Þjóðviljinn - 18.09.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.09.1986, Blaðsíða 16
moDinuiNN twtxwjrmv m 1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA Fimmtudagur 18. september 1986 211. tölublað 51. árgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. Sjávarútvegsráðherra Vill kvóta til 1990 Halldór Asgrímsson: Engin ástœða til að breyta neinu íákvœðum laganna Lögin verðiframlengd um þrjú ár H vegsráðherra hefur nú lýst því yfir að hann vilji framlengja Iögin um kvóta á fiskveiðum um þrjú ár og að það verði gert áður en þau falla úr gildi í lok næsta árs. Lögum samkvæmt á að fara fram endurskoðun á lögunum fyrir 1. nóvember í ár, en niður- staða sjávarútvegsráðuneytisins er á þann veg að ekki sé ástæða til að breyta neinu í ákvæðum lag- anna um stjórn fiskveiða á næsta ári. í fréttatilkynningu frá ráðu- neytinu er lögð á það áhersla að hagur útgerðar hafi batnað og „þótt bætt ytri skilyrði eigi stóran þátt í þessum bata, er enginn vafi á því að sú stefna sem fylgt hefur verið við stjórn fiskveiða, hefur einnig veruleg áhrif.“ Og í fram- haldi af því telur ráðherra að kvótalögin eigi að gilda til ársins 1990. í sjávarútvegsráðuneytinu er nú hafinn undirbúningur að samningu reglugerðar um stjórn botnfiskveiða 1987. - vd. Þjóðviljinn Bridgemót á laugardag Eittfjölmennasta bridgemót hérlendis haldið í tilefni 50 ára afmœlis Þjóðviljans. Vegleg verðlaun í boði sama dag og er spilað í menning- armiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti. „Fyrstu verðlaun í mótinu eru ferð til Kaupmannahafnar eða Salzburg að vali á vegum Samvinnuferða-Landsýnar," sagði Ólafur ennfremur. “Allir útreikningar á mótinu verða gerðir í tölvu þannig að úrslit liggja fyrir strax að spili loknu. Þar er um að ræða nýjung í kepp- nisfþrótt hér á landi, sem við eigum von á að mælist vel fyrir.“ „Við bridgespilarar erum mjög ánægðir með þetta framtak for- ráðamanna Þjóðviljans og það er greinilegt á undirtektum bridge- manna að þeir kunna vel að meta slíkt framtak," sagði Ólafur Lár- usson að lokum. Eins og áður sagði hefst mótið í Gerðubergi kl 13.00 á laugardag- inn en úrslit liggja fýrir um kvöld- ið. Ólafur Lárusson: afskaplega ánægðir með þetta framtak Þjóðvilians. Ljósm. E.ÓI. Það er óhætt að segja að þátt- taka í þessu afmælismóti Þjóðviljans hafi farið fram úr björtustu vonum því yfir 100 bridgespilarar hafa skráð sig til þátttöku og þar er að finna obb- ann af sterkustu spiiurum lands- ins, sagði Ólafur Lárusson, sem hefur haft veg og vanda af undir- búningi móts í tilefni af 50 ára afmæli Þjóðviljans. Bridgemót Þjóðviljans hefst kl 13.00 nk laugardag en þá verður spiluð fyrri umferð í mótinu. Seinni umferðin hefst kl 19.30 Bridge ísland Albert Guðmundsson: Játa hvorki né neita. Rafmagnshitun Niður- greiðslur skomar við trog? Rætt um að lœkka niður- greiðslur árafmagni til húsahitunar um 100 milj- ónir. 30% hœkkun á hit- unarkostnaði. Albert Guðmundsson: Gefeng- ar upplýsingar umfjár- lagagerðina Ég get engar upplýsingar gefið um fjárlagagerðina, get hvorki játað þessu né neitað, sagði Al- bert Guðmundsson iðnaðarráð- herra í gær aðspurður hvort ríkis- stjórnin ráðgerir að lækka niður- greiðslur verulega til þeirra sem hita hús sín með rafmagni. Þjóðviljinn hefur fyrir því heimildir að ríkisstjórnin geri ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpi sínu að þessar