Þjóðviljinn - 29.08.1986, Síða 16
LEIKUR AÐ LÆRA
Þeir sem hafa lagt leið sína um
Vatnsmýrina undanfarið, hafaef-
laust tekið eftir ýmsum nýstár-
legum mannvirkjum þar, m.a.
kúluhúsi og görðum. Þetta eru
handar verk garðlagsmanna, en
þeireru áhugamenn um hleðslu-
list. Ervið lögðum leið okkar
þangað í fyrri viku hittum við þar
fyrirTryggva Hansen og Sigríði
Eyþórsdóttur, en þau ásamt Ein-
ari Þorsteini Asgeirssyni
leiðbeina á námskeiðum sem
Klambra, félag garðlagsmanna
stendurfyrir.
- Hvers kyns námskeið er þetta
sem þið haldið?
Tryggvi: „Það er eiginlega
þrískipt. í fyrsta lagi er venjulegt
torfhleðslunámskeið þar sem
fólk lærir m.a. að stinga, rista og
hlaða í klömbru og streng...“
- Klömbru og streng, hvað er
það?
„Að hlaða í klömbru er líkt og
þegar bækur liggja á ská í hillum
en strengur er aftur á móti í lá-
réttum lögum. A námskeiðinu
eru kynntar þær hleðsluaðferðir
sem þróuðust hér á landi og hæfa
vel nútímagörðum. Hægt er að
stinga margar gerðir hnausa, s.s.
klömbru, kvíahnaus, byrjunar-
hnaus, streng o.fl. svo eitthvað sé
nefnt, og mynda með þeim alls
kyns mynstur.“
Sigríður: „Ég kenni grímugerð
og skúlptúra úr mó. Er þá mótað
og skorið í móinn og hann síðan
látinn veðrast og þurrkast. Með
mónum eru einnig notuð ýmis
náttúruefni til skreytingar.“
- Er þetta ekki nýtt hér á landi?
„Jú, það má segja það, en hlið-
stæð notkun mós þekkist á meðal
íra, en þar er mórinn pressaður í
þar til gerðum pressum. Hins
vegar látum við náttúruöflin sjá
um það hér.“
- Hver er þriðji hluti nám-
skeiðsins?
Tryggvi: „Það er kennsla í
hvolfbyggingarlagi sem Einar
Þorsteinn sér um. Þar er kennt að
raða saman hvolflaga burðarvirkí
sem byggð eru upp af þríhyrning-
um. Eru þar í raun tengdar saman
tvær aðferðir, annars vegar hin
gamla torfhleðsla og hvolfburð-
arvirkið Buchmeister Fuller, sem
er ungt í sögunni. Þrátt fyrir að
Garðlagsmennirnir Sigríður Eyþórsdóttir og Tryggvi Hansen. I baksýn er torfhleðsla með hvolfbyggingarlagi. Ljósm. E.OI.
Torfhleöslunámskeiö
Hlaðið í streng
Spjallað við garðlagsmennina Sigríði Eyþórsdóttur og Tryggva Hansen
þetta séu ólík form og eiginlega
andstæður þá falla þau samt vel
saman. Segja má að annað sé létt
og opið eins og himinn en hitt
þungt og þétt einsog jörð. Vegg-
urinn tengir burðarvirkið jörðu
og útkoman er arkitektúr. Á
námskeiðinu eru einnig skoðaðar
myndir og bækur um hleðslur og
farið í heimsókn í Árbæjarsafn til
að skoða hleðslur.“
- En til hvers að vera að lœra
hleðslulist á okkar tímum
steinsteypu?
„Við viljum vekja athygli arki-
tekta á þessum efniviði sem hefur
hreinlega gleymst. Sennilega er
það vegna þess að þeir hafa allir
farið utan til náms þar sem
hleðslulist þekkist ekki á sama
hátt og hér. Sem dæmi má taka
stefnu í skrúðgarðalist. Þar hefur
gamli torfgarðurinn alveg
gleymst en í stað hans komu er-
lendu limgerðin. Skyndilega
urðu torfgarðarnir „sveitó“ og
menn eins og fylltust skömmustu
yfir þeim. Við viljum vekja at-
hygli garðyrkjumanna og garða-
fólks á þeim möguleika sem
hleðslulistin gefur hvað snertir
garðaskipulag og umhverfi hér á
landi."
