Þjóðviljinn - 01.02.1987, Síða 16

Þjóðviljinn - 01.02.1987, Síða 16
Bakþankar um barnamenningu Börn eru lítil. Það er einföld staðreynd. En af þeirri stað- ' reynd leyfist þó ekki að draga hvaða ályktun sem vera skal. Til dæmis ekki þá ályktun að börn séu lítilsvirði. Samteréc ekki alveg laus við þann grun að sú ályktun sé einhvers staðar á reiki í óljósri þoku undirmeðvitundar sumra manna. Einkum á sviði menn- ingarmála. Að minnsta kosti á ég erfitt með að skýra öðru vísi fyrir sjálfum mér ýmis undarleg viðhorf. Margir virðast reiðubúnir til að kaupa fyrir börn dýr föt og dýr leikföng, jafnvel svo að skiptir þúsundum króna. Virðast ekki telja neitt eðlilegra og æmta hvorki né skræmta þótt stundum sýnist manni hreint okur á ferð- um. Ekkert of gott fyrir blessuð börnin, er þá væntanlega við- kvæðið. Þeim mun torskildari er sú tafarlausa níska sem stingur upp kollinum um leið og menn- ingarmál eiga í hlut. Barnabók til dæmis virðist eiga að vera í alveg sérstökum verðflokki sem ekki er í neinu samræmi við tilkostnað eða verðlag á öðrum hlutum. Og miðar á leiksýningar handa börn- um eiga að vera miklu lægri en fyrir fullorðið fólk. Það tíðkaðist meira að segja nokkuð lenei hiá Ríkisútvarpinu að greiða minna fyrir vinnu ef um barnaefni var að ræða. Það er engu líkara en verið sé að meta fólk eftir umfangi og þyngd. Eg er hræddur um að sumum okkar sem erum stór og þung og klunnaleg, færi að bregða í brún ef kílóamælikvarði ætti að gilda um fullorðið fólk. Milliliðir fullorðið fólk Mig langar að ræða ögn nánar um barnabókmenntir. Ég hef skrifað fjórar barnabækur og eitt barnaleikrit (sem verður sýnt á vegum Þjóðleikhússins í vor) og þýtt mikið af barnaefni. Ég þykist því tala af nokkurri reynslu. Og sú reynsla segir mér að það sé að ýmsu leyti erfiðara að skrifa fyrir börn en fullorðna. Ekki bara vegna þess að þurfa að setja sig inn í hugarheim barns. Það er ekki svo óskaplega erfitt af þeirri einföldu staðreynd að enginn get- ur verið rithöfundur og skáld nema að vera barn sjálfur. Fyrsti NJÖRÐUR P. NJARÐVfK annmarkinn er sá að það er ekki hægt að ná til barna milliliða- laust. Milliliðurinn er fullorðið fólk sem því miður er oftast hætt að vera börn. Það er fullorðið fólk sem ákveður hvað skuli gefið út í bók eða flutt í leikhúsi, það er fullorðið fólk sem skrifar ritdóma og leikdóma, ekki fyrir börn heldur fyrir annað fullorðið fólk, og það er fullorðið fólk sem kaupir bækur handa börnum. Og viðbrögð þessa fullorðna fólks Auglýsing Kvenstúdentafélag íslands og Félag íslenskra háskólakvenna auglýsir eftir umsóknum um náms/rannsóknar- styrk fyrir vormisseri 1987. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar. Umsóknum ásamt upplýsingum um nám oq skólavist skal skilað í pósthólf 327. Stjórnin Félagsráðgjafi óskast Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til afleysinga í 7-8 mánuði. Um er að ræða 100% starf í fjölskyldudeild. Æskilegt er að umsækjandi hefji störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 9. febrúar n.k. Umsóknareyðublöð liggja frammi að Félags- málastofnun, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veitir deildarfulltrúi fjölskyldu- deildar í síma 45700. Félagsmálastjóri byggjast yfirleitt á eigin hug- myndum eða þá á því hvað það heldur að sé æskilegt fyrir börn og muni falla þeim í geð. Einkum og sér í lagi er hvimleitt þegar það fullorðna fólk sem fjallar um barnabókmenntir er af því tagi sem sífellt er að reyna að kenna börnum að hætta að vera börn og troða þeim í staðinn inn í staðlað- an heim ímyndunarlausra smá- borgara. Fræg er sagan af því þegar Astrid Lindgren skrifaði fyrstu bókina um Línu langsokk. Þá hafnaði hvert útgáfufyrirtækið á fætur öðru handritinu á þeirri forsendu að svona ættu barna- bækur ekki að vera. Þau hafa lík- lega nagað sig í handarbökin síð- ar sum hver, enda varð höfundur sögunnar fyrr en varði mest seldi barnabókahöfundur Evrópu. Áhrif nískunnar Krafan um að bamabækur skuli vera óeðlilega ódýrar hefur ýmislegt misjafnt í för með sér. Jákvætt er þó að það verður til þess að barnabækur lifa að mörgu leyti lengur á sölumarkaði. Það þykir með öðrum orðum ekki skömm