Þjóðviljinn - 03.03.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 03.03.1987, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN Til sölu tvö stór hamstrabúr, sem má tengja saman. Ýmsir fylgihlutir fylgja og tveir hamstrar geta fylgt. Uppl. í s. 51138. Par utan af landi óskar eftir góöri íbúð. Góðri um- gengni og skilvísum greiðslum heitið. Hringið í síma 688296 eftir kl. 19. Óska eftir gamalli þvottavél opinni að ofan (með spaða). Uppl. í s. 30117. Óska eftir ritvél Uppl. í s. 611074 eftir kl. 18. Barnavagn til sölu Stór, grænn Silver Cross barna- vagn til sölu. Uppl. í s. 641187. Baðborð óskast keypt. Uppl. í s. 75209. Sófi blár, þriggja sæta, fæst gefins. Uppl. í s. 75209. Kvenreiðhjól eins árs, þriggja gíra, til sölu. Verð 8 þús. kr. Uppl. í s. 23192 eftir kl. 17. Til sölu fuglabúr með 2 páfagaukum. Uppl. í s. 656648. Hjálp! Herbergi strax! íslensk-, sænsk- og finnsktalandi skólanemi óskar strax eftir ódýru herbergi með eldunar- og snyrtiað- stöðu. Helst með þvottaaðstöðu og síma en ekki nauðsynlegt. Ódýr einstaklingsíbúð eða tveggja her- bergja íbúð koma til greina. Engin fyrirframgreiðsla möguleg. Vin- samlegast hringið skilaboð í síma 622428 eftir kl. 19 og allan daginn um helgar. Reglusemi heitið. Vinna strax! Sjúkraliðanemi óskar eftir vinnu. Hefur unnið við ýmislegt, t.d. á spít- ala, í verslun, á hóteli, í banka og á pósti. Kann mörg tungumál. Óska fyrst og fremst eftir næturvinnu, helgar- og/eða kvöldvinnu. Gæti hugsað mér að vinna við gistiheim- ili, á hóteli, í kvikmyndahúsi eða á vídeóleigu, helst ekki verksmiðju- vinnu, ræstingar eða eldhúsvinnu. Vinsamlegast hringið inn skilaboð í síma 622428 eftir kl. 18 og 19 og allan daginn um helgar. Mjög fallegar rússneskar tehettur Matrúskur (Babúskur) og grafík- myndir til sölu. Uppl. gefur Selma í síma 19239. Dýnulaust eikarhjónarúm 1,40x2,00 m fæst gefins. Uppl. í s. 40858. 8 ára gömul Eledtri Helios þvottavél sem krefst lítilsháttar viðgerðar fæst fyrir 2 þús. kr. Uppl. í s. 25658. Bíll til sölu Wagoneerárg. '78,8cylindra, sjálf- skiptur. Góður bíll en þarfnast sprautunar. Sími 671098 eftir kl. 17. Luxemburg Til sölu flugmiði til Luxemburg aðra leið. Opinn miði sem gildir fram í júní. Selst ódýrt. Uppl. í s. 19842. Nagladekk 155x15" nagladekk, 4 stk. til sölu. Lítið notuð. Gott verð. Felgur með ef vill. Uppl. í s. 656447. Til sölu fólkbílakerra. Stærð 1x1,70 m. Verð ca. 18.000.- kr. Notað þríhjól á 2.000.- kr. og ýmsir varahlutir í SAAB '96. Uppl. í s. 44787 eftir ki. 17 í dag og næstu daga. 40 lítra fiskabúr til sölu með hreinsidælu og sandi. Verð 1.500.-. Uppl. í s. 44937 eftir kl. 19. Til sölu borðstofuborð og 6 stólar. Vel með farið. Uppl. í s. 12747. Til sölu fataskápur veggfastur, stærð 3x2,5 m. Selst ódýrt. Á sama stað fæst 3ja sæta sófi gegn brottflutn- ingi. Sími 84398 eftir kl. 18. Olympus OM 4 með 35-70 mm linsu F4. Ný vél í ábyrgð. Selst mjög ódýrt. Sími 83069. Dagmamma - Smáíbúðahverfi Ég er dagmamma í Smáíbúða- hverfi. Tek að mér að gæta barna fyrri hluta dags. Hef leyfi. Bryndís, sími 30528. Bíll til sölu Lada 1600 '78 í góðu standi. Verð kr. 50.000.