Þjóðviljinn - 22.02.1987, Qupperneq 19
Jerry Hall, eiginkona Mick
Jaggers, söngvara Rolling
Olga vinsæl
Loksins er að færast líf í kosn-
ingatuskurnar. Flestir flokk-
anna hafa nú farið að fordæmi
Geirs Gunnarssonar og
Ólafs Ragnars úr Reykja-
nesi, en þeir byrjuðu kosning-
aherferð sína fyrstir með mjög
faglega unnum auglýsingum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
tekið upp aðferð þeirra Geirs
og Ólafs, og auglýsir stíft upp
fundi með Þorsteini
Pálssyni, sem á að vera
helsti dráttarklárinn fyrir íhald-
ið í kosningunum. Þannig á að
fela Albert í Reykjavík og lit-
lausan lista að baki honum.
Framsókn er líka byrjuð, þó
silaleg sé. Hún virðist hafa
gert fyrrum ritstjórnarfulltrúa
Þjóðviljans, fréttahauk HP,
Óskar Guðmundsson að
helsta ráðgjafa sínum í kosn-
ingunum. En ekki hafði Óskar
fyrr skrifað í HP að best væri
fyrir Framsókn að auglýsa
upp hina sívinsælu forystu-
menn flokksins, en Frammar-
ar pöntuðu stóra auglýsingu í
HP. Þar voru fjórir karlar,
helstu freðmýrablesar
Framsóknar, auglýstir í bak
og fyrir. En engin kona, og
óvíst hversu vel slíkar auglý-
singar gefast á kvenfrelsuð-
um tímum.
Kratar eru sömuleiðis byrj-
aðir, eftir furðu langa lægð,
með miklum glansauglýsing-l
um sem minna ótrúlega mikið
á hinnar góðkunnu „Dallas"-
auglýsingar Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosningar
sem Alþýðublaðið hæddist
sem mest að.
Alþýðubandalagið I
Reykjavík er líka farið af stað
með látum, blað til kynningar
frambjóðendum kom út um
helgina og vinnustaðafundir
byrjaðir af miklum krafti. í vik-
unni fór til dæmis Olga Guð-
rún Árnadóttir, sem er í 5.,
sæti.á fund með náms-
meyjum og -sveinum í Kvenn-
askólanum og gerði storm-
andi lukku. Mun margt ung-
meyjarhjartað nú slá meir til
vinstri en áður... ■
Mick Jagger og Jerry Hall reyna að slappa af í garði sínum á Barbadoseyjum. Áhyggjur vegna yfirvofandi fangelsisdóms leyna sér þó ekki.
Treyja verður að maríjúana
Jerry Hall eiginkona MickJaggers bíður dóms vegna meints smygls
Stones, á nú yfir höföi sér
fangelsisdóm vegna meints
hasssmyglstil Barbadoss-
eyja, en þar eiga þau skötuhjú
hús, sem þau dvelja í yfir
vetrarmánuðina.
Aðdragandi þessa máls er að
Jerry fór út á flugvöll að ná í
pakka sem henni hafði verið
sendur frá heimili hennar á Must-
ique eyju, sem er ein af eyjunum í
Karabíska hafinu. í stað
treyjunnar, sem átti að vera í
pakkanum reyndust 10 kfló af
maríjúana vera í honum. Jerry
heldur því hinsvegar fram að hún
hafi fengið vitlausan pakka.
Sjálf segir Jerry Hall að
ilmvötn séu einu eiturefnin sem
hún noti og lögfræðingar hennar
halda því fram að næg sönnun-
argögn séu fyrir hendi til að sanna
sakleysi hennar. Það mun til að
mynda hafa komið í ljós við rann-
sókn að pakkinn hafi ekki komið
frá Mustique heldur frá nágrann-
aeyjunni St. .Vincent. Þá hefur
kona á Barbadoseyju sagt að hún
hafi fengið símhringingu þar sem
henni var uppálagt að fara út á
flugvöll og ná í þennan pakka,
sem átti að vera fullur af ávöx-
tum.
Lögregluyfirvöld á eyjunum
láta sér þó fátt um finnast og
segja það dómsyfirvalda að skera
úr um hvort Jerry sé sek eða sak-
laus.
Á meðan þau hjón bíða eftir
niðurstöðu dómstóla hefurMick
Jagger reynt að einbeita sér að
upptökum í hljóðveri. Hann er
einn af fáum frumherjum bresku
rokktónlistarinnar sem enn er að.
