Þjóðviljinn - 17.09.1986, Blaðsíða 13
Frostlögur
varð fimmtán mönnum að
bana í Litháen, en þeir drukku
hann í þeirri trú að hann væri
sérlega konsentrerað aklóhól,
að sögn opinbers dagblaðs.
Þetta atvik gerðist í síðasta
mánuði í Kaunas: Ætluðu þrjá-
tíu menn að kaupa áfengi af 64
ára gamalli ömmu, sem fékkst
við sprúttsölu í hjáverkum, en
hún gaf þeim frostlög í stað
veiganna. Fimmtán létu lífið,
en hinir fimmtán voru fluttir á
sjúkrahús, þar sem tókst að
haida í þeim lífinu.
Frostleginum hafði verið stol-
ið úr gosdrykkjagerð, þar sem
hann hafði legið í vöru-
skemmu í marga mánuðf
ásamt með spíra, sem notaður
var til að geyma límonaði.
Spilling
háttsettra manna í kommún-
istaflokknum er nú mjög í
sviðsljósinu í Sovétríkjunum.
Hefur stjórn kommúnista-
flokksins í Volgograd-héraði
rekið 35 yfirmenn flokksins
undanfarin tvö ár fyrir spill-
ingu og önnur afbrot, að sögn
flokksformannsins í héraðinu.
í síðasta tölublaði tímaritsins
„Kommúnist11 sagði flokksfor-
maðurinn, Vladimir Kalashnik-
ov, að fjölmargir lögreglu-
menn og forstjórar í Volgograd
myndu bráðlega koma fyrir
rétt, ákærðir fyrir ýmis afbrot
svo sem fjárdrátt úr opinber-
um sjóðum. Forstjórar efnafyr-
irtækis hefðu dregið til sín
140000 rúblur milli 1983 og
1985 og haldið drykkjuveislur,
að sögn Kalashnikovs. Hann
var útnef ndur f lokksformaður í
Volgograd í janúar 1985.
Krákur
eru nú taldar ógna hinu sér-
stæða fuglalífi á Seychelles-
eyjum, og hefur stjórn eyjanna
sett fé til höfuðs þeim, j>ótt
þær séu aðeins tuttugu tals-
ins. Þessar krákur eru allar af-
komendur tveggja fugla, sem
flugu tíl eyjanna frá indversku
flutningaskipi fyrir níu árum,
og telja fuglafræðingar að þær
lifi á eggjum og ungum ann-
arra fugla og geti keppt um
fæðu við veikbyggðari tegund-
ir ef þeim fjölgar. Umsjónar-
menn segja að nauðsynlegt sé
að útrýma krákunum meðan
tala þeirra er lág, því að eftir
sjö ár gætu þær verið orðnar
5000. Seychelles-eyjar, sem
eru í Indlandshafi 1600 km frá
ströndum Afríku, eru heim-
kynni margra mjög sjaldgæfra
fuglategunda, svo sem bláu
dúfunnar, sólarfuglsins og
svarta páfagauksins, sem að-
eins fimmtíu eintök eru til af.
Tugir þúsunda ferðamanna
koma til eyjanna ár hvert, og
eru margir þeirra fuglaskoð-
endur.
Alkóhól
verður notað í tilraunaskyni
síðar í þessari viku til að knýja
flugvél á leiðinni yfir Atlants-
hafið, að sögn talsmanna
franskra samtaka sem vinna
að útbreiðslu slíks eldsneytis.
Stærðfræðikennari einn frá
Waco í Texas, Max Shruck að
nafni, ætlar að leggja af stað í
tveggja hreyfla flugvél, sem
gengur fyrir alhóhóii, frá St.
Johns í Nýfundnalandi, milli-
lenda í Azor-eyjum til að taka
eldsneyti og lenda síðan í Bor-
deaux í einu helsta vínræktar-
héraði Frakklands. Eldsneyti
flugvélarinnar verður blanda
úr áfengi og tréspíra og því illa
hæft til drykkjar. Áætlað er að
flugvélin lendi í Frakklandi
skömmu áður en ráðstefna um
notkun áfengis sem eldsneytis
verður sett, en hana munu
sækja sérfræðingar frá 22 ríkj-
um.
HEIMURINN_________________
Róstur mili hústaka og lögreglu
Kaupir Kim Larsen poppari
húsið, sem deitt er um?
Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Þjóðviljans í Kaupmannahöfn
Undanfarna daga hafa geisað
harðir götubardagar milli lög-
reglu og hústaka á Austurbrú í
Kaupmannahöfn. Hreyfíng hús-
taka í Kaupmannahöfn er fímm
ára gömul, þeir hafa sest að í
mörgum húsum sem staðið hafa
tóm og krafíst þess að fá að búa
þar. Hústakar eru almennt
atvinnulaus ungmenni og þeir
krefjast þess að fá gömul og illa
farin hús til yfírráða gegn lítilli
sem engri leigu en þeir muni sjálf-
ir sjá um endurnýjun og viðhald.
