Þjóðviljinn - 22.02.1987, Qupperneq 18
KROSSGÁTA
Nr. 557
y 2— 3 9— íT s— 7 s— <? 9— 3 (r> <7 é 3
IO il 2 )0 ? ) 0 )2 )3 H 9 JíT 11 is )(í>
/? V )7 T~ 1Z )S V Y >6 )9 2/2 X) )Ö 12 2)
2o 22 & )2 v- y 2/ Ý V )(o )2 22
to I6> & \y é> 21 ](? zý )¥ )0 2 v 2T 2
XI r W )<£> w 22 U 13 L> )9 2) ¥ ¥
)5 )é (o (0 )2 )3 )S p 20 12 10 10 J?
12 T~ V )¥■ 19 /3 10 , )¥ 10 y ¥
V 4 ¥ 12 19 ié <? 7- ¥ 13 T~ g )¥
b ÍT )é> 12 y (o 23 22 ¥ 5 )(d 2 1? 13'
2$ 2$ T~ Ý- )2 V 19 22 )ö 30 ) b )S
)2 V T- lt> is )X J3 ](p f 19 /? 2 )2 Uo
2dj: uöi bs )(o zs )<o w~ V '10 31 ¥ Uo 7T~
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hérfyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni á
Vestfjörðum. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
557“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
)°! 10 2) J3 16 1 J8 n
Stafirnir mynda íslenskt orö eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því að með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í_þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Hólmfríður Hólmgeirs-
dóttir, Byggðavegi 136,
Akureyri, fékk verð-
launin fyrir krossgátu nr.
554. Lykilorðið var Lækj-
arfit. Hún fær senda bók-
ina Þorrablót á íslandi
eftir Árna Björnsson.
Verðlaun fyrir krossgát-
una þessa vikuna er
bókin Lófalestur eftir
Peter West. Útgefandi er
Setberg.
Peter West
LÓFALESTUR
ieyndarraát skapg«rðar koma frí»m » hendinní
Enn af Porfisch
Um síðustu helgi var fjallað um
ungverska stórmeistarann Port-
isch og skal því fram haldið nú.
Á skákmótinu í Tilburg í haust
gekk Portisch allt í óhag í fyrri
hluta mótsins en þar tefldu átta
skákmenn tvöfalda umferð. Eftir
sjö umferðir var hann neðstur
með tvo vinninga. í síðari hlutan-
um tók hann sig heldur betur á og
náði fimm vinningum úr sjö
skákum en það gaf honum viðun-
andi sæti. Sýnir þetta vel
þrautseigju Portisch og að hann
gefst ekki upp þótt á móti blási.
Viðureignin við Timman í
síðari umferðinni er gott sýnis-
horn af heilsteyptri taflmennsku
Portisch. Skákin var tefld í átt-
undu umferð einmitt þegar hann
var að byrja að rétta úr kútnum.
Hvítt: Portisch
Svart: Timman
1. d4-Rf6
2. c4-eó
3. RO-b6
4. a3-Ba6
5. Dc2-Bb7
6. Rc3-c5
7. e3-g6
8. Be2-Bg7
9. 0-0-0-0
10. Hdl-cxd4
11. Rxd4-a6
12. e4-Dc7
13. Be3-d6
14. Ha-cl-Rb-d7
15. O-Ha-ca
16. Dd2-Hf-d8
17. Bfl-Db8
18. Khl- ...
Hvítur færir kóng sinn í örugg-
ara skjól en fleira býr undir eins
og kemur í ljós eftir fáeina leiki.
Hann hefur meira rými og hugsar
fyrst um að halda aftur af upp-
brotsleikjum svarts b6-b5 og d6-
d5. Síðan eykur hann þrýstinginn
á drottningarvæng andstæðings-
ins.
18. ... Re5
19. Ra4-Re-d7
20. b4-Ba8
21. Df2-He8
22. Rb3-Hc6
23. Hbl-He-c8
24. Dgl-h5
25. c5-b5
Loks lætur hvítur til skarar
skríða. Það kemur í ljós að allir
menn hans beina sjónum að
veiktum drottningararmi svarts.
Svartur verður að drepa á c5 í
næsta leik því annars kemur ridd-
arinn til a5, setur á hrókin á c6 og
ef hann víkur sér undan fellur d-
peðið.
26. Rc3-dxc5
27. bxc5-h4
28. a4-b4
Næsti þáttur skákarinnar ein-
kennist af dansi hvítu riddar-
anna. Þeir skapa sér nýjar og nýj-
ar holur að stökkva á og þegar
svartur setur undir lekann á ein-
um stað myndast nýjar glufur
annars staðar. Þetta er allt létt og
leikandi. Þeir skapa sér nýjar og
nýjar holur að stökkva á og þegar
svartur setur undir lekann á ein-
um stað myndast nýjar glufur
annars staðar. Þetta er allt létt og
leikandi.
29. Re2-e5
30. Re-cl-h3
31. Rd3-He6
32. Ra5-Dc7
33. Rc4-a5
34. Rd-Hd8
35. Rb5-Dc6
36. Rf2-hxg2+
37. Dxg2-Hb8
38. Hd-cl-Rf8
39. Bc4-He7
40. Hdl-Hd7
Hér fór skákin í bið. Hvíta
staðan er unnin og veldur þar
hvað mestu um að frípeðið hvíta
kemst áfram en Portisch gætir
þess vandlega að halda aftur af
svarta frípeðinu.
