Þjóðviljinn - 18.09.1986, Page 7

Þjóðviljinn - 18.09.1986, Page 7
VHDHORF Ótrúlegt ábyrgðarleysi eftir Kristínu Á. Ólafsdóttur Borgarstjórinn okkar hefur trúlega stunið þungan þegar fjöl- miðlar fóru að segja frá erfið- leikum við mönnun dagvistar- heimila Reykjavíkur í byrjun mánaðarins. „Smámál“ kallaði hann sams konar vandræði fyrir réttu ári, en þá þurfti að loka dagvistardeildum vegna skorts á starfsfólki. Og nú á afmælisári hefur manni helst skilist að ekki þyki við hæfi að sjá eða nefna það sem miður fer í henni Reykjavík. Þeir sem það gera eru umsvifa- laust afgreiddir sem nöldurskjóð- ur og þeim bent á að erfiðleikar á okkar tímum sé hégómi miðað við líf Reykvíkinga árið 1786! Mér er bæði ljúft og skylt að fylla flokk „nöldurskjóðanna" sam- kvæmt skilgreiningu borgarstjó- rans, ekki síst þegar kemur að því sem hann leyfði sér að kalla smámál síðastliðið haust. Ástand dagvistarmála í Reykjavík er þannig að það hvarflar að manni að ráðamenn borgarinnar hafi ekki alls kostar fylgst með þjóðfélagsbreytingum síðustu tveggja alda. Nema að skýringin á ófremdarástandinu sé einfaldlega sú að meirihluti stjórnenda Reykjavíkur er og hefur verið karlkyns. Ábyrgðar- leysis karla gagnvart bömum verður átakanlega oft vart og skilningsskortur þeirra á uppeld- isaðstæðum er stundum ótrú- legur. En það er villandi einföld- un að skipta í lið eftir kyni: með eða á móti góðum barnaheimil- um. Pólitísk afstaða kemur þar einnig við sögu - í dag engu síður en á tímum Atómstöðvarinnar þegar frú Árland kærði sig ekki um að setja skattpeningana sína í barnaheimili fyrir almúgabörn. Biðtími lengist Uppbygging dagvistarheimila fyrir börn hefur aldrei fengið að vera forgangsverkefni í Reykja- vík, þótt löngu sé ljóst að þörfin vex stöðugt með aukinni atvinnu- þátttöku kvenna. Aðeins böm foreldra í forgangshópum komast á dagheimili og biðtími þeirra tvöfaldaðist milli áranna 1984 og 1985, var orðinn 8 mánuðir að meðaltali hjá einstæðum foreldr- um í fyrra. Aðeins 47 miljónum króna á að verja úr borgarsjóði til byggingar dagvistarheimila á þessu ári. Það er heldur minna fé en áætlað er að framkvæmdirnar við göngin undir Miklubrautina kosti. Þörfin fyrir hraðari upp- byggingu dagvistarheimila er löngu ljós og réttlætir fyllilega mun hærri fjárhæðir úr sameigin- legum sjóði okkar í slíkar fram- kvæmdir. Uppeldisstarfið Pólitískar dfeilur um dagvist- armál hafa einatt snúist um plássafjölda og hæga uppbygg- ingu. En síðustu misseri hefur ljósið beinst meir að innra starfi heimilanna og þar hafa afleiðing- ar láglaunastefnu stjómvalda ekki leynt sér. Stöðugt hefur reynst erfiðara að halda í starfs- við sem afleiðing láglaunastefn- unnar. Við þessu hafa stjórnvöld neitað að bregðast. Ábyrgðar- leysi þeirra hefur verið hreint óhemju dugnað og þrautseigju í baráttu sinni við að halda heimil- unum gangandi. Þetta þýðir oft á tíðum aukið álag þeirra og ann- }yÁ stand dagvistarmála íReykjavík er þannig að það hvarflar að manni að ráðamenn borgarinnar hafi ekki alls kostarfylgst með þjóðfélagsbreytingum síðustu tveggja alda“ fólk og manna lausar stöður. Á milli áranna 1984 og 1985 fækk- aði fóstrum á dagvistarheimilum Reykjavíkur þrátt fyrir fjöl'gun starfsfólks með nýjum heimilum. Þannig lækkaði hlutfall fag- menntaðs fólks og er það eitt og sér nægjanlegt áhyggjuefni þeim sem gera sjálfsagðar kröfur til uppeldisstarfs heimilanna. En auk þess hafa mannabreytingar orðið æ tíðari meðal annars starfsfólks svo mikill tími for- stöðumanna, fóstra og reyndari aðstoðarmanna fer í að setja nýtt fólk inní störfin. Álagið vex og markmið uppeldisstarfsins verða fjarlægari. Vonleysi og þreyta fara að þoka til hliðar þeim áhuga sem á sínum tíma kallaði fólk til uppeldisnáms og starfa. Tíð skipti starfsfólks grafa undan ör- yggiskennd barnanna. Það þarf engar rannsóknar- nefndir til að finna ástæður þess- arar þróunar. Svörin liggja í launaumslögum kvennastéttanna sem annast eitt vandasamasta ábyrgðarstarf sem hægt er að fela nokkurri manneskju, uppeldi barna. 