Þjóðviljinn - 17.09.1986, Síða 8

Þjóðviljinn - 17.09.1986, Síða 8
MENNING Myndlist Síðasta vika Ásta Ólafsdóttir „ Það hef ur verið góð aðsókn og ég vil endilega hvetja fólk til þess að koma og legg áherslu á að það þarf ekki að hafa neitt sérstakt vit á myndlist til þess að njótasýningarinnar. Þettaer sýning fyrir alla, “ sagði Ásta Olafsdóttir sem nú sýnir í Nýlistasafninu og lýkursýningu hennar um næstu helgi. Ásta nam við Myndlista-og Handíðaskóla íslands og síðan við Jan van Eyck Akademíuna í Hollandi, þar sem hún lagði sér- staka stund á mynd- og hljóð- bandalist, auk hefðbundnari myndmiðla. Astu í Nýlistasafninu Hún hefur verið búsett í Hol- landi síðustu 5 árin og var henni þar m.a. veittur ársstyrkur 1985 frá hollenska ríkinu til að vinna að myndlist og hún hefur sýnt hér heima og víða erlendis. Verk Ástu eru fjölbreytt að efnisvali og allri gerð. Þess má einnig geta að hún hefur gefið út tvær bækur, þar á meðal bók sem hét Þögnin sem stefndi í aðra átt og vakti verulega athygli bók- menntafólks. Ásta hefur líka gert hljóð- og myndbandaverk og er eitt slíkt á sýningu hennar nú í Nýlistasafninu. Það er opið frá 16-20 virka daga en helgar frá 14-20. Ásta við eitt verka sinna (mynd KGA). Bókmenntir Skólasafn- veröir verðlauna V eita árlega norræn barnabókaverðlaun Félag norrænna skólasafn- varða veitti á dögunum í annað sinn árleg verðlaun sín til höfunda barnabóka. Félagið ákvað verðlaunaveitinguna til þess að styrkja barnabókmenntir almennt og stuðla sérstaklega að framgangi góðra barnabók- mennta. Verðlaunin í ár hlaut norski rit- höfundurinn Tormod Haugen, en í fyrra þegar verðlaunin voru í fyrsta sinn veitt hlaut sænska skáldkonan Maria Gripe þau. Báðir þessir höfundar eru ís- lenskum Iesendum að góðu kunnir. Eftir þau bæði hafa kom- ið út bækur í íslenskrí þýðingu, eftir Tormod Haugen „Náttfugl- arnir“ í þýðingu Önnu Valdi- marsdóttur og ,J6akim“ í þýð- ingu Njarðar P. Njarðvík sem hlaut fyrir þýðingarverðlaun Fræðsluráðs. Bókaútgáfan Iðunn gaf þær báðar út. Verðlaununum var úthlutað á ráðstefnu Félags norrænna skóla- safnvarða í Þórshöfn í Færeyjum í sumar. -pv Bókmenntir Skáldsaga um Kína BAB gefur út bók eftir Pearl S. Buck Síðasta skáldsaga nóbelsverðlaunahöfundarins Pearl S. Buck, Dæturfrú Liang er komin út hjá bókaklúbbi Almenna bókafélagsins í þýð- ingu Arnheiðar Sigurðardóttur. Sagan kom út árið 1969 og lýs- ir, eins og svo margar bækur höf- undar, lífinu í fjölmennasta ríki veraldar - Kína. Með aðferðum skáldskaparins nær hún vel að sýna margbreytileika hins dag- lega h'fs í Kína á erfiðum árum, en menningarbyltingarárin koma nokkuð við sögu. Pearl S. Buck var um tíma með mest lesnu höfundum heims og nutu Kínabækur hennar mikilla vinsælda. En þar var hún alin upp og kenndi þar lengi. Hún lést árið 1972. Amaldur Amarson gítarleikari Tónleikar Arnaldur og Carlos Gítardúettar „Þetta verða skemmtilegir tónleikar og dálítið óvenjulegir í því að við munum eingöngu spila dúetta af ýmsu tagi,“ sagði Arnaldur Arnarson gítarleikari en hann mun halda tónleika annað kvöld í Kristskirkju ásamt spænska gítarleikaranum Carlos Trepat. „Carlos er einn af virtustu ungu gítarleikurum á Spáni um þessar mundir, hann er fæddur 1960 í Katalóníu og hefur víða Kristskirkju lært,“ sagði Arnaldur sem nú starfar sem kennari í Barcelona og hyggst gera það áfram. Á efn- isskrá þeirra féiaga eru ýmis verk, allt dúettar eins og fyrr segir. Fyrir hlé munu þeir spila verk eftir Schubert, Juliani og eitt íslenskt verk eftir Hróðmar Inga Sigurbjömsson. En eftir hlé munu þeir eingöngu spila spænskt og suðuramerískt efni. Tónleikarnir hefjast klukkan hálf níu í Kristskírkju annað kvöld. 