Þjóðviljinn - 11.11.1986, Side 9
Stjómmálaályktun aðalfundar miðstjómar AB F
Vinsælasti leikritahöfundur þjóöarinnar um þessar mundir, Ragnar|Amalds, að ræða stjórnmál og listir við Jón Hannesson. í forgrunni Hægra megin borðsins er Hafnarfjarðardeildin kampakát, enda Ólafur|Ragnar frambjóðandi Reyknesinga í ræðustól. T.h með prjóna eru
myndarinnar er Nanna Rögnvaldsdóttir, úr stjórn ABR. Fyrir aftan ertiuövaröur Kjartansson, en svo sKemmtilega vill til aö hann er sonar- Sigurbjörg Sveinsdóttir og Þorbjörg Samúelsdóttir ásamt Geir þingmanni. Handan borðs glittir i Gunnlaug Haraldsson tra Akranesi og
sonur Sigurðar skurðs, sem kemur mjög við sögu Uppreisnarinnar á isafirði. Mynd E.ÓI. hlæjandi við hlið hans er Haraldur Bjarnason, ritstjóri Austurlands. Mynd E.ÓI.
Stórhug
og nýja sókn
íslendingar eru nú á tíma-
mótum. Aukinn sjávarafli, hærra
afurðaverð og minni olíukostn-
aður hafa skapað góðæri, sem
unnt væri að nýta öllum til heilla.
Athygli heimsins hefur beinst að
íslandi sem nýjum griðastað, fög-
ru og friðsælu landi á norðurslóð-
um; heimsviðburður hefur opnað
nýja möguleika til að efla farsæld
í landinu og styrkja framlag ís-
lendinga til friðar og sátta í
heiminum.
Nú er þörf á stórhug og nýrri
sókn.
Alþýðubandalagið telur að
meginverkefnið sé að sameina
þjóðina um jákvæða stefnu jafn-
aðar, framfara og friðar. Það
verður ekki gert undir forystu
þeirra sem hafa byggt stjórnar-
stefnuna á kjararáni, félagslegu
misrétti, byggðaröskun og land-
flótta-stjórnmálaflokka sem hafa
vígbúnaðarstefnu að leiðarljósi
með útþenslu hersetunnar sem
nú nær til allra landsfjórðunga.
Hér þarf því nýja ríkisstjórn
sem hefur raunverulega jafnað-
arstefnu að leiðarljósi. Megin-
verkefni hennar yrði að útrýma
fátækt, jafna og bæta lífskjörin,
móta nýja sókn í atvinnumálum
hafa frumkvæði að nýrri byggð-
astefnu og beita sér undir merki
sjálfstæðrar utanríkisstefnu á al-
þjóðavettvangi fyrir afvopnun og
endalokum vígbúnaðarkapp-
hlaupsins.
í slíkri ríkisstjórn hlýtur Al-
þýðubandalagið að verða burð-
arásinn, forystuafl allra þeirra,
sem í raun vilja hefja til vegs á
íslandi nýja jafnaðarstjórn gegn
ójafnaðarstjórn liðinna ára.
í komandi kosningabaráttu
mun Alþýðubandalagið safna liði
til stuðnings málefnum þar sem
þetta eru aðalatriði:
1. Kjarajöfnun með nýjum
hlutaskiptum í þjóðfélaginu.
Markmiðið er: Aukinn réttur
kvenna, hærri kaupmáttur
kauptaxta - eins og 1982 - og
tilfærsla kaupauka og yfir-
borgana.
2. Áætlun ríkisvalds, verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda
um raunverulega styttingu vin-
nutímans.
3. Jöfnun búsetuskilyrða, vald-
dreifing og ný byggðastefna.
Markmið: Stöðva byggðaflótt-
ann.
4. Barátta gegn hersetu og nýjum
vígbúnaðarkröfum NATO.
Markmið: Brottför hersins og
friðlýst land.
5. Ný sókn í atvinnulífinu án frek-
ari íhlutunar erlends fjár-
magns, en með aukinni
áherslu á rannsóknir, þróunar-
starfsemi og nýsköpun.
