Þjóðviljinn - 17.09.1986, Side 15

Þjóðviljinn - 17.09.1986, Side 15
ÍÞRÓTTIR Evrópukepprú Handbolti Slakt og tap í seinni leiknum Mörk Héðins í lokin Ijós punktur íslenska landsliðið í hand- knattleik náði sér aldrei á strik í síðari leik sínum við Vestur- Þjóðverja sem háður var í Lemgo í gær. Vestur-Þjóðverjar unnu öruggan sigur, 20-15, en fyrri leikurinn, í fyrrakvöld, endaði 19-19. Úrslitin réðust nánast í fyrri hálfleik. Vestur-Þjóðverjar kom- ust þá í 4-1 og 6-2 og náðu síðan sex marka forystu, 12-6. Staðan var 12-7 í hálfleik. Hinn snjalli Thiele í marki Vestur-Þjóðverja var íslensku leikmönnunum erf- iður og varði oft frá þeim í dauða- færum. íslenska liðið náði aldrei að saxa á það forskot og munurinn var4-6mörk, mest 18-11 og 20-13 skömmu fyrir leikslok. Héðinn Gilsson, FH-ingurinn ungi, lék síðustu 10 mínúturnar og vakti mikla athygli. Hann skoraði 2 glæsimörk og að sögn Þórðar Sig- urðssonar fararstjóra minnti hann mjög á Atla Hilmarsson - hékk lengi í loftinu og setti mark- vörðinn úr jafnvægi áður en hann skoraði með hörkuskoti. „Það má segja að allt liðið hafi sýnt slakan handbolta. Mikið um mistök, slæmar sendingar, og vít- aköst ekki nýtt. Páll Olafsson og Bjami Guðmundsson komust best frá leiknum og Geir Sveins- son lék vel í vörninni," sagði Þórður. Mörkin gerðu Páll Ólafsson 4, Bjami Guðmundsson 3, Héðinn Gilsson 2, Þorgils Óttar Mathie- sen 1, Geir Sveinsson 1, Guð- mundur Guðmundsson 1, Krist- ján Arason 1, Sigurður Sveinsson 1 og Jakob Sigurðsson 1. -VS England Enn tapar Man.Utd! Manchester United mátti þola sitt fjórða tap í sex leikjum í 1. deild ensku knattspyrnunnar í gærkvöldi. Nú var það Watford sem bar sigurorð af Man.Utd, 1-0 á Vicarage Road. Watford er þar með komið í 6. sæti 1. deildar með 10 stig en Man.Utd er Qórða neðst með 4 stig. Velskur unglingalandsliðs- maður, Iwan Roberts, kom inná sem varamaður og skoraði sigur- mark Watford 16 mínútum fyrir leikslok. í 2. deild vann Shrewsbury sigur á Brighton, 1-0. í 3. deild komust Bournemouth og Giliing- ham á toppinn með góðum sigr- um og hið fornfræga Preston North End tók forystuna í 4. deild. -VS/Reuter Úrslit í Evrópumótunum í knattspyrnu í gær- kvöldi - 1. umferð - fyrri leikir: Evrópukeppnl blkarhafa: Fram-GKS Katowice(Póllandi)..............................................0-3 B1903 (Danmötku) - Vitosha (Búlgaríu)....................................1-0 UEFA-bikarinn: Groningen (Hollandi) - Galway United (Irlandi)...........................5-1 Jeunesse D'xEsch (Luxemburg) - Ghent (Belgíu)............................1-2 Neuchatel Xamax (Sviss) - Lyngby (Danmörku)..............................2-0 Mönchengladbach (V.Þýskal.) - Partizan Belgrad (Júgóslavíu)..............1 -0 Skagamenn gegn Sporting í dag ,„Sporting Lissabon er með sterkt lið og leikurinn verður erf- iður. En íA hefur áður staðið sig vel gegn sterkum liðum sem litið hefur verið vitað um, t.d. Aber- deen og Beveren, svo það getur allt gerst,“ sagði Pétur Pétursson landsliðsmaður frá Akranesi um leik ÍA og Sporting Lissabon frá Portúgal í UEFA-bikarnum sem fram fer á Laugardalsvellinum kl. 17.45 í dag. Sporting Lissabon hefur verið eitt sterkasta lið Portúgals