Þjóðviljinn - 17.09.1986, Síða 5

Þjóðviljinn - 17.09.1986, Síða 5
Sjálfstœðisflokkurinn Tilþiifalítil og bragðlaus hjörð Prófkjör Sjálfstœðisflokksins íReykjavík ánœstunni. Pétur og Ellert fara að líkindum ekkifram. Magnús L. mun styðjaGuðmundH. Garðarsson. Raunalegt konuleysi. ÓvissaumAlbert. Eykonáflótta úr vonlausu kjördæmi Tílþrifalítill og óvenju bragð- daufur framboðslisti mun að öllum líkindum verða niðurstaða prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem þreyta skal hinn átjánda næsta mánaðar. Fram- bjóðendur bera það með sér að tími hinna miklu foringja er lið- inn. Gæti Gunnar Thoroddsen, síðasti móhíkaninn í þeirri sveit, skyggnst frá hinum eUífu veiði- lendum og yfir raðir þeirra sem nú sækjast eftir því að skipa raðir framvarða flokksins myndi hann tæpast sjá þar eftirsóknarverð gæðingsefni. Eigi að síður munu óhjá- kvæmilega verða veruleg um- skipti á listanum í Reykjavík. Að yfirsýn bestu manna munu senni- lega aðeins fjórir af sitjandi þingmönnum flokksins í Reykja- vík freista endurkjörs. Hinum er búið að finna grösug tún í öðrum sveitum, Seðlabankanum, Hrafnistu eða ritstjórnarskrif- stofum DV. Þess má geta að í stjórnar- flokkunum báðum eru menn að koma sér fyrir í viðbragðsstelling- um: prófkjör flokkanna og skoð- anakannanir um frambjóðendur eru fyrr á ferðinni en oft áður. í Reykjavík er það til dæmis tæp- um mánuði fyrr en síðast við þingkosningar og víða er Fram- sókn komin lengra en vanalega um þetta leyti. Hjá kandídötum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var nokkur tauga- skjálfti kominn af stað, og sú saga hafði greinilega öðlast vængi að prófkjör stjórnarflokkanna væru fyrr á ferðinni vegna þess að Steingrímur og Þorsteinn Pálsson væru búnir að gera með sér leyni- samkomulag um janúarkosning- ar! - Þessi ótrúlega saga fékkst hvergi staðfest, en sýnir kosn- ingatitringinn sem kominn er f stjórnarflokkana. Stríðsklarar hvíldir Þeir fjórir þingmenn sem víst er að munu gyrða sig vopnum og tilkynna þátttöku í prófkjörinu áður en frestur rennur út á föstu- daginn kemur er sjálfur varafor- maðurinn, Friðrik Sophusson, Birgir ísleifur, Ragnhildur Helg- adóttir og Albert Guðmundsson. Pétur Sigurðsson hefur að vísu ekki gefið neitt opinberlega út um fyrirætlanir sínar og kvaðst í kurteisu spjalli við Þjóðviljann gefa sínar yfirlýsingar þess efnis í öðrum blöðum. En flestum ber saman um að hann hyggist nú láta af þingmennsku og muni ljá kandidötum úr röðum verkalýðs- hreyfingarinnar stuðning sinn. Af ritljóninu Ellert Schram er sömu sögu að segja. Hann vill enn ekki segja af eða á, en fæstir ætla að hann haldi áfram þingsetu fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Vitað er að blaðstjórn DV þykir það ekki mjög traust að flagga þing- manni Sjálfstæðisflokksins þegar auglýsingatilþrif blaðsins byggja á því að telja fólki trú um að blað- ið sé „frjálst og óháð“. Ellert fær af þeim sökum ekki að skrifa leiðara í sitt eigið blað, og gerist leiður á því sem von er, - jafnvel leiðari en þinginu sem honum finnst þó ekki skemmtilegasti staður í heimi. Raunar hefur Ell- ert sjálfur verið með pínulítinn snert af „frjálsu og óháðu“ veikinni. Þannig hefur hann ekki tekið þátt í nefndastörfum fyrir flokkinn á þingi og heldur ekki sótt þingflokksfundi. Á útsævi Sjálfstæðisflokksins hefur hann því þróast í einskonar einmana rekald, - og jafnvel þó hann legði í prófkjörið er mjög ólíklegt að vestra, og komst á þing. Nú hefur hann hins vegar lýst yfir að hann hyggist blanda sér í slaginn í Reykjavík og yfirgefa sitt gamla kjördæmi. Yfirvarp Eykons er að hann vilji fara á þing fyrir heima- byggð sína Reykjavík, og telji það tímabært nú. Hin raunverulega ástæða er allt önnur. Eykon á einfaldlega nær enga möguleika á því að ná þingsætinu aftur í Norðurlandi vestra eftir að nýju kosningalögin ganga