6. Bætt staða atvinnuveganna:
Sjávarútvegs með nýju og
samræmdu skipulagi veiða og
vinnslu og betri kjörum fisk-
vinnslufólks. Landbúnaðar
með heiðarlegum samningum
ríkisvalds og bænda til langs
tíma um lífskjör bænda og búa-
liðs: Iðnaðar með átaki til að
auka vöruvöndun og hlutdeild
á heimamarkaði.
7. Nýtt skattakerfi til þess að
verja samneysluna með til-
færslu skatta af einstaklingun-
um til fyrirtækja.
8. Samfelldu húsnæðsikerfl
eignaríbúða, félagslegra íbúða
og leiguhúsnæðis.
9. Jöfnun og samræmingu líf-
eyrisréttinda fyrir alla lands-
menn og raunhækkun elli- og
örorkulífeyris.
10. Auðlindastefna og umhverfis-
vernd verði grundvöllur
stefnunnar í efnahags- og at-
vinnumálum.
Þessi meginatriði mun Alþýðu-
bandalagið leggja til grundvallar í
kosningabaráttunni og þau
mynda óhjákvæmilegar forsend-
ur af hálfu flokksins fyrir nýrri
stjórn. Sigur Alþýðubandalags-
ins í kosningunum er eina leiðin
til að knýja fram þær grundvallar-
breytingar sem hér hafa verið
taldar upp.
Hvað gerist
eftir kosningar?
Eftir næstu alþingiskosningar
koma fjórar gerðir ríkisstjóma
helst til greina - þrjár þeirra í
hefðbundnum stíl en sú fjórða
nýrrar tegundar:
1. Óbreytt ríkisstjóm Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks.
2. Endurvakning gömlu Við-
reisnarstjómar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks.
3. Hefðbundin vinstri stjóm Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks.
4. Jafnaðarstjóm Alþýðubanda-
lags, Álþýðuflokks og
Kvennalista.
Framsóknarflokkurinn mun
kjósa áframhaldandi íhaldssam-
vinnu nema sigur Alþýðubanda-
lagsins knýi hann til samvinnu við
félagshyggjuöflin. Innan Alþýð-
uflokksins gæla margir við gamla
viðreisnardrauma og hafna þann-
ig nýrri jafnaðarstjóm sem felst í
því að taka nú höndum saman við
Alþýðubandalagið og Kvenna-
listann um nýjan kost í íslenskum
stjórnmálum.
Óbreytt stjórn?
Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks sem hóf
feril sinn með því að skerða
kaupmáttinn um þriðjung og
viðrar sífellt nýjar hugmyndir um
aðför að velferðarþjónustu við
almenning. Hún hefur gert víg-
búnaðarframkvæmdir í þremur
landfjórðungum að viðamestu
verktakaumsvifum kjörtímabils-
ins. Slík ríkisstjórn hvorki vill né
getur nýtt góðærið til að jafna
lífskjörin og hún er of rígbundin
hugarheimi hernaðarbandalags-
ins NATO til að vera á alþjóða-
vettvangi trúverðugur fulltrúi ís-
lands sem griðastaðar sátta,
friðar og afvopnunar.
Á undanförnum mánuðum
hafa aukist líkurnar á því að Sjálf-
stæðisflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn ætli að vera áfram í
ríkisstjórn ef þeir halda þing-
meirihluta sínum í næstu kosn-
ingum. Þá ætlar Sjálfstæðisflokk-
urinn að hleypa hinni hörðu
markaðshyggju lausri, gera
frjálshyggjukredduna að leiðar-
ljósi í aðför að velferðarsamfé-
laginu og festa hana í sessi sem
grundvöll efnahagsstjórnarinnar.
