Þjóðviljinn - 21.02.1987, Síða 3
FRETTIR
Bankarnir
Dýrt
að gúmma
Kostnaður vegna ávísun-
ar sem ekki er innistœða
fyrirfrá220kr. til240kr.
eftir bönkum
Alþýðubankinn hækkaði um
síðustu mánaðamót kostnað, sem
fylgir því þegar reikningseigend-
ur fara yfir mörkin á ávísanaheft-
inu, úr 150 krónum í 240 krónur,
auk dráttarvaxta.
Hjá bankanum fengust þær
upplýsingar að þetta gjald hefði
verið lægra en hjá öðrum nokkuð
lengi. Þjóðviljinn athugaði málið
í öðrum bönkum og kom í ljós að
þar hefur þessi kostnaður ekki
verið hækkaður síðan í haust en
þá var hann hækkaður í 220 krón-
ur hjá Landsbankanum, í 225
krónur hjá Verzlunarbankanum.
í 230 krónur hjá Útvegsbankan-
um og í 240 krónur hjá Búnaðar-
bankanum og Iðnaðarbankan-
Ytri-Rangá
um.
-vd.
Olögmætt
regnbogasilungseldi
Reglugerðir og lög brotin. Eftirlitsskyldir aðilar vísa hver á annan. Jósef
Benediktsson hjá Veiðifélagi Rangæinga: Lífríki árinnar kann að vera stefnt í
voða. Friðjón Guðröðarson sýslumaður: Undarlegt aðgerðarleysi hjá
Veiðimálastofnun og Hollustuvernd
Fiskeldisstöðin Vatnagull hefur
flutt 400 þúsund regnbogasil-
unga að ósum Ytri-Rangár án til-
skilinna leyfa. Eftirlitsskyldum
aðilum er kunnugt um málið, en
þeir hafa lítt aðhafst og vísa hver
á annan um næstu viðbrögð.
Veiðifélag Rangæinga óttast að
fyllsta öryggis sé ekki gætt og e)d-
isfiskurinn kunni að sleppa í
gegnum rist eða grind sem skilur
að eldistjörnina og ána og geti
ógnað lífríki árinnar.
„Okkur er kunnugt að Vatna-
gull hafi hafið regnbogasilungs-
eldi og flutt í miklum mæli seyði
Sturlumál
Þingvenjur brotnar
Vegna ummæla í fjölmiðlum
síðustu daga út af atkvæða-
greiðslu á Alþingi í tengslum við
svonefnt „fræðslustjóramál“ vil
ég taka fram eftirfarandi:
Ég hafði fjarvistarleyfi frá
þingfundi þennan dag vegna
löngu ákveðins fundar á Austur-
landi.
Eftir að fyrir lá á mánudags-
kvöld, að atkvæðagreiðslu um
frumvarp Ingvars Gíslasonar og
fleiri yrði frestað gerði ég flutn-
ingsmönnum frumvarpsins grein
fyrir því að ég yrði ekki á þing-
fundi á miðvikudag. Jafnframt
Norðurlandaráð
nfiöfíír
að deyja
Lífkerfi suðurhluta Norður-
sjávar, Eystrasalts og Eyrarsunds
er að hrynja vegna mengunar,
bæði sýnilegrar og ósýnilegrar,
og mengun í Norðuratlantshafinu
eykst stöðugt.
Mengunin kemur frá t.d. efna-
iðnaði og landbúnaði og berst í
höfin um ár og læki, hún kemur
frá skipum og olíuvinnslu á höf-
unum og er um að ræða olíu, olí-
uúrgang, sýrur, þungmálma og
geislavirk efni. Fylgifiskur meng-
unarinnar er súrefnisskortur í
höfunum sem sífellt eykst.
Þá gerist einnig títt að strendur
mengast af olíu vegna margs kon-
ar slysa og veldur það oft geysi-
legum fugladauða ásamt öðrum
vandræðum.
Fyrir þingi Norðurlandaráðs í
Helsinki sem hefst formlega á
mánudaginn kemur liggur tillaga
frá Guðrúnu Helgadóttur og er
meðflutningsmaður Guðrúnar
Páll Pétursson.
í tillögunni er lagt til að Nor-
ræna ráðherranefndin láti gera
úttekt á mengun hafanna, bæði
hvað varðar Norðurlöndin og
önnur lönd og í framhaldi af slíkri
úttekt komi Norðurlöndin sér
saman um samnorrænt vinnulag í
baráttunni gegn þessum gríðar-
lega vanda og lagt er til í tillögu-
nni að væntanleg stefna sem tekin
verður í þessum málum tengist
alþjóðlegu samstarfi um meng-
unarvarnir.
leitaði ég eftir því, að andstæð-
ingur frumvarpsins úr stjórnar-
liði, Sjálfstæðis- eða Framsókn-
arflokki „færi út á móti“ eins og
kallað er, það er tæki ekki þátt í
atkvæðagreiðslunni. Ég fékk
synjun frá sjálfstæðisþingmanni
en málið var í athugun hjá þing-
mönnum úr Framsóknarflokki
þegar ég fór úr bænum fyrir há-
degi á miðvikudag. Það mun nán-
ast einsdæmi, að ekki sé orðið við
óskum þessa efnis, en það gerðist
því miður í þessu tilviki.
