Þjóðviljinn - 11.11.1986, Side 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
SUÐURLAND
Forval 14. og 15. nóvember
Fyrri umferð forvals Alþýðubandalagsins á Suðurlandi vegna alþingis-
kosninga fer fram dagana 14. og 15. nóvember. Kjörstaðir verða opnir
16-22 báða dagana. Kosið verður hjá formönnum félaganna nema annað
sé tekið fram. Þeir eru:
Vestmannaeyjar: Guðmundur Jensson Hólagötu 32, s. 98-2126. Kjör-
staður verður í Hólshúsi (Kreml).
Selfoss: Anna K. Sigurðardóttir Laufhaga 15, s. 99-2189. Kjörstaður verð-
ur í Alþýðubandalagshúsinu Kirkjuvegi 7.
Þorlákshöfn: Elín B. Jónsdóttir Haukabergi 6, s. 99-3770. Kjörstaður
verður á skrifstofu Stoð s/f Unubakka.
Stokkseyri: Ingi S. Ingason Eyjaseli 7, s. 99-3479.
Uppsv. Arnessýslu: Unnar Þ. Böðvarsson Reykholti, Biskupstungum, s.
99-6831.
Vestur-Skaftafellssýsla: Margrét Guðmundsdóttir, Vatnsskarðshólar,
Mýrdalshreppi, s. 99-7291.
Hverageröl: Magnús Ágústsson, Lindarbrekku, s. 99-4579.
Rangárvallasýsla: Upplýsingar hjá: Einar Sigurþórsson Háamúla, s. 99-
8569 og Guðrún Haraldsdóttir Þrúðuvangi 9, Hellu, s. 99-5821.
Utanskjörstaðaatkvæðagreiðsla stendur frá 8. nóvember. Kosið verður
hjá formönnum og á aðalskrifstofu Ab Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Flokks-
mönnum er bent á að kynna sér forvalsreglur hjá stjórnum félaganna.
Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs: Einar Birgir Steinþórsson,
Vestmannaeyjum, hs. 98-2960 og vs. 98-1079.
Sveitarstjórnarmenn AB og áhugamenn um sveitarstjórnarmál
Fundur Byggðamanna
Byggðamenn halda fúnd í Miðgarði, Hverfisgötu 105 Rvík. 19. nóvember.
Fundurinn hefst kl. 20.
Dagskrá: 1) Frumvarpsdrög um breytingu á tekjustofnalögum. Fjallað
verður sérstaklega um fasteignagjöld, útsvör og jöfnunargjald. 2) Sam-
vinna sveitarfélaga á Suðurnesjum - ný viðhorf. 3) Stjórnarkjör. 4) Önnur
mál. Stjórnin.
ÆSKULÝÐSFYLKINGÍN
Halló, halló!
Um leið og við þökkum öllum þeim sem hafa keypt af okkur happdrættis-
miða, minnum við þá sem eiga gíróseðla upp á ísskáp hjá sér að þeirra
stuðningur verður vel þeginn. DREGIÐ 1. DESEMBER N.K.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins.
Utanríkismálanefnd ÆFAB
Fundur verður í utanríkismálanefnd ÆFAB sunnudaginn 15. nóvember að
Hverfisgötu 105 kl. 17.00.
Dagskrá: 1) Skýrslur frá landsfundi SHA og aðalfundi El Salvadornefndar-
innar. 2) Starfið framundan (Nánar auglýst síðar.) - Utanríkismálanefnd
ÆFAB.
NÁMSG AG N ASTOFN U N
Vegna skipulagsbreytinga eru eftirtaldar
stjórnunarstöður lausar til umsóknar.
FORSTÖÐUMAÐUR
FJÁRMÁLASVIÐS
í starfinu felst fjármálastjórn, áætlanagerð,
umsjón með bókhaldi, tölvuvinnsla og
ársuppgjör.
FORSTÖÐUMAÐUR
NÁMSEFNISSVIÐS
í starfinu felst stjórnun námsefnisgerðar,
áætlanagerð og umsjón með framleiðslu
námsefnis.
FORSTÖÐUMAÐUR
SÖLU- OG KYNNINGARSVIÐS
í starfinu felst stjórnun innkaupa og sala á
skólavörum, umsjón með afgreiðslu námsgagna
og kynningu.
Fagleg þekking áskilin, reynsla æskileg.
Nánari upplýsingar veitir námsgagnastjóri.
Umsókn er tilgreini menntun og fyrri störf ásamt
meðmælum sendist námsgagnastjóra,
Laugavegi 166, 105 REYKJAVÍK eða
Pósthólf 5192, 125 REYKJAVÍK
fyrir 29. nóvember 1986,
merkt „Trúnaðarmál."
Öllum umsóknum verður svarað.
ÞJÓÐMÁL
Þegar tollar lækkuðu af bílum sl. vetur rýrnuðu hlutfallsleg fríðindi öryrkja við
bílakaup mjög mikið. Nú fá þeir aðeins 25 þúsund krónur aukalega í eftirgjöf og
Helgi Seljan hefur með 4 þingmönnum flutt tillögu um að viðhalda fyrri réttind-
um þessa hóps við bílakaup.
