Þjóðviljinn - 22.10.1986, Qupperneq 2
-SPURNINGIN-
Hvað finnst þér um ný-
legan úrskurð Kjara-
dóms um hækkun launa
til æðstu embættis-
manna ríkisins og ráð-
herra, 7% umfram fé-
lagsmenn BSRB?
Dómhildur Guðmundsdótt-
ir,
skrifstofumaður:
Ég er afskaplega óánægð með
þennan úrskurð. Mér finnst að
þetta fólk mætti nú halda svolítið í
við sig meðan ástandið er eins og
jað er í launamálum almennings.
Anna Margrét Magnúsdótt-
ir,
starfar í Hafnarbúðum:
Mér finnst fáránlegt að hækka
launin svona. Það á auðvitað að
stefna að meira launajafnrétti í
raun og þetta er ekki rétta leiðin til
sess.
Hans Sveinjónsson,
trésmiður:
Þeim er greinilega ekki sárt um
þetta, segi ég nú bara. Þetta er
auðvitað ekki réttlátt. Launin í
þjóðfélaginu eiga að fylgjast að
með einhverjum hætti.
Sólveig Hafstelnsdóttir,
afgreiðslumaður:
Mér finnst þetta vera óeðlilega há
laun miðað við aðra í þjóðfélaginu.
Svo skilst manni að þetta sé nú
ekki allt sem þeir fá, ýmis konar
sporslur fylgi.
Guðmundur Karlsson,
bóndi á Mýrum í V-Húna-
vatnssýslu:
Þetta er nú óeðlilegur úrskurður að
mínu mati. Aðrir hefðu frekar átt rétt
á þessum hækkunum. Þettaerekki
eðlileg leið til launajafnréttis í
þjóðfélaginu.
FRETTIR
Neytendamál
Island áratugum á eftir
íerindi semflutt var um neytendamál í Svíþjóð á þingi Neytendasamtakanna kom
skýrt íIjós hversu aftarlega ísland er íþessum málum.
Jóhannes Gunnarsson: Eins og að vakna upp við vondan draum
Það var eins og að vakna upp
við vondan draum að heyra
þetta erindi. Okkur varð enn Ijós-
ara en áður að við íslendingar
erum um 20-30 árum á eftir ná-
grannalöndunum hvað ncytenda-
mál snertir, sagði Jóhannes
Gunnarsson um erindi Lailu
Freivalds forstöðumanns sænsku
neytendamálastofnunarinnar
sem hún hélt á þingi Neytenda-
samtakanna um helgina.
Jóhannes sagði að í erindinu
hefði Freivalds gert grein fyrir
þróun og stöðu neytendamála í
Svíþjóð og ísland færi vægast sagt
mjög illa út úr þessum saman-
burði. „Svo nokkur dæmi séu
nefnd þá er í fyrsta lagi lagaleg
staða neytenda í Svíþjóð svo
mikiu betri en hér á Iandi. í öðru
lagi þá annast Neytendamála-
stofnunin útgáfu á efni sem notað
er til neytendamálafræðslu í
skólakerfinu. Slík fræðsla er afar
mikilvæg en hún er ekki fyrir
hendi hér á landi. í þriðja lagi þá
framkvæmir þessi stofnun mjög
viðamiklar rannsóknir á neytend-
avarningi sem auðveldar
neytandanum val og stuðlar að
auknum vörugæðum. í fjórða
lagi þá kom fram að auk þessarar
stofnunar þá annast sveitarfé-
lögin í Svíþjóð mjög mikið
neytendastarf sem einkum felst í
upplýsingum og aðstoð við
neytendur. Eins og allir vita er
ekki um slíka þjónustu að ræða
hér á landi. Þá kom fram í erindi
Freivalds að við neytendamál í
Svíþjóð starfa um 500 manns, en
hér á landi eru 3 í fullu starfi og
einn í hálfu. Framlög ríkis og
sveitarfélaga til neytendamála í
Svíþjóð eru um 90 krónur á hvern
íbúa á ári en það samsvarar því að
hér væru veittar um 22 miljónir í
þetta starf. í fjárlagafrumvarpinu
nýja er hins vegar gert ráð fyrir
585 þúsund króna styrk til
Neytendasamtakanna," sagði Jó-
hannes.
Á þinginu voru samþykktar
nokkrar ályktanir þar sem m.a.
er skorað á stjórnvöld að auka
styrk ríkisins til starfsemi
Neytendasamtakanna þannig að
þau geti haldið uppi lágmarks
þjónustu við neytendur. Þá er
bent á það að mikið skorti á að
stjórnvöld framfylgi lögum um
neytendavernd og skorað er m.a.
