Þjóðviljinn - 11.11.1986, Blaðsíða 7
HEIMURINN
Grænfriðungar
hafa ákveðið að senda leiðangur
til Antarktíku, Suðurskautsins, til
að kanna sanngildi frétta um að
vinna við olíuleit þar á hafsbotni
sé að setja vistkerfi svæðisins í
mikla hættu. „Það hafa komið
fram ásakanir um að mikil vanda-
mál hafi komið upp vegna nýrra
bygginga og flugvalla á þessu
svæði", sagði talsmaður Green-
peace samtakanna ÍTokyo í Jap-
an í gær. Talsmaðurinn sagði að
þrír karlar og ein kona myndu
sigla skipinu Greenpeace frá
Auckland í Nýja Sjálandi þann 5.
janúar á næsta ári og koma til
Ross eyju á Suðurskautslandinu
tveimur vikum síðar. Grænfrið-
ungar sendu svipaðan leiðangur
í átt til Suðurskautslandsins fyrr á
þessu ári. Sá leiðangur mishepp-
naðist hins vegar vegna slæmra
veðurskilyrða. Grænfriðungar og
önnur náttúruverndarsamtök eru
nú með fulltrúa sína ÍTokyo til að
fylgjast með lokuðum fundi 32
ríkja sem fjalla um nýtingu náma-
svæða á Suðurskautslandinu.
Fulltrúar náttúruverndarsamtak-
anna hafa haldið því fram að
þessi 32 ríki ætli sér að setja regl-
ur þar sem ekki verði tekið nægi-
legt tillit til vistkerfis Suður-
skautslandsins.
Herlög
hafa nú verið afnumin í Bangla
Desh og komið á borgaralegt lýð-
ræði, sagði forseti landsins,
Hossain Mohammad Ershad, í
gær. Stuttu áður en Ershad gaf
þessa yfirlýsingu í gær hafði þing
landsins hins vegarsamþykkt lög
sem vernda Ershad fyrir saksókn
sem mögulega gæti hafist gegn
honum fyrir „aðgerðir" hans
meðan á herlagatímabilinu stóð.
Herlög hafa verið í gildi í landinu
undanfarin fjögur og hálft ár. í
yfirlýsingu sinni í gær sagði Ers-
had að hann hefði sagt af sér
sem æðsti yfirmaður og fram-
fylgjandi herlaganna og sett
stjórnarskrána frá 1982 aftur í
gildi.
Betlarar
í Nígeríu munu hér eftir ekki taka
við smámynt frá örlátum vegfar-
endum. Astæðan fyrir þessari
sérstæðu yfirlýsingu betlaranna
mun vera sú að nýlega var fram-
kvæmd gengisfelling í landinu og
hún kemur að sjálfsögðu illa nið-
ur á starfsemi betlara. Vilja þeir
mótmæla gengisfellingunni með
þessum hætti.
Brasilíumenn
ganga nú í vikunni til kosninga, í
fyrsta sinn í 21 ár. Kosið verður til
23 fylkisstjórnaembætta og fylk-
isstjóra, 49 af 72 sætum í öld-
ungadeildinni og í 487 sæti í full-
trúadeild. Litið er á þessar kosn-
ingar sem mikilvægt skref í þá átt
að tryggja lýðræði í Brasilíu. Talið
er að kosningarnar muni styrkja
bandalag mið- og vinstriflokka
sem nú er við stjórn í landinu. í
framboði eru nú 1500 manns úr
30 flokkum sem er algjörlega ný
staða í stjórnmálum í Brasilíu.
Um það bil 69 milljónir manna eru
nú á skrá sem kjósendur, þar af
eru 15 milljónir taldar ólæsar. Á
brasilíska þjóðarþinginu eru nú
559 þingmenn sem fá það mikil-
væga verkefni að semja stjórnar-
skrá landsins.
Corazon Aquino,
forseti Filippseyja, hóf í gær opin-
bera heimsókn í Japan og eitt hið
fyrsta sem henni var tilkynnt við
komuna þangað var að Japans-
stjórn hefði ákveðið að fram-
lengja lán sitt til Filippseyjum upp
á tæplega 250 milljónir dollara.
Það var forætisráðherra Japans,
Yasuhiro Nakasone, sem til-
kynnti Aquino þetta á fyrsta fundi
þeirra í gær.
ERLENDAR
FRÉTTIR
MÖRÐUR ✓_ r i , -r r r»
ÁRNASON /REUl ER
V-pýskaland
Kratar tapa Hamborg
Eftir brotsjó íHamborgarkosningunum minnka möguleikarnir verulega
á kratasigri íþingkosningunum íjanúar. Kristilegir unnu á, en helsti
sigurvegarinn er kvennalisti grœningja
Sósíaldemókratar töpuðu á
sunnudaginn meirihluta á fylk-
isþinginu í Hamborg og hlutu
verstu kosningaútreið sína í
borginni síðan Sambandsiýð-
veldið varð til. Kratar misstu
um fimmtung fyrra fylgis og
eru ekki lengur stærsti flokkur-
inn í borginni.
