Þjóðviljinn - 22.02.1987, Side 3
Strax á
Norðurlanda-
markað
Einsog landsmönnum er
kunnugt stofnuðu Stuðmenn
á sínum tíma útftutningsfyrir-
tækið Strax í þeim tilgangi að
sigra heiminn. Ein breiðskífa
hefur litið dagsins Ijós en ekki
borið mikið á sigrum hijóm-
sveitarinnar á erlendri grund.
Nú hefur hinsvegar verið
gengið frá samningi við
sænska hijómplökifyrirtækið
Grammofon AB Electra um
útgáfu á tónlist hljómsveitar-
innar á Norðurlöndum.
í síðustu viku var lagið
Moscow Moscow gefið út á
lítilli plötu og er hljómsveitin
nú að vinna að því að hljóð-
blanda lagið aftur fyrir stóra
45-snúninga plötu. I kjölfarið
verður svo stóra platan gefin
út og verður á hana aukið
laginu Segðu mér satt í enskri
útgáfu „Keep it up“. ■
Á Björn
borgina?
Nýjasta dæmið um einræði
íhaldsins [ Reykjavík er af
húsfriðunarsjóði, sem stofn-
aður var innan borgarinnar.
Borgarráð samþykkti að Um-
hverfismálaráð byggi til
starfsreglur fyrir sjóðinn að
vinna eftir. Ráðinu hafa hins
vegar ekki enn borist tilmæli
um að vinna verkið sem borg-
arráð fól því. Aftur á móti hefur
stolt allra borgarbúa, Davíð
Oddsson, fengið vin sinn
Björn Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og
stjórnsýsludeildar borgarinn-
ar, til að vinna verkið. Lifi
lýðræðið... ■
........ 1
Hundrað tonna skúlptúr
Sigurður Guðmundsson á vinnustofu sinni í Amsterdam. Mynd ólg.
eftir Sigurð Guðmundsson settur upp
í HoUandi
Sigurður Guðmundsson mynd-
listarmaður er með mörg jám í
eldinum um þessar mundir. Sig-
urður er sem kunnugt er búsettur
í Amsterdam í Hollandi, en hefur
annað aðsetur á Skáni í Svíþjóð,
þar sem hann hefur meðal annars
unnið að gerð höggmynda úr
sænsku graníti og öðrum þungum
efnum síðasta árið. Þessa dagana
er Sigurður að leggja síðustu
hönd á höggmynd, sem hann hef-
ur unnið úr sænsku graníti og
málmblöndu, og er verkið um 7
metrar á hæð og vegur um það bil
100 tonn. Verkið er unnið fyrir
hollensku póstþjónustuna og
verður á næstunni flutt til Hol-
lands og sett upp fyrir framan
pósthús í bæ einum í sunn-
amverðu Hollandi við landamæri
Belgíu. Fleiri verk eftir Sigurð
hafa verið sett upp af opinberum
aðilum í Hollandi. Þannig olli
skúlptúr eftir Sigurð, sem nýlega
var settur upp í skrúðgarði í borg-
inni Arnhem miklum blaða-
deilum, þar sem íbúar staðarins
vom ekki á eitt sáttir um ágæti
hans. Nú er Sigurður að undirbúa
tvær sýningar sem opnaðar verða
hér á landi í næsta mánuði. Verð-
ur önnur í sýningarsölum Nor-
ræna hússins, þar sem Sigurður
mun syna höggmyndir ásamt með
tveim Norðmönnum, en hin sýn-
ingin verður einkasýning á grafík
og teikningum í Gallerí Svart á
hvítu.
ólg
Skók
Islenskt
heimsmet
Súluritið hér sýnir hvað
hver þjóð á marga stórmeistara á
hverja milljón íbúa, og er unnið
af Einari S. Einarssyni fyrir síð-
asta FIDE-þing í Dubai sem ein
af röksemdum fyrir því að gera
Norðurlönd að sérstöku skák-
svæði innan Alþjóðasambands-
ins. Súluritið skýrir sig sjálft
nema BLG=Belgía,
CSR=Tékkóslóvakía, CUB-
=Kúba, DEN=Danmörk,
ENG=England, FIN=Finnland,
HUN=Ungverjaland, ISD=ís-
land, ISL=ísrael, JUG=Júgó-
slavía, NLD=Holland, NOR=-
Noregur, SVE=Svíþjóð, USR=-
Sovétríkin, USA=Bandaríkin.
Tölur Einars ná aðeins til
karla.
\
Launareikningur
er kjamböt fyrir launþega
Við bjóðum þeim fjölda einstaklinga sem leggja
reglulega inn fé, nýjan tékkareikning sem
kosti
er með 4% lágmarksvöxtum, en
eiknast 10% vextir
Launareikni
af lægstu
, eru reiknaðir vextir
innstæðunni eins og hún er á hverjum degi.
Handhafar tékkareiknings geta breytt honum í
Launareíkning án þess að skipta um reikningsnúmer
Umsóknareyðublöð liggja frammi á öllum
afgreiðslustöðum bankans.