í ára- raðir. Félagið átti 4 landsliðs- menn í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó, Sousa, Pacheco, Mor- ato og De Oliveira. Með liðinu leikur hinn snjalli Mexíkani Man- uel Negrete sem frægur er fyrir hjólhestaspyrnuna glæsilegu gegn Búlgaríu í úrslitum HM í sumar. í framlínunni eru tveir Englendingar, Raphael Meade sem lék með Arsenal í nokkur ár og Rob McDonald sem mest hef- ur leikið í Hollandi, með Gron- ingen og PSV Eindhoven. Portúgalirnir hafa fylgst mjög náið með Skagamönnum, m.a. með öllum undirbúningnum fyrir úrslitaleik bikarkeppninnar. Skagamenn vita hinsvegar lítið um Sporting, forráðamenn liðs- ins lofuðu að koma með mynd- band með sér á bikarúrslita- leikinn en gleymdu því heima af einhverjum ástæðum. í A hefur leikið flesta Evrópu- leiki allra íslenskra liða og þeir Ámi Sveinsson og Guðjón Þórð- arson hafa tekið þátt í um 20 leikjum. Pétur Pétursson á að baki eina 30 Evrópuleiki með ÍA, Feyenoord og Antwerpen, og hefur m.a. skorað tvívegis þrennu í þeim leikjum. Valsmenn leika einnig í Evr- ópukeppni í kvöld, þeir mæta hinum frægu ítölsku meisturum Juventus í Torino á Ítalíu. Guðni Bergsson getur ekki leikið með Val, hann þarf að taka út leikbann vegna tveggja gulra spjalda frá því í fyrra. Juventus stillir upp sínu sterkasta liði, þar á meðal þeim Michael Laudrup og Michel Platini. Fleiri íslendingar verða í eld- línunni í kvöld. Arnór Guðjohn- sen leikur með Anderlecht gegn Gornik Zabrze frá Póllandi, As- geir Sigurvinsson með Stuttgart gegn Spartak Trnava frá Tékk- oslóvakíu, Atii Eðvaldsson með Bayer Uerdingen gegn Jena frá A.Þýskalandi og Ómar Torfason með Luzern gegn Spartak í Mos- kvu. -SH/SV/Akranesi/VS Guömundur Torfason í besta færi Framara í gærkvöldi. Hann náði að renna boltanum framhjá markverðinum en þótt mark blasi við á myndinni rann boltinn framhjá stönginni, öfugu megin. Mynd: E.ÓI. Evrópubikarinn Framarar langt undir getu Áttu einn sinn slakasta leik á árinu og töpuðu 0-3 fyrir Katowice Eftir fögnuðinn og hátíðahöld- in síðustu daga voru Framarar rækilega minntir á hina hliðina á knattspyrnunni í gærkvöldi. Þeir fengu skell, 0-3, gegn pólsku bik- armeisturunum GKS Katowice á Laugardalsvellinum og sýndu sennilega einn sinn slakasta leik I sumar. Vissulega voru þeir að leika gegn sér sterkara liði en með eðlilegum leik hefðu þeir getað náð öllu hagstæðari úrslitum. Síðari leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa sem fram fer í Katowice cftir hálfan mánuð er nú nánast formsatriði. Það vantaði allan stöðugleika í lið Fram og leikmenn virtust taugaóstyrkir strax í byrjun. „Við vorum ósannfærandi í byrjun og það réð miklu. Ef við hefðum náð strax góðri keyrslu hefðu þeir ^rðið óstyrkir og allt getað gerst. í staðinn hjálpuðum við þeim til að komast inní leikinn,“ sagði Pétur Ormslev eftir leikinn. ,4»eir voru taugaóstyrkir fram- anaf og við ætluðum að nota okk- ur það og pressa þá framarlega. En einmitt á þeim kafla gerði lið okkar mörg mistök, leikurinn opnaðist og þeir gátu nýtt sér að vera fljótari, sneggri og teknisk- ari en við,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram. „Við spiluðum vitlaust í byrj- un, reyndum pressu sem við