Þjóðviljinn - 01.02.1987, Side 6
Sherlock Holmes steypist í fossinn með erkifjand-
manni sínum: fór hann svo til Tíbet eða hvað?
Sherlock Holmes
á aldarafmœli
Atvinnulítill lœknir bjó hann til. -
Hann dó en reis upp aftur. - Og
enginn veittil þess að hann sé
dauðurenn
Á þessu ári eru hundrað ár
liðin frá því að sá frægi leyni-
lögreglumaður Sherlock
Holmes, sá holdskarpi, nef-
stóri stórreykingamaður, kók-
aínisti og alfræðingur, sá
dagsins Ijós í sögunni „A Stu-
dy in Scarlet", sem birtist í
Jólaárbók Beetons. Munu að-
dáendur Sérláks halda upp á
þetta merkisafmæli með ýms-
um hætti.
Það var í þessari sögu að fund-
um þeirra vina ber fyrst saman,
Sherlocks og hins samviskusama
en ekki alltof gáfaða Watsons
læknis. Og þar er að finna frægt
samtal þeirra: Sherlock sér strax
að Watson hefur verið í herþjón-
ustu og er nýkominn heim frá Af-
ganistan - og hann útskýrir það
síðan fyrir furðu slegnum læknin-
um, hvernig hann ræður þetta af
útliti hans, hreyfingum, klæða-
burði og fasi. Eitt nýlegt og frægt
dæmi um langlífi Sherlocks er svo
það, að tilbrigði við þetta samtal
er að finna fremst í metsöluskáld-
sögu Umberto Ecos, Nafn rósar-
innar - þegar þeir Vilhjálmur frá
Baskerville og lærisveinn hans
Adso koma til klaustursins bóka-
ríka.
Ný manngerð
HöfundurSherlocksagna, Art-
hur Conan Doyle (var aðlaður
árið 1902) var læknir og hafði sest
að í bænum Southsea á Suður-
Englandi. Viðskiptin gengu illa
og hann stytti sér stundir við að
skrifa - fyrst sögulegar skáld-
sögur en síðan Sherlocksögur.
Fyrir fyrstu söguna hlaut hann 25
pund í ritlaun og beið hún birting-
ar í heilt ár - nú eru þau fáu ein-
tök sem enn eru til af þessu jóla-
riti feiknalega eftirspurðir safn-
Höfundur Sherlákssagna, Arthur
Conan Doyle.
gripir og seljast á uppboðum fyrir
um 20 þúsund pund.
Frá og með árinu 1890 birti af-
þreyingartímaritið Strand reglu-
lega sögur Conan Doyles um
Sherlock Holmes og nutu þær
gífulegra og ört vaxandi vin-
sælda. Englendingum - og síðar
ótal þjóðum öðrum - geðjaðist
vel að sérvisku þessarar persónu,
sem hélt sér frá leiðindum með
viskí og kókaínupplausn, skaut
fangamark Viktoríu drottningar
á vegginn í skotfimi - og ættjarð-
arástarkasti, að hundsku hans og
háði - og náttúrlega dáðust menn
mest að þeirri skarpskyggni sem
gat límt saman sektardóma og
sannanir úr ótrúlegustu smámun-
um.
Með Sherlock Holmes hófst
nýtt tímabil í sögu leynilögreglu-
bókmenntanna. Áður hafði
Ieyndardómurinn og skelfingin
ráðið ríkjum í glæpasögum. Nú
Bjargvætturinn Sherlock Holmes.
kom fram maður sem sýndist
leysa morðgátur á traustum
grundvelli vísinda - (efnafræðin
er venjulega drjúg hjálparhella
Sherlocks í hans starfi) - að við-
bættri gjörhygli, rökvísi, mann-
þekkingu og leikhæfileikum (oft
bregður Sherlock á það ráð að
bregða sér í dulargervi).
En meðan Sherlock Holmes
sýndist standa traustum fótum í
vísindatrú samtímans vantaði
ekki að honum væri att út í hinar
reyfaralegu aðstæður á gamla
vísu: hann heimsækir ópíumbæli,
kemur upp um leynifélög, glímir
við brjálaða vísindamenn, sjald-
gæfar eiturslöngur, leitar sann-
leikans á válegum eyðislóðum og
í kamersum konungborinna.
Reis upp
frá dauðum
Árið 1893 var Conan Doyle
orðinn leiður á Sherlock Holmes
og ákvað að losa sig við hann. t>á
skrifaði hann sögu um endanlegt
uppgjör leynilögreglugarpsins
við sinn höfuðfjandmann, pró-
fessor Moriarty - en því lauk á
þann hátt að þeir steyptust báðir í
Reichenbachfossa í Sviss. En
höfundurinn var samt ekki laus
allra mála. Átta árum síðar
neyddist hann til þess - vegna
þrýstings frá vonsviknum aðdá-
endum Sherlocks Holmes (og
ráðlegginga bankastjóra síns) -
að vekja hetjuna til lífsins aftur.
Áður en lauk skrifaði hann 56
stuttar sögur um ævintýri Sherl-
ocks Holmes og fjórar lengri
skáldsögur.
Enn lifir kauði
Þetta er þó ekki nema dropi í
haf alls þess sem Sherlock Holm-
es hefur af sér getið. Enn í dag eru
félög aðdáenda Sherlocks Holm-
es að halda fundi og ráðstefnur og
setja fram tilgátur og skýrslur -
m.a. um ýmsa óljósa þætti í ævi-
sögu garpsins, sem hefur fyrir
löngu orðið partur af veruleika
þessa fólks. Það er spurt að því
hvort hann hafi lært í Oxford eða
Cambridge. Var hann skyldur
erkióvini sínum Moriarty eða
ekki? Hvað gerðist á árunum frá
því að hann féll í fossinn og þar til
hann reis upp frá dauðum með
undursamlegum hætti? Var hann
kannski í Tíbet að safna visku hjá
Lamamunkum?
Til eru þrjú Sherlock Holmes
söfn og í mörgum húsum hafa að-
dáendur hans komið upp eftirlík-
ingu af stofunni frægu við Baker
Street í London þar sem þeir
Watson réðu ráðum sínum. I því
húsi, sem Conan Doyle kom
þeim fyrir, er nú sparisjóður,
Abbey National og þangað berst
enn í dag mikill fjöldi bréfa til
leynilögreglumannsins óviðjafn-
anlega. Fyrirtækið hefur sérstak-
an ritara í því að svara öllum þess-
um bréfum.
Fyrirspurnirnar eru margvís-
legar. Sumir vilja komast að því,
hvar hægt er að fá píputóbak eins
og það sem Sherlock Holmes
reykir í sinni bókmenntalegu ei-
lífð, aðrir vilja vita hvað Sherlock
Holmes les út úr frægum
hneykslismálum (eins og Water-
gatemáli Nixons, fyrrum fors-
eta), þá er og beðið um rithand-
arsýnishorn eða boðið í fyrirlest-
rarferðir.
Ritarinn svarar jafnan á þá Ieið
að því miður sé ekki hægt að hafa
samband við Sherlock Holmes.
Hann hafi dregið sig í hlé frá
skarkala heimsins og fáist nú við
býflugnarækt í Sussex.
Hann getur að sjálfsögðu ekki
verið dauður - enda hefur engin
dánartilkynning að honum lút-
andi birst í Time til þessa dags!
Svo einfalt er það, kæri Wat-
son...
(áb byggði á Spiegel).
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. febrúar 1987