Bifreiðakaup
Öyrkjar njóti
sömu fríðinda
Sjaldan meiri nauðsyn en nú að viðhalda áðurfengnum
réttindum þessa hóps
Helgi Seljan er fyrsti flutnings-
maður þingsályktunartillögu um
endurskoðun á lögum og reglum
um eftirgjöf bifreiðagjalda til ör-
yrkja. Skal markmið endurskoð-
unarinnar vera að öryrkjar njóti
áfram samsvarandi fyrirgreiðslu
og þeir hafa haft umfram al-
menna bifreiðakaupendur varð-
andi kaup þeirra á bifreiðum.
í greinargerð er minnt á að til-
laga þessi var flutt í lok síðasta
þings en náðist ekki að koma til
umræðu þá. Eftir hina almennu
tollalækkun sem varð á bifreiðum
í kjölfar kjarasamninga sl. vetur,
er ljóst að þau sérstöku kjör sem
öryrkjar hafa notið umfram al-
menna bifreiðakaupendur eru úr
sögunni, segir þar. Samkvæmt
upplýsingum fjármálaráðherra fá
öryrkjar aðeins 25 þúsund krónur
aukalega í eftirgjöf og því borið
við m.a. að lög heimili ekki
meira. Möguleikar öryrkja til að
njóta eðlilegs lífs ráðast óneitan-
lega mj ög af því hvort þeir eiga og
hafa til umráða eigin bifreið.
Þetta hefur verið viðurkennt af
löggjafanum sem félagslegt rétt-
indamái og áfram ber að vinna í
þeim anda. Aðstæður öryrkja eru
enda þær í dag að sjaldan hefur
verið meiri nauðsyn en nú á að
viðhalda áður fengnum réttind-
um þessa fólks. Því ber að tryggja
það að þessi ákveðnu hlunnindi
sem öryrkjar hafa notið umfram
aðra megi haldast áfram í ein-
hverju formi og því sé tillagan
flutt. Ásamt Helga flytja til-
löguna þingmennirnir Karvel
Pálmason, Guðmundur J. Guð-
mundsson og María Jóhanna
Lárusdóttir. - ÁI
Norðurlönd
Afstaða Mattfiíasar ámælisverð
Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland skora á alþingismenn að taka
í taumana
í ályktun frá framkvæmda-
nefnd Samtaka um kjarnorku-
vopnalaust Island eru þingmenn
hvattir til að taka af öll tvímæli
um kjarnorkuvopnastefnuna
fyrir næsta fund utanríkisráð-
herra Norðurlanda, og er afstaða
Matthíasar Á. Mathiesen á síð-
asta fundi ráðherranna í ágúst
talin ámælisverð. Ályktunin
hljóðar svo:
„23. maí 1985 áréttaði Alþingi
þá stefnu íslendinga að á íslandi
verði ekki staðsett kjarnorku-
vopn og hvatti til þess að könnuð
yrði samstaða um og grundvöllur
fyrir samningum um kjarnorku-
vopnalaust svæði í Norður-
Evrópu, jafnt á landi, í lofti sem á
hafinu eða í því, sem liður í
samkomulagi til að draga úr víg-
búnaði og minnka spennu. Þá fól
Alþingi utanríkismálanefnd að
kanna í samráði við utanríkisráð-
herra hugsanlega þátttöku ís-
lands ífrekari umræðu um kjarn-
orkuvopnalaust svœði á Norður-
löndum. Könnuninni skyldi vera
lokið fyrir 15. nóv. 1985.
í ljósi þessarar þingsályktunar
hlýtur afstaða utanríkisráðherra
Matthíasar Á Mathiesen, á fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda í
Kaupmannahöfn hinn 14. ágúst
1986 að teljast ámælisverð, þar
sem utanríkisráðherra bar fyrir
sig framangreinda ályktun Al-
þingis í þeim einum tilgangi, að
því er virðist, að bregða fæti fyrir
samþykkt danska þjóðþingsins
frá 3. apríl s.á. þess efnis að skipa
bæri nefnd embættismanna til að
kanna möguleika á að undirbúa
tillögu um Norðurlönd sem
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Samtök um kjarnorkuvopna-
laust ísland telja mikilsvert að ís-
land sé yfirlýst kjarnorkuvopna-
laust svæði og öllum þjóðum sé
gert ljóst að kjarnorkuvopn verði
aldrei leyfð á íslensku yfirráða-
svæði eða komi þar með vilja og
vitund íslenskra stjórnvalda.
Samtökin skora á alþingismenn
að taka af öll tvímæli í þessum
efnum fyrir næsta fund utanríkis-
ráðherra Norðurlanda sem halda
á í Reykjavík í mars á næsta ári.“
Alþingi
Neytendavernd
Steingrímur J. Sigfússon hefur
mælt fyrir tillögu til þingsálykt-
unar um auglýsingalöggjöf til að
tryggja sem best gæði auglýsinga
og eðlilega og nauðsynlega
neytendavernd, þ.m.t. að vernda
börn og unglinga fyrir innrætandi
auglýsingum.
Steingrímur benti á að engin
heildarlöggjöf er til um auglý-
singar á Islandi. Kaflinn um
neytendavernd og óréttmæta við-
skiptahætti er hið eina sem hægt
er að styðjast við en getur alls
ekki að hans mati talist
fullnægjandi m.a. hvað varðar
upplýsingaskyldu seljenda, bann
við villandi umbúðum, nægar og
réttar upplýsingar o.fl.
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJiNN Þriðjudagur 11. nóvember 1986