réðum ekki við. Við hefðum átt að bakka og byggja meira á hrað- aupphlaupum. I seinni leiknum verðum við að spila öðruvísi og gerum allt til að sýna betri leik,“ sagði Guðmundur Torfason. Framarar fengu fyrstu færin og stórhætta var við mark Pólverj- anna á 12. mínútu þegar Kristinn Jónsson og Guðmundur Steins- son áttu báðir skot í varnarmenn á markteignum. Friðrik Friðriks- son þurfti fyrst að verja skot á 19. mínútu þegar hann sló boltann í hom eftir hörkuskot frá Ku- bisztal af 25 m færi. Fyrsta markið kom á 25. mín- útu og var af ódýra markaðnum. Aukaspyma, sent á Koniarek sem skallaði að marki, Friðrik missti óvænt af boltanum sem skreið yfir línuna, 0-1. Katowice gat síðan bætt við og var næst því á 35. mínútu þegar Koniarek skaut framhjá úr dauðafæri af markteig. Síðan vom tvö mörk dæmd af liðinu með stuttu milli- bili, fyrir brot og rangstöðu. Besta færi Fram í leiknum kom á 43. mín. Misheppnað útspark markvarðar Katowice, Pétur Ormslev sendi viðstöðulaust til baka inná vítateiginn, Guðmund- ur Torfason slapp innfyrir varn- armann og renndi boltanum framhjá markverðinum en rétt framhjá. „Ég var kominn úr jafnvægi, varnarmaðurinn var búinn að negla mig niður áður en ég gat skotið,“ sagði Guðmund- ur. Seinni hálfleikur var tíðindalít- ill. Framarar náðu aldrei vel sam- an og flestar sóknartilraunir þeirra enduðu með mistökum við miðju vallarins. Á 66. mín. náði Katowice skyndisókn, hinir eld- fljótu Kubisztal og Koniarek brunuðu upp, sá fyrrnefndi skaut í vamarmann og boltinn hrökk til þess síðarnefnda sem skoraði sitt annað mark í leiknum af mark- teig, 0-2. Fram hefði átt að fá vítaspyrnu á 82. mín. þegar boltinn hrökk í hönd vamarmanns Katowice í vítateignum og mínútu síðar átti Guðmundur Torfason gott skot úr aukaspyrnu rétt yfir slá. En á 85. mín. renndi Kubisztal sér framhjá Jóni Sveinssyni einsog ekkert væri auðveldara, var þar með kominn einn innfyrir og skoraði auðveldlega, 0-3. Og Fram slapp ódýrt við fjórða markið á 87. mínútu þegar Koni- arek brunaði aleinn uppað mark- inu frá miðju, renndi sér til hliðar við Friðrik en skaut í samskeytin og útaf úr galopnu færi. Flestir leikmanna Fram léku talsvert undir getu. Þorsteinn Þorsteinsson var eini vamarmað- urinn sem stóð vel fyrir sínu. Ormarr örlygsson átti nokkrar ágætar rispur og Kristinn Jónsson sömuleiðis, annars var miðjuspil- ið í molum. Guðmundarnir vom frískir framanaf í framlínunni en fengu minni og minni aðstoð eftir því sem á leið. Guðmundur Steinsson varð að fara útaf vegna meiðsla um miðjan seinni hálf- leik, Amljótur Davíðsson kom þá inná og sýndi skemmtilega takta. En það skorti fyrst og fremst allan heildarsvip á Fram- liðið, eftir óömgga byrjun náðu leikmenn aldrei upp eðlilegum leik. Pólska liðið er jafnt og sam- stillt, svipað öðmm úr Austur- Evrópu sem hér hafa leikið. Framherjamir eru stórhættu- legir, eldfljótir og gerðu oft usla í opinni vörn Framara. Það var greinilegt á leik Pólverjanna framanaf að þeir vom smeykir og tóku enga áhættu. En öryggið færðist fljótlega yfir þá, fyrsta markið létti af þeim pressunni og þeir kvíða tæplega síðari leiknum í Katowice. -VS ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.