Þjóðviljinn - 21.02.1987, Side 9
Kristín Om-
arsdóttir og
Kristín Bjarna-
dóttir segja frá
einþáttungun-
um sem frum-
sýndir verða í
Þjóðleikhús-
inu áþriðjudag
- Eigið þið ykkur einhvern
uppáhaldsrithöfund, sem hefur
haft meiri áhrif á ykkur en aðrir?
K.Ó.: Já, við eigum einn sam-
eiginlegan uppáhaldsrithöfund,
það er Sam Shepard. En Jessica
Lang er vissulega þriðja konan
hans.
K.B.: Hann ferðast svo
skemmtiiega í tíma og nptar tákn,
sem hann leyfir áhorfandanum
að ráða í. Og hann kann að skapa
alvörupersónur af holdi og blóði.
K.Ó.: Já, hann er svo mikill
frummaður, það er svo mikil
náttúra í verkum hans og þau
koma við eitthvað frumafl í okk-
ur.
K.B.: Hann getur samið ljóð á
öskuhaugum...
K.Ó.: Og í dýragörðum...
- Kristín Ó, viltu segja mér
hvað þér finnst um verkið hennar
nöfnu þinnar?
K.Ó.:Mér finnst verkið hennar
Kristínar ekki vera fyrst og
fremst lýsing á sjónarhorni kon-
unnar sérstaklega. Þetta er verk
um manneskju, og það streymir
frá því hlýja, líf og löngun... mér
finnst hún ná eins vel sjónarhorni
karlanna í verkinu eins og kvenn-
anna, því þeir verða í hennar
höndum að manneskjum af holdi
og blóði, og það er númer eitt,
þegar maður er að búa til per-
sónur. Það að skrifa er fólgið í því
að búa til heilan heim, en ekki
einhvern prívat og persónulegan
vinkil - og það finnst mér að
Kristínu hafi tekist. Hún hefur
skapað heim konu, þar sem hinar
persónurnar eru líka lifandi, og
það er einhver þrá sem gengur
eins og strengur í gegnum verkið
og hrærir mann sem áhorfanda.
Eiginlega veit ég ekki um hvað
verkið fjallar, en það er númer
eitt í leikhúsi að áhorfandinn lifi
sig inn í tilfinningar og verði
með... það heitir víst katharsis...
Þetta verk hennar Kristínar er
eins og að fara nakinn í bað í
lygnri á sem streymir í hring á
heitri sumarnótt og stundum
kemur kaldur gustur...
- En þú, Kristín B., hvernig
viitu lýsa fyrir mér verki nöfnu
þinnar?
K.B.: Það er eins og þegar sólin
hefur skinið lengi og steinarnir og
sandurinn í fjörunni eru orðnir
svo heitir að maður veit ekki
hvort maður á að læðast eða
stökkva til þess að brenna sig
ekki... Þetta verk er fullt af sárs-
auka og lífslöngun og leit að ein-
hverju óþekktu, næstum því yfir-
náttúrulegu. Henni þykir vænt
um persónurnar sem hún er að
lýsa, og ég efast um að nokkur
karlhöfundur geti dregið upp
sannari mynd af karlmanni en
hún gerir í þessu verki.
K.Ó.:Í raun og veru er ég fíll.
K.B.: Já, bleikur ffll, er það
ekki?
K.Ó.: Og þú ert selur...
K.B.: Nei, ég er ekki nógu
hál... Ég er steinn.
K.Ó.:Nei, þá ertu frekar strá.
K.B.: Já, kannski er ég ýlu-
strá... ólg
aði mjög óþægilega gegnum
hljómflutningstæki hússins.
Þetta er þeim mun dapurlegra
sem það er ljóst að hér hafa marg-
ir unnið mikið og vel og að
leikhópurinn á mörgum prýði-
legum leikurum á að skipa.
Framsögn þeirra er yfirleitt með
ágætum og leiktækni vel þokka-
leg. Margir leikaranna skila hlut-
verkum sínum mjög vel miðað
við aðstæður. Þar má til dæmis
nefna Vilborgu Gunnarsdóttur í
hlutverki hinnar vergjörnu eigin-
konu, Lárus Vilhjálmsson í hlut-
verki dómsmálaráðherrans, Þór-
hall Gunnarsson í hlutverki Dalla
og Gísla Guðlaugsson í hlutverki
kynskiptingsins, sem tekst
reyndar að vera bærilega fyndinn
á köflum þó svo að hlutverk hans
sé með öllu óskiljanlegt.
Þessi sýning er þörf áminning
um þau eilífu sannindi að það er
jafnvel ennþá mikilvægara fyrir
áhugaleikhópa en atvinnuleikhús
að hafa góða texta til að byggja á
sýningar. Slyngir atvinnumenn
geta þegar vel gengur breitt
nokkuð yfir misbresti í texta en
allt slíkt blasir við í miskunnar-
lausri nekt þegar áhugamenn eru
á ferðinni.
FULLKOMIN
SKIPULAGNING
með Scháfer híllukerfíntt.
Opnir skúffukassar úr plasti ★ Margar
stærðir ★ Margir litir ★ Otal möguleikar á
uppsetningu og breytingum.
Skápakerfí ★ Fataskápar ★ Skjalaskápar
★ Pallettakerfl ★ Skóffakerfí ★ Plastkassar o.fl.
Fyrir vinnustaði, skóla, verslanir, lagera,
bílskúra, geymslur o.fl.
sknjfulaust hillukeffi
G.A.Pétursson hf.
Umboði og heildver*lyn
SMIÐJUVEGI 30 E-GÖTU,
KÓPAVOGI, SIMI 77 4 44
Laugardagur 21. febrúar 1987) ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Bifvélavirki óskast á slökkvistöðina í Reykjavík. Laun sam-
kvæmt launataxta bifvélavirkja.
Umsóknir skilist á slökkvistöðina við Skógarhlíð fyrir 1. mars
nk.