Þeir leggja megináherslu á að þeir
ráði rekstri húsanna algerlega
sjálfír.
Lögreglan hefur ávallt hent
hústökum út, oft meö miklu of-
beldi. Hústakar hafa sjaldnast
fengið að vera lengi í friði, en nú
hafa um fimmtíu þeirra búið í tvö
og hálft ár að Ryesgade 58, og
það hús er orðið að tákni baráttu
þeirra.
Fyrir nokkrum vikum fengu
hústakarnir þau skilaboð að þeir
yrðu að flytja út úr Ryesgade 58
fyrir fimmtánda september. Til
að mótmæla þessu var efnt til að-
gerða síðastliðinn sunnudag og
gengu hústakarnir og stuðnings-
menn þeirra frá Ráðhúsinu og að
Ryesgade. Þar tóku menn til við
að hlaða götuvígi, og á örstuttum
tíma var búið að loka öllum að-
iiggjandi götum með því að velta
um vinnuskúrum, bflum og öðru
sem til féll. Göturnar umhverfis
Ryesgade eru sumar hlaðnar úr
grjóti og voru götusteinarnir
tíndir upp og notaðir í götuvígin
og til að henda í lögregluna, þeg-
ar til hennar sást. Á bak við götu-
vígin eru nokkur hundruð hús-
takar og stuðningsmenn þeirra.
Lögreglan aðhafðist ekkert í
fyrstu. Daginn eftir gerði hún til-
raun til að rjúfa eitt götuvígið en
átti fótum fjör að launa. Um-
hverfis vígin hafa orðið skærur
milli lögreglu og hústaka. Yfir-
menn lögreglunnar hafa sagt að
það myndi að öllum líkindum
kosta mannslíf, ef reynt yrði að
rjúfa götuvígin, og skorað er á
stjórnmálamenn að finna aðra
lausn.
Borgarstjóri Kaupmannahafn-
ar kveðst hins vegar ekki vilja
beygja sig fyrir þessum óalda-
seggjum, heldur skuli hart mæta
hörðu.
í gær, þriðjudag, lýsti eigandi
hússins því yfir, að fram sé komin
hugsanleg lausn á vandanum, því
að borist hafi tilboð til kaupa á
húsinu. Er talið að á bak við til-
boðið standi rokksöngvarinn
Kim Larsen og hyggist hann gefa
hústökum húsið.
Refsiaðgerðir gegn
Suður-Afríku
Brussel - Utanríkisráðherra
Evrópubandalagsríkjanna á-
kváðu í gær að grípa til efna-
hagslegra refsiaðgerða gegn
Suður-Afríku. Aðgerðirnar eru
þó mjög takmarkaðar og ná
aðeins til lítiis hluta viðskipta
bandalagsríkjanna við Suður-
Afríku, en þeim er ætlað að
gefa til kynna gremju Evrópu-
manna yfir því hve seint miðar
í framfaraátt í landinu.
Eftir tveggja daga erfiðar
samningaumræður um það til
hvers konar aðgerða ætti að
grípa, urðu utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsins sammála
um að banna nýjar fjárfestingar í
Suður-Afríku og innflutning það-
an á járni, stáli og gulipeningum.
Utanríkisráðherra Bretlands,
Sir Geoffrey Howe, sem nú er
formaður Evrópubandalagsráðs-
íns, sagði að stjómin í Pretoríu
hefði sýnt að hún væri ekki reiðu-
búin til að gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til að hefja viðræður við
stjórnarandstöðuna um kynþátt-
amál. Hann skýrði hinum utanrí-
kisráðhermnum frá mishepp-
naðri friðarferð sinni til Suður-
Afríku í júlflok, og sagði hann að
aðgerðirnar sýndu stjórn landsins
glögglega hve brýna nauðsyn
Evrópubandalagsþjóðirnar teldu
vera á breytingum. Hann bætti
því við að flestar þjóðirnar hefðu
viljað grípa til harðari aðgerða,
en hann hefði orðið að leita að
samkomulagi samkvæmt reglum
bandalagsins.
Mjög var rætt um að banna
innflutning á kolum frá Suður-
Afríku, og hefði slíkt bann orðið
miklu áhrifaríkara en þær refsi-
aðgerðir sem að lokum voru sam-
þykktar, en Vestur-Þjóðverjar
komu í veg fyrir það.
SprengjutilraaAln í París, sem hafa verið gerð í skrifstofum veitingahús-
um, stórverslunum og neðanjarðarlestum, og virðast hafa það markmið að
verða vegfarendum að bana, hafa vakið mikinn óhug í Frakklandi og orðið
til þess að til strangra öryggisreglna hefur verið gripið. I gær var farið að
krefja alla ferðamenn og aðra ríkisborgara Sviss og landa Evrópubandal-
agsins um vegabrófsáritun. Til bráðabirgða voru vegabréfsáritanir gefnar
út á flugvöllum og landamærastöðvum, og var af þessum sökum klukkut-
íma biðröð á Charles de Gaulle flugvelli í París.