41. Hd6-Dc8
Það er gaman að sjá að í fram-
haldinu hreyfir hvíta drottningin
sig ekkert en hún er samt með í
leiknum. Svartur gat ekki drepið
á d6 í síðasta leik (41,...Hxd6)
vegna Rxd6 og engin leið er að
valda veikleikana á f7 og g6, ein-
mitt vegna þess að hvíta drottn-
ingin stendur þar sem hún er.
42. Hb-dl-He7
43. Bb3-Re6
44. c6-Re8
Ef 44.... Bxc6 45.. Ra7 og vinn-
ur mann eða skiptamun.
45. Hd7-Bf8
46. Ra7-Hxd7
47. cxd7-Da6
48. dxe8D-hxe8
49. Rb5
Svartur gafst upp. Vel tefld
skák hjá Portisch.
Að lokinni
Bridgehótíð
Bridgehátíð á Loftleiðum um
síðustu helgi tókst vel. Metþátt-
taka var í þeim tveimur keppnum
sem boðið var upp á. 50 pör
kepptu í tvímenningskeppninni
(2 pör bættust í hópinn á síðustu
stundu frá Austurríki) og 47
sveitir mættu til leiks í Opna
Flugleiðamótið í sveitakeppni.
Alls voru því 46 erlendir kepp-
endur á Bridgehátíð og hafa
aldrei fyrr verið eins margir. Sig-
urvegarar í tvímenningskeppn-
inni voru Svíarnir Bennet og Wir-
gren en Stefán Pálsson og Rúnar
Magnússon náðu öðru sætinu.
Þéttir spilarar þeir félagar, Stefán
og Rúnar. Páll Valdimarsson og
Magnús Ólafsson náðu svo fjórða
sætinu en þeir komust inn sem
varapar í mótið á elleftu stundu.
Guðmundur Pálsson og Pálmi
Kristmannsson náðu sjötta sæt-
inu og Jón Baldursson og Sigurð-
ur Sverrisson því áttunda.
Megum við vel við una, því
heimsmeistarapörin tvö náðu
„aðeins" sextánda og tuttugasta-
sætinu.
í Opna Flugleiðamótinu sigr-
aði danska landsliðið örugglega
(annað árið í röð sem sveit Steen
Schou sigrar þetta mót). Sveit
heimsmeistarans Alans Sontag
náði öðru sætinu og sveit Zia
Mahmood frá Pakistan náði svo
þriðja sætinu (á Monrad-
meðvindi). Efstir frá okkur varð
sveit Aðalsteins Jörgensen í
fimmta sætinu. Frekar dræmt
það, hjá landanum.
Mikið fjölmenni fylgdist með
mótinu frá upphafi. Var anski
þröngt um manninn, enda þátt-
taka úr hófi sökum rýmis. Sverrir
Hermannsson menntamálaráð-
herra setti mótið, enda gamall
bridgeáhugamaður.
Erlendu keppendurnir lýstu sig
almennt ánægða með mótshald-
ið. Það hefur sýnt sig að þeir
sömu koma aftur og aftur. Agnar
Jörgensen annaðist stjórnun, en
um framkvæmd sáu þeir Sig-
mundur Stefánsson, Sigurður B.
Þorsteinsson og Ólafur Lárus-
son.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Um þessa helgi er spiluð
landsliðskeppni í yngri flokki í
Sigtúni. Milli 16-18 pör eru skráð
til leiks. Til stóð að keppa einnig í
kvennaflokki, en sökum lélegrar
þátttöku kvennanna (aðeins 4
pör sóttu um þátttöku) hefur
þeirri keppni verið frestað.
Undanrásir íslandsmótsins í
sveitakeppni verða spilaðar á
Loftleiðum helgina 3.-5. apríl
n.k. Bridgesambandi íslands
verður að hafa borist nöfn þeirra
sveita (sveitameðlima) sem koma
til með að keppa fyrir 1. mars
n.k. Með nöfnunum skal fylgja
greiðsla, að upphæð kr. 10.000
pr. sveit. í beinu framhaldi, verð-
ur svo dregið í riðla í mótinu.
Nýja húsnæðið að Sigtúni er
óðum að taka á sig endanlega
mynd, eftir viðamiklar breyting-
ar á innviðum. Er óhætt að segja
að vel hafi tekist til. Umsjón með
verkinu hefur Baldur Jónsson
verktaki.
Fyrri gjalddagi árgjalda til BSÍ
var 15. janúar s.l. Vel flest félög
hafa gert skil á greiðslu, en því
miður eru þó nokkur enn í van-
skilum. Er hérmeð skorað á for-
menn félaganna að kanna þessi
mál og síðan klára dæmið. Einnig
má minna á gjalddaga skulda-
bréfa Guðmundarsjóðs, sem var
15. febrúar s.l. 1. mars n.k. mun
BSÍ greiða þriðja hluta
kaupverðs af Sigtúni 9. Og ekki
veitir af stuðningi þeirra áttatíu
manna, sem hafa stutt sjóðinn.
Vilji einhver bætast í hópinn (öll
framlög vel þegin) geta þeir hinir
sömu haft samband við Ólaf Lár-
usson hjá BSÍ. Eða greitt beint
inn á hlaupareikning nr. 5005 í
aðalbanka Útvegsbankans
(Guðmundarsjóðurinn).
ÓLAFUR
LÁRUSSON