í gildi. hann myndi ná tryggu sæti einsog búið er í pottana núna. Sjálfstæð- ismenn eru gjarnir á að hefna þess, fari menn útaf sporinu... Bilbugur á hulduhernum Albert Guðmundsson var áður óskabarn flokksins í Reykjavík, - í senn herskár haukur með öfga- kenndar skoðanir sem ýmsum hugnuðust einkar vel, en um leið í yfirskilvitlegum tengslum við son mun vinna fyrir hann í próf- kjörinu, en eigi að síður eru menn ekki fulivissir um að hann eigi tryggt sæti. Því hlýtur hann þó að ná miðað við aðstæður. Haarde stefnir hátt Geir Haarde var í tíunda sæti við síðustu kosningar. Hann hef- ur stefnt hátt frá því hann vann kosningar til Inspectors scholae í Menntaskólanum í Reykjavík forðum tíð. Hann hefur undirbú- Meistarinn og lærisveinninn. Gengi Alberts hefur dalað í hremmingum Hafskipsmála. Stjarna Geirs Haarde, fyrrum aðstoðarmanns hans úr fjármálaráðuneytinu er hins vegar hækkandi. Mun lærisveinninn koma öllum á óvart og stjaka meistaranum niður í hyldýpið? „litla manninn" sem hann upp- götvaði fyrstur á götum Reykja- víkur og gerði að einskonar pólit- ísku aðalsmerki sínu. Við síðustu kosningar var Albert í efsta sæti listans í Reykjavík. En hinum gamalreynda knatt- spyrnugarpi hefur brugðist knatt- listin á undanförnum árum og skorað raunalega mörg sjálfs- mörk í tengslum við Haf- skipsmálið. Hið fyrrum baráttu- glaða lið hans, hulduherinn, er tvístraður síðan foringinn lenti í hremmingum Hafskips, og einn af liðsforingjum hans tjáði Þjóð- viljanum í gær að hulduherinn hefði ekki haldið fundi um langt skeið. Síðan bætti hann við þess- ari margræðu líkingu: „En við erum einsog slökkviliðið, kom- um þegar kviknar í.“ Hulduhersmenn telja næsta víst að í besta falli hrapi Albert úr fyrsta sæti niður í þriðja til fjórða sæti. Margir telja það yrði flokknum til tjóns yrði hann í ör- uggu sæti, og sumir spá því að hann kynni því að falla niður fyrir eitt af efstu átta sætunum (en Sjálfstæðismenn gera ráð fyrir að fá að minnsta kosti átta sæti með nýju kosningalögunum). Sá bil- bugur sem er á hulduhernum gæti bent til þess að mjög halli nú undan fæti hjá kempunni. Eykon á flótta Fyrrum ristjóri Morgunblaðs- ins, Eyjólfur Konráð Jónsson, hefur til þessa átt einu uppákom- una sem tengist slagnum í Reykjavík. Við síðustu kosning- ar var hann í 2. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlandi Kjördæmið hefur fimm þing- menn, og miðað við fylgishlutföll flokkanna í dag nær sá flokkur tveimur þingmönnum sem fær hæst hlutfall atkvæða. Minnihátt- ar kraftaverk þarf að gerast til að sá flokkur verði annar en Fram- sókn, sem frá fornu fari hefur verið ýkja sterk í héraði. Árið 1979 fékk hún þannig þrjá af fimm, og minnkandi gengi henn- ar í síðustu kosningum var orsak- að af klofningslistanum, BB, sem óánægðir Framsóknarmenn buðu þá fram. Fréttaskýring Nú er ekki gert ráð fyrir klofn- ingi og Eykoni þarmeð vísað á guð og gaddinn. Þessvegna gríp- ur hann til flóttans í Reykjavík, þar sem fjögur sæti eru laus að dómi forystunnar, en ekki af neinni sérstakri löngun til að þjóna Reykvíkingum, samborg- urum sinum. . Eykon nýtur stuðnings klík- unnar í kringum sitt gamla blað, Moggann, einsog má sjá af því hversu rausnarlega Morgunblað- ið hefur slegið framboði hans í Reykjavík upp. Geir Hallgríms- ið prófkjörið lengi, og mun halda úti kosningaskrifstofu meðan á slagnum stendur. Talið er að Geir muni njóta þess að hafa starfað náið með mönnum úr æð- stu forystu flokksins, bæði þeim Albert og Þorsteini sem aðstoð- armaður fjármálaráðherra, og báðir kunna að afla honum stuðnings. En sem aukagetu, og ekki ó- smáa, hefur Geir Haarde einnig tryggt sér umfangsmikinn stuðn- ing valdabatterísins sem forðum tíð hélt Geir Hallgrímssyni á floti. í því liggja gömlu ættimar í flokknum, og fyrir tilstilli Seðla- bankastjórans nýja, sem sér í nafna sínum Haarde