Reynslan sýnir að Framsóknarf-
lokkurinn hefur hvorki kraft né
vilja til að standa gegn slíkum
áformum. Hann hefur of lengi
kosið sér hlutskipti hægra megin
við miðju og gengið í lið með
íhaldinu í aðför að kaupmætti
launafólks og að lífskjörum í hin-
um dreifðu byggðum. Hann hef-
ur horfið frá andófi við hernámið
og þess í stað haft forystu um
aukinn vígbúnað í landinu.
Félagshyggjufólk sem fylgt
hefur Framsóknarflokknum á að-
eins um eina leið að velja ef það
vill efla hér samvinnu og félags-
hyggju. þ.e. að styðja Alþýðu-
bandalagið.
Möguleiki nýrrar
jafnaðarstjórnar
Nú blasa við skýrir kostir.
Annars vegar ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks þar sem Framsókn-
arflokkur eða Alþýðuflokkur
yrðu í aðstoðarhlutverkum. Hins
vegar ríkisstjórn án Sjálfstæðis-
flokksins, þar sem stefna jafnað-
ar og félagshyggju yrðu lögð til
grundvallar.
Árið 1971 fékk stjórnarand-
staðan - Alþýðubandalag, Fram-
sóknarflokkur og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna - hreinan
meirihluta í alþingiskosningun-
um. Þá urðu straumhvörf í kjar-
amálum, atvinnuuppbyggingu,
félaglegri þjónustu og meðferð
utanríkismála. Slíkt getur gerst á
ný-
Árið 1978 skorti aðeins 3 þing-
menn til að Alþýðubandalagið og
Alþýðuflokkurinn fengju meiri-
hluta á Alþingi. Að lokum næstu
alþingiskosningum gætu þessir
tveir flokkar á ný ásamt Kvenna-
listanum myndað ríkisstjórn án
þess að hafa Sjálfstæðisflokkinn
eða Framsóknarflokkinn með.
Þessi möguleiki gæti orðið að
veruleika.
Það fólk sem nú styður Alþýð-
uflokkinn þarf að skoða hug sinn
til drauma forystumanna flokks-
ins um nýja viðreisnarstjóm með
Sjálfstæðisflokknum. Með slíkri
stjórn væri verið að fara aldar-
fjórðung aftur í tímann.
Stuðningsmenn Kvennalistans
þurfa að taka höndum saman við
stjórnmálahreyfingar launafólks
um að skapa á íslandi samfélag
þar sem raunverulegur jöfnuður
ríki milli karla og kvenna.
En forsenda þess að slík
straumhvörf geti orðið í íslensk-
um stjórnmálum er að Alþýðu-
bandlagið vinni stórsigur í næstu
kosningum.
Stefnugrundvöllur
Aðalfundur miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins telur að meg-
inviðfangsefni ríkisstjórnar sem
starfar á grundvelli jafnaðar- og
félagshyggju eigi að vera:
- Jöfnun launa og trygging
mannsæmandi lífskjara.
- Breytt stefna í atvinnu- og fé-
lagsmálum sem stöðvi flótta
fólks og fjármagns af lands-
byggðinni.
- Húsnæðiskerfi er tryggi öllum
landsmönnum rétt til húsnæðis
á viðráðanlegum kjörum.
- Réttlátt og tekjujafnandi skatt-
akerfi.
- Afkomuöryggi, aukin velferð
fjölskyldunnar og minna vinn-
uálag.
- Ný sókn í atvinnumálum og
opnun nýrra leiða til gjaldeyris-
sköpunar.
- Aukin sjálfstjórn byggðanna
og víðtækari ráðstöfun verð-
mæta í heimahéraði.
- Ný sókn í mennta- og menning-
armálum.
- Aukið lýðræði og valddreifing.
- Afvopnun og friðarbarátta.
Helstu verkefni
nýrrar stjórnar
1. Kjaramál.
Það er forgangsverkefni að lág-
launafólk fái að njóta góðærisins.
