Þjóðviljinn - 11.11.1986, Side 3
FRETTIR
Hvalur hf.
Aðkoman var Ijót
Verulegarskemmdir unnar íhvalstöðinni íHvalfirði. Jafnvel
talið líklegt að íslendingar hafi verið að verki. Helgi Jónsson
verkstjóri: Líklega miljónatjón
Þetta var ljót aðkoma. Ég hef
trú á að tjónið sem hér hefur orð-
ið velti á miljónum, sagði Helgi
Jónsson verkstjóri hjá Hval h.f. í
Grœnfriðungar
Fordæma
Sea
Shephard
„Grænfriðungar fordæma
skemmdarverk Sea Shephard
harðlega og við viljum taka það
sérstaklega fram að við beitum
aldrei ofbeldi við mótmælaað-
gerðir okkar“, sagði Jakob
Lagerkranz alþjóðlegur talsmað-
ur Greenpeace-samtakanna í
London í samtali við blaðið í gær.
„Paul Watson var meðlimur
Greenpeace fyrir mörgum árum
en yfirgaf samtökin árið 1978
vegna þess að hann vildi nota of-
beldi en það getum við ekki sam-
þykkt“, sagði Lagerkranz. „Að-
gerðir hans á íslandi nú um helg-
ina hafa skaðað málstað
hvalfriðunarsinna og við höfum
áhyggjur af því að þetta hafi slæm
áhrif á almenningsálitið, bæði á
íslandi og víðar. Rök og frið-
samleg mótmæli hafa verið aðal-
vopn okkar í baráttunni gegn
hvalveiðum en því miður höfum
við ekki náð nógu góðum árang-
ri. Grænfriðungar munu halda
áfram að mótmæla hvalveiðum í
vísindaskyni en við munum aldrei
nota til þess ofbeldi líkt og Paul
Watson.“
Aðspurður vildi Lagerkranz
ekki upplýsa hvort Grænfriðung-
ar hyggjast efna til einhvers kon-
ar aðgerða hérlendis fljótlega til
þess að mótmæla hvalveiðum, en
sagði að baráttan héldi áfram.
-vd.
Hvalfirði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en hann og Ingvi Böðv-
arsson, sem einnig er verkstjóri
hjá fyrirtækinu, uppgötvuðu
fyrstir að unnin höfðu verið
skemmdarverk í hvalstöðinni í
Hvalfirði.
Talsverðar skemmdir voru
unnar í stjórnstöð fyrirtækisins,
dýr tölvubúnaður eyðilagður og
mælar brotnir. Ljósavélar voru
skemmdar og einnig fóru
skemmdarverkamennirnir í að-
setur verkstjóra og gengu þar
berserksgang að því er virðist.
Ljóst er að tjón hefur orðið tal-
svert mikið í krónum og aurum
talið.
Rannsóknarlögreglan kom á
staðinn milli kl. 10 og 11 í gær,
rúmum klukkutíma eftir að þeir
Helgi og Ingvi komu til vinnu, og
komust að raun um hvað gerst
hafði. Rannsóknarlögreglumenn
vildu ekkert tjá sig um
rannsóknina í gær.
Telja verður líklegt að verkið
hafi verið unnið aðfaranótt
sunnudagsins. Jónas Guðmunds-
son gröfumaður var við vinnu við
stöðina til kl. 20.30 á laugar-
dagskvöldið og fullyrðir að fram
að þeim tíma hafi enginn farið inn
í stöðina. Hann sagði í gær að
hann hefði verið í góðri aðstöðu
til að fylgjast með, en ekki orðið
var við neitt.
Ingimar Magnússon vélvirki
hjá Hval h.f. taldi víst að þeir sem
þarna voru að verki hafi haft ein-
hverja þekkingu á vélum og
greinilega lagt nokkra vinnu í að
eyðileggja til að mynda ljósavél-
arnar. „Þeir eru nú 20 árum of
seinir með ljósavélarnar, því þær
eru ekki notaðar lengur", sagði
Ingimar.
Viðmælendur Þjóðviljans álitu
að verknaðurinn hefði tekið
nokkuð langan tíma, allt að einni
klukkustund, en eins og áður
segir liggur ekkert fyrir um hverj-
ir þarna voru að verki, hvenær
þeir létu til skarar skríða eða hver
var tilgangur þeirra. Ekki er úti-
lokað að lslendingar hafi verið að
verki og telja sumir það jafnvel
líklegra en að þarna hafi verið
erlendir liðsmenn Sea Shephard.
-gg
Helgi Jónsson skoðar sig um í afdrepi verkstjóra í hvalstöðinni. Hann kom
fyrstur að stöðinni eftir að skemmdarvargarnir höfðu unnið sitt verk. Mynd E.OI.
Paul Watson
Anægður með dagsveikið
Paul Watson: Skemmdirnar í Hvalstöðinni unnar afSea Shephard. Látum til skarar skríða aftur.
Hópurinn að baki skemmdarverkunum ímarga mánuði í landinu við undirbúning.
Við lýsum skemmdunum í
Hvalstöðinni í Hvalfirði á
hendur okkur, sagði Paul Watson
formaður Sea Shephard samtak-
anna i samtali við blaðið í gær.
