Þjóðviljinn - 11.11.1986, Blaðsíða 2
-SPURNINGIN-
Spurt í Hafnarfirði:
Hvaða augum lítur þú
skemmdarverkin á hval-
bátunum í Reykjavík og
á stjórntækjum í Hval-
stöðinni?
Sigurjón Jónsson, véla-
maður:
Þetta er hrein glæpamennska.
Það er spurning hvort það séu
ekki einhverjir íslendingar með í
þessu. Mennirnir virðast hafa
þekkt vel til.
Soffía Sigurðardóttir, hús-
móðir:
Mér finnst það ótækt að láta
svona. Ég vona bara að það séu
engir íslendingar með í þessu.
Þessir menn hafa unnið mikið
tjón og fyrir það eiga þeir að fá
rétta refsingu.
Sjöfn Arnbjörnsdóttir,
einkaritari.
Ég er alfarið á móti þessum
skemmdarverkum. Ég tel að það
sé mögulegt að útlendingarnir
hafi haft einhverja íslenska
stuðningsmenn.
Hörður Hansson, bifreiða-
stjóri:
Það ætti bara að hengja þessa
fugla.
Grétar Skúlason, vélamað-
ur:
Þetta er hryðjuverkastarfsemi.
Ég held að hér sé um verknað
útlendinga að ræða sem séu
sloppnir úr landi núna.
FRÉTHft
HÍK
Sameining úr sögunni
54% með að HÍK verði lagtniður. Kristján
Thorlacius, formaður HÍK: Nœgir tœplega til að leggja niðurHÍK.
Valgeir Gestsson, formaður KÍ: Hefur ekki áhrifá stöðu KÍ.
Þessi niðurstaða úr atkvæða-
greiðslunni nægir tæplega til
þess að Hið íslenska kennarafélag
verði lagt niður og stofnað nýtt
kennarafélag með Kennarasam-
bandinu, sagði Kristján Thorlaci-
us, formaður HÍK, við Þjóðvilj-
ann í gær.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
urðu þau að 54% voru með því að
HÍK yrði lagt niður en 46% and-
vígir. Um 800 manns greiddu at-
kvæði. Talað hafði verið um að
a.m.k. 60% þyrftu að vera sam-
þykkir ef taka ætti svo afdrifaríka
ákvörðun.
Á aðalfundi HÍK næsta haust
verður málið endanlega afgreitt
og þarf tvo þriðju hluta atkvæða
til þess að gera svo stóra Iaga-
breytingu.
„Stjórnin hefur ekki enn rætt
þessa niðurstöðu en það er
augljóst að við verðum að endur-
skoða okkar áform. Þá mun nið-
urstaðan úr samningsréttarmál-
um opinberra starfsmanna einnig
hafa mikil áhrif á framþróun
þessara mála“, sagði Kristján.
Valgeir Gestsson, formaður
Kennarasambands íslands, taldi
ekki að þessi niðurstaða hefði
slæm áhrif á stöðu KÍ. Sagðist
hann sjálfur þeirrar skoðunar að
kennarastéttin yrði sterkust í
einu félagi en þrátt fyrir þessa
niðurstöðu munu kennarafélögin
starfa áfram saman að ýmsum
málum.
„Við leggjum höfuðáherslu á
að fá sjálfstæðan samningsrétt og
nú standa yfir viðræður um samn-
ingsréttarmál opinberra starfs-
manna og allt útlit fyrir að niður-
stöður náist fljótlega. Úrslit at-
kvæðagreiðslu HÍK munu ekki
hafa nein áhrif á starfsemi KÍ“.
-Sáf
Vinargjöf
80 bækur
frá Indiru
Sendiherra Indlands á íslandi
hefur afhent Háskóla íslands að
gjöf 39 bækur á hindi og 38 bækur
á sanskrít. Bókagjöf þessi var ák-
veðin af af Indiru Gandhi
skömmu áður en hún var myrt,
en Indira hafði mikinn áhuga á
því að efla menningarsamskipti
Islands og Indlands.
