Þjóðviljinn - 21.02.1987, Qupperneq 13
HEIMURINN
Líbanon
Amalsítar hörfa
Leiðtogar stríðandi afla í Damaskus
Bardagar blossuðu enn upp
í Vesturbeirút í gærmorgun
eftir að tiltölulega friðsamt
hafði verið um nóttina. Her-
sveitir bandalags kommún-
ista, Drúsa og Súnní muslíma
voru sagðar hafa undirtökin í
átökunum þótt Amalsítar
héldu velli á ýmsum lykilstöð-
um svo sem við Murr-turninn
hátrimbraða.
Sýrlendingar hafa ítrekað hót-
anir sínar um að senda herlið inn í
borgina til að stilla til friðar ef
ekki verður lát á ósköpunum.
Talið er að þeir bíði eingöngu
eftir formlegri beiðni frá hinni
vanmegna ríkisstjórn Líbanons
áður en þeir láta til skarar skríða.
Leiðtogar fylkinganna sem
berast á banaspjót eru nú allir
gestir Assads forseta í Damask-
us. Amalsítinn Berrí, Drúsinn
Jumblatt og formaður kommún-
istaflokksins, Georg Hawi, reyna
að komast að samkomulagi um
framtíðarskipan mála í Vestur-
beirút.
Telja þeir síðarnefndu að sít-
arnir hafi verið uppivöðslusamir
um skör fram í borgarhlutanum á
undanförnum árum og eins renn-
ur þeim til rifja meðferðin á Pal-
estínumönnunum, gömlum
vopnabræðrum sínum úr stríðinu
við falangista.
Eitthundrað og fimmtíu manns
hafa fallið að minnsta kosti og
þrjúhundruð orðið óvígir af sár-
um síðan orrustan hófst. Fæst
húsa í Vesturbeirút eru óskemmd
með öllu og nú er farið að sverfa
að fleirum en palestínskum
flóttamönnum því matarskortur
er farinn að segja til sín meðal
stríðsþreytts almennings.
-ks.
Oddvitar stríðandi herja. Drúsinn Jumblatt til vinstri og Amalsítinn Berri.
Iransskandhalinn
Þrengir að Reagan
Enn ein skriða vondra frétta, Hvítahússmenn kvíða skýrslu
rannsóknarnefndar á fimmtudag
Washington - Þvert á vonir Re-
agans og manna hans harðnar
íransmálið og angar þess með
hverri vikunni. Menn bíða nú
með eftirvæntingu skýrslu
sérstakrar rannsóknarnefndar
sem forsetinn skipaði, og er
talin vera mjög gagnrýnin.
Skýrsluna á að birta á
fimmtudag.
Jafnframt berast sífellt fréttir
af starfsemi Öryggisráðsins,
NSC, sem er í miðri hringiðu
hneykslisins. Hinir brottreknu
Poindexter og North sátu í því
ráði, og þar var einnig Robert
MacFarlane, forveri Poindexters
sem öryggisráðgjafi Reagans.
MacFarlane reyndi að fremja
sjálfsmorð í síðustu viku, sem
varð síst til að bæta andrúmsloft-
ið.
Frá því er skýrt í bandarískum
stórblöðum í gær að árið 1985
hafi Öryggisráðið haft í gangi
áætlun um bandarísk-egypska
innrás í Líbíu, og segir Washing-
ton Post að utanríkisráðuneytis-
mönnum undir forystu Shultz
hafi tekist naumlega að hindra al-
varlegar umræður um slíka innrás
með því að kalla heim til vitnis-
burðar sendiherra Bandaríkj-
anna í Egyptalandi gegn „brjál-
æðingunum í Hvíta húsinu" eins
og haft er eftir starfsmönnum í
ráðuneytinu.
Pá eru fréttir sagðar af því
vestra að forsetinn hafi samþykkt
fyrir ári áætlun um að ræna
meintum hryðjuverkamanni til
að koma honum fyrir bandarísk-
an rétt. Slíkum aðferðum hafa ís-
raelsmenn beitt við heiftúðuga
gagnrýni þeirra ríkja sem fyrir
verða.
Enn segir frétt að Oliver North
hafi á sínum tíma birt ráða-
mönnum í Teheran leyndar-
upplýsingar sem stranglega var
tekið fram að ekki mætti kynna
útlendingum.
Þessar upplýsingar allar kynnu
að vera smáskjálftar undan þeim
stóra sem vænst er á fimmtudag
þegar rannsóknarnefnd skipuð af
forsetanum skilar af sér. í skýrslu
nefndarinnar er búist við að ríkis-
stjórn Reagans og forsetinn sjálf-
ur verði harðlega gagnrýnd fyrir
umfang og valdsvið Oryggisráðs-
ins og skorti á eftirliti með því.
Noregur
Ríkís-
útvarpið
sjálfstætt
NRK verður óháð fjöl-
miðlafyrirtœki í eigu rík-
isins 1. mars ’88
Frá Baldri Pálssyni i Lillehammer:
Ef að líkum lætur verður
norska ríkisútvarpið, NRK,
sjálfstætt fjölmiðlafyrirtæki 1.
mars á næsta ári, en áfram í'
eigu norska ríkisins og háð
norska Stórþinginu um fé.