Um afstöðu mína varðandi
margumrætt „fræðslustjóramál“
ætti enginn að velkjast í vafa, svo
og til óþinglegrar frávísunartil-
lögu Sjálfstæðisflokksins. Ég er
andsnúinn stefnu og vinnu-
brögðum Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra í þessu máli
eins og svo mörgum öðrum, er
varða skólamál og landsbyggð-
ina. 20. feb. ’87
Athugasemd frá Hjörleifi Gutt-
ormssyni.
frá Laxalóni, án nokkurra leyfa.
Það hefur hvorki verið leitað eftir
leyfi til þessa eldis hjá Veiðimál-
astofnun eða Hollustuvernd
Ríkisins eins og tilskilið er í
lögum,“ sagði Valdimar Gunn-
arsson hjá Veiðimálastofnun í
gær. Valdimar sagði að ekki væri
talin veruleg hætta á ferðum þótt
eldisfiskurinn kynni að sleppa í
ána, samt væri ávallt þörf á fyllsta
aðgáti. Ljóst er að ekki væri
þannig um hnútana búið að
tryggt sé að fiskurinn komist ekki
í ána. Aðspurður um það hver
yrðu viðbrögð Veiðimálastofn-
unar sagði Valdimar að stofnunin
sem slík hefði ekkert vald til að
stöðva rekstur stöðvarinnar og
því yrði frumkvæðið að koma frá
öðrum.
„Við gerðum það að kröfu
okkar að Vatnagull leitaði tilskil-
inna leyfa og treysti betur ristina
milli árinnar og tjarnarinnar. Sá
frestur sem fyrirtækið fékk til
þessa er liðinn og þess verður
ekki vart að orðið hafi verið við
kröfum okkar. Við komum ekki
til með að kæra fyrr en í lengstu
lög. Allavega er rétt að sjá fyrst
hver viðbrögð eftirlitsskyldra að-
ila verða, eins og Hollustuvernd-
ar, Veiðimálastofnunar og hér-
aðsdýralæknis,“ sagði Jósef Ben-
ediktsson hjá Veiðifélagi Rangæ-
inga.
Friðjón Guðröðarson, sýslu-
maður Rangæinga sagði að sér
kæmi það undarlega fyrir sjónir
að Veiðimálastofnun og Hollust-
uvernd aðhefðust lítt. Jafnframt
sagði Friðjón að Náttúruverndar-
ráði væri málið kunnugt, en það-
an hefðu engin viðbrögð komið
enn. „Ég hef ekki séð ástæðu til
að rannsaka þetta á meðan ekk-
ert heyrist frá eftirlitsskyldum að-
ilum,“ sagði Friðjón Guðröðar-
son. rk.
Regnbogasilungur í eldistönkum að Laxalóni. En þaðan keypti Valdimar hjá
Vatnagulli regnbogasilunginn, sem deilt er um í Landssveit um þessar mundir.
Mynd -eik.
Kaffitería Loftleiðahótelsins
16 fengið aðra vinnu
Einar Olgeirsson hótelstjóri: Unnið að endurskipulagningu
allra rekstrarþátta hótelsins. Uppsagnirnar ekki tylliástœða
Við erum í samningaviðræðum
við verktaka til að taka við
rekstri kaffitcríunnar og verður
væntanlega skrifað undir samn-
ing öðru hvoru megin við næstu
mánaðamót. Það er mikill mis-
skilningur hjá Sigurði Guð-
mundssyni hjá Félagi starfsfólks í
veitingahúsum að endurskipu-
lagning kaffiteríunnar sé aðeins
tylliástæða til að segja starfsfólki
teríunnar upp. Við stöndum í
endurskipulagningu allra rekstr-
areininga Hótels Loftleiða og
kaffiterían er aðeins einn þáttur-
inn í þeirri endurskipulagningu, -
segir Einar Olgeirsson hótelstjóri.
ÖIlu starfsfólki kaffiteríu
Loftleiðahótelsins hefur verið
sagt upp störfum frá og með 1.
apríl nk. eins og skýrt var frá í
Þjóðviljanum í gær þar sem Sig-
urður Guðmundsson hjá FSV
lýsti því yfir að hér væri jafnvel
um tylliástæðu að ræða til þess að
geta skipt um starfsfólk á kaffi-
teríunni.
- Það er ekki rétt að það séu 25
manns sem endurskipulagning
kaffiteríunnar nær til, heldur 20.
Af þessum 20 erum við búnir að
útvega 16 aðra vinnu hér á hótel-
inu. Það eru aðeins 4 konur, þar
af tvær í 50% vinnu sem ekki hafa
enn fengið annað starf við sitt
hæfi, - sagði Einar Olgeirsson
hótelstjóri að lokum.
g.r.h.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Fundur á Hótel Borg
í dag laugardag 21. febrúar kl. 14.
Dagskrá:
1. Tekin ákvörðun um framboð til Alþingis.
2. Kynntar hugmyndir um útvarpsstöð.
3. Starf vinstrisósíalista.
Stjórnin.