Ákvörðunin um bókagjöfina
var tekin á fundi sem Þóra Ein-
arsdóttir fyrrv. formaður Ind-
landsvinafélagsins átti með
Indiru skömmu fyrir andlát henn-
ar. Anand sendiherra Indlands
sem hefur búsetu í Osló lét þess
getið við afhendinguna í hátíðar-
sal Háskólans að indverska ríkið
væri á næstu árum reiðubúið að
gefa Háskólanum fleiri ritverk
um menningu og sögu Indlands
og þá einnig á ensku.
Frá afhendingu bókagjafarinnar. Á myndinni eru auk indversku sendiherrahjónanna þau Sigmundur Guðbjarnarson
rektor HÍ, Ólafur Ragnar Grímsson formaður Indlandsvinafélagsins og Þóra Einarsdóttirfyrrv. form. félagsins. Mynd-Sig.
Kvennalistinn
Mikill hugur í konum
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Þróttmikill og góður landsfundur.
Líkur áframboði í sex kjördœmum.
Þetta var ákaflega þróttmikill
og góður landsfundur og það
var mikill hugur i konum sem
fjölmenntu af öllu landinu, sagði
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
þingmaður Kvennalistans í sam-
tali við blaðið, en landsfundi
Kvennalistans lauk á sunnudag.
Ákveðið hefur verið að bjóða
fram í Reykjavík, Reykjanesi og
á Vesturlandi en listauppröðun
fer að öllum líkindum ekki fram
fyrr en með skoðanakönnunum
að lokinni gerð stefnuskrár í jan-
úar. Að sögn Sigríðar Dúnu er
mikill hugur í konum í
Suðurlands- og Austurlandskjör-
dæmum og Norðurlandskjör-
dæmi eystra að bjóða fram en
lokaákvörðun hefur ekki verið
tekin.
„Skoðanakannanir í tveimur
umferðum hafa reynst okkur
mjög vel við val á lista“, sagði
Sigríður Dúna. „Eins og fyrri
daginn þá eru það málefnin sem
skipta mestu hjá Kvennalistanum
en ekki þær persónmur sem bera
þau fram. Prófkjörsbarátta
stjórnmálaflokkanna undanfarn-
ar vikur hefur sýnt okkur að það
eru ekki málefnin sem skipta
höfuðmáli hjá þeim heldur eigin
persónur einstakra manna. Slíkt
kann ekki góðri lukku að stýra í
málefnum lands og þjóðar.“
Tvær ályktanir voru gerðar á
landsfundinum, önnur um launa-
og kjaramál, hin um aðbúnað
barna í landinu. í þeirri fyrr-
nefndu segir meðal annars að
kjör og laun kvenna í landinu séu
þjóðarskömm, sem verði að ráða
bót á með sameiginlegu átaki
allra landsmanna. Þá er lagt til að
samþykktar verði þær tillögur
sem liggja fyrir Alþingi um lág-
markslaun og endurmat á störf-
um kvenna.
-vd.
Framsókn
Finnur afneitar
hrossakaupum
Finnur Ingólfsson aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra og
einn frambjóðenda í efsta sætið í
prófkjöri Framsóknarflokksins í
Reykjavík hefur sent Þjóðviljan-
um eftirfarandi athugasemd.
„í frétt á forsíðu Þjóðviljans 8.
nóvember sl. er því haldið fram,
að ég og Haraldur Ólafsson höf-
um gert með okkur kosninga-
bandalag gegn Guðmundi G.
Þórarinssyni í prófkjöri Fram-
sóknarmanna í Reykjavík. Ég vil
taka fram að ég hef ekki og mun
ekki gera kosningabandalag við
neinn frambjóðanda í þessu próf-
kjöri. Slíka kosningabaráttu tel
ég vera ólýðræðislega og móðgun
við stuðningsmenn flokksins. Ef
ég fæ stuðning í þessu prófkjöri
vil ég að sá stuðningur sé vegna
þess að ég sé talinn traustsins
verður en ekki vegna pólitískra
hrossakaupa.“
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlftjudagur 11. nóvember 1986