Þjóðviljinn - 20.07.1986, Side 18
KROSSGÁTA
1 J— T~ T~ 7- /0 7- S? T~ )l
lii 3? /3 )2r P /Ý 7- 10 4 V )5~ 1 /5" 10 14 W
1 )7 )# 2o V 1 /£ 21 22 V 4 )2 2d i
1 23 3 )4 2 2s 13 R? 1 18 ¥ 20
ZS 22 27- 18 £2 ? 2/ )S 7- 17 3? 22 12 >4
2z w ) 2g 18 22 3? )é> 3 10 ¥ SP 23 7
l& 21 V )4 14- 2Z y 3V )<? 14 7- 7 V
Zb /<? )4 2Z V 1 >7- )2 )3 Zl 32 I lóv /#
z 5 Tö~ / 2 12 2l !¥- /S" /? 22 22
es' 3? 8 Zg Z w~ n V 2l 30 7- 2S 3? 24 lt
// 2S 20 7- )# 20 18 3? Z
V / 22 4 2í 13 2/ s? 22 £ // 22
1 17- )É 7- )4 i 17 /5" V / lé> 14 ZV ¥
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆ Ö
SKAK
Fyrsta
heimsmeistaraeinvígið
Einvígin um heimsmeistaratit-
ilinn eru nú komin eitthvað a
fjórða tuginn, það fer svolítið eftir
því hvernig þau eru talin. Fyrsta
opinbera einvígið var haldið fyrir
réttum hundrað árum og var það
milli Steinitz og Zukertorts en þeir
voru báðir þýskir að uppruna.
Steinitz hafði verið öflugasti
meistari heims langa hríð og sigr-
ast á flestum andstæðingum sín-
um með yfirburðum en opinber-
lega varð hann ekki
heimsmeistari fyrr en að lokinni
viðureigninni við Zukertorts
þessu sinni.
Það blés að vísu ekki byrlega
fyrir honum framan af, því þótt
hann ynni fyrstu skákina þá tap-
aði hann næstu fjórum í röð.
Þetta var ekki í eina skiptið sem
Steinitz vegnaði illa í byrjun ein-
vígis en hann var mikill baráttu-
jaxlog sótti jafnan ísig veðrið erá
leið, hefur líklega þurft að tefla
sig í form. Hann var búinn að
jafna metin er tíu skákum var
lokið og síðan seig hann jafnt og
þétt fram úr og hafði er upp var
staðið unnið 10 skákir, tapað 5 en
5 urðu jafntefli.
Það er alkunna að Steinitz er
„faðir“ stöðuskákmennskunnar
og má með réttu teljast einn
mesti skákhugsuður fyrr og síðar.
Zukertort hefur nokkuð fallið í
skugga hans en hann var frábær
skákmaður þegar vel tókst til,
tefldi jafnan hvasst og líflega en
mun hafa verið heilsulítill og lést
aðeins liðlega fertugur að aldri.
Hér á eftir er ágætt dæmi um
beinskeytni hans. Svartur tapar
tveimur leikjum í byrjuninni en
það leiðir til þess að hvítur fær
meira rými á miðborðinu sem
hann notfærir sér til liðsflutninga
og loks kemur svo ómótstæðileg
kóngssókn.
Hvítt: Zukertort
Svart: Steinitz
5. einvígisskák.
1. d4 - d5 4. e3 - Bf5
2. c4 - c6 5. cxd5 - cxd5
3. Rc3 - Rf6 6. Db3 - Bc8
Eitthvað hefur þegar farið
aflaga. Mögulegt er 6. ... Db6 og
fórna peðinu á d5 fyrir spil (7.
Rxd5 Rxd5 8. Dxd5 e6). Ekki er
gott að leika 6. ... Dd7 því þar er
drottningin í vegi léttu mannanna
og hvítur riddari á e5 og biskup á
b5 munu ógna henni þegar á líð-
ur.
JÓN
TORFASON
7. RO - Rc6
Hvítur hefur unnið tvo leiki en
í hálflokuðum stöðum, eins og
þessi er, skiptir leiktap ekki alltaf
svo miklu máli. Hvítur finnur nú
veikasta hlekkinn í stöðu svarts,
það er c6-reitinn, og byrjar að
herja á hann.
8. Re5 - e6 9. Bb5 - Dc7
Betra var 9. ... Bd7 því drottn-
ingin stendur ekki vel á c7. Hvít-
ur hefði þá skipt (10. Rxd7) og
haft biskupaparið og betri stöðu.
10. Bd2 -Bd6 11. f4 - 0-0
12. Hcl - Bxe5
Hvítur hótaði að vinna skipt-
amun með 13. Bxc6 bxc6 14. Rb5
Db8 15. Rxd6 Dxd6 16. Bb4 svo
þessi leikur er þvingaður. En nú
veikist svartur á svörtu reitunum
og kóngsstaðan verður viðkvæm
eftir að riddarinn verður að hörfa
frá f6-reitnum.
13. fxe5 - Re8 14. 0-0 - f6
aþcdefgh
Svartur varð að losa um sig. Nú
beinir hvítur hins vegar athygl-
inni að kóngsvængnum því nú er
svartur veikastur fyrir þar.
15. Bd3 - Hf7
Ef 15. ... fxe6 kemur 16.
Bxh7+ og vinnur.
16. Dc2 - f5
Eftir 16. ... g6 kemur bisk-
upsfórn á g6 og eftir 16. ... h6
kemur sömuleiðis 17. Bg6. Nú
undirbýr hvítur kóngssókn.