„Samtökin munu láta til skarar
skríða aftur“, sagði Watson, og
Lsagðist jafnframt ekki neita því
'að það yrði í frystihúsi Hvals hf. í
Hafnarfirði. Hann sagði að
nokkrir íslendingar væru í Sea
Shephard en neitaði að segja
hvort þeir hefðu átt þátt í
skemmdarverkunum. Hann
sagði að hópurinn sem var að
verki hefði verið á íslandi við
undirbúning í marga mánuði.
„Það má vel vera að við höfum
beitt ólöglegum aðferðum en ís-
lendingar eru glæpamenn og
hvalveiðar þeirra eru ólöglegar"
sagði Watson. „Ég verð hæst-
ánægður ef okkur verður stefnt
því það beinir enn meiri athygli
að okkur og málstað okkar og
það er það sem við sækjumst
eftir. Hvað varðar framsais-
kröfur þá er enginn grundvöllur
fyrir slíku og ég trúi því ekki að
farið verði fram á slíkt. Mennirn-
ir sem unnu verkin eru þegar
komnir tii lands sem mun ekki
framselja þá og öryggi þeirra er
tryggt."
Watson var meðlimur Green-
en
Forsœtisráðherra
Handvömm hjá lögreglunni
Ríkisstjórnin fœr skýrslu í dag. Steingrímur Hermannsson forsœtis-
ráðherra: Vil fá svör við spurningum
Manni hlýtur að detta hand-
Nú árdegis verður lögð fyrir
ríkisstjórnina skýrsla um við-
brögð löggæslunnar við skemmd-
arverkunum sem unnin voru í
Reykjavíkurhöfn og í Hvalfirði
um helgina. Það er Steingrímur
Hermannsson, sem einnig gegnir
störfum dómsmálaráðherra nú
sem óskaði í gær eftir því að ráðu-
neytisstjóri dómsmálaráðuneytis-
ins tæki þessa skýrslu saman og
yfirheyrði alla þá sem nálægt
málinu hefðu komið.
Sjálfur frétti forsætisráðherra
ekki af skemmdarverkunum í
Reykjavíkurhöfn fyrr en undir
hádegið í gær. Það eru tvær meg-
inspurningar sem vakna og við
þeim vil ég fá svör, sagði hann. f
fyrsta lagi - Hvar var vakt Hvals
hf.? Af hverju var vaktmaðurinn
í ysta skipinu, en ekki í því sem
næst var bryggjunni, og hvernig
gátu mennirnir athafnað sig í
Hvalfirðinum í lengri tíma óséðir
og óáreittir. Þetta snýr að fyrir-
tækinu sjálfu. í öðru lagi: - var
kaliað strax á lögregluna og ef svo
er - hvað gerði lögreglan annað
en að kalla á slökkviliðið? Það er
eins og engan hafi grunað að hér
væri neitt óeðlilegt á seyði, þó
tveir bátar sökkvi í höfninni, og
tíminn er látinn líða við tilraunir
við að dæla upp úr þeim, meðan
mennirnir komast úr landi.
vömm í hug, sagði forsætisráð-
herra. Loks sagði hann nauðsyn-
Iegt að svara spurningunni hvort
hægt hefði verið að koma við leit
eða snúa flugvélinni til baka ef
menn hefðu haft rökstuddan
grun um að tveir farþeganna
væru viðriðnir skemmdarverkin í
tíma.
Steingrímur Hermannsson
sagðist að lokum ekki geta flokk-
að Sea-Shephard hópinn undir
náttúru- eða umhverfisverndar-
menn. „Ég hef samúð með nátt-
úruverndarmönnum og tel brýnt
að hvalastofnarnir verði ekki of-
veiddir“, sagði hann. „Aðgerðir
Sea Shephard manna eiga ekkert
skylt við það. Þær eru óverjandi
með öllu“.
-ÁI
peace samtakanna til 1978
sagði sig úr þeim vegna
ósamkomulags um aðferðir.
Greenpeace hefur fordæmt
skemmdarverk Sea Shephard
harðlega. „Ég er orðinn hund-
leiður á því að Greenpeace ford-
æmi sífellt það sem ég er að
gera“, sagði Watson. „Aðferðir
þeirra hafa ekki skilað árangri og
auk þess græðir Greenpeace á
hvalveiðum. Á meðan þær halda
áfram geta þeir safnað fram-
lögum svo skiptir þúsundum doll-
ara frá almenningi. í samtökum
okkar eru 10.000 félagar og þeir
sem starfa með okkur eru allir
sjálfboðaliðar.“
Watson sagði að áhersla hefði
verið lögð á að skaða ekki fólk í
aðgerðunum og þess vegna hefði
Hval 8 ekki verið sökkt, þar sem
vaktmaður var um borð. „Til-
gangur okkar er fyrst og fremst
að framfylgja lögum sem banna
hvalveiðar og íslendingar hafa
sjálfir samþykkt", sagði Watson.
„Við höfum skaðað efnahag
fyrirtækisins sem stendur að baki
veiðunum, og náð heimsathygli.
Það má kalla okkur sjóræningja
en ég bendi á að það þarf greini-
lega slíka til að berjast við sjó-
ræningjaþjóð einsog íslendinga.
Ég er ánægður með dagsverkið.“
-vd.
NÆTURGRILUD
SÍMI 25200
sx/6 ^ /jf
4V- -- - --
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3