Ójöfnuður hefur aukist mikið
síðustu misseri og kjör þess fólks
sem býr við lægstu taxta er óþol-
andi. I kjaramálum er meginvið-
fangsefnið að tryggja að allir hafi
a.m.k. 35.000-45.000 króna laun
á mánuði. Draga þarf úr þeirri
vinnuþrælkun sem ríkir í mörgum
greinum og koma á þeirri skipan
á næstu árum.að dagvinna nægi til
sómasamlegra lífskjara. Jafn-
framt því verði framkvæmt
nauðsynlegt endurmat á hefð-
bundnum kvennastörfum.
Lægstu taxta verður að afnema
og gjörbylta verður launakerfun-
um á þann hátt að í kaupauka-
kerfum verði hlutur fastra launa
aukinn og taxtakaupið fært að
hinu raunverulega greidda kaupi.
Fyrirtækin hafa sýnt í reynd að
þau geta borgað meira en kveðið
er á um í kauptöxtunum. Þess
vegna á að hækka launaákvæði
samninganna í samræmi við það
sem gerist í reynd. Feluleikir og
einkapot í launamálum verða til
lengdar aðeins til að sundra
launafólki og styrkja atvinnurek-
endur. Samstöðu verður að ná
um launajöfnun og þeir sem síð-
ustu misseri hafa náð fram launa-
hækkunum umfram aðra með
launaskriði og sérsamningum
verða að beita styrk sínum til
stuðnings lágtekjuhópunum.
Kaupmátt elli- og örorkulíf-
eyrisþega verður að hækka til
samræmis við raunverulega
hækkun launa en ekki aðeins
kauptaxta.
2. Húsnæðismál
Endurskoðun húsnæðiskerfis-
ins verði hraðað með nýsköpun
og eflingu hins félagslega þáttar
húsnæðiskerfisins að leiðarljósi.
Leiguhúsnæði og búseturéttar-
íbúðir verði raunhæfur kostur
fyrir íslenskt launafólk.
Lánskjör til mismunandi hús-
næðiskosta verði með þeim hætti
að til lengri tíma litið leiði ein-
stakir valkostir ekki til efnahags-
legra forréttinda. Almenn lán til
séreignarhúsnæðis verði sveigj-
anleg þannig að greiðslubyrðin
verði breytileg eftir fjölskyldui-
tekjum.
Það er forgangsverkefni að
stöðva það færiband nauðungar-
uppboða, sem fráfarandi ríkis-
stjóm skilur eftir sig. Lögbinda
verður árlegt greiðsluhámark
fyrir þær fjölskyldur sem nú era í
sáram eftir kjaraskerðingu,
vaxtaokur og ranga byggðastefnu
á liðnum kjörtímabili. Sérstakar
ráðstafanir verði gerðar í þeim
byggðarlögum þar sem verðhran
hefur orðið á íbúðarhúsnæði.
3. Skattakerfi
Skattakerfinu verði breytt til
að tryggja að allir leggi af mörk-
um til sameiginlegra þarfa lands-
manna. Skattleysi eignamanna,
hátekjufólks og gróðafyrirtækja í
gegnum háþróað net frádráttar-
liða og sérreglna verði afnumið.
Tekjuskattskerfið verði einfald-
að bæði að því er varðar framtöl
og skattlagningu. Frádráttar-
heimildum fyrirtækja og einstak-
linga í rekstri verði fækkað.
Skattfrelsismörk einstaklinga
verði hækkuð veralega. með
þessu móti yrði skattbyrði al-
menns launafólks minnkuð en
skattar fyrirtækja auknir. Komið
verði á stighækkandi stóreigna-
skatti. Tekið verði upp stað-
greiðslukerfi skatta. Skattaeftir-
lit verði hert. Viðurlög við skatt-
svikum verði látin bíta í raun.
Settur verði upp skattadómstóll
og fyrirtæki og einstaklingar í
einkarekstri sem verða uppvísir
að skattsvikum missi rekstrar-
leyfin.