-. Sími 687898. Til sölu rúm V/2 breidd, sökkull á hjólum með springdýnu. Kostar nýtt kr. 20.500.- Selst á kr. 13.000.- ársgamalt. Sími 687898. Gott sveitaheimili óskast fyrir Trygg fyrir Ijúfan og fallegan, 2ja ára gaml- an hund. (Blanda af íslenskum og Husky-sleðahundi). Uppl. í síma 687898. Guðmundur. Óskum eftir 2-3ja herb. íbúð á hagstæðum kjörum. Erum tvö í heimili (mæðg- ur). Vinsamlegast hringið í síma 20423. Fundur sem að halda átti í Sagnfræðingafélagi íslands í kvöld 3. mars frestast um eina viku vegna óviðráðanlegra orsaka. Maðurinn minn og faðir okkar Þorsteinn Kr. Sigurðsson Langholtsvegi 31, Reykjavík andaðist á Landakotsspítala, þann 1. mars 1987. Guðmundína Kristjánsdóttir Sigurður Þorsteinsson Kristján Þorsteinsson Ragnar Þorsteinsson Hallgrímur Þorsteinsson. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma Erla Þórdís Jónsdóttir dó í Borgarspítalanum 28. febrúar s.l. Helgi Kolbeinsson Alexander Valdimarss. Ragnheiður Valdimarsd. Þórunn Valdimarsdóttir Lilja Valdimarsdóttir Trausti Valdimarsson Vala Valdimarsdóttir Asdfs Valdimarsdóttir tengdabörn og barnabörn __________________SKÁK___________________ Attunda, níunda og tíunda umferð Forystu Shorts ekki ógnað lengur Jóhann ogJón L. lönduðu stórhvelum. Talfriðsamari en ‘64. Þrír bítast um annað sœtið 8. umferð Jóhann Hjartarson var hetja dagsins í þessari umferð þegar hann fyrstur manna í mótinu lagði Short að velli í hörkuskák þar sem hann stóð heldur höllum fæti eftir byrjunina. í tímahrak- inu voru Englendingnum unga hins vegar eitthvað mislagðar hendur svo að Jóhann náði hættulegri sókn sem Short fann ekki réttu vörnina gegn. Jóhann náði þarna með miklu harðfylgi sínum öðrum vinningi gegn út- lendingaherdeildinni. Hvítt: Jóhann Svart: Short Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 0-0 8. c3 d6 9. h3 Bb7 10. d4 He8 Jóhann fetar í fótspor Karpofs sem tefldi svona gegn Kasparof. Hér getur hvítur þráleikið með 11. Rg5 He8 12. RÍ3 en Short hefur ekki áhuga á slíku. 11. Rb-d2 Bf8 12. a3 h6 13. Bc2 Rb8 14. b3 Rb-d7 15. Bb2 g6 16. a4 c6 17. Dbl Bg7 18. axb5 cxbS? Hér gat Jóhann jafnað taflið með 18. ... axb5 en nú nær hvítur varan- legu frumkvæði á drottningarvæng. 19. d5 h5 20. b4 Rb6 21. Rb3 Rc4 22. Rf-d2 Rxd2 23. Rxd2 h4 24. c4 Bh6 25. Bcl bxc4 Þvingað því að annars leikur hvítur 26. c5. Núna er ljóst að svartur hefur orðið undir í átökunum á drottningar- væng. Hann á veikt peð á a6 og hvítur getur lagt undir sig c-línuna. Einu möguleikar svarts felast í gagnsókn á kóngsvæng. 26. Rxc4 Bxcl 27. Dxcl Rh5 28. Bd3 Rf4 Hér stendur riddarinn vel og ógnar hvítu kóngsstöðunni. 