Þjóðviljinn - 11.11.1986, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Píanókennsla
Tek nemendur á öllum stigum.
Uppl. í síma 33241. Ásgeir
Beinteinsson.
Til sölu
Sinclair tölva með stýripinna og
nokkrum leikjum. Einnig nýleg skíði
fyrir karlmann og skór, mjög lítið
notað, og barnastóll á reiðhjól. Sími
32135.
Ford Cortina árg. ’76
til sölu, skoðuð '86, snjódekk fylgja.
Uppl. í síma 53206, eftir kl. 19.
Foreldrar athugið
Tek böm í gæslu '/2 daginn og allan
daginn. Mjög góð úti og inni að-
staða. Hef leyfi. Sími 79198. Hrönn.
Myndbandahulstur
til sölu. Ný gerð af myndbanda-
hulstrum til sölu. Gyllt á þau ís-
lenska. Verð 650 kr. 10 stk. Nánari
uppl. í síma 42831 frá 9-12 f. hád.
og 20-22 á kvöldin.
Westinghouse kæliskápur
til sölu (gamall), stærð 151 x 62.
Uppl. í síma 673023.
íbúð óskast
2-3 herbergja, helst í vesturbæ. 3 í
heimili. Skilvísi og reglusemi. Sími
622373.
Skrifborð og rum
Skrifborð m/góðum hirslum til sölu
á kr. 2.500. Einstaklingsrúm m/
dýnu. Verð: Samkomulag. Uppl. I
síma 20145.
Snjódekk til sölu
4 stk. hálfslitin snjódekk 6,45 x 14 til
sölu fyrir lágt verð. Uppl. í vinnu-
síma 29300, Ingólfur. Heimasími
25859, Jóhann.
Kommóða óskast
keypt með 3-4 skúffum (ætluð í
geymsluherbergi). Síminn er 50579
f. hádegi og e. kl. 18.
50 ára gamalt
nýuppgert, voldugt sófasett (sófi +
2 stólar gulbrúnt til sölu. Sími
687633.
Atvinna óskast
Félagsfræðinema vantar vinnu fyrir
hádegi. Næturvaktir koma einnig
sterklega til greina. Er til umræðu
um allt. Uppl. hjá Skúla í síma
17089.
Svefnbekkur og reiðhjól
Svefnbekkur sem er 200 x 80 cm að
stærð, útdreginn og þyrfti nýtt á-
klæði fæst gefins. Einnig lítið amer-
ískt reiðhjól sem þarfnast snyrting-
ar, dekkjastærð 20“. Sími 52633.
Hestamenn
Treyja, buxur og stígvél fást fyrir
lítið. Einnig lítið notuð jakkaföt á
frekar þrekinn meðalmann. Verð
eftir samkomulagi. Uppl. í síma
37947 næstu daga.
Húsasmiður
getur bætt við sig verkefnum í ný-
smíði eða viðhaldsvinnu. Uppl. í
síma 39349, eftir kl. 18.
Óska eftir
gömlum leikföngum, taurullu og
fleiru gömlu dóti. Uppl. í síma
10541, eftir kl. 7 á kvöldin.
Húsnæði óskast
Ungt par reglusamt barnlaust óskar
eftir lítilli íbúð. Uppl. í síma 74304,
eftir kl. 8.30 á kvöldin.
Bókaskápur óskast
gjarnan hár og rúmgóður. Kaupi
einnig Biskupasögur Bók-
menntafélagsins og Sýslumanna-
ævir (hvaða bindi sem er) o.fl. slík
rit. Sími 27101. Jón.
Rafmagnsorgel óskast
tegund Howard Skyline, verð kr.
10.000. Uppl. í síma 37898.
Nýtt og ónotað
myndbandstæki til sölu, Panasonic
NV-07. Uppl. í síma 621880.
íbúð óskast
3ja herb. íbúð óskast strax. Helst í
vesturbæ. Uppl. í síma 622251 eftir
kl. 18, næstu daga.
Vantar
15 tommu vetrardekk undir V.W.
bjöllu. Uppl. í síma 621126 og
41831.