Hungursneyð í kjölfar
kjamorkustyrjaldar
Gœti orðið fjórum miljörðum manna að bana
Bern - Allt að því fjórir miljarð-
ar manna gætu dáið úr hungri í
kjölfar kjarnorkustyrjaldar,
eða enn fleiri en þau hundruð
miljóna sem myndu láta lífið af
völdum kjarnorkusprenging-
anna sjálfra, brunasára og
geislavirkni, að því er banda-
rískur vísindamaður sagði á
ráðstefnu í Bern í gær.
„Víðast hvar í heiminum
myndi nútímakjarnorkustyrjöld
ekki minna á myndir af Hiros-
hima og Nagasaki heldur miklu
fremur á myndir af núverandi á-
standi í Eþíópíu og Súdan,“ sagði
Mark Harwell frá Cornell-
háskóla í New York í fyrirlestri
sem hann hélt. „Stórstyrjöld milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
myndi sennilega valda meira
tjóni á Indlandi heldur en í risa-
veldunum báðum til samans."
ERLENDAR
FRÉTTIR
jóNnAsRsonR/REU1ER
Þegar árið 1982 fóru banda-
rískir og sovéskir sérfræðingar að
leiða rök að því að afleiðingar
kjarnorkustyrjaldar, jafnvel þótt
hún væri takmörkuð, myndu
verða miklu víðtækari en áður
var talið. Þeir héldu því einkum
fram að hinir miklu brunar, sem
kviknuðu við kjarnorkuspreng-
ingar, myndu valda því að þykk
rykský leggðust yfir mikinn hluta
jarðarinnar, þannig að hitastigið
lækkaði til muna. Afleiðingin
yrði hinn svokallaði „kjarnorku-
vetur.“
Miklar umræður spunnust af
þessum kenningum og fyrir-
skipaði alþjóðaráð vísindafélaga
sérstaka rannsókn, sem þrjú
hundruð sérfræðingar frá þrjátíu
iöndum unnu að. Voru meðal
þeirra eðlisfræðingar, veðurfræð-
ingar, búfræðingar og vistfræð-
ingar. Er nú verið að halda ráð-
stefnu í Bem til að ræða niður-
stöðumar.
Vísindamenn á ráðstefnunni
töldu að lækkun hitastigs um fá-
Miðvikudagur 17.
einar gráður myndi hafa mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir matvæl-
abirgðir í heiminum. Minnkandi
sólarljós og hiti myndi leika upp-
skem mjög grátt, og eyðilegging
orkustöðva í styrjöld myndi einn-
ig hamla mikið fæðuframleiðslu.
Þannig myndu hungursneyð og
svo sjúkdómar og upplausn sem
henni eru tengd valda því að
fólksfjöldinn minnkaði mikið.
Mark Harwell sagði að Banda-
ríkjamenn, Ástralir og Kanada-
menn hefðu nægar matarbirgðir
til að komast af í allmörg ár, svo
framarlega sem beinar afleiðing-
ar kj arnorkustyrj aldar væru ekki
of miklar, en í flestum öðmm
löndum hefðu menn ekki birgðir
nema til fárra vikna eða mánaða,
ef styrjöldin yrði rétt fyrir upp-
skerutímann.
Vísindamenn héldu því einnig
fram að kjarnorkuárás á iðnaðar-
svæði gæti valdið því að eitmð
úrgangsefni úr iðnaði gætu borist
út í andrúmsloftið og valdið
skaða.
1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Tœland
Þýskir
ferðamenn
Kynferðistilburðir vestur-
þýskra ferðamanna í Tælandi
vekja nú gremju innfæddra. Var
tilkynnt í gær, að lögreglan í
landinu hefði hafið daglegar
eftirlitsferðir um eyna Samui í
Suður-Tælandi til að tryggja að
ferðamenn frá Vestur-
Þýskalandi misbyðu ekki vel-
sæmiskennd eyjarskeggja með
því að ganga berstrípaðir á al-
mannafæri eða eðla sig coram pu-
blico. Þessar eftirlitsferðir hófust
eftir að lögreglan hafði skipað
180 vestur-þýskum ferða-
mönnum um helgina að hylja
nekt sína og hemja samfarir sínar
innan fjögurra veggja og hótað
þeim tugthússtraffi ella. „íbúar
staðarins em orðnir vanir því að
sjá ferðamennina stiplast og vera
í stredderíi á ströndinni,“ sagði
lögregluþjónn við Reuter, „en
þeim finnst nóg komið þegar alls-
berir túrhestar koma ríðandi á
mótorhjólum inn í borgir.“ Lög-
reglan sagði að flestir ferðamenn-
irnir hefðu verið um kyrrt á Sam-
ui og hegðuðu sér vel, en nokkrir
hefðu flutt sig til óbyggðrar eyjar.
„Við vitum ekki hvað þeir hafast
þar að, en okkur er sama, því
enginn sér þá.“