„Sjálfsagt hafa þeir flestir þreyst
á þessu en ég hef gaman af því
sem ég er að gera og því held ég
áfram,“ segir þessi fjörtíu og
þriggja ára gamla rokkhetja.
Jaggerinn hefur að undanförnu
reynt fyrir sér með sólóplötur og
hefur það gengið all vel. Þær upp-
tökur sem hann vinnur að nú eru
á væntanlega hljómplötu með
kappanum án félaga hans í Roll-
ing Stones. Hvað Stones varðar
þá eru þeir enn til, að sögn Jagg-
ers. Verði þeim boðinn nógu
góður hljómplötusamningur mun
ekki standa á þeim að hljóðrita.
-Sáf/The Sunday Times
HREVh
m
TRYCCIR KR ÞÆCINDIFYRSTA SPOUNN
Bíll frá Hreyfli flytur þig þægilega og á réttum
tima á flugvöllinn.
Þu pantar fyrirfram
Víð hja Hreyfli erum tiibunir að flytja þig a Keflavikur-
flugvoll á rettum tima i mjukri limosinu. Malið er
einfalt Pu hringir i sima 85522 og greinir fra dvalarstað
og brottfarartima. við segjum þer hvenaer billinn
kemur
Eitt gjald fyrir hvern farþega
Við flytjum þig a notalegan og ódvran hatt a
flugvóllinn Hverfarþegiborgarfastgjald.Jafnvelþott
þu sert emn a ferð borgarðu aðeins fastagjaldið
Við vekjum þig
Ef brottfarartimi erað morgni þarftu að hafa samband
við okkur milli kl. 20 00 og 25 00 kvoldið aður. Við
getum seð um að vekja þig með goðum fyrirvara, ef þu
oskar Pegar brottfarartimi er siðdegis eða að kvoldi
nægir að hafa samband við okkur milli kl. 10:00 og 1200
sama dag
URCVFILL
68 55 22
Páfi
á
móti
smokkum
til hersins
ítalska varnarmálaráðuneytið
hefur ákveðið að láta alla her-
menn sína fá ókeypis smokka til
að hefta útbreyðsiu eyðni. Þá hef-
ur ráðuneytið látið gera vegg-
spjöld sem útskýra hvernig haga
skuli öruggu kynlífi. Þessi
ákvörðun ráðuneytisins hefur
farið mjög fyrir brjóstið á sann-
trúuðum kaþólikkum í landinu.
Kaþólska kirkjan og íhaldsöfl-
in í landinu halda því fram að eina
ráðið til að stöðva útbreyðslu
sjúkdómsins sé að hætta öllu fjöl-
lyndi og samrekkja bara maka
sínum eftir að kirkjan hefur lagt
blessun sína yfir hjónabandið.
Varnarmálaráðuneytið er þó
ákveðið í að framfylgja ákvörðun
sinni. Hermennirnir skulu fá
ókeypis smokka og leiðbeiningar
um hvernig þeir skuli notaðir
verða hengdar upp.
í flestum öðrum löndum er
litið á smokka sem nauðsynlegan
hluta af útbúnaði hermanna en
svo hefur ekki verið á Ítalíu. Nú
hefur eyðnin hinsvegar skotið
upp kollinum í hernum og þó her-
mennirnir séu ötulir á vígvellin-
um mega fallbyssur og eldvörpur
sín lítils gegn þessum örsmáa vá-
gesti.
í flestum löndum Evrópu og í
Ameríku hafa yfirvöld hafið
öflugt forvarnarstarf gegn eyðni
en ftalir eru þó undanskildir þar.
Áform eru hinsvegar uppi um að
hefja slíkt forvarnarstarf seinna á
árinu. Heilbrigðismálaráðherra
landsins hefur þó gefið í skyn að
það verði ekki jafn opinskátt og
t.d. á Bretlandseyjum.
Þess er rétt að geta í lok þessa
pistils að Vatíkanið hefur nú op-
inberað skoðun sína á eyðni. Ka-
þólski guðfræðingurinn Rocco
Buttiglione, náinn vinur Jóhann-
esar Páls páfa II., sagði nýlega,
að eyðni ætti eftir að hafa jákvæð
áhrif á samfélagið með því að út-
rýma fjöllyndi.
-Sáf/ The Sunday Times