Kristilegir (CDU) juku fylgi
sitt um 3,3 prósent og hlutu 41,9
prósent atkvæða, kratar (SDP)
fengu 41,8 prósent (síðast 51,3).
Flokki frjálsra demókrata
(FDP) tókst ekki að ná fimm
prósent mörkunum sem í Þýska-
landi segja til um hvort listi fær
kjörinn mann. Þeir fengu 4,8
(síðast 2,6). Græningjum gekk
vel í kosningunum, fengu 10,4
prósent en bættu við sig 3,6 prós-
entum með lista skipaðan konum
eingöngu.
Fyrir kosningar lýsti Klaus von
Dohnanyi borgarstjóri og leið-
togi SDP í Hamborg yfir að sam-
vinna krata og græningja kæmi
ekki til greina, - hinsvegar var
hann fús til stjórnarsamstarfs
með FDP ef þær næðu inn
mönnum. Eftir að úrslit urðu
kunn endurtók hann yfirlýsingar
sínar gagnvart græningjum, og
leiðtogi CDU, Hartmut Persc
hau, sagði sína menn reiðubúna
til samstafs við krata um stjó' n
borgarinnar.
Kosningarnar í Hamborg, sem
ein og sér telst eitt af tíu
„löndum“ Sambandslýðvelsisms,
eru síðustu fylkiskosningarnar
áður en Vesturþjóðverjar velja
sér nýtt þing í lok janúar, og
Johannes Rau, kanslaraefni þýskra krata. Séu Hamborgarúrslitin vísbending
um janúarviðburði er honum hollast að leggja sína pólitísku skó á hilluna.
Hamborgarafhroð kratanna er
því meiriháttar áfall fyrir flokk-
inn. Willy Brandt flokksformað-
ur viðurkenndi ósigurinn að taln-
ingu lokinni, og sagði að héðan-
ífrá yrði markmið SPD að koma í
veg fyrir hreinan meirihluta
kristilegra. Á slíkan meirihluta
hefur enginn forystumaður SPD
minnst á áður heldur verið látið
Hryðjuverk
að því liggja að kratar gætu náð
undirtökunum í janúar.
Kohl kanslari fagnaði úrslitun-
um og bað sína menn herða sig
fram að kosningum. Hamborg-
artölurnar styrkja Kohl, og þykja
einnig benda til þess að nýleg
senna vegna ógætiiegrar orðræðu
um leiðtoga Sovétríkjanna hafi
ekki skaðað flokk hans.
Ósigur SPD í Hamborg var
miklum mun meiri en búist var
við, og ljóst þykir að ýmis
hneykslismál í héraði hafa spillt
mjög fyrir krötum, og ekki síður
fjármálahneyksli kringum bygg-
ingarfyrirtækið Neu heimat, sem
tengt var krötum og verkalýðs-
samtökunum. Þá telja menn
mikið atvinnuleysi í Hamborg og
hnignun hefðbundinna atvinnu-
greina, til dæmis skipasmíða,
hafa komið niður á þeim sem
stjórnuðu fylkisþinginu, þótt
meirihlutinn í Bonn eigi þar sinn
þátt. Kosningaþátttaka var lítil,
aðeins 75 prósent, og greinilegt
að um helmingur þess fylgis sem
kratar misstu hefur nú setið
heima.
Á landsvísu styrkja Hamborg-
arúrslitin íhaldsflokks Kohls, en
helsti sigurvegari kosninganna er
þó kvennalisti græningja og jók
fylgi sitt um helming. Á stefnu-
skrá þeirra er meðal annars að
loka strax kjarnorkuverum. Fyrri
samstarfstilraunir græningja og
krata í Hamborg hafa endað með
ósköpum.
Hægri öfgalisti sem hefur helst
á stefnuskránni að fækka út-
lendum verkamönnum jók fylgi
sitt úr 0,3 í 0,7 prósent.
Höfundamir í Mossad?
Efnahagsbandalagið samþykkir táknrænar aðgerðir gegn Sýrlending-
um. Chirac í bandarísku blaði: Kohl sagði mér að ísraelska leyniþjón-
ustan stœði bakvið bresk-sýrlensku deiluna
London/Washington - Utan-
ríkisráðherrar Efnahags-
bandalagsríkjanna samþykktu
í gær fyrir breskan orðastað
aðgerðir gegn sýrlensku
stjórninni í kjölfar deilna
stjórnanna í London og Bag-
dad sem ekki hafa lengur
stjórnmálasamband sín á milli.
Samþykktir ráðherranna eru
fyrst og fremst táknræns eðlis.
