Þjóðviljinn - 21.02.1987, Síða 2
pSPURNINGIN'
- Hvernig hefur þér
gengið að fá lán hjá
Húsnæðismálastofn-
un?
Jóhannes Jónsson:
Samkvæmt minni reynslu þá
stenst þetta allt saman. Ég hef trú
á nýja húsnæðismálakerfinu það
sem af er.
Guðríður Sigurðardóttir:
Ég hef trú á nýja húsnæðismál-
akerfinu og hef von um að fá lán.
Ég sótti um lán í september en
hef því miður ekki fengið svar
ennþá.
Árni Sigurjónsson:
Þetta lofar góðu ef nægilegt fjár-
magn fæst í húsnæðismálakerf-
ið. En það er ekkert réttlæti í því ef
satt er að hinir tekjulægstu fái
ekki lán.
Sigurður Traustason:
Ég hef trú á nýja húsnæðismál-
akerfinu og vonast eftir láni þó ég
þurfi að bíða í nokkurn tíma. En
ég er ekki sáttur við það að
heimavinnandi maki getur dregið
úr lánsupphæðinni.
Steinar Steinarsson:
Það hefur ekki reynt á það enn-
þá. En ég hef trú á nýja húsnæð-
ismálakerfinu og vonast eftir láni.
FRÉTTIR
Alnœmi
Herferð á vinnustöðum
Landlœknisembœttið og A.S.Í. taka höndum saman
um frœðsluherferð um alnœmi
Iundirbúningi er fræðsluher-
ferð á vinnustöðum um al-
næmi. Landlæknisembættið hef-
ur leitað eftir samstarfi við Al-
þýðusambandið um tilhögun
herferðarinnar. Miðstjórn A.S.Í.
hefur þegar tekið vel í þá mála-
leitan.
Að sögn Guðjóns Magnús-
sonar, aðstoðar-landlæknis hefur
þegar verið ráðinn til starfans
sérmenntaður hjúkrunarfræðing-
ur í kynsjúkdómum og fræðslu,
er mun njóta fulltingis hjúkrun-
arfræðinema við framkvæmd
herferðarinnar. „Ætlunin er að
farið verði á fjölmennustu vinn-
ustaði á stór-
Reykjavíkursvæðinu og starfs-
fólk frætt um þennan skelfilega
vágest, sem alnæmi er. Aðgengi-
legt fræðsluefni hefur þegar verið
tekið saman og er meiningin að
því verði dreift til heilsugæslust-
öðva, sem munu annast þessa
fræðslu út um landið," tjáði að-
stoðarlandlæknir blaðinu í gær.
Blaðinu er kunnugt um að á
Patreksfirði sé fræðsla um al-
næmi þegar hafin á vinnustöðum,
undir stjórn Jósefs Blöndals
heilsugæslulæknis. -RK.
Paparnir Eva, Belinda og Vala stilla upp tyrir sunnudaginn. Skátar eiga von á að íþróttahúsið verði troðfullt út úr dyrum
meðan tívolíið stendur yfir. Mynd gg.
Skagatívolí
Trað-
fyllum
íþrótta-
húsið
Við höfum troðfyllt húsið til
þessa og reiknum ekki með að
áhugi Skagamanna á þessari
skemmtun okkar hafi neitt dvín-
að. Við ætlum að margfylla
íþróttahúsið á sunnudaginn,
sagði Sigríður Karen Samúels-
dóttir sveitarforingi í Skátafélagi
Akraness í samtali við Þjóðvilj-
ann, en skagaskátar bjóða til helj-
armikils tívolís í íþróttahúsinu á
morgun, á afmælisdegi skáta-
höfðingjans Baden Powell.
Signður sagði undirbúninginn
hafa staðið í þrjár vikur og hafa
um 140 krakkar á aldrinum 9-18
ára lagt hönd á plóginn. Blaða-
maður Þjóðviljans heilsaði upp á
undirbúningssveitina þar sem
hún var að leggja síðustu hönd á
verkið, en fjörið hefst á hádegi á
morgun. Að tívolíi loknu hefst
bingó.
Skátarnir hafa sett upp tívolí í
íþróttahúsinu fjórum sinnum
áður og stefna að því að halda
uppteknum hætti á tveggja ára
fresti. Það hefur viljað þannig til
nú tvö síðast liðin skipti að hátíð-
ina hefur borið upp á afmælisdag
Baden Powells. -gg
Stúdentaráð
Kosningabaráttan fer hægt af stað
Vinstrisinnar og Vaka hafa tilkynnt framboð
Vinstri sósíalistar
Framboð
afráðið
um helgina
Á fundi sem Vinstri sósíal-
istar hafa boðað á Hótel
Borg í dag verður að öllum
líkindum tekin endanleg af-
staða til framboðs fyrir
komandi þingkosningar.
Þá verða á fundinum
kynntar hugmyndir um
rekstur útvarpsstöðvar og
rætt um frekara starf sam-
takanna.
Tvö framboð eru þegar ákveðin
fyrir kosningar til Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands, sem verða
fímmtudaginn 12. mars. Fram-
boðsfrestur rennur út 2. mars og
er búist við að fleiri listar verði í
kjöri.
Þegar hafa Félag vinstrisinn-
aðra stúdenta og Vaka tilkynnt
að þau muni bjóða fram til stúd-
entaráðskosninga við H.í. sem
verða í mars. Fastlega er búist við
því að Umbótasinnar bjóði einn-
ig fram. Síðast voru fjórir listar í
kjöri, en fátt er vitað um fyrirætl-
an Manngildissinnaðra stúdenta,
er buðu fram síðast, en komu
engum manni að ráðinu.
Kosið verður að þessu sinni um
helmingstúdentaráðsliða.þ.e. 15
fulltrúa, en af þeim er kosið sér-
staklega um tvo fulltrúa til há-
skólaráðs, sem einnig eiga setu í
stúdentaráði.
Kosningabaráttan hefur farið
rólega af stað. Einna mesta lífs-
markið virðist vera með Vinstri-
sinnum, sem hafa opnað skrif-
stofu og eru ötulir við blaða- og
dreifirita-útgáfu. RK.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. febrúar 1987