4. Lífskjör og félagsleg þjónusta
Snúa verður við þeirri þróun
að vinnuþrældómur, léleg kjör og
niðurskurður á félagslegri þjón-
ustu hindri samvistir foreldra og
barna og komi í veg fyrir að allir,
ungir og aldnir geti búið við ör-
yggi og gefið sér tíma til ánægju-
legra samvista. Þjóðfélag sem
ekki viðurkennir í verki mikil-
vægi fjölskyldunnar, þrengir svo
að kjörum fólks að samverust-
undir fjölskyldunnar verða fáar
og stopular er samfélag hörku og
þrældóms. Það er sjálfsagður
réttur bæði karla og kvenna að
geta jöfnum höndum sinnt fjöl-
skyldu sinni og tekið þátt í
atvinnu- og félagsstörfum utan
heimilis. Börnin líða fyrir vinnuá-
lag foreldra og vegið er að þeim
þáttum samneyslu og félagslegrar
þjónustu, sem eru foreldrum
nauðsynlegur stuðningur við
uppeldi og umönnum barna.
Framlög til dagvista eru stórlega
skert, skólar margsetnir og ekki
unnt að veita börnum þar að-
hlynningu og athvarf. Þessari
háskalegu stefnu verður að
hnekkja. Auður framtíðarinnar
felst í hamingju barnanna.
Á undanförnum áram hefur
ítrekað verið þrengt að heilbrigð-
isþjónustu, heilsugæslu og að-
búnaði við aldraða og öryrkja. í
krafti markaðskreddunnar bíða
íhaldsöflin eftir nýjum tækifær-
um til að skerða enn frekar vel-
ferðarþjónustu við almenning og
gera hana að gróðalind fyrir
einkaframtakið. ísland stendur
nú þegar að baki nágrannalönd-
unum á sviði samneyslu og opin-
berrar þjónustu. Það er því brýnt
verkefni að standa vörð um vel-
ferðarkerfið í landinu og efla enn
frekar heilsugæslu og heilbrigðis-
þjónustu. Opinber þjónusta er
hluti af velferð hverrar fjölskyldu
og þjóðarinnar í heild. Varað er
við áróðri gegn samneyslu um illa
reknar og allt of dýrar þjónustu-
stofnanir. Hann beinist að þeim
sem síst skyldi: starfsmönnum en
ekki þunglamalegu og miðstýrðu
stjórnkerfi. Valddreifing, aukið
fjárhaglegt sjálfstæði og samá-
byrgð eru markmiðin en ekki
einkaskólar og einkasjúkrahús
þar sem þjónustan fer eftir fjár-
hag neytandans.
5. Ný sókn í atvinnulífi
Megininntak nýrrar sóknar í
atvinnumálum er skynsamleg
nýting auðlinda lands og sjávar.
Treysta þarf undirstöður hefð-
bundinna atvinugreina og hag-
nýta jafnframt þá miklu mögu-
leika sem fyrr hendi era í nýjum
greinum.
Alþýðubandalagið mun á
næstu mánuðum kynna ítarlegar
tillögur um efnahagsstefnu og
nýja sókn í atvinnumálum. Þær
miðast við að auka þjóðartekjur
á mann, hækka laun og bæta lífs-
kjör án aukinnar verðbólgu og
óstöðugleika í efnahagslífinu.
Þetta á að gerast með aukinni
verðmætasköpun hvers vinnandi
manns í hefðbundnum atvinnu-
greinum, þróun nýrra greina sem
staðið geta undir háum launum
og með samræmdri beitingu hag-
stjórnartækja hins opinbera.
Ný sókn í atvinnulífinu byggist
m.a. á eftirfarandi þáttum:
- íslenskur sjávarútvegur hef-
ur nú meiri möguleika en nokkra
sinni fyrr til að skila lands-
mönnum auði, m.a. vegna
aukinnar eftirspurnar eftir holl-
ustufæði í hinum þróuðu löndum.
- íslenskur iðnaður getur unn-
ið gæðavöru sess á alþjóðlegum
mörkuðum, ef samstarf og stór-
hugur koma í stað tilviljunar-
kenndrarsamkeppni og dreifingar
kraftanna.
