Þjóðviljinn - 22.02.1987, Page 2
FLOSI
Miku
skammtur
af frjálsri samkeppni
Mig hefur alltaf grunaö, eða öllu heldur hef ég
alltaf vitað, að samkeppni, frjáls og óháð, er af
hinu góða. Það þarf engan Hannes Hólmstein
Frídman eða Hæjek til að segja manni það.
Bensín og olíur kostar hér nánast ekki neitt af
því að olíufélögin eru í svo undur heilbrigðri
samkeppni, kaffi kostar skít og ekki neitt af því
að innflytjendur veita hver öðrum aðhald með
heilbrigðum viðskiptaháttum. Dæmin sanna að
neytendur á íslandi fá að njóta þess í ríkum
mæli þegar heimsmarkaðsverð lækkar á kaffi
og öðrum neysluvörum innfluttum, já öllu sem
nöfnum tjáir að nefna.
Allir eru á einu máli um það að þetta sé alveg
ofboðslega sniðug aðferð, sem hvetur innflytj-
endur til að gera alltaf hagstæðari og hagstæð-
ari innkaup þar til allt milli himins og jarðar kost-
ar bara hérumbil ekki neitt.
Það er nefnilega kominn tími til þess að þjóðin
geri sér það Ijóst að það er innflytjendum og
verslunarstéttinni að þakka hvað vísitalan helst
lág, því vísitalan er reiknuð eftir vöruverði og
allir vita að ef ekki væri hér á íslandi svona
óskaplega frjáls samkeppni, þá værum við
löngu komin langt yfir rauða strikið og mesti
bölvaldur sem hugsast getur, riði á þjóðinni
með öllum sínum þunga. Andskotinn væri laus
og hörmungarnar birtust fólki í hækkandi kaupi.
En á meðan frjálsa samkeppnin heldur vöru-
verðinu niðri er allt í blómanum og enginn þarf
að óttast þá ógæfu sem kauphækkunum fylgir,
einfaldlega vegna þess að þeirra er ekki þörf.
En það er víðar en í viðskiptaheiminum sem
hin frjálsa samkeppni ber ríkulegan ávöxt. Ótrú-
leg gróska er komin í þá fjölmiðla, sem flytja efni
sitt á öldum Ijósvakans og má með sanni segja
að í aldingarði sjónvörpunar og útvörpunar á
íslandi sé hver skrautplantan uppaf annarri.
Allt er þetta að þakka hinni frjálsu samkeppni
og engu öðru.
Samkeppni sjónvarps- og útvarpsstöðva er
einkum fólgin í því að flytja landslýð æ áhuga-
verðara útvarps- og sjónvarpsefni og maður
veit bara satt að segja ekki hvar þetta endar ef
áfram verður haldið sem horfir.
Manni er bara næst að halda að hin frjálsa
samkeppni sé á góðum vegi með að koma ís-
lensku þjóðinni á eitthvert æðra tilverustig og
vitsmunaplan, fyrir atbeina hinna síbatnandi og
metnaðarfullu fjölmiðla Ijósvakans.
Ég held að engum þurfi að blandast hugur um
það að á sama hátt og lágt vöruverð í landinu er
að þakka frjálsri samkeppni innflytjenda, þá er
hið háa plan sem fjölmiðlar í landinu eru komnir
á, að þakka hinni sömu frjálsu samkeppni.
Það er ekki ofsagt að menningarbylting hafi
orðið í Ijósvakanum á íslandi með því að
sjónvarps- og útvarpsrekstur var gefinn frjáls.
Hæst rís menningarleg viðleitni hinna stríð-
andi sjónvarps- og útvarpsstöðva í tónlistarþátt-
um sem helgaðireru þeirri köllun stjórnenda að
selja hljómplötur sem þurfa að seljast þó allir
séu orðnir leiðir á þeim, bæði þeir sem eru búnir
að hlusta á þær oft og lengi nauðugir eða ótil-
neyddir og líka þeir sem þurfa ekki að hlusta á
þær nema einu sinni, eða jafnvel aldrei til að
verða leiðir á þeim.
