegastri mynd og allt úr timbri, en eftir brunann í London 1666 hafa slík hús ekki verið reist. Verða notaðar sömu aðferðir við að reisa húsið nú og voru notaðar á þeim tímum sem húsið var upphaflega reist á. Leikhúsið mun taka 1500 áhorfendur og eru harðir bekkir fyrir tvo þriðju hluta þeirra en restin verður að standa undir sýn- ingunum. Engin sviðsljós verða notuð í leikhúsinu og sviðið snýr í norðaustur einsog í upprunalega Globe-leikhúsinu, þannig að leikararnir eru stöðugt í skugga þó svo að sól skíni í heiði. í leikhúsinu er ætlunin að sýna leikrit Shakespeares og jafnframt verk eftir samtfmamenn hans. Þá er einnig ætlunin að ný leikrit fái að njóta sín á sviðinu. Sáf/Time r iL Læknaritari Hálf staða læknaritara hjá Heilsugæslu Hafnar- fjarðar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Hafnar- fjarðarbæjar og Starfsmannafélags Hafnarfjarð- ar. Upplýsingar eru veittar í síma 5 36 69. Umsóknum um starfið skal skila til Heilsugæslu Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10,3. hæð, 220 Hfj. fyrir 1. ágúst nk. Heilsugæsla Hafnarfjarðar. T Hafnarfjörður - -i-L einbýlishúsalóðir Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar 28 lóðir í Setbergi, einkum fyrir einbýlishús. Ennfremur 2 lóðir fyrir einbýlishús á Hvaleyrar- holti. Lóðirnar eru þegar byggingarhæfar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu bæjar- verkfræðings, Strandgötu 6, þ.m.t. um gatna- gerðargjöld, upptökugjöld, byggingarskilmála o.fl. Vakin er athygli á því að lóðarhafar geta nú greitt gatnagerðargjöld og upptökugjald með skulda- bréfum til fjögurra ára. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum, sem þar fást, eigi síðar en 8. ágúst nk. Bæjarverkfræðingur. 16 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.