- íslenskur landbúnaður getur
með nýju skipulagi og breyttum
söluháttum lagt grundvöll að
þáttaskilum, er tryggi bændum
góða fjárhagslega afkomu,
neytendum lægra verð og nýtir
landkosti með skynsamlegum
hætti.
- íslenskt hugvit og atorku má
nota til að þróa nýjar hátækni-
greinar. Þekkingu íslendinga í út-
gerð, fiskvinnslu og orkubúskap
má hagnýta til sóknar í fram-
leiðslu og sölu á búnaði og tækja-
þekkingu til útlanda.
- Nýta þarf þá möguleika til
ferðaþjónustu, gjaldeyrissköp-
unar og útflutnings, sem aukin
landkynning hefur í för með sér.
Höfuðmarkmið og grund-
völlur efnahags- og atvinnustefn-
unnar er velferð fólksins sjálfs og
verndun umhverfis þess.
6. Ný byggðastefna
Ný byggðastefna verður að
grundvallast á aukinni sjálfstjórn
héraðanna og rétti þeirra til að
ráðstafa í ríkara mæli þeim
auðæfum sem sköpuð eru heima í
byggðarlögunum. Koma verður
rekstrarstöðu frumvinnslu-
greina, sjávarútvegs og landbún-
aðar í það horf að þessir burðar-
ásar atvinnulífs á landsbyggðinni
hafi forsendur til endurnýjunar
og þróunar. Hverfa verður frá
þeirri sveltistefnu sem nú ríkir í
fjárveitingum til undirstöðufram-
kvæmda ríkis og sveitarfélaga.
Sérstaka áherslu verður að leggja
á að tryggja landsbyggðinni
aukinn hlut í þjónustugreinum í
atvinnulífi og opinberum rektsri.
Á þennan hátt yrði endi bundinn
á fólksflótta og fjármagnsstreymi
af landsbyggðinni. Jafnframt þarf
að fela heimamönnum fram-
kvæði að áætlanagerð um upp-
byggingu og nýsköpun í atvinnu-
lífinu.
7. Menning og menntun
Menntun er í senn
mannréttindi og forsenda fram-
fara. Skapandi menning er
grundvallarþáttur í sjálfstæði
þjóðarinnar. Á undanförnum
árum hefur verið kreppt að
menntakerfinu með margvís-
legum hætti. Dregið hefur verið
úr fjárveitingum til menntamála,
kjör kennara hafa verið skert og
aðför er nú gerð að lánakerfi
námsmanna. Þessari öfugþróun
verður að snúa við. Þjóð sem
ekki setur menntun og uppeldi í
öndvegi er að þrengja þróunar-
kosti framtíðarinnar. Jöfnun á
aðstöðu til náms með tilliti til bú-
setu og efnahags er brýnni en
nokkru sinni fyrr. Þjóð sem ekki
leggur rækt við menningu sína og
skapandi listir glatar sjálfsvitund
sinni. Þess vegna verður á næstu
árum að veita auknu fjármagni til
mennta- og menningarmála,
skapa margvíslegri listastarfsemi
möguleika til frjálsrar sköpunar,
tryggja starfsskilyrði listamanna
og efla hlutdeild almennings í list
og menningu samtímans.
8. Lýðræði og valddreifing
Auka verður áhrif almennings
á ákvarðanatöku og tryggja fólki
aðgang að nauðsynlegum upplýs-
ingum. Fyrirtæki verði skylduð til
að gera starfsfólki grein fyrir
rekstri og reikningsuppgjöri og
ríkisstofnanir efni árlega til op-
inna funda um málefni sín.
Starfsmenn fái fastbundinn áhrif-
arétt og atvinnulýðræði verði
tekið upp á sem flestum sviðum.