29. Bfl De7 30. De3 f5 31. Db6? ... Hvítur fer heldur geyst í sakirnar. Vandséð er hverning svartur getur skapað sér færi á kóngsvæng eftir 31. Kh2. 31. ... He-d8 32. Ra5 Hd7 33. Rc6? ... Annar veikur leikur. Enn var betra að leika 33. Kh2 áður en hvítur lætur til skarar skríða á drottningarvæng. Jóhann nýtir þegar færi sín. 33. ... Dg5 34. De3 fxe4 35. g3?? ... Tapleikurinn. Enn mátti verjast með 35. Kh2. 35. ... Hh7! 36. Kh2 ... Nú er orðið um seinan að leika þennan leik. 36. ... hxg3+ 37. fxg3 Rxh3! Þar lá hundurinn grafinn. Eftir 38. Bxh3 leikur svartur 38. ... Dg4 og vinnur. 38. Dxg5 Rxg5+ 39. Kg2 RÍ3! Nú hótar svartur 40. ... Hh2 mát. 40. Hxe4 Hf8 41. g4 Hh2+ 42. Kg3 Hhl Svartur hótar að vinna lið með 43. ... Rd2. Ekki stoðar að leika 43. Kg2 vegna 43. ... Hgl+ 44. Kf2 Hxfl + ! og síðan 45. ... Rd2+. 43. He2 Rh4 44. He3 g5 45. Re7+ Kg7 46. Hc3 Hvítur gafst upp um leið. Ekki dugði heldur að leika 46. Rf5+ Hxf5 47. gxf5 Rxf5+ 48. Kf2 (ef 48. Kg2 þá Hxfl 49. Kxfl Rxe3+) Rxe3ogsvart- ur vinnur endataflið auðveldlega. Tal tefldi Caro-Kann vörn með svörtu gegn Jóni L. og eftir aðeins tíu leiki hvíslaði hann yfir borðið að hann væri ekki ójafnaðarmaður í vígahug. Jón lék þá hvassasta leikinn sem hann sá á borðinu og spurði síðan hvort hvíslið hefði verið jafnteflisboð og játti Tal því og fyrsta stórmeistara- jafnteflið í mótinu leit dagsins ljós. Það er af sem áður var þegar Tal sagði að of langt væri milli Reykjavfkur og Ríga til þess að leyfilegt væri að semja um jafntefli í fimmtán leikjum en svo lét hann um mælt þegar hann fórnaði drottningunni í tvísýnu gegn Jóni Kristinssyni á fyrsta Reykjavíkur- mótinu 1964. Polugajevskí beitti hinni vinsælu Drottningarindversku vörn með svörtu gegn Margeiri og jafnaði taflið fljótlega. Hann náði síðan undirtöku- num og sneri á Margeir sem játaði sig sigraðan þegar mát blasti við. Helgi náði aðeins betra tafli með hvítu gegn Ljubojevic sem beitti Kóngsindverskri vörn. Júgóslavinn náði hins vegar að einfalda taflið og sættust þeir þá á jafntefli þegar frek- ari vinningstilraunir Helga virtust vonlitlar. Kortschnoi lék byrjunina að vanda óvenjulega gegn Hollenskri vörn Agdesteins og skipti strax upp í enda- tafl. Líklega hefur hann haldið að Agdestein væri öllum hnútum kunn- ugur á nýjustu refilstigum skákfræð- anna eins og títt er um unga menn. Það er hins vegar mesti misskilningur því að Norðmaðurinn kann lítið í byrjunum en er harður í horn að taka í flækjum og endatafli. Kortschnoi náði þó betri stöðu og flækti síðan endataflið sem mest hann mátti en Agdestein varðist fimlega. Þeir fé- lagar lentu í miklu tfmahraki og virtist Kortschnoi hafa gleymt að tímamörk- in væru við 45. leik en ekki þann 40. eins og venjulega. Þegar hann sá fum- ið á Norðmanninum rankaði hann við sér og tókst naumlega að skila til- skildum leikjafjölda. Hann hafði þá í öllum handaganginum unnið tvo menn í skiptum fyrir hrók. Úrvinnsla