Þjóðviljinn - 03.03.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.03.1987, Blaðsíða 1
Kennarar Þriðjudagur 3. mars 1987 51. tölublað 52. árgangur Tilbúrar i slaginn Kristján Thorlacius formaður HÍK: Krafan er 45.500 krónur í lágmarkslaun Menn eru tilbúnir til að siést fyrir þessum kröfum en ég er ennþá bjartsýnn á að þetta leysist án þess að til verkfalls þurfí að koma,“ segir Kristján Thorlaci- us, formaður Hins íslenska kenn- arafélags, en HÍK hefur nú boðað til verkfalls frá og með 16. mars. 651 félagsmenn samþykktu verk- Nýja flugstöðin: Hagamýs gera innrás Magnús Guðjónsson, heilbrigðisfulltrúi: Gisin og opin, greið leið fyrir mýsnar - Það er rétt að hagamýs hafa verið að hrella starfsmenn sem vinna við byggingu nýju fíug- stöðvarinnar. I því sambandi höf- um við að undanförnu staðið í því að koma þar fyrir nokkrum kfló- um af eitri til að spyrna við fót- um, - segir Magnús Guðjónsson heilbrigðisfulltrúi í Keflavík. Að undanförnu hefur botið á miklum músagangi í nýju flug- stöðinni. Hefur kveðið svo rammt að honum að starfsmenn hafa kvartað. - Enda ekki að undra að hag- amýs leiti þarna inn. Byggingin stendur þarna uppi á miðri heiðinni, opin og gisin fyrir hag- amúsunum. Stofninn er líka í vexti um þessar mundir svo það er eðlilegt að það verði vart við mýs þarna uppfrá, - sagði Magn- ús Guðjónsson, heilbrigðisfull- trúi. grh. fallsboðun félagsins. „Aðalkröfur okkar eru að lág- markslaun verði 45.500 krónur, sem er um 30% hækkun frá því sem nú er og að þeir kennarar sem fengu lögverndað starfsheiti um áramót fái sérstaka hækkun út á það,“ sagði Kristján. „í jólaföstusamningunum var samið um mismunandi laun fyrir mismunandi mikla menntun og okkur finnst þetta því ekki há tala miðað við að allflestir okkar fé- lagsmanna hafa að baki 4-7 ára háskólamenntun. Samningaviðræður hófust í byrjun janúar milli stjórnar launamálaráðs BHMR og ríkis- ins og við veittum stjórninni um- boð til að semja fyrir okkur unt þessar kröfur. Hún skilaði þessu umboði aftur þegar henni þótti sýnt að ekki væri fyrir hendi neinn samningsvilji hjá ríkinu. Það er því rangt að halda því fram að viðræður séu að hefjast fyrst núna“ sagði Kristján. HÍK hefur haldið þrjá fundi með samninganefnd ríkisins og á föstudag lagði félagið til að farið yrði í saumana á gildandi samn- ingum í smærri hóp, með það fyrir augum að kanna hvernig væri hugsanlega hægt að hagræða kennslustarfi að því er snertir kjarasamninga. Því var tekið og í gær ræddust tveir fulltrúar frá hvorum aðila við um þau mál. Ef til verkfalls kemur mun það hafa geysilega víðtæk áhrif. Allir menntaskólakennarar eru í HÍK, velflestir fjölbrautaskólakennar- ar og þó nokkur fjöldi kennara í efri bekkjum grunnskóla, sér- staklega í Reykjavík. „Vissulega bitnar verkfall á nemendunum en það er augljós- lega sameiginlegt hagsmunamál þeirra og skólanna að það takist að fá starfslið til kennslu, en það hafa verið miklir erfiðleikar við það,“ sagði Kristján. -vd. Sprengidagurinn í dag og víst að margir hafa beðið hans með mikilli tilhlökkun. Kjötkaupmenn hafa heldur ekki legið á liði sínu og í gær kepptist Björn Sævarsson kaupmaður í versluninni Kópavogi við að veiða girnilega saltkjötsbita uppúr tunnunni góðu. Mynd -E.ÓI. Bókamarkaðurinn Borðin flakandi Verðlagsmál Frestuninfráleit Ásmundur Stefánsson: Engin hótun afminni hálfu Baldur Óskarsson: Ekki bœnda að greiða niður almennt verðlag í landinu Akvörðun mcirihluta scxmann- anefndar að fara að tilmælum stjórnvalda og fresta uin hálfan mánuð fyrirhugaðri búvöru- hækkun hefur vakið mikla reiði meðal bænda víða um land og einnig eru bændur mjög ósáttir við miðstjórnarsamþykkt Alþýð- usambandsins þar sem skorað var á ríkisstjórnina um að koma í veg fyrir stórhækkun landbúnað- arvara. Þjóðviljinn innti Ásmund Stcf- ánsson álits á viðbrögðum bænda við samþykkt ASÍ. „Það er fjarri lagi að ég hafi haft uppi einhverjar hótanir. Miðstjórn ASÍ samþykkti að senda ríkisstjórninni þetta bréf þar sem hún er minnt á fyrri lof- orð sín að halda búvöruverði innan marka almennra launa- og verðlagsbreytinga. í þessu er engin afstaða tekin til þess hve mikið tekjur bænda eigi að hækka og ég hef ekki heldur lýst neinni persónulegri afstöðu til þess“. Baldur Óskarsson, annar full- trúi neytenda í sexmannanefnd- inni sem lögðust gegn því að fresta hækkuninni til bænda sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að engin stoð væri fyrir frestuninni í lögum um Framleiðsluráð og óhæft væri að skilja bændur eftir á botninum í launalegu tilliti og væri það ríkisstjórnarinnar að leysa málið strax, það yrði ekkert auðveldara eftir hálfan mánuð. Ásmundur Stefánsson sagði ennfremur: „Meðaltekjuhækkun desembersamninganna að með- talinni hækkuninni 1. mars er 5 1/2% þó hækkun hjá lágtekju- fólki hafi verið allt að 30%, en hækkunin skilaði sér alfarið til þeirra sem voru undir lágmarks- tekjum. í búvörugrundvellinum er þessu á annan veg farið. Þar er ekki miðað við tekjur manna, heldur er um að ræða prósentu- hækkun þannig að þeir tekjuháu fá meira en hinir. Þaðerljóst að 10-12 % hækkun á búvörum mun leiða til sam- drátttar í sölu og þannig auka á þá erfiðleika sem nú steðja að bænd- um vegna kvóta og framleiðslu- samdráttar“, sagði Ásmundur Stefánsson að lokum. -sá./l.g. sár „Borðin hér voru flakandi sár eftir helgina og við erum að kepp- ast við að fylla þau aftur fyrir síðasta daginn,“ sagði María Gunnarsdóttir hjá Bókamarkað- inum í samtali við Þjóðviljann í gær, en þá höfðu selst þar um 60.000 bækur síðan markaðurinn opnaði þann 19. febrúar. „Það myndaðist algjört um- ferðaröngþveiti hér á sunnudag- inn og margir hurfu frá vegna þess,“ sagði María. „Við lofum þeim og öðrum að í dag höfum við á boðstólum gott úrval bóka, því við erum að keppast við að bæta inn í skörðin." -vd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.