niðurgreiðslur verði lækkaðar um 50%, úr 200 miljón- um á þessu ári í um 100 miljónir á því næsta. Þessi ráðstöfun gæti þýtt að hitunarkostnaður þeirra sem hita hús sín með rafmagni hækkaði um 30% þegar til kæmi. Ekki var hægt að fá staðfest- ingu á þessu í gær, en háttsettur embættismaður í stjórnarráðinu sagði í samtali við blaðið að hann hefði heyrt um þetta talað. Aðrir viðmælendur Þjóðviljans í kerf- inu vildu ekkert um málið segja og hvorki náðist í Þorstein Páls- son fjármálaráðherra né Geir Haarde aðstoðarmann hans. -gg á toppnum íslenska sveitin á ópinbera heimsmeistaramótinu var komin í 6 liða úrslitígœr íslensku bridgespilurunum á hinu óopinbera heimsmeistara- móti á Miami á Florida gengur nyög vel og eru nú komnir í sex liða úrslit eftir að þeir unnu sigur á landsliði Argentínu í gærkvöldi með tveggja stiga mun. Alls hófu 170 sveitir keppni. Auk íslensku sveitarinnar voru í 12 liða úrslitunum sex sveitir frá Bandaríkjunum, tvær frá Frakk- landi og ein frá hverju landanna Argentínu, Ítalíu og Svíþjóð. Liðsstjóri íslensku sveitarinnar er Öm Arnþórsson en auk hans spila þeir Guðlaugur R. Jóhanns- son, Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson. Þessu móti lýkur á laugardag og þá verður ljóst hverjir hreppa hinn óopinbera heimsmeistara- titil. -v. Þróunarfélagið í félag með Wallenberg 60% kemurfrá sænska auðjöfrinum Wallenberg. Gunnlaugur M. Sigmundsson: Engin lagaleg vandamál Fjárfestingarfélagið Silfurberg h.f. er nýtt hlutafélag sem stofnað hefur verið að frumkvæði Þróunarfélags íslands. Tilgangur félagsins er að stuðla að eflingu íslensks atvinnulífs með því að leggja fram hlutafé í nýjum fyrir- tækjum á íslandi. Ólafur Davíðsson og Gunn- laugur M. Sigmundsson greindu frá stofnun hins nýja fjárfesting- arfélags en Gunnlaugur er for- maður þess. Heildarhlutafé fél- agsins við stofnun er 25 milljónir íslenskar og meirihluti hlutafjár eða 15 milljónir eru í eigu sænska auðjöfursins Peter Wallenberg. Aðrir hluthafar eru auk Þróun- arfélagsins, Jón Magnússon hjá Rönning, Hagvirki og Guð- mundur Á Birgisson, bóndi Núp- um Ölfusi. Stjóm félagsins skipa Peter Wallenberg stjórnarformaður Enskilda Banken, Curt Nicolin stjórnarformaður ASEA í Sví- þjóð, Gunnlaugur M. Sigmunds- son framkvæmdastjóri Þróunar- félagsins, Jóhann Bergþórsson framkvæmdastjóri Hagvirkis og Jón Magnússon stjómarformað- ur Rönning h.f. Þróunarfélagið fagnar sam- starfi við þá aðila er að stofnun Silfurbergs standa og telur sér- staklega mikilvægt að myndaður hefur verið persónulegur sam- starfsgrundvöllur við menn sem eru jafn áhrifamiklir í sænsku at- hafnalífi og Peter Wallenberg og Curt Nicolin eru. Að lokum má geta þess að þeir Ólafur og Gunnlaugur tóku sér- staklega fram að lagaleg vanda- mál standa ekki í vegi fyrir stofn- un Silfurbergs, þó svo að 60% hlutafjár séu í eigu erlends ríkis- borgara. -GH Skagafjörður Stóðréttir að hefjast Mjög hefur dregið úr afréttar- um hádcgi, i Reynistaðarrétt í beit stóðhrossa á seinni árum Staðarheppi, Skag. 21. sept. síð- og helst er um upprekstur hrossa degis, í Víðidalstungurétt í Víði- að ræða f Húnavatnssýslum og dal, V-Hún. 27. sept. árdegis og í Skagafirði. Mestur fjöldi hrossa Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag 4. verður væntanlega í Skarðsrétt í okt. árdegis. Gönguskörðum, Skag. 21. sept.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.