efnilegan svein, munu þessir hópar hafa ákveðið að styðja Geir til frama. En Geir Haarde er útsjónar- samur og aflar á mörgum miðum í einu, - gegnum eiginkonu sína Ingu Jónu Þórðardóttur hefur hann drjúg ítök í kvennavæng flokksins. Mestu munar þó, að ungir Sjálfstæðismenn, púlshest- ar allra prófkjöra, styðja hann af miklum krafti. Geir Haarde mun því að öllum líkindum koma pólitískum skoðunarmönnum á óvart með frammistöðu sinni í prófkjörinu. Hann mun að öllum líkindum ná lengst kandídata sem enn sitja utan þings, og ekki er fráleitt að ætla að hann kunni að blanda sér í baráttuna við sitjandi þingmenn. Verkalýðsarmurinn Talsvert hefur verið rætt um að Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar hyggi á þing- frama, og í fjölmiðlum hefur hann enn ekki aftekið það. Sam- kvæmt heimildum sem Þjóðvilj- inn telur traustar mun Magnús þó ekki fara fram að sinni, heldur leggja allt kapp á að styðja Guð- mund H. Garðarsson, varaþing- mann, sem nú freistar gæfunnar af endumýjuðu kappi. Magnús mun verða efstur á blaði með- mælenda Guðmundar H. Guðmundur var í tvo áratugi formaður VR, og því upprunninn úrverkalýðshreyfingunni. Flokk- ur „allra stétta" hefur ævinlega lagt kapp á að punta listann með einum úr þeirri átt, og síðast var það Pétur „sjómaður" Sigurðs- son. Nú er víst talið að Pétur dragi sig i hlé og Sjálfstæðismenn úr verkalýðshreyfingunni telja að hann muni þá vinna að kjöri Guðmundar H. Guðmundur H. var á sínum tíma kjörinn formaður fulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík sem sáttakandídat milli stríðandi fylkinga Gunnars og Geirs. Það gerði að verkum að hann gat ekki beitt sér af fullum þunga í síðasta prófkjöri, en laus úr formannsprísundinni mun hann væntanlega njóta þess að hafa reynt að bera klæði á vopnin forðum daga. Honum má telja öraggt sæti gulltryggt. Öðru máli gegnir um Jón Magnússon, lögfræðing. Hann leggur í stríðið enn einu sinni, og að sögn spámanna úr Sjálfstæðis- flokknum er hann forystunni ekki þægur og þar að auki var hann á síðasta landsfundi felldur úr miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins. Utangátta menn telja það honum byrði. Svo kann þó alls ekki að vera. Á landsfundinum var hann einn skeleggasti tals- maður breyttrar kjördæmaskip- unar og landsbyggðarmenn launuðu honum það með því að fella hann úr miðstjórninni. Það þarf því alls ekki að minnka líkur hans í Reykjavík, og raunar má allt eins telja að einbeitni hans þá auki gengi hans meðal Reykvík- inga í flokknum. En nokkur óvissa ríkir um gengi hans. Bragðleysa Eina konan sem á víst sæti er Ragnhildur Helgadóttir. Utan hennar er aðeins vitað um eina konu af vigt sem ætlar í slaginn af alvöru, Bessí Jóhannesdóttur. Bessí er búin að tapa svo mörgum prófkjöram að um hana er komin ára taparans. Slíkir eru dæmdir tilað halda áfram að tapa. Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitað með ljósi loganda að konu í prófkjörið. Meðal annars munu flokksmenn hafa íhugað sterk- lega þann möguleika að teygja Valgerði Bjarnadóttur (Bene- diktssonar) í framboð en af því varð þó ekki. Þetta mun auðvitað draga úr gengi listans þegar til kosninga kemur í fyllingu tímans. Líklegasta niðurstaða próf- kjörsins er sú, að hinir átta efstu verði Friðrik varaformaður, Birgir ísleifur, Ragnhildur, Geir Haarde, Albert, Guðmundur H., Jón Magnússon, Eykon og á eftir lulli svo Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur VSÍ. Enn getur þó allt gerst. Sjálf- stæðismönnum kann að takast að finna „sprengikandídat", karl eða konu áður en framboðsfrest- ur er úti. En án Davíðs er þetta litlaus hjörð og ekki líkleg til að hræra mörg hjörtu. Gunnar hefði á velmektar- dögum sínum ekki hrópað -af fögnuði yfir bragðleysu á borð við þessa. Miðvikudagur 17. september 1986 PJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.