að gefa barni bók sem kom út í fyrra eða hittiðfyrra. Slíkt getur varla nokkur maður látið spyrjast um sig ef fullorðin manneskja á í hlut. Kaupandinn dregur réttilega þá ályktun að barnið hafi ekki enn tamið sér ósið þeirra fordóma að telja góða bók úrelta eftir nokkrar vikur. Allt annað er hins vegar neikvætt og hefur víðtækari áhrif en menn gera sér trúlega grein fyrir, ekki síst þegar í hlut eiga bækur fyrir yngstu lesendurna. Til dæmis er fróðlegt að sjá hversu margar blaðsíður slíkar bækur eru. Furðu oft eru þær 24 eða 32 blaðsíður, eða réttara sagt að því gætt hvernig stendur á örk svo að pappírinn nýtist sem best. Höfundurinn verður þá með að- stoð umbrotsmanns að sjá til þess að sagan passi í pappírinn. Þá er nokkurn veginn ógerlegt að prenta litmyndir í íslenskar barn- abækur. Ég hef til dæmis tilbúið handrit að barnasögu, en ekki hefur fundist leið til að gefa hana út með litmyndum vegna kostn- aðar, og með svarthvítum mynd- um telst hún ekki geta keppt við erlendar barnabækur. Og þarna er á ferðinni alvarlegt mál sem ég hef áður leyft mér að benda á. Risaupplög fjölþjóðlegrar samprentunar sem hægt er að hafa nógu ódýr, standa inn- lendum barnabókmenntum fyrir þrifum í öllum smáríkjum heims. Og öllum börnum er nauðsyn að lesa bækur úr eigin umhverfi, enda er bókalestur sjálfsleit ekki síður hjá börnum en fullorðnum. Þáttur leikhúsa Leikhúsin íslensku njóta mik- illa vinsælda meðal almennings, svo mikilla að hreint ótrúlegt má teljast. En þau hafa ekki verið tiltakanlega dugleg að sinna börnum. Þjóðleikhúsið frum- sýnir á þessu ári tvö ný íslensk barnaleikrit, og það er til fyrir- myndar, en heyrir því miður til undantekninga. Og mér finnst einhvern veginn vera orðið ansi langt síðan Leikfélag Reykjavík- ur hefur sýnt barnaleikrit. Og það er alltof algengt að endur- sýna sí og æ vinsæl leikrit sem allir vita að muni ganga vel með nokk- urra ára millibili. Þá getur farið svo að fólk haldi að barnaleikrit séu bara Kardemommubærinn, Dýrin í Hálsaskógi og Lína lang- sokkur. Þetta eru vissulega af- bragðsverk og ný og ný börn fæð- ast í heiminn sem betur fer, en fyrr má nú rota en dauðrota. Ég er þeirrar skoðunar að það sé brýnt verkefni fyrir leikhúsin ís- lensku að sýna jafnt og þétt ný barnaleikrit og leggja ekki minni metnað f þau en aðrar leiksýning- ar. Og kannski aldrei brýnna en nú þegar sjónvarpið er orðið helsta afþreying barna. Hvað sér guð? Nauðsyn lifandi og öflugrar barnamenningar ætti að liggja í augum uppi. Hún er grundvöllur framtíðarinnar. Við íslendingar sem virðumst upp til hópa vera bruðlarar og eyðsluseggir, megum ekki láta það spyrjast um, okkur að við tímum ekki að sjá börnum okkar fyrir góðum bókum og vönduðum leiksýning- um. í því felst fullkomið vanmat okkar á andlegu lífi barnanna. Við ættum miklu frekar að gera okkur ljóst að við getum margt af þeim lært, t.d. heiðarleika, hrein- skilni, einlægni og takmarkalítið ímyndunarafl - og visku sem byggist á innsæi. Börn skynja bet- ur en fullorðið fólk að tilveran er ekki raunsæ eða sjálfri sér sam- kvæm og greina ekki eins að ytri og innri veruleika. Þeim er ljóst að það sem gæti gerst, getur gerst - og gerist. ímyndun og veru- leiki, draumur og vaka, eru allt hluti af heildarskynjun mann- eskjunnar. Þess vegna skyldi eng- inn vanmeta börn. Skarpskyggni þeirra og hugsun getur verið hreint ótrúleg. Og þau reyna ekki síður en við fullorðna fólkið að glíma við heimspekileg og rök- fræðileg vandamál. Til dæmis lagði fimm ára drengur fyrir mig eftirfarandi spurningu um dag- inn: Ef guð sér í gegnum allt, sér hann þá líka í gegnum það sem hann sér? Svari nú hver sem get- ur. Njörður P. Njarðvík Fósturskóli íslands Endurmenntunarnámskeið fyrir fóstrur Innritun stendur yfir á eftirfarandi námskeið: Námskeið í Reykjavík: 1. Samskipti 2. Seinþroski barna 3. Myndíð og leikræn tjáning 4. Þróun siðgæðisvitundar. Tekið á móti umsóknum í síma skólans kl. 16-18 til 10. febrúar. Námskeið á Akureyri Tónuppeldi. Tekið á móti umsóknum í síma skólans kl. 16-18 til 6. febrúar. Skólastjóri Er ekki fj^ifandi? að ger«st “^JLum Sími 681333. 16 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.