Embættismenn verði ekki ævi-
ráðnir heldur skipaðir til ákveð-
ins tíma og forstjórar stórfyrir-
tækja verði skyldaðir til að gefa
reglulega skýrslur á starfsmanna-
fundum. Álmennar atkvæða-
greiðslur fari fram í byggðar-
lögum og meðal þjóðarinnar um
mikilvæg mál og geti tiltekinn
minnihluti krafist þess að mál
verði á þann hátt lögð undir dóm
fólksins sjálfs. Nýjungar í fjöl-
miðlatækni verði nýttar til að
opna almenningi aðgang að um-
ræðum um sem flest mál sem
snerta mikilvæga hagsmuni og til
að efla lýðræði og virkni innan
fjöldahreyfinga. í stað ákvarðana
á lokuðum fundum komi umræða
með þátttöku fjöldans.
9. Afvopnun og friðarstefna
Stefna lslendinga í utanríkis-
málum á að miðast við að tryggja
afvopnun og veita friðarbaráttu
brautargengi. Þegar landið er
orðið griðastaður í deilum stór-
veldanna þá felst himinhrópandi
mótsögn í því að auka víbúnað í
landinu með stórfelldum hernað-
arframkvæmdum í þremur lands-
fjórðungum. Stefnan í utanríkis-
málum hefur lengi verið sundr-
ungarefni milli Alþýðubandalags
og annarra flokka einkum sá hluti
í stefnu Alþýðubandalagsins að á
íslandi eigi ekki að vera her og
ísland eigi að standa utan hern-
aðarbandalaga. Engu að síður er
skylt að kanna hvort samstaða
geti náðst um áfanga í friðar- og
afvopnunarmálum. Sérstaklega
verði kannað að hve miklu leyti
tillögur Alþjóðasambands jafn-
aðarmanna í Lima geti orðið
grundvöllur að samstöðu milli
Alþýðubandalags, Alþýðuflokks
og Kvennalista.
Þessar tillögur fela m.a. í sér
eftirfarandi aðalatriði:
- Bandaríkin og Sovétríkin eiga
að semja um algera útrýmingu
allra kjarnorkuvopna.
- Skuldbindingarnar sem fólust í
SALT I og II samningunum á
að virða án allra undanbragða.
- Tafarlaust á að stöðva allar til-
raunir með kjarnorkuvopn og
Bandaríkin eiga að hætta and-
stöðu sinni við gerð samnings
um allsherjar bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum.
- Varðveita verður ABM samn-
inginn og styrkja ákvæði hans.
- Himingeiminn á eingöngu að
nýta á friðsaman hátt.
- Leggja á kapp á baráttuna fyrir
kjarnorkuvopnalausum svæð-
um og fagnað er samningum
um kjarnorkuvopnalaus svæði í
Suður-Ameríku og Kyrrahaf-
inu.
- Bandaríkin eiga að hætta að
framleiða ný efnavopn.
- Styðja ber friðarfrumkvæði
leiðtoga Indlands, Mexico,
Grikklands, Svíþjóðar, Arg-
entínu og Tanzaníu.
Þáttaskil -
ný samstaða
Aðalfundur miðstjórnar Al-
þýðubandalagsins áréttar að
samfylking félagshyggjufólks um
nýja landsstjórn er hið eina sem
komið getur í veg fyrir að sér-
hyggju og ójafnaðaröflin fái að
umturna íslensku þjóðfélagi. Al-
þýðubandalagið skorar á samtök
launafólks, friðarhreyfingar og
aðrar fjöldahreyfingar alþýðu, -
svo sem samvinnumanna,
kvenna, námsmanna - að styðja
stefnugrundvöll nýrrar jafnað-
arstjórnar og taka þátt í barátt-
unni fyrir myndun hennar.
Hagstæð skilyrði og ný tæki-
færi hafa nú skapast til að koma á
raunveralegum þáttaskilum í
stjórn landsins. íslenskir sósíal-
istar og aðrir jafnaðarmenn gang-
ást nú undir þá prófraun hvort
þeir bera gæfu til að ná saman um
að leiða þjóðina inn á nýja öld.
Alþýðubandalagið vill gera allt
sem í þess valdi stendur til að
tryggja þessa samstöðu jafnaðar-
manna.
Við skorum á kjósendur og
samherja í öðrum flokkum að
gera slfkt hið saina.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 11. nóvember 1986
Þriðjudagur 11. nóvember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13