Yfir þeim hvílir skuggi blaða-
viðtals við franska forsætis-
ráðherrannn, Jacques Chirac,
sem á að hafa tjáð Washington
Times að þýskir ráðamenn,
kanslarinn og utanríkisráð-
herrann, hafi sagt sér að loka-
sök í málinu væri ísraelsku
leyniþjónustunnar.
EBE-ráðherrarnir samþykktu
á fundi sínum í London í gær að
setja vopnasölubann á Sýrland,
að senda ekki þangað háttsetta
stjórnmála- eða embættismenn,
að takmarka sýrlenskt sendi-
ráðsumstang í löndum sínum og
herða á öryggisráðstöfunum
kringum sýrlenska flugfélagið.
Gríska stjórnin neitaði að vera
með bandalagsfélögum sínum í
þessum samþykktum.
Bandaríska blaðið Washington
Times birtir í gær viðtal við Chir-
ac sem blaðið hafði áður skrifað
úr útdrátt sem franskir talsmenn
þrættu fyrir. Blaðið segist knúið
til að birta nú allan viðtalstextann
vegna opinberra viðbragða í
Jacques Chirac, forsætisráðherra
Frakklands. Segja Bretar satt? Segir
Kohl satt? Sagði Chirac eitthvað?
Frakklandi. í viðtalinu segir
Chirac meðal annars að Kohl
kanslari Vestur-Þýskalands og
utanríkisráðherra hans Genscher
hafi þá kenningu að ísraelska
leyniþjónustan standi á bakvið
deilur Breta við Sýrlendinga.
í London býður nú réttarhalda
Jórdaníumaður, sakaður um að
hafa reynt að sprengja upp ísra-
elska flugvél með aðstoð Sýrl-
endinga. Þetta mál var kveikjan
að því að Bretar slitu
stjórnmálasambandi við Sýrland,
ráku sýrlenska sendiherrann
heim og kölluðu til London sinn
mann í Bagdad. Sé frásögn Was-
hington Times rétt telja vestur-
þýskir ráðamenn að atburðir
kringum flugvélamálið séu hann-
aðir af Mossad, ísraelsku leyni-
þjónustunni.
Washington Times telur sig
hafa fyrir því heimildir að í París
hafi verið ákveðið að afneita frá-
sögn blaðsins sem tilbúningi
Moon kirkjunar, sem er meiri-
hlutaeigandi blaðsins, og CIA,
bandarísku leyniþjónustunar.
Málið er allt hið einkennilegasta
og farið að valda Chirac veru-
legum vandræðum heimafyrir og
í samstarfi við nánustu banda-
menn, - ekki síst vegna þess að af
sögulegum, viðskiptalegum og
pólitískum ástæðum kæra Frakk-
ar sig ekkert um að vera með í að
löðrunga Sýrlandsstjórn.
Fyrir EBE-fundinn í gær höfðu
bæði Kohl og Chirac sagt að
stjórnir sínar stóðu að sjálfsögðu
við hlið Breta gegn Sýrlandi, - ef í
réttarhöldunum kæmu fram óyg-
gjandi sannanir sýrlenskra um
hlutdeild. Þessi fyrirvari bendir
til að heimildarmenn leiðtoga
Frakka og Vesturþjóðverja hafi
ekki verið alltof vissir um trú-
verðugleik breskra staðhæfinga í
Sýrlandsmálum. Bandaríkja-
menn standa fast að baki Breta í
þessu máli og gætu nýjustu uppá-
komur spillt mjög samstarfi
EBE-ríkjanna um frumkvæði í
átökunum í Austurlöndum nær.
Leiðtogarnir
Höfða-
fundurinn
veikti
Gorbaftsjof
Brussel - Á fundi Kremlarfræð-
inga voru flestir á því að
leiðtogafundurinn í Reykjavík
hafi veikt stöðu Gorbatsjofs
aðalritara heimafyrir.
Þessa niðurstöðu sína byggja
athugunarmennirnir helst á því
að í Sovét sé gert ráð fyrir að
leiðtoginn komi heim af fundum
með Bandaríkjaforseta með
eitthvað í höndunum, - ekki
endilega neitt stórfellt, en árang-
ur verði þó að vera greinanlegur.
Svo hafi ekki verið á Reykjavík-
urfundunum, og einn fundar-
manna í Brússel bendir á að So-
vétleiðtoginn hafi þurft þrisvar í
sjónvarpið til að skýra fyrir
löndum sínum af hverju hann
kom tómhentur aftur til Moskvu.
Annar Kremlólóg sagði að í
hópi hinna elstu og íhaldssöm-
ustu í forystu flokks og hers hafi
Gorbatsjof verið gagnrýndur
fyrir að fara fram með flugelda-
sýningum í pólitíkinni án þess að
ná í raun fram markmiðum sín-
um. Reykjavíkurfundurinn
styrki þennan hóp, sem saki
leiðtogann um að gefa eftir við
Bandaríkjamenn og skapa tál-
vonir hjá almenningi eystra.
Þrlðjudagur 11. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7