á viðskiptaráðherra að láta kanna
stöðu innflutningsverslunar þar
sem skipulagning og arðsemi sé
með þeim hætti að líkur séu á að
valdi hærra vöruverði en þyrfti að
vera.
-K.ÓI.
Lagnafélagið
Ný samtök
lagna-
manna
Stofnfundur Lagnafélags ís-
lands var haldinn fyrr í þess-
um mánuði. Hlutverk félagsins er
að stuðla að þróun lagnatækni og
gagnkvæmum skilningi milli
þeirra stétta sem vinna að lagn-
amálum.
Alls voru um 70 aðilar mættir á
stofnfundinum en í félaginu eru
lagnahönnuðir, blikksmiðir, píp-
ulagningarmenn og aðrir þeir
sem vinna við hönnun og upp-
setningu lagnakerfa.
Einnig var á stofnfundinum
kosið í fagráð félagsins. Formað-
ur fagráðs er dr. Guðni Jóhann-
esson verkfræðingur.
Stjórn Lagnafélags fslands, talið frá vinstri, Jónas Valdimarsson pípulm., Jón Sigurjónsson verkfr., Rafn Jensson verkfr.,
Guðmundur Halldórsson verkfr., Kristján Ottósson nýkjörinn formaður félagsins, Einar Þorsteinsson tæknifr. og Sæ-
björn Kristjánsson tæknifr.
Amnesty vikan
Hinir „gleymdu fangar“
íþessari viku erAmnesty International vikan
víða um heim, hér á íslandi er með ýmsum
hœtti vakin sérstök athygli áfjórumföngum
víða að úr heiminum
Amánudaginn hófst hin árlega
Amnesty International vika,
hún stendur yflr frá 20.-26. októ-
ber og er í ár helguð „gleymdum
föngum“. Að þessu sinni er vakin
athygli á örlögum fanga frá tólf
löndum og verður það gert með
ýmsum hætti.
íslandsdeild Amnesty Intern-
ational hefur ákveðið að beina at-
hygli íslendinga að fjórum þess-
ara gleymdu fanga. Verður það
fyrst og fremst gert með því að
benda fólki á að skrifa bréf til
viðkomandi þjóðhöfðingja eða
yfirvalda. íslandsdeildin hefur
samið svonefnt „modelbréf“,
þ.e. bréf sem skrifuð hafa verið
og stfluð á þjóðhöfðingja eða
yfirvöld fjögurra landa. Fólk get-
ur fengið þessi bréf á skrifstofu
Amnesty í Hafnarstræti 15, skrif-
að nafn sitt undir þau og sent í
pósti. f bréfinu er lýsing á máli
einstaklings sem er í haldi og
hvatning um að hann verði látinn
laus. Einstaklingarnir sem fs-
landsdeildin einbeitir sér að, eru
frá Indónesíu, Guatemala, So-
vétríkjunum og Zambíu.
Þá verður í tengslum við þessa
viku efnt til ljóðakvölds í Nor-
ræna húsinu í kvöld í umsjón Sig-
urðar A. Magnússonar. Þar verð-
ur ljóðum 20 skálda tvinnað sam-
an við tónlist sem Kolbeinn
Bjarnason sér um. Auk þessa
verður í lok vikunnar efnt til
námskeiða til kynningar Amn-
esty International, er námskeiðið
hugsað fyrir þá sem vilja gerast
virkir félagar og fyrir almennt
áhugafólk um þessi mál. Nám-
skeiðið verður í Hamrahlíðar-
skólanum, 18. og 23. október.lH
Leigubílar
Taxtinn hækkar
Taxtar leigubifreiða hafa
hækkað um 3.26% að meðaltali.
Var þetta ákveðið eftir Iöng og
ströng fundahöld í verðlagsráði.
Svokallað startgjald hækkar
ekki, en kflómetragjald og bið-
gjald um 10% þannig að neytand-
inn greiðir samtals 3.26% meira
fyrir þjónustuna en áður.
Gunnhildur Snorradóttir hjá
Frama, félagi leigubifreiðastjóra,
sagði í samtali að félagið hefði
farið fram á 20% hækkun. Hún
sagði að laun leigubflstjóra hefðu
ekki hækkað neitt frá því í febrú-
ar sl þrátt fyrir ýmsar launahækk-
anir í þjóðfélaginu. Að vísu hefði
reksturskostnaður bifreiðanna
minnkað með lægra olíuverði en
samt hefðu kjör leigubifreiða-
stjóra dregist verulega aftur úr á
síðustu mánuðum.
•2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 22. október 1986