8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mi&vikudagur 17. september 1986 Sígilt Eddukvæði í skýru Ijósi Aðgengileg útgáfa 4ra Eddukvæða og Völuspá á veggmynd Bókaforlagið Svart á hvítu hefur sent frá sér nýja útgáfu af fjórum eddukvæðum, Völuspá, Gestaþætti Hávamála, Helgakviðu Hundingsbana il og Atlakviðu, undir heitinu Sígild kvæði I. Texti Völuspár er eingöngu tekinn úraðalhandriti eddukvæða, Konungsbókog verður það til þess að áherslur í skýringum við kvæðið eru með nokkuð nýjum hætti. Ennfremur er stuðst við nýjar rannsóknir í skýringum Hávamála. Þá eru í bókinni ættartré og stutt samantekt um helstu goð og vættir sem koma fyrir í Völuspá og skýringarmyndir eftir Guðjón Ketilsson af heimssýn Völuspár og aski Yggdrasils. í Völuspá er sögð saga veraldar frá sköpun heimsins til ragnaraka og mannkyninu er óspart sagt til syndanna. Gestaþáttur Háva- mála geymir sígilda siðfræði úr heiðni, ráðleggingar um almenna hegðun og mannleg samskipti. Helgakviða Hundingsbana II og Atlakviða eru dæmigerð hetju- kvæði og fjalla um ástir og örlög, ágirnd, hefndir og valdabaráttu á knappan og áhrifamikinn hátt svo að nútímalesandi finnur forn- ar tilfinningar lifna á ný af síðum bókarinnar. Útgáfa þessi er sérstaklega ætl- uð til kennslu í framhaldsskólum en er auðvitað aðgengileg fyrir alla þá sem vilja njóta þessara sí- gildu listaverka. Kvæðin eru með nútímastaf- setningu og ítarlegum skýringum eftir Gísla Sigurðsson. í tengslum við bókina hefur Svart á hvítu fengið Guðjón Ket- ilsson til að gera veggmynd af at- burðum og persónum Völuspár. Myndin sýnir goðheim og mann- heim umkringda höfuðóvinun- um: Óðinn mælir við höfuð Mím- is, Heimdallur blæs í lúður sinn, Þór sveiflar hamrinum, Höður blindi verður bróður sínum Baldri að bana, Frigg grætur og Loki er í fjötrum með eiturorm- inn yfir sér. í mannheimum er barist og hórast á meðan Gullveig, ímynd ágirndarinnar, gín yfir öllu. Miðgarðsormur hlykkjast um byggðina og hand- an hans sækja þursar og jötnar að rétt í þann mund sem ragnarök dynja yfir. Með útgáfu þessari hyggst Svart á hvítu gera heim goðsagna sem aðgengilegastan og sýna kvæði eins og Völuspá sem mörg- um hefur þótt myrkt og torskilið í eins skýru ljósi og verða má þannig að sérhver lesandi geti átt- að sig á þeim stórmerkjum sem kvæðið segir frá. Námskeið List- meðferð kynnt Næstkomandi laugardag verður haldið í Bjarkarási, Stjörnugróf 9 námskeið í listmeðferð (arttherapy). Þar verður fólki gefinn kostur á að kynna sér virkar aðferðir í listmeðferð með æfingum í myndsköpun og umræðum þar að lútandi. Ráðhildur Ingadóttir stendur fyrir námskeiðinu sem er tak- markað við 15 þátttakendur og er innritun í síma 24381 milli 10 og 12.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.