Þjóðviljinn - 21.02.1987, Síða 4
LEHDARI
-■ — - .. ,--------— ..—.
Kosið um afstöðu til kjamorkuvopna
Kjördagurinn, 25. apríl, nálgast. Þá velur
þjóðin sér þingfulltrúa til að sitja á alþingi íslend-
inga næsta kjörtímabil.
Það er hlutverk þessara fulltrúa að taka
fjöldamargar mikilvægar ákvarðanir fyrir hönd
þjóðarinnar.
Ein hin mikilvægasta af þeim ákvörðunum
sem fyrirsjáanlegt er að þingmenn þurfi að taka
á næsta kjörtímabili er ákvörðun um það, hvort
ísland taki þátt í því norræna framlagi til friðar og
afvopnunar í heiminum, sem kallað hefur verið
„Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd".
Þess ber að geta, að þegar afstaða þjóðar-
innar til þessa máls var könnuð af félagsvísind-
adeild Háskóla íslands, kom í Ijós, að 86% þjóð-
arinnar styðja hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd.
En hver er þá afstaða þingmanna til þessarar
hugmyndar?
Það er skemmst frá því að segja, að hinn nýi
þingmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks lítur þessa hugmynd illu auga, og kemur
sú afstaða fram í andstöðu gegn því að skipuð
sé norræn embættismannanefnd til að fjalla um
málið á vegum utanríkisráðuneytanna.
Alþýðuflokkurinn hefur ennfremur í samstarfi
norrænnar þingmannanefndar um þetta mál
einkum reynt að tefja fyrir framgangi málsins.
Þegar umræður um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd hófust kom fljótlega í Ijós tilhneiging
á öðrum Norðurlöndum til að einangra íslend-
inga frá umræðunni - vegna þess að hér er
bandarísk herstöð. Síðan hefur málið þróast á
þann veg, að sjálfsagt er talið að íslendingar
taki þátt í um ræðunni, því að það er ekki hlut-
verk hinna Norðurlaridanna að útiloka ísland frá
umræðunni - þrátt fyrir bandarísku herstöðina
hér.
Frá hinum Norðurlöndunum er þá sögu að
segja, að allir flokkar í finnska þinginu styðja
tillöguna. Ekki er vitað um andstöðu í sænska
þinginu. Meirihluti Sósíaldemókrata, Sósíalíska
þjóðarflokksins og Róttæka vinstri flokksins í
danska þinginu styðja tillöguna. Meirihluti
norska stórþingsins styður tillöguna og vitað er
að þjóðþing Grænlendinga og Færeyinga
styðja þessa afstöðu. Um þetta fjallar Svavar
Gestsson formaður Alþýðubandalagsins í grein
sem birtist í aukablaði Þjóðviljans í dag.
Svavar Gestsson segir: „En meirihlutinn á
alþingi íslendinga er á móti því að skipa nor-
ræna embættismannanefnd. Það er meirihluti
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins.
Þar með hefur myndast nýr meirihluti á ís-
lenska þinginu - annar en virtist vera til staðar í
byrjun desember 1985. Þetta gerðist með þvíað
þingmenn Bandalags jafnaðarmanna gengu til
liðs við krata og íhald.
Þetta kom fram í umræðum um tillögu á al-
þingi í vikunni. Alþýðuflokkurinn mun að vísu
áfram taka þátt í þingmannanefndinni, en með
afstöðunni til embættismannanefndarinnar hef-
ur hann þegar unnið málinu tilfinnanlegt tjón.
Hætta er. á því að afstaða Alþýðuflokksins verði
til þess að útiloka íslendinga þegar á frumstigi
frá umræðunni um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd. Það er hrikaleg ábyrgð sem Alþýðuflokk-
urinn hefur þannig axlað og vafasamt að hann
geti nokkurn tímann risið undir þessari afstöðu.
Fullvíst er einnig að innan Alþýðuflokksins hefur
þessi afstaða Jóns Baldvins vakið upp verulega
gagnrýni á forystu hans.“
Þessi þæfingur íhalds og krata gegn hug-
myndinni um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
er forsmekkur að því samstarfi, sem þessir
flokkar stefna að eftir næstu kosningar.
Á næsta kjörtímabili verður ákvörðun tekin
um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
Ef kratar og íhald hafa þá meirihluta á alþingi
íslendinga er auðvelt að sjá fyrir, hverja af-
greiðslu málið fær:
íslendingar munu þá hvergi nærri koma í
norrænu samstarfi að friðar- og afvopnunar-
málum, þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar vilji
að við leggjum okkar lóð friðarmegin á vogar-
skálarnar.
Einangrun íslands frá friðarstarfi hinna
Norðurlandaþjóðanna mun að sjálfsögðu leiða
til þess, að enn mun aukast þrýstingur á íslend-
inga um að gera Keflavíkurflugvöll að kjarnorku-
hreiðri.
Það er meðal annars þetta sem kosið verður
um 25. apríl næstkomandi. - Þráinn
LjÖSÖPIÐ
þJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgef andi: Útgáf ufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, Ossur
Skarphéðinsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir,
VÍÓir Sigurösson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlitstelknarar: SævarGuðbjömsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri:Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Sfmvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnflörð.
Bí Istjór i: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbreiðslu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verö í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöö: 55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 21. febrúar 1987