Þjóðviljinn - 21.02.1987, Qupperneq 1
Laugardagur 21. febrúar 1987 42. tölublað 52. órgangur
A Iþingiskosningar
Eyðni
Þetta er allt heldur vandræða-
legt og setur sveitastjórnir al-
mennt í nokkurn vanda nema að
frestum verði eitthvað breytt. Ég
get ekki séð hvernig hlutirnir eiga
að ganga upp miðað við lög-
bundna fresti nú þegar búið er að
festa kjördag, sagði Gunnar
Eydal skrifstofustjóri Reykjavík-
urborgar í gær.
„Kærufresti til sveitarstjórna
vegna kjörskrár lýkur 11. apríl.
Sveitastjórnir þurfa síðan að vera
búnar að úrskurða um kærur í
síðastá lagi þann 17. aprfl, viku
fyrir kosningar og til þessa fundar
skal boða þá sem kærðir hafa ver-
ið út, með minnst þriggja daga
fyrirvara," sagði Gunnar Eydal
skrifstofustjóri Reykjavíkur-
borgar í gær.
„1 síðustu sveitarstjórnakosn-
ingum voru kærur um 600 og það
tekur sinn tíma að vinna úr þeim
kærum sem berast og nú vill svo
til að 17. aprfl er föstudagurinn
langi og skírdagur næsti dagur á
undan. Þá er annar í páskum
mánudaginn 20. aprfl og
sumardagurinn fyrsti þann 23.
apríl og er hann frídagur. Gæti
það tafið útsendingar á niður-
stöðum í kærumálurrí'.
Halldór Þ. Jónsson sýslumaður
Skagafjarðarsýslu sagði Þjóðvilj-
anum að þetta frídagamál snerti
hans embætti ekki svo mikið en
sem landsbyggðarmanni fyndist
sér þetta heldur hæpinn tími.
Þórir Þorgeirsson oddviti
Laugarvatni sagði að þar sem
Laugardalshreppur væri fá-
mennur, skipti það sveitar-
stjórnarmenn þar litlu þótt þeir
settust niður einn frídag eða svo.
Tillagan um kjördag kemur frá
forsætisráðherra.
-sá.
Einn deyr
í viðbót
31 hefur mœlst með
mótefni gegn eyðni
Um sfðustu helgi lést annar aln-
æmissjúklingurinn hér á landi.
Hinn látni var rösklega tvítugur
hommi sem mældist með eyðni
fyrir meira en ári. Sá fyrri lést í
nóvember 1985. Nú hafa fjórir
einstaklingar verið greindir með
sjúkdóm á lokastigi.
Samkvæmt upplýsingum frá
landlækni, Ólafi Ölafssyni, hafa
alls 31 einstaklingar verið
greindir með alnæmisveiruna í
blóði. Þar af eru 20 hommar, 6
fíkniefnaneytendur, 3 sem hnei-
gjast að andstæðu kyni og sinn
hvor blóðþeginn og dreyrasjúkl-
ingurinn. Af þeim eru 11 ein-
kennalausir og 11 með forstigs-
einkenni á mismunandi stigi.
-RK.
Kurr út af kjördegi
Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarinnar: Gengur ekki upp miðað við
lögbundna fresti. Vegnafrídaga verður mjög erfitt að koma úrskurðum
um kjörskrárkœrur tilfólks. HalldórJónsson, sýslumaður Skagfirðinga:
Hœpinn tími
Háskólakennarar og
náttúrufrœðingar
íhuga
verkfall
Mikil umræða mun vera um
það nú í Félagi háskólakennara
og Félagi náttúrufræðinga í
BHMR hvort leita eigi verkfalls-
heimildar hjá félagsmönnum, en
náttúrufræðingar hafa nú þegar
haldið nokkra vinnustaðafundi
um málið.
Hörður Filippusson formaður
Félags háskólakennara sagði í
samtali við Þjóðviljann að engin
ákvörðun hefði verið tekin í fé-
laginu ennþá en innan tíðar
myndi skýrast hvort svo yrði.
Heimildir Þjóðviljans herma að
fari háskólakennarar í verkfall sé
hugmyndin sú að það verði sam-
tímis verkfalli HÍK. komi það til.
Freysteinn Sigurðsson formað-
ur Félags náttúrufræðinga sagði
verkfall væri orðið vel undirbúið
af hálfu félagsins ef til kemur, en
enn hafi engin ákvörðun verið
tekin. „Enn það er unnið að
þessu af kaldri rósemi,“ sagði
Freysteinn.
Hvort félögin fara í verkfall
eða ekki mun skýrast eftir mán-
aðamótin en þá er líklegt að línur
í samningaviðræðum félaganna
við ríkið fari að skýrast. Um-
ræðan um verkfall mun vera á
frumstigi í nokkrum öðrum fé-
lögum BHMR. - K.Ól.
Þýskir lúðrablásarar úr Svartaskógi léttu skapið hjá borgarbúum sem voru að sinna helgarinnkaupunum við stórverslanirnar í gær. Þjóðverjamir
eru hér til að halda uppá þýska helgi sem lýkur með bjórhátíð og veislu á Sögu á sunnudagskvöld. Mynd - E.ÓI.
Húsnæðislánakerfið
Reglumar valda skilnuðum
Hjón þar sem annar makinn er í námi og hinn útivinnandi fá
aðeins 7/2 lán. Hjón hugleiða skilnað til að fá fullt lán
Samkvæmt reglun nýja hús-
næðislánakerfisins fá hjón þar
sem annar aðilinn er í námi en
hinn útivinnandi aðeins 1/2 lán og
skiptir þá engu hversu háar tekj-
ur hinn útivinnandi maki hefur.
Hjón þar sem annar aðilinn er
útivinnandi og hinn heimavinn-
andi fá hins vegar fullt lán séu öll
skilyrði uppfyllt.
„Við höfum alvarlega hugleitt
það að skilja," sagði maður sem
ekki vildi láta nafn síns getið í
samtali við Þjóðviljans í gær en
hann og kona hans fá aðeins hálft
lán þar sem kona hans er nem-
andi. Viðmælandi segist hafa
góðar tekjur og það hafi því ekki
staðið í veginum, og að ef þau
myndu skilja fengi hann fullt lán.
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunarinnar sagði að hann
teldi að sá skattfrádráttur sem
námsmenn hefðu, hafi ráðið
nokkru um það að þessi stefna
hafi verið mótuð.
Nú liggur fyrir lagafrumvarp
frá Alexander Stefánssyni um
breytingar á lögum um Húsnæð-
isstofnun þar sem ákvæði er til
bráðabirgða um það að náms-
menn öðlist rétt á lánum á við
aðra en að sögn kunnugra gildir
það lfka um þá námsmenn sem
eru giftir útivinnandi maka.-K.ÓI,
Ofurmótið
Töframaðurínn
sveiflar spratan-
um
í annarri umferð IBM skák-
mótsins sýndi Mikhail Tal,
fyrrverandi heimsmeistari,
enn einu sinni snilli sína þegar
hann lagði Jóhann Hjartarson
að velli í glæsilegri skák.
Sjá nánar frásögn, skákir
og úrslit á bls. 6.