Til sölu
4 snjódekk á felgum 165 x 13 fyrir
Mitsubishi Tredia eða Lancer. Sími
53586.
Til sölu
Honda 350 árg. 1974. Hjól í topp
standi. Uppl. í símum 13289 og
39349 eftir kl. 18.
Húsasmiður
getur bætt við sig verkefnum í ný-
smíði eða viðhaldsvinnu. Uppl. í
síma 39349 eftir kl. 18.
Ódýrt
Til sölu „Varía“ skrifstofuhúsgögn.
Raðstólar og borð, skíði, skíðaskór
og bindingar á 8-10 ára. Sinclair
Spectrum plús tölva ásamt rúmlega
100 leikjum, blöðum og bókum,
selst á gjafverði. Sími 16664, eftir
kl. 16.
Hjálp
Er einhver sem tekur að sér að
sauma úr leðri?, þá vinsamlegast
hringið í síma 44919 eftir kl. 16.
Til sölu
Volvo árg. ’72. Skoðaður ’86. Gott
gangverk, útvarp fylgir. Verð kr.
35.000. Uppl. í síma 84370 og
685100.
Óska eftir
ódýrum ísskáp eða jafnvel gefins
og ennfremur ryksugu. Uppl. í síma
45196.
Til sölu
Hálfsíður ullarjakki á kr. 4.000.
Uppl. í sím 11257, eftir kl. 16.
Fæst gefins
2 pottofnar fást gefins. Uppl. í síma
13226.
Nagladekk
til sölu á Fiat Panda. Sími 15075.
Hansahillur óskast
Óska eftir að kaupa hansahillur.
Uppl. ísíma 17807.
Svefnbekkur óskast
Mig vantar svefnbekk og hillur eða
skáp í barnaherbergi. Uppl. í síma
611354, eftir kl. 18.
Vantar lítið s/hv. sjónvarp
Sími 27461.
Saumið jólafötin á börnin
Nokkur pláss laus á námskeið í
barnafatasaum, sem byrjar laugar-
daginn 15. nóv. í Templarahöllinni
v/Egilsgötu. Uppl. í síma 16059 eða
17639, eftir kl. 19. Sigrún Guð-
mundsdóttir, kennarl og hönn-
uður.
Til sölu
eldavél með 2 hellum. Uppl. í síma
681333. Þjóðviljinn.
Borgar-
starfsmenn
Fundur að Grettisgötu 89,4. hæð, í kvöld, þriðju-
dag kl. 20.30, vegna þeirra sem ekki geta sótt
vinnustaðafundi.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
FRA MENNTAMALARAÐUNEYTINU.
LAUS KENNARASTAÐA
Menntaskólann á Egilsstöðum vantar stærðfræðikennara frá ára-
mótum. Umsóknarfrestur til 10. desember.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
VfÐHORF
Strandhögg
en í Sjálfstæðisflokknum. Það er
því full ástæða til að biðja fyrir sér
ef Viðreisnarstjórn verður að
veruleika eftir alþingiskosningar.
„Stofnið eigið“
Þriðja ástæðan er sú, að eftir
rúmlega þriggja ára setu ríkis-
stjórnarinnar, og a.m.k.
jafnlangt niðurlægingartímabil
verkalýðshreyfingarinnar, er
málum svo komið að trúin á ein-
karekstur og frelsishugtak frjáls-
hyggjunnar hefur tekið sér bólf-
estu í brjóstum ótrúlegs fjölda
fólks. Mottó dagsins er að
„stofna eigið“ og stunda síðan
kaup og sölu baki brotnu. Maður
opnar ekki svo dagblað að þar sé
ekki auglýsing eða frétt um nám-
skeið þar sem kennd eru undir-
stöðuatriði í rekstri einkafyrir-
tækja. í öllu þessu einkafári er
ríkjandi viðhorf til venjulegs
launafólks, sem fær greitt sam-
kvæmt töxtum, að verða svipað
og til leigjenda eða: fólk sem hef-
ur orðið undir í lífinu sökum
hæfileika- og/eða atorkuleysis.