biðskákarinnar vafðist síðan ekki fyrir honum og sýndi hann þar enn einu sinni snilli sína f endatafli. Hatramasta viðureignin stóð á milii Timmans og Portisch. Hollendingur- inn var þegar í upphafi staðráðinn í að leggja allt í sölurnar til þess að vinna. Hann valdi eitt hvassasta afbrigði sem til er gegn Sikileyjarvörn og fórnaði manni þegar í níunda leik eins og Guðmundur Sigurjónsson gegn Helga Ólafssyni á Neskaupsstað 1983 en þeirri skáki lyktaði með jafntefli eftir mikilar sviptingar. Timman hef- ur líklega lumað á endurbót á tafl- mennsku Guðmundar en Portisch kærði sig ekki um að sjá hana og dró fram nýjan leik, ættaðan úr skáksmiðjunni í Búdapest. Lengi var tvísýnt um hvor stæði betur en svo fór að lokum að Hollendingnum varð að ósk sinni. Þessi skák sýnir best hversu hart er barist um efstu sætin í mótinu. Hvítt: Timman Svart: Portisch Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxc4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4!? ... Hér er lítt af setningi slegið. Tim- man blæs strax til sóknar en Portisch tekur hraustlega á móti. 7. ... e5 8. Rf5 g6 9. g5 gxf5 10. exf5 d5! Portisch hirðir ekki um að forða riddaranum því að sóknarfæri hvíts eru of hættuleg eftir 10. ... Rg8 11. f6 eða 10. ... Rf-d7 11. Bc4. 11. Df3 Bd7 Nýr leikur. Helgi lék hér ótrauður 11. ... d4 gegn Guðmundi en sá leikur hefur t.d. þann ókost að biskupinn á fl kemst þá í sóknina. 12. 0-0-0 Bc6 Núna hótar svartur 13. ... d4. 13. De2 Bb4 Hér var e.t.v. betra að leika 13. ... Rb-d7. Timman finnur snjallt svar og hamrar járnið. 14. Bd4 Re4! Hér mætast stálin stinn. Ef 14. ... Bxc3 þá 15. Dxe5+ De7 16. Dxe7+ Kxe7 17. gxf6+ oghvíturstendurbet- ur. 15. Bxe5 Bxc3 16. Bxc3! ... Eftir 16. bxc3 fær svartur frum- kvæðið með 16. ... Dxg5+ 17. f4. Dxf5 18. Bxh8 Dxf4+. 16. ... Dxg5+ 17. Kbl Hg8 Hér töldu spekingar á göngum hót- elsinsaðsvarturgætileikið 17. ... 0-0 og haldið fengnum hlut. Hvítur hefur hins vegar enn góð sóknarfæri, t.d. 18. Bd4! (hótar f3 og Hgl) He8 19. f3 Rd2+ 20. Dxd2 Dxd2 21. Hgl+ Kf8 22. Bc5+ og hvítur vinnur. 18. f3 Rd7 19. fxe4 dxe4 20. h4 Df4? Betri vörn var að leika 20. ... Dg4 og staðan er enn tvísýn. 21. Bd2! De5 22. Bg5 ... Hvíti hefur tekist að skapa sér ný sóknarfæri. Nú kemst svarti kóngur- inn ekki af upphafsreitnum nema eftir frekari veikingu á stöðunni. JS: bíJ+ Kds 24. Bc4 Hg7 25. Be3 Kc7 26. Dh6 ... Nú hótar hvítur að vinna drottning- una með 27. Bf4. Þessi hótun kostar svart skiptamun. Lokin eru aðeins tæknileg úrvinnsla fyrir Timman. 26. ... Hg4 27. Be2 Dxf5 28. Hh-fl De6 29. Bxg4 Dxg4 30. Bf4+ Kb6 31. Be3+ Kc7 32. Dxh7 Hf8 33. h5 De6 34. Df5 Dxf5 35. Hxf5 Kd8 36. Hgl Ke7 37. h6 Hf7 38. Hh5 Hh7 39. Hh3 Svartur gafst upp. Hann á ekkert fullnægjandi svar við 40. Hh-g3 og síðan 41. Hg7+. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 3. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.