17. Re2 - Bd7 20. Dd2 - Re7
18. Hf2 - Hc8 21. Hc-fl - Bb5
19. Bc3 - Db6 22. Bbl - DaA
Hvítur heldur réttilega í hvít-
reita biskupinn. Svartur átti nú
eða í næstu leikjum að drepa
riddarann á e2 til að fækka sókn-
armönnum hvíts. Hvítur hefði
samt vinningsstöðu og hefði
væntanlega sótt fram á drottning-
arvæng á ný. Nú lýkur skákinni
með rökréttum hætti á kóngs-
væng.
23. g4 - g6 25. Hel - Rg7
24. h3 - Hc7 26. Rf4 - Rc8
27. gxf5 - gxf5
Eða27. ... Rxf528. e4oghvítu
miðborðspeðin ráða úrslitum.
28. Hg2 - Kh8 30. He-gl - Re7
29. Kh2 - Dc6 31. Df2 - ...
Hvítur leikur næst Dh4 og Dh6
en þá er hótað drápi á g7, hugsan-
legri riddaraskák á g6 eða að
riddarinn stekkur til h5 og f6.
Svarta staðan er töpuð. Næsti
leikur svarts hefur verið talinn af-
leikur en er það í rauninni ekki,
spurningin er hvernig svartur vill
tapa.
31....-De8 32. Hxg7
Tekur valdið af e6-peðinu og
vinnur mann. Svartur gaf. Þessi
skák er einföld en gott dæmi um
það hvernig á að nýta frumkvæði
í tíma.
Nr. 526
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
526“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
1 )? !4 27 13 3! 3 2
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaunin í dag er bók-
in Lögreglustjóri á
stríðsárunum, minning-
ar Agnars Kofoed-
Hansens, sem Jóhann-
es Helgi skráði og Al-
menna bókafélagið gaf
út.
Verðlaun fyrir krossgátu
nr. 523 hlaut Helgi Sig-
urgeirsson, Hólagötu
39, Njarðvík. Lausnar-
orðið var DROPLAUG.
Helgi fær senda bókina
Hörkutól stíga . ekki
dans, eftir Norman Mail-
er.
BRIDGE
JÓHANNES HELGl
Lárus á toppnum
Sumarbridge 1986
Stöðugt er góð þátttaka í
Sumarbridge að Borgartúni 18.
Sl. þriðjudag var spilað í þremur
riðlum (32 pör) og urðu úrslit
þessi (efstu pör):
A)
Jóhann Jónsson
- Kristinn Sölvason 199
Kristín Pálsdóttir - Vilhelm Lúðvíksson 176
Anton R. Gunnarsson - Ragnar Magnússon 173
Ingólfur Lillendahl - Jón Ingi Björnsson 173
Halldór Magnússon - Valdimar Elísson 164
B) Jón Þorvarðarson - Magnús Ólafsson 137
Anton Haraldsson - Úlfar Kristinsson 128
Björn Theodórsson - Jakob R. MöIIer 118
Hannes Ingvarsson - Sigfús Þórðarson 113
Alfreð Kristjánsson - Björn Árnason 113
Sigríður Ingibergsdóttir
- Jóhann Guðlaugsson 223
Anna Sverrisdóttir
- Sybil Kristinsdóttir 218
B)
Jóhann Jónsson
- Soffía Guðmundsdóttir 203
Guðjón Einarsson
- Guðmundur Hermannsson 184
Ragnar Haraidsson
- ÓIi Björn Gunnarsson 178
Sigfús Þórðarson
- Þórður Sigurðsson 176
Helgi Samúelsson
- Sigurbjörn Samúelsson 157
ÓLAFUR
LÁRUSSON
C)
Lárus Hermannsson
- Jón Viðar Jónmundsson 106
Guðmundur Baldursson
- Jóhann Stefánsson 106
Ásgeir P. Ásbjörnsson
- Hrólfur Hjaltason 100
Baldur Bjartmarsson
- Hermann Lárusson 91
Og staða efstu spilara í þriðju-
dagsspilamennskunni er þá orðin
þessi: Lárus Hermannsson 86,
Sigfús Þórðarson 76, Anton Har-
aldsson og Úlfar Kristinsson 74,
Jacqui McGreal 69, Kristinn
Sölvason og Jóhann Jónsson 64,
Guðjón Jónson 61.
44 pör mættu í fimmtudags-
slaginn í Sumarbridge að Borgar-
túni 18 og var því spilað í 3
riðlum. Úrslit urðu (efstu pör):
A)
Lárus Hermannsson
- Alfreð Kristjánsson 274
Véný Viðarsdóttir
- Dúa Ólafsdóttir 239
Högni Torfason
- Sigmar Jónsson 235
Margrét Margeirsdóttir
- Júlíana Isebarn 226
C)
Oddur Hjaltason
- Hrólfur Hjaltason 191
Baldur Ásgeirsson
- Magnús Halldórsson 187
María Ásmundsdóttir
- Steindór Ingimundarson 181
Þorfinnur Karlsson
- Úlfar Guðmundsson 167
Ragnar Örn Jónsson
- Elín Jónsdóttir 161
Lárus Hermannsson hefur nú
einnig tyllt sér á toppinn í
fimmtudagsspilamennskunni
með 118 stig, Ásthildur Sigurgísl-
adóttir og Lárus Arnórsson 111,
Sigfús Þórðarson 106, Anton R.
Gunnarsson er með 99 stig og
Gunnar Þórðarson 97.
Að gefnu tilefni er bent á, að til
þess að tryggja sér þátttöku þurfa
spilarar að mæta:
Á þriðjudögum frá kl. 18.30-
19.15.
Á fimmtudögum frá kl. 18.00-
19.00.
Þeir sem birtast síðar þurfa
hugsanlega að hverfa frá.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. júli 1986