Þjóðviljinn - 21.02.1987, Qupperneq 6
____________________________SKÁK___________________________
Önnur umferð
Barist djarft og fómað hart
Umferð mistakanna. Glœsilok Tals. íslendingar enn gegn Rússum
Kortschnoi dapur á svip eftir að skákgyðjan hafði brugðist honum illilega í
viðureigninni við Short.
Skák dagsins
Önnur umferð IBM mótsins á
Loftleiðum bauð upp á mörg æsi-
leg augnabiik og greinilegt að
meistararnir voru í baráttuskapi.
Baráttan heimti að sönnu sinn toil
og var óvenjumikið um gróf mis-
tök hjá svo sterkum skák-
mönnum.
Helgi hafði hvítt gegn Poluga-
jevskí og var tefld Drottningar-
indversk vörn. Snemma urðu
mikil uppskipti og jafntefli samið
í þann mund sem faðir Helga
gekk í salinn skömmu fyrir kvöld-
mat.
Jón L. stýrði hvítu mönnunum
gegn Margeiri sem beitti Sikil-
eyjarvörn. Margeir valdi afbrigði
sem Karl Þorsteins notaði gegn
Guðmundi Sigurjónssyni á al-
þjóðlega mótinu í Vestmanna-
eyjum með slæmum árangri.
Guðmundur sem stendur í
BRAGI JÓN
HALLDÓRSSON TORFASON
ströngu í skákskýringunum var
líka fljótt ánægður með hvítu
stöðuna og fann fáar vænlegar
leiðir fyrir svart. Spakvitringum í
áhorfendahópnum virtist Mar-
geir hafa misst af varnarleiðum
en hvað sem því líður lauk Jón
skákinni með glæsibrag. Short
hafði svart gegn Kortschnoi og
beitti Franskri vörn en sá síðar-
nefndi er einn heilsti sérfræðing-
ur í þeirri vörn sem nú er uppi.
Staða Shorts varð slæm og sagði
hann eftir skákina að hann hefði
ekki fengið jafnslæma stöðu í
mörg ár. Það segir þó ekki mikið
því skammt er síðan maðurinn
fæddist svo mörg ár þurfa ekki að
þýða ýkja langan tíma í hans
munni. Eftir 33. leik Shorts var
staðan svona:
Kortschnoi gat t.d. leikið 34.
c6 og 35. Dxa7 en þá hefur hann
góða stöðu, sterkan riddara gegn
veikum biskupi. í staðinn lék
hann skákinni niður með 34.
Rxd5?7 Bxd5 og gafst nú upp því
eftir 35. Hxe8 Hxe8 36. Hxe8
Dxe8 37. Dxd5 Del+ 38. Kh2
De5+ 39. Dxe5 fxe5 vinnur
svartur á a-peðinu, sbr. 1. bls. í
fyrsta kafla, 1. hefti í endatöflum
Ihandabyrjendum. Norðmað-
urinn Agdestein tefldi heldur
slaklega með hvítu mönnunum
gegn Portisch. Var unun að sjá
hvernig Ungverjinn kom
mönnum sínum í góðar stöður.
Þegar hvítur hafði leikið 22. leik
sinn krýndi Portisch verkið með
22. ... Hxe2
23. Dxe2 Db4
24. Dd3 Dxa4
25. Bd7 Hd8
26. Bxc6 Bxc6
27. Kcl Bb5
28. De3 Bd7
29. Kd2 Hc8
30. Dd3 Db4+
Hvítur gafst upp því eftir 31.
Ke2 Bb5 fellur drottningin og
eftir 31. Ke3 He8+ 32. Kf4 Dd6
er hann mát.
Ljubojevic stýrði hvítu mönn-
unum á móti Timman og fékk
rýmra tafl upp úr byrjuninni.
Þegar leið á skákina virtist hann
kominn með vinningsstöðu,
hafði hrakið menn Timmans upp
í borð svo Hollendingurinn var
nánast leiklaus. En Ljubojevic
var kominn í mikið tímahrak og
það varð honum dýrkeypt. Hon-
um varð á smávægileg óná-
kvæmni og missti þá gjörsamlega
tökin á stöðunni, lék af sér manni
og uppi með vonlausa stöðu.
Töframaðurinn frá Riga
gladdi áhorfendur svo sannar-
lega, að vísu á kostnað Jóhanns
Hjartarsonar. Við skulum líta
nokkru nánar á handbragð snill-
ingsins.
Úrslit í gœr: Jón L.-Margeir 1-0
Kortchnoi-Short 0-1
Ljubojevié-Timman 0-1
Agdestein-Portisch 0-1
Tal-Jóhann 1-0
Helgi-Polugajevskí Í/2-I/2
Hvítt: Tal
Svart: Jóhann Hjartarson
Spænskur leikur
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Bb7
6. Hel b5
7. Bb3 0-0
8. c3 d6
9. h3 Ra5
í dag tefla:
Short-Jón L.