Menn geta t.d. tæpast valið sér
barnaskólakennslu að ævistarfi ef
þeim er annt um sjálfsvirðingu
sína. Þessi viðhorf eru eðlileg af-
leiðing af láglaunastefnu
stjórnvalda um langt árabil,
gengdarlausum kjaraskerðingum
ríkisstjórnarinnar og aðgerðar-
leysi verkaýðshreyfingarinnar.
Allt hefur þetta vegið svo að
sjálfsímynd launafólks og já-
kvæðri afstöðu til vinnunnar að
lengra verður tæpast komist.
Þegar verkamaðurinn er ekki ta-
linn verður launanna þá er tæpast
ástæða til að leggja fram vinnu-
aflið.
Efnahagaslegt
misrétti
Þessi þróun hefur á ör-
skömmum tíma skapað þann
jarðveg sem frjálshyggjan fær
þrifist í. Þegar ríki og borg hafa
svelt starfsfólk sitt nógu lengi í
launum fer það að hugsa sér til
hreyfings. Allir millihóparnir,
sem fram til þessa hafa staðið
vörð um rétt fólks til góðrar fé-
lagslegrar þjónustu þar em allir
sitji við sama borð, eru nú á hrað-
ferð út í einkareksturinn. Margir
kennarar ræða af alvöru um að
stofna einkaskóla eða gerast
verktakar hjá ríkinu, sem auðvit-
að yrði ekki án fjárútláta fyrir
foreldra. Sérkennarar leita út úr
skólunum með þjónustu sína við
börn sem eiga í námsörðug-
leikum og foreldrar borgar brús-
ann. Félagsráðgjafar og sálfræð-
ingar gerast æ umsvifameiri í
rekstri ýmiss konar ráðgjafar-
þjónustu fyrir einastaklinga sem
greiða hana fullu verði. Meðal
heilbrigðisstétta eru uppi hug-
myndir um að gerast verktakar
hjá ríkinu og svona mætti lengi
telja. Á sama tíma og hin félags-
lega þjónusta er að liðast í sundur
og er tæpast fær um að mæta
brýnustu þörfum fólks, er að
verða til verulega góð þjónusta á
ýmsum sviðum fyrir þá sem geta
greitt fyrir hana.
Samþykkt borgarstjórnar um
dagvistarheimilin er stefnumörk-
un sem gengur í þessa sömu átt.
Nái hún fram að ganga er búið að
skipa nýjan farveg fyrir einka-
rekstur á sviði félagsmála og þá er
það aðeins spurning um tíma hve-
nær flóðgáttirnar opnast. Þess
vegna er þetta stefnumörkun í
anda frjálshyggju og sem slík
bein ógnun við það félagskerfi
sem náðst hefur fram fyrir þrot-
lausa baráttu fyrri kynslóða. Fé-
lagskerfi sem þrátt fyrir augljósa
galla byggist þó á þeirri hugmynd
að jafna skuli aðstæður fólks í
stað þess að auka á efnahagslegt
misrétti.
Félagshyggja
á undanhaldi
Það er því miður staðreynd að
hugmyndafræði frjálshyggjunnar
er og hefur verið í sókn í samfé-
laginu. Frjálshyggjumenn hafa
náð þeim undirtökum í allri
þjóðfélagslegri umræðu sem
vinstri menn höfðu fyrir 10-15
árum. Þetta hefur ekki aðeins
áhrif á það fólk sem er að vaxa úr
grasi í dag heldur líka fjölmarga
sem til skamms tíma trúðu á fé-
lagshyggju, efnahagslegt
jafnrétti og samstöðu með þeim
sem eiga erfiðast updráttar í
samfélaginu. Þessi trú hefur
dofnað verulega og margir hafa
dregið sig inn í skel sína eða tekið
upp daður við frjálshyggjuöflin í
skjóli þess að betra sé að veifa
röngu tré en öngu. Félagshyggju-
flokkar og hreyfingar hafa átt af-
skaplega fá svör við þessari þró-
un. Þau standa ráðþrota gagnvart
ungu kynslóðinni og reyna að
halda í sitt fólk með því að veifa
svikastimplinum yfir hausa-
mótum þeirra sem verður hált á
svellinu.