27.637 krónur eru byrjun- arlaun fóstra eftir þriggja ára nám. Ófaglærða starfsfólkið byrjar flest með 23-24 þúsund krónur í mánaðarlaun. Þeir sem eru innan við tvítugt verða þó að láta sér nægja 20.500 krónur brúttó, en þá er eftir að draga frá sparimerki o.fl., þannig að uppúr umslaginu tínast ekki nema 14-15 þúsund. Með 15 ára starfsreynslu og öll námskeið sem bjóðast nær ófaglærða fólkið ekki 30 þúsund krónum. Svo undrast menn þá staðreynd að fyrstu 6 mánuði þessa árs hættu 80 manns störfum á dagvistarheimilum Reykjavík- ur, 80 manns af rúmlega 500. Undrast og vilja rannsaka ástæð- ur! Ábyrgðarlaust yfirvald Atgervisflóttinn úr mikilvæg- um störfum á sviði uppeldis, menntunar og hjúkrunar blasir St. Jósefsspítali Landakoti Aðstaða við lyfjadeild Landakotsspítala er laus til umsóknar fyrir sérfræðing í lyflækningum og lungnalækningum. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í störfum á gjörgæsludeild. Umsóknarfresturertil20. októbern.k.. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfirlæknis spítalans. St. Jósefsspítali, Landakoti. ótrúlegt. í júlíbyrjun vísaði Sjálfstæðismeirihlutinn frá til- lögu um launauppbót til borgar- starfsmanna. Og nú á dögunum létu Sjálfstæðismennirnir, sem skipa meirihluta stjórnar Dag- vistar barna, sig hafa það að vísa frá ályktun sem ætlað var að kalla fram viðbrögð á æðri stöðum. Viðbrögð við því ástandi sem ljóst var í septemberbyrjun, en þá voru aðeins 16 af 58 dagvistar- stofnunum borgarinnar full- mannaðar. Fólk vantaði í 61 stöðugildi eða 12%. Meirihlutinn vildi rannsaka málið og ekki flana að neinu! Forstöðumenn hafa sýnt arra starfsmanna, sem hvergi er metið til launa. Allt er reynt áður en gripið er til þess örþrifaráðs að loka deildum. En að er ekki endalaust hægt að níðast á ábyrgðartilfinningu þess fólks sem starfar á dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar. Og það eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga á rétt barnanna með því að halda opnum heimilum sem ekki hafa tök á að uppfylla kröfur um uppeldisstarf. Sjálfstæðismenn verða að horf- ast í augu við rætur vandans, launastefnu sem stenst ekki veru- leikann. Við þeim vanda ber þeim að bregðast, vilji þeir heita ábyrgir gagnvart uppeldi þeirra barna sem dvelja á dagvistar- heimilum borgarinnar. 1 þeim efnum gæti ástandið átt eftir að versna til muna ef fram heldur sem horfir. Nemendum Fóstur- skóla íslands hefur fækkað síð- ustu 2 árin. Ungt fólk, sem gjarnan vill leggja fyrir sig upp- eldisstörf, hugsar sig tvisvar um þegar það fær upplýsingar um laun þessara stétta. Hverju svarar Davíð? Fyrir borgarstjórnarfundi í dag liggur fyrirspurn frá borgarfull- trúum minnihlutans þar sem spurt er hvemig meirihlutinn hyggist bregðast við þeim vanda sem uppi er á dagvistarheimilum, sjúkrahúsum, í heimilisþjónustu og víðar vegna skorts á starfs- fólki. Grannt verður hlustað á svörborgarstjóra. Vonandi hefur hann og hans fólk áttað sig á að ekki er lengur líðandi að neita að bregðast við óþolandi veruleika. Ef fólki tekst að þurrka veislu- glýjuna úr augunum ætti því að verða ljóst að hér er ekki um smámál nöldurseggja að ræða, heldur ábyrgðarlaust niðurrif á þeim grunni sem mikilvægastur er fyrir framtíðina. Vonandi þurfa börnin okkar ekki að sanna það. Kristín Á. Ólafsdóttir borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins. HÁTÍÐARDAGSKRA Dagskrá ur verkum JÓhanneSar Úr Kötlum í umsjón Bríetar Héðinsdóttir og Maríu Sigurðardóttur verður haldin í GERÐUBERGI sunnudaginn 21. september kl. 16.00 Flytjendur: Erlingur Gíslason Bríet Héðinsdóttir Jóhann Sigurðarson María Sigurðardóttir Háskólakórinn flytur Sóleyjarkvæði undir stjórn Árna Harðarsonar. Inga Backmann syngur við undirleik Þórhildar Björnsdóttur. Jóhannes úr Kötlum Afmælisnefnd Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.