Stjórnarfrumvarp um NRK,
Norsk Rikskringkastning, var
kynnt í gær og verður lagt fram á
næstunni. Stofnunin, sem bæði
rekur útvarps- og sjónvarpsstöð
og fjölda staðbundinna útibúa,
verður færð undan menningar-
málaráðuneytinu og fengin sjálf-
stæð yfirstjórn, að hluta skipuð
starfsmönnum, og hefur hún allt
vald um rekstur og stjórnun
innan þeirra marka sem þingið
setur.
Útvarpsstjórinn Bjartmar
Gjerde, fyrrverandi mennta-
málaráðherra jafnaðarmanna, er
hress yfir frumvarpinu og segir að
breytingarnar muni bæta sam-
keppnisstöðu NRK, efla rekstr-
araga og fjárhag. Gjerde býst
ekki við meiriháttar byltingum á
dagskrárstefnu NRK, sem einsog
RÖV leitast við að vera „allra
landsmanna".
I
Oliver North, persónugervingur Ir-
ansmálsins, sem velgir Reagan-
stjórninni sífellt skæðar undir uggum.
Indland
Tvö ný rfld bætast við
Kínverjar hóta Gandhi hörðu
Nýju-Delí - Sambandsríkinu
Indlandi bættust í gær tvö ný
ríki, eða fylki, þegar héruðin
Mizoram og Arunchal Pradesh
urðu sjálfstæð innan ind-
verska ríkisins, og eru nú 24
sjálfstjórnarfylki í Indlandi.
Forsætisráðherrann Rajiv
Gandhi var viðstaddur hátíð-
lega athöfn á báðum stöðum.
Hvíta húsið
Cuomo ekki með
New York - Mario Cuomo borg-
arstjóri í New York lýsti því yfir
í fyrradag að hann gæfi ekki
kost á sér til forsetaframboðs
fyrir demókrata í kosningun-
um á næsta ári. Þessi yfirlýs-
ing hins frjálslynda og vinsæla
stjórnmálamanns þykir mjög
styrkja möguleika Garys Hart á
tilnefningu.
Cuomo var álitinn helsti keppi-
nautur Harts um framboðið, þótt
borgarstjórinn hafi raunar aldrei
sagst sækjast eftir tilnefningu, og
síður þekktir vonarmenn um hylli
demókrata, Richard Gephart og
Bruce Babbitt, glöddust yfirlýs-
ingunni. Auk þeirra hafa Joseph
Biden og Jesse Jackson sóst eftir
tilnefningu.
Mizoram-fylkið liggur í suð-
austurhluta landsins, milli Burma
og Bangladesh, og er nýsloppið
úr tveggja áratuga skærum milli
indverska hersins og sjálfstæðis-
sinnaðra skæruliða MNF-fylking-
arinnar. Gandhi náði friðarsamn-
ingum við leiðtoga hennar Lald-
enga í fyrrasumar og er Laldenga
nú forsætisráðherra fylkisins.
Hitt nýja fylkið, Arunchal Pra-
desh, liggur í suðausturhlíðum
Himalajafjalla austan Bhutan, og
telja Kfnverjar sig eiga þar land.
Þeir hafa mótmælt hástöfum
ákvörðun um að gera það að fylki
í Indlandi, og segja afleiðingarn-
ar muni verða alvarlegar fyrir
Indverja. Kínverjar og Indverjar
fóru í stríð árið 1962 um land-
svæði í Arunchal Pradesh og vest-
ar í fjöllunum.
Framhaldsnám í sérkennslufræðum
við Kennaraháskóla íslands
Kennaraháskóli íslands býöur fram eftirfarandi
framhaldsnám til B.A. prófs í sérkennslufræðum
sem hefst haustiö 1987:
1. áfangi (30 einingar), hlutanám.
2. áfangi (30 einingar), hlutanám.
Hvor áfangi tekur tvö ár í hlutanámi þannig að
unnt er aö stunda þaö samhliða kennslu.
Kennarar sem Ijúka báðum áföngum ásamt verk-
legu námi (15 ein.) hljóta B.A. gráöu í kennslu
barna með sérþarfir.
Til aö hefja fyrsta áfanga námsins þurfa umsækj-
endur að hafa full kennararéttindi (skv. lögum
48/1986) og a.m.k. tveggja ára kennslureynslu.
Umsækjendur um annan áfanga skulu auk þess
hafa lokiö fyrsta áfanga eöa samsvarandi viöur-
kenndu námi í sérkennslufræðum (30 ein.) Kenn-
araháskóli íslands áskilur sér rétt til að velja úr
hópi umsækjenda á grundvelli skirflegra um-
sókna, meðmæla og viðtala.
Nánari upplysingar um nám þetta, ásamt um-
sóknargögnum, fást á skrifstofu Kennaraháskóla
íslands, Stakkahlíð, 105 Reykjavík. (sími
688700).
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1987.
Rektor
Matráðskona
óskast
Dagheimilið Austurborg við Háaleitisbraut óskar
að ráða matráðskonu til starfa frá næstu mán-
aðamótum. Um heilsdagsstarf er að ræða.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 38545.
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13