Það þarf þó engan að undra þó
ýmsum skriki fótur á félagshyggj-
unni ef tillit er tekið til þess
hversu lítið er við að styðjast. Það
er lítil stoð í þeim hjaðningarvíg-
um og pólitíska fjaðrafoki sem
einkennir félagshyggjuflokkana
- ekki síst fyrir kosningar. Hug-
myndafræðin er horfin í skugg-
ann af mönnum og málum sem
hægt er að skora mörk út á, svo
notað sé pólitískt slanguryrði
karla. Fyrir bragðið eru grund-
vallarhugmyndir flokkanna
löngu fallnar í gleymskunnar dá
og fulltrúar þeirra þar af leiðandi
gersamlega ófærir um að halda
lífinu í - hvað þá tendra - hug-
sjónaeldinn í brjóstum fólks. Það
sama gildir um forystumenn í
verkalýðshreyfingunni sem hafa
nú setið og reiknað í þrjú ár með-
an stjórnvöld hafa farið strand-
högg um flest það sem skiptir af-
komu launafólks máli.
Eigum við
samleið?
Allt þetta er rótin að því hugar-
angri sem ég vék að í upphafi
greinarinnar. Hugarangri sem
ekki hefði kviknað ef samþykkt
borgarstjórnar hefði verið gerð
fyrir nokkrum árum, vegna þess
að þá hefði hún fallið í allt annan
og grýttari jarðveg. En það er
önnur saga. Verkefni dagsins,
sem þolir enga bið, er að finna
rétt andsvar við frjálshyggjunni.
Það svar liggur ekkert í augum
uppi.
Þeir sem um þetta hafa fjallað á
undanförnum misserum hafa tal-
ið það helst til ráða að sameina
allt félagshyggjufólk í einum
flokki. Að mínu viti leysir það
engan vanda. Lausnarinnar á til-
vistarkreppu félagshyggjufólks
er ekki að leita í formi heldur
innihaldi. Það sem háir því öðru
fremur er skortur á hugmynda-
fræðilegri umræðu. Hún hefur
ekki verið til staðar eða náð
eyrum fólks í fjöldamörg ár ef
undan er skilin sú kvennapóli-
tíska umræða sem tilurð Kvenna-
framboðsins hleypti af stað fyrir
fimm árum. Sú umræða snerist
öðru fremur um hugmyndafræði
og hún blés nýju lífi í kvenna-
hreyfinguna og styrkti sjálfs-
ímynd hennar. Þetta gerði það að
verkum að konur sem áður höfðu
haldið að sér höndum komu til
liðs við hreyfinguna.
Það vantar ferskleikann og
neistann í félagshyggjuna og þá
ekki síður leiðir til lausnar á
vandamálum samtímans. Orð
eru til alls fyrst og það er löngu
tímabært að félagshyggjufólk,
innan sem utan flokka, gefi sér
tóm til að ræða samtíðina og setja
sér markmið fyrir framtíðina. í
mínum huga er það meginatriði
að félagshyggjufólk átti sig á því
hvort það á samleið í baráttunni
gegn frjálshyggjuöflunum eða
hvort það er nafngiftin ein sem
sameinar það. 1 þessu sambandi
hefur verkalýðshreyfingin,
menntafólk og blöð og tímarit
félagshyggjufólks lykilhlutverki
að gegna. Ef þessir aðilar geta
hrist af sér doðann og fjötra
þröngra sérhagsmuna er von til
þess að hægt sé að blása eldi í
kulnaðar glæður félagshyggjunn-
ar.
Inglbjörg Sólrún Gísladóttlr
borgarfulltrúi Kvennallstans.
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
Lestu
aðeins
stjomártrli klin?
DJÚÐVIUINN
Höfuðmálgagn
stjómarandstöðunnar
Áskrittarsmii (91) 68 13 33.
6 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Þriójudagur 11. nóvember 1986