Þjóðviljinn - 11.11.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Þriðjudagur 11. nóvember 1986 257 tölublað 51. örgangur
SPJALDHAGI
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Hafskipsmálið
Þungur áfellisdómur
Rannsóknarnefnd Alþingis skilaði viðskiptaráðherra
110 bls. skýrslu ígœr. Lögðfram í ríkisstjórninni í dag
Rannsóknarnefnd Alþingis í
Hafskipsmálinu sem skipuð
var í ársbyrjun sl. skilaði í gær til
viðskiptaráðherra 110 bls.
skýrslu um aðdragandann að
gjaldþroti Hafskips. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans felur
skýrsla nefndarinnar í sér áfellis-
íslenskir sjávarhœttir
Bn-
stæðu
veifci
lokið
Fimmta ogsíðasta bind-
ið um íslenska strand-
menningu komið út
Við erum auðvitað mjög ánægð
að hafa getað komið þessu
verki frá okkur fuliunnu, sögðu
þau Lúðvík Kristjánsson sagn-
fræðingur og Helga Proppé um
bókaröðina Islenska sjávarhætti,
en 5. og síðasta bindi þess verks
kom út fyrir helgi.
Að sögn hjónanna Lúðvíks og
Helgu byrjaði Lúðvík að safna
efni í verkið árið 1932, ásamt því
sem hann safnaði örnefnum á
Snæfellsnesi. Árið 1942 fór Lúð-
vík sína fyrstu ferð gagngert til
þess að hitta sjómenn sem höfðu
stundað veiðar á árabátum og
dóm yfir stjórnendum Hafskips
og Utvegsbankans. Skýrslan
verður lögð fram á fundi ríkis-
stjórnarinnar nú árdegis.
Jón Þorsteinsson lögfræðing-
ur, formaður rannsóknamefnd-
arinnar, vildi ekkert gefa upp um
innihald skýrslunnar í samtali við
upp frá því varði Lúðvík flestum
sumrum til efnisöflunar.
Heimildarmenn hans eru úr
öllum landsfjórðungum, alls 374
að tölu og af þeim eru 268 fæddir
á tímabilinu 1845-1900. „Ef það
ætti að fara að viða þessu efni að
núna væri það allt um seinan því
flestir heimildarmanna eru löngu
dánir“, sagði Lúðvík. Fyrsta ka-
flann að verkinu skrifaði Lúðvík
Þjóðviljann í gær. Hann sagði að
samkvæmt skipunarbréfi hefði
nefndin átt að skila áliti sínu til
viðskiptaráðherra og hannhefði
fengið skýrsluna í hendur í gær-'
morgun. Það er síðan hans að
kynna hana fyrir ríkisstjóm og al-
þingi.
1967 og kom fyrsta bindi ritverks-
ins út árið 1980.
Hlutur Helgu í verkinu er ekki
síður merkilegur en Lúðvíks, en
Helga var við “lúsaleit", eins og
hún orðaði það, í bókum og
handritum að upplýsingum sem
tengdust efninu. Þá var handritið
sem prentsmiðjan fékk í hendur
handskrifað af Helgu, en hún
hreinritaði uppkast Lúðvíks.
Rannsóknarnefndin hefur
unnið að þessari skýrslu frá því í
lok janúar sl. en ásamt Jóni áttu
sæti í nefndinni þeir Brynjólfur
E. Sigurðsson fymim hagsýslu-
stjóri og Sigurður Tómasson
endurskoðandi. Þeir vom allir til-
nefndir af Hæstarétti. -|g
Nokkrir aðrir komu nálægt
vinnslu verksins og ber þar e.t.v.
helst að nefna Bjarna Jónsson
listmálara sem á all flestar
teikningarnar í bókinni. Guð-
mundur P. Ólafsson líffræðingur
og Hörður Kristjánsson húsa-
smíðameistari eru meðal annarra
sem sáu um gerð útskýringa-
mynda fyrir Lúðvík.
-K.ÓI.
"— 1 .~m.
Vestfirðir
Djúpið
sambandslaust
í þrjá daga
„ísingin var svo mikil að línur
voru á við gildan karlmanns-
handlegg og staurar brotnuðu
bæði vegna norðanvindsins og is-
ingarinnar“, sagði Kristján Har-
aldsson orkubússtjóri á Isafirði í
samtali við blaðið í gær, en á
Vestfjörðum geisaði norðanhvas-
sviðri um helgina.
Töluvert var um rafmagns-
truflanir og olli bilun í endur-
varpsstöðinni á Bæjum því að
símasambands- og rafmagnslaust
var í Snæfjallahreppi frá föstu-
dagskvöldi til mánudags.
Sjónvarpslaust var á öllum
þéttbýlisstöðum norðan Þing-
eyrar og í nærliggjandi sveitum.
Að sögn Kristjáns sló línum út
öðru hverju alla helgina og á
nokkrum stöðum slitnuðu þær
vegna ísingarinnar. Vindinn, sem
var 10 stig á föstudag, hefur lægt
mjög síðan á sunnudag og er spáð
góðu veðri á Vestfjörðum í dag.
-vd.
Síldarsöltun
Stopp vegna
tunnuskorts
Allt útlit er fyrir að síldarsöltun
stöðvist í vikunni einhverja daga
vegna þess að síldartunnur eru
uppurnar í landinu. 4 skip eru að
lesta erlendis yfir 100 þús. tunnur
en þær verða ekki komnar til
landsins fyrr en í fyrsta lagi um
næstu helgi. Eitt þessara skipa,
Keflavík, fékk vír í skrúfuna fyrir
utan Rotterdam á laugardag og
tefst skipið um viku vegna þessa
óhapps.
Við höfum afgreitt allar þær
tunnur sem hafa verið pantaðar,
svo það hefur ekki staðið á okk-
ur. Óg það sem meira er, við átt-
um hér á lager 90 þús. tunnur sem
Síldarútvegsnefhd tók fulla
ábyrgð á sjálf til viðbótar við það
sem sfldarsaltendur töldu rétt að
panta inn í september sl., sagði
Einar Benediktsson hjá Sfldarút-
vegsnefnd í gær. -|g.
“Við erum auðvitað ánægð að hafa getað komið verkinu frá okkur fullunnu," sögðu þau Lúðvík Kristjánsson og Helga
Proppé um íslenska sjávarhætti. Ljósm.: Sig.
A fmælishappdræ tti Þjóðviljans
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14, s: 38600
Dregið var í Afmælishappdrætti Þjóðviljans 31. október s.l. Vinningsnúmerin eru
innsigluð hjá borgarfógeta og verða birt þegar frekari skil hafa borist.
Gerið skil sem fyrst
Hægt er að sækja skil til þeirra, sem þess óska.
Síminner681333.
þJÓÐVILJINN