Svona músík skilst mér að hafi til skamms
tíma verið spiluð í síbylju í einni af rásum Ijós-
vakans með þeim afleiðingum að vinsældalist-
inn er orðinn óvinsældalisti, og rásin víst búin að
geyspa golunni.
- Menn fá grænar bólur hérna hjá mér á
rakarastofunni, sagði rakarinn minn við mig í
fyrradag, já bara grænar bólur ef þeir heyra
vinsælt popp hérna í útvarpinu hjá mér, hlaupa
allir upp í húðinni. Og þessu er ekki hægt að
bjarga, nema ef maður er svo heppinn að geta
náð í útsendingu frá Akureyri á hinum vinsælu
Akureyrarþáttum: „Vits er þörf“ og „Við poll-
inn“.
Þá verður húðin slétt aftur.
Eitt merkilegasta fyrirbrigði sem fylgt hefur í
kjölfar frjálsrar fjölmiðlunar eru hinir svokölluðu
símatímar, en í þeim gefst þeim vitsmunaverum
þjóðarinnar, sem annars fá ekki að koma í út-
varpið eða sjónvarpið, færi á að heyra sjálfa sig
tala í síma.
í símatímunum gefst alþjóð semsagt tækifæri
til að taka þátt í þjóðmálaumræðunni þar sem
hún rís hæst og tjá sig um þau málefni sem helst
brenna á þjóðinni þessa dagana. Semsagt
brjóta til mergjar: smokkamál, matreiðslu, kyn-
hegðun, brugg og brennivínsmál, háttvísi í
strætisvögnum, kynvillu, klámmyndir, foreldra-
vanda og æskulýðsvandamál, uppáferðamál
og venjuleg ferðamál, homma lespíur og
flugvallamál.
Síðasta sem ég heyrði af þessu tagi var upp-
byggileg útvarps umræða í síma fyrir alþjóð um
hvar varaflugvöllur ætti að vera staðsettur og
mér fannst flestir vilja að Nató legði slíkan völl
einsog sagt er „í túninu heima".
Ég skrúfaði fyrir þetta dæmalausa símaradíó,
þegar einn af símagestum útvarpsins var að
lýsa því yfir að hvergi væri jafn brýnt að hafa
alheims Nató flugvöll með atómsprengjum og
tilbehör einsog á Stóra-Kroppi í Borgarfirði.
Um leið og ég slökkti á útvarpinu, hugsaði ég
sem svo:
- Þeir vita ekki greyin, hvernig það er að hafa
flugvöll í hlaðvarpanum.
Svo fór ég út í fagran febrúarmorguninn og
lofaði guð fyrir að fá að búa við frjálsa sam-
keppni.
Prótókollur
í vanda
í menningarmálanefnd borg-
arinnar hefur verið róstusamt í
tengslum við ráðningu list-
ráðunautar og nú er komið
upp undarlegt mál varðandi
hana. Nefndin afréð að ráða
Einar Hákonarson, fram-
bjóðanda Sjálfstæðisflokks til
borgarstjórnar, enda var hann
eini umsækjandinn. Fulltrúar
lýðræðisflokkanna í nefnd-
inni, Kristín Á. Ólafsdóttir og
Ragnheiður Björk Guð-
mundsdóttir lögðu til að um-
sóknarfrestur yrði framlengd-
ur. Það felldi íhaldið, en við
atkvæðagreiðsluna um ráðn-
ingu Einars sátu þær stöllur
svo hjá.
Þegar fundargerð nefndar-
innar barst til borgarráðs brá
hins vegar svo undarlega við,
að þar var skýrt frá því að
Kristín Ágústa og Ragnheiður
Björk hefðu greitt atkvæði
gegn Einari. Þessari rangbók-
un vildu fulltrúar lýðræðis-
flokkanna ekki una og spunn-
ust af deilur. Til að skera úr
um þetta var skrásetjari
menningarmálanefndar tek-
inn á teppið. Sá er Ólafur
prótókollur Jónsson, svo-
nefndur af því hann er líka sið-
ameistari borgarinnar. Ólafur
sór og sárt við lagði að þær
stöllur hefðu greitt atkvæði
gegn, þrátt fyrir að báðar
harðneiti. „Þærnikkuðu,, mun
vera svar Ólafs prótókolls.