- Einhver lokaorð?
„Skemmtilegast væri auðvitað
að hafa námskeiðin þannig að
fólki væri kennt að bjarga sér af
efnum jarðarinnar, reisa sér
eiginn bæ og ljúka námskeiðinu
með því að reka hópinn á fjall og
láta hann bjarga sér þar í 10
daga...“ segir Tryggvi og hlær
við.
-GH
Ingibjörg Guðmundsdóttir skólastjóri til hægri ásamt aðstóðarmanni sínum Stefán-
íu Traustadóttur. Ljósm. KGA.
Tómstundaskólinn
Mið af þörfum
vinnandi fólks
Ingibjörg Guðmundsdóttir skólastjóri: Leggjum mikla áherslu á góða
kennara, virkni nemenda og fjölbreytt námskeið
Tómstundaskólinnereinþeirra
stofnana sem á síðustu árum
hefur haslað sér völl utan hins
almenna skólakerfis. Skólinn er
nú að hefja sitt þriðja starfsár í
nýju húsnæði og í eigu nýrra að-
ila einnig. Við gengum því á fund
skólastjórans Ingibjargar Guð-
mundsdóttur til að forvitnast um
námsefni Tómstundaskólans og
tilhögun alla.
„Skólinn skipti um eigendur í
fyrra og þá keypti Menningar- og
fræðslusamband alþýðu nafnið
og tók yfir reksturinn. Hér leggj-
um við megináhersluna á tóm-
stundir og starfstengt efni enda
hefur komið í ljós mikill áhugi
fyrir að sækja okkar námskeið.
Þátttakendur hafa af þeim marg-
víslegt gagn og gaman; standa oft
betur að vígi á vinnumarkaðnum
og fá innsýn inn í störf og leiki
sem þeir höfðu ekki áður,“ sagði
Ingibjörg í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Aðalaðsetur Tómstunda-
skólans er í rúmgóðu húsnæði að
Skólavörðustíg 28 en í vetur fer
kennsla svo til að öllu leyti fram í
Iðnskólanum í Reykjavík. „Þar
bjóðum við upp á mun rýmra
húsnæði en við höfðum áður og
munum því vera með 50-60 nám-
skeið á dagskránni í vetur ef næg
þátttaka fæst. Námskeiðin eru
auðvitað tímasett með þarfir
vinnandi fólks í huga, þ.e. síð-
degis og á kvöldin,“ sagði Ingi-
björg ennfremur.
Ingibjörg sagði að hingað til
hefðu konur verið í meirihluta
þátttakenda, en þeir væru á aldr-
inum 14 ára og uppúr. Hún sagði
skólann alla tíð hafa lagt mikla
áherslu á virkni nemendanna
sjálfra. Væri m.a. mikið gert af
því að fara í vettvangsferðir til að
kynna sér með eigin augum það
sem námið stæði til.
„Auk þess að skipuleggja nám
fyrir einstaklinga höfum við einn-
ig boðið hópum og starfsfólki
heilla fyrirtækja að sækja hjá
okkur námskeið. M.a. höfum við
haldið námskeið fyrir starfsfólk
ísal, Tjarnaskólans og á vegum
samvinnustarfsmanna í Hamra-
görðum. Einnig má hér minna á
námskeið sem við héldum fyrir
félaga að Verslunarmannafélag
Reykjavíkur hefur veitt félags-
mönnum sínum námsstyrk til að
sækja námskeið á vegum skólans.
Iðja hefur einnig leitað eftir sam-
vinnu við okkur í vetur. Er von-
andi að fleiri verkalýðsfélög fylgi
í kjölfarið."
Námskeið Tómstundaskólans
eru af margvíslegasta tæi. Má
nefna ljósmyndatökur, myndlist
hvers konar, ættfræði, grímu-
gerð, fatasaum, snið og snið-
teikningar, garðskipulagningu,
stangveiði, stofnun fyrirtækja,
Njálu og innanhússkipulagningu.
Innritun í Tómstundaskólann
fer fram mánudaginn 8. septemb-
er að Skólavörðustíg 28 og í síma
621488 en kennsla mun hefjast
22. september. - v.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. ágúst 1986