Margeir-Helgi
Timman-Kortchnoi
Portisch-Ljubojevié
Jóhann-Agdestein
Polugaj evskí-Tal
Á sunnudag tefla:
Jón L.-Timman
Margeir-Short
Kortchnoi-Portisch
Ljubojevié-Jóhann
Agdestein-Polugajevskí
Helgi-Tal
Á mánudag tefla:
Portisch-Jón L.
Timman-Margeir
Short-Helgi
Jóhann-Kortchnoi
Polugajevskí-Ljubojevié
Tal-Agdestein
Umferðirnar á laugardag og
sunnudag standa frá 14-19, bið-
skákir tefldar 20.30-22.30. Á mán-
udag er teflt frá 16.30-21.30, bið-
skákir 23-1.
Þetta lokaða afbrigði er kennt
við föður rússneska skákskólans,
Tsjígorin, og er það ein af glett-
um örlaganna því að hann unni
opnum stöðum en ekki lokuðum.
Afbrigðið var fastur liður á skák-
mótum fyrr á öldinni en hefur nú
gengið í endurnýjun lífdaganna.
1«. Bc2 c5
11. d4 Dc7
12. Rb-d2 Bd7
13. Rfl cxd4
14. cxd4 Ha-c8
15. Re3 Rc6
16. d5 Rb4
17. Bbl a5
18. a3 Ra6
19. b4 g6
Þessi staða hefur komið svo oft
upp áður að ekki verður tölu á
komið. Svartur gat vitaskuld ekki
leikið 19. ... axb4 20. axb4 Rxb4
vegna 21. Bd2 og hann tapar
manni.
20. Bd2 axb4
21. axb4 Db7
22. Bd3 Rc7
23. Rc2 Rh5
24. Be3 Ha8
25. Dd2 Hxal
26. Rxal ...
Snjall leikur. Riddarinn hefur
för sína til a5. Svarti hefur ekki
tekist að jafna taflið út úr byrjun-
inni en staða hans er traust þótt
hún sé þröng.
26. ... f5
27. Bh6 Rg7
28. Rb3 f4?
Þessi leikur er áreiðanlega mis-
ráðinn. Betra var að leika 28. ...
fxe4 29. Bxe4 Bf5, grafa undan
stöðu hvíta peðsins á d5 og freista
um leið að ná gagnsókn á kóngs-
væng. Nú fær hvítur að fara sínu
fram á drottningarvæng.
29. Ra5 Db6
30. Hcl Ha8
31. Dc2 Rc-e8
32. Db3 ...
Hvítur leggur nú nauðaó-
merkilega tveggja leikja gildru,
33. Rxe5 dxe5 34. d6+, en með
henni nær hann öðru mikilvægara
markmiði, kverkataki á c-
línunni. Hér þjónar taktíkin
strategíunni.
32. ... Bf6
33. Rc6 Rh5
34. Db2 Bg7
35. Bxg7 Kxg7?
Aíleikur í erfiðri stöðu.
Nauðsynlegt var 35. ... Rhxg7.
Gamli töframaðurinn frá Ríga
gengur þegar á lagið og sveiflar
sprotanum.
36. Hc5! ...
Peðið á b5 er nú í bráðum
háska. Svartur má ekki þiggja
fórnina, 36. ... dxc5, vegna 37.
Rfxe5 og fráskákarhótunin á
löngu skálínunni er banvæn.
36. ... Da6
37. Hxb5 Rc7
38. Hb8! Dxd3
39. Rcxe5! ...
Hver fórnin af annarri rekur
aðra. Ef svartur þiggur þessa fórn
verður hann mát eftir 39. ... dxe5
40. Dxe5+ Kh6 41. Rg5! Be8 42.
Hxe8 og síðan 43. Rf7 mát.
39. ... Ddl+
40. Kh2 Hal
Jóhann hótar nú máti en Tal
hefur séð lengra.
41. Rg4+ Kf7
42. Rh6+ Ke7
43. Rg8+
Svartur gafst upp.
Nú er hvítur fyrri til að máta,
43. ... Kf7 44. Rg5 mát.
ICELAND
STÓRMÓT ’87
1. 2 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. Vinn. Röö
1. Jón L. 4 1 y2 u/2
2. Margeir 0 4 0 0
3. Short 4 1 1 2
4. Timman 4 1 1 2
5. Portisch 4 1/2 1 1/2
6. Jóhann 4 0 0 0
7. Polugajevskí 1 4 1/2 1V2
8. Ta! Va 1 4 11/2
9. Agdestein 0 0 4 0
10. Ljubojevic 0 0 4 0
11. Kortchnoi 1 0 4 1
12. Helgi Vi Vi 4 1
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. febrúar 1987
Úrslít og næstu skákir