Á borgarstjórnarfundi hélt
Davíð Oddsson því fram, að
Ingibjörg Rafnar, fulltrúi
íhaldsins, teldi sig líka muna
eftir því að þær hefðu greitt
atkvæði gegn Einari. Þess má
geta að fyrir fundinn í nefndi-
nni höfðu Alþýðubandalags-
menn ákveðið að Kristín
greiddi ekki atkvæði gegn
Einari heldur sæti hjá, og eftir
fundinn mun Ragnheiður
Björk hafa hringt rakleiðis í
Bjarna P. Magnússon, krat-
apáfa, og sagt honum að
auðvitað hefði hún setið hjá
með Kristínu.
Rúsínan í pylsuendanum er
svo sú, að þegar fundurinn
var haldinn í nefndinni hitti
einn af fulltrúum lýðræðis-
flokkanna sem ekki situr í
nefndinni eitt íhaldið framá
gangi og spurði um úrslit.
„Þetta fór vel," sagði íhaldið.
„Einar var ráðinn og enginn á
móti".
Svona elskar íhaldið
sannleikann... ■
ert!“ Bogdan var einmitt
markvörður pólska landsliðs-
ins sem sigraði það íslenska á
leikunum.B
Þeir gátu
ekkert
Spákona
Þjóðviljans
hjá Lóu spákonu geta pantað
tíma hjá henni í síma 37585. ■
Því hvíslaði
fugl
Þeim leikmönnum sem
skipuðu íslenska landsliðið í
handknattleik á Ólympíuleik-
unum í Munchen 1972 hefur
verið sérstaklega boðið á fyrri
leikinn við Júgóslavíu sem
fram fer í Laugardalshöllinni á.
mánudagskvöldið. Jón;
Hjaltalín Magnússon for-
maður HSÍ, sem var marka-
hæsti leikmaður íslenska liðs-
ins í þeirri keppni, tilkynnti
þetta á blaðamannafundi nú í
vikunni. Einn þeirra sem á
hlýddu var Bogdan Kow-
alczyck landsliðsþjálfari ís-
lands og hann var fljótur til:
„Ég skil ekki til hvers er verið
að bjóða þeim, þeir gátu ekk-
Um síðustu helgi birtist í
Sunnudagsblaði Þjóðviljans
viðtal sem bar yfirskriftina
„Viltu forvitnast um framtíð-
ina?“ og í því upplýsti Lóa
spákona lesendur blaðsins
um leyndardóma spálistar-
innar.
Þá var þar getum að því leitt
að íslendingar væru forlaga-
trúaðri en þeir vilja vera láta.
Þetta virðist nú hafa komið á
daginn því síðan um síðustu
helgi hefur síminn hjá okkur á
ritstjórninni verið rauðglóandi.
Karlar og konur á öllum aldri
hafa haft samband við okkur
og beðið um símanúmer
spákonunnar okkar og sumir
eiga „kunningja sem vilja
gjarnan hitta hana." Það upp-
lýsist því hér með að þeir sem
vilja forvitnast um framtíðina
I Helgarpóstinum nú í vikunni
gat að líta slúður um nýtt
heimilisblað sem væntanlegt
er á markaðinn í mars mán-
uði. Hefur blað þetta hlotið
nafnið Gestur. ( slúðrinu er
látið í það skína að HP hafi
frétt þetta eftir sínum venju-
legu krókaleiðum, því hvíslaði
fugl í eyra, en þar stendur orð-
rétt: Eftir því sem HP veit best,
og síðan koma mjög ná-
kvæmar upplýsingar um
hvers eðlis blaðið verði og
hvert burðarviðtal fyrsta tbl.
verði. Fuglar eiga einnig leið
um ritstjórn Þjóðviljans af og
til og einn slíkur hvíslaði
sannleikanum að okkur.
Sannleikurinn er sá að HP
mun standa að útgáfu Gests
og er tilgangur hans sá að
drýgja auglýsingatekjur fyrir-
tækisins. ■
2 StÐA - ÞJÓÐVIL JINN Sunnudagur 22. febrúar 1987