Þjóðviljinn - 03.03.1987, Side 3
Heimboð
Starri
,byður
Ásmundi
heim
En hafa verður hraðan á
Vegna yfirlýsingar þinnar í út-
varpi, þar sem þú telur að
bændur eigi ekki rétt á
kauphækkun, sem nú hefur verið
ákveðið að þeim beri 1. mars
n.k., býð ég þér hér með í heim-
sókn til mín nú þegar. Við hér
munum skjóta saman fyrir far-
gjaldi þínu, því fleira er dýrt á
Islandi í dag en kjöt og mjólk
Ég verð að trúa því að þú viljir í
heiðri hafa þá gullnu reglu Ara
fróða, að hafa það, er sannara
reynist, enda mun virðing og
traust til ASÍ í húfi, ef forseti þess
brýtur þá reglu í svo alvarlegu
máli sem þessu.
Ég hef þá trú, að heimsókn þín
til okkar, sem eldurinn brennur
heitast á, geti auðveldað þér að
hlýða reglu Ara fróða í þessu máli
og orðið til þess, að þú dragir til
baka ummæli þín. Þá værir þú
maður að meiri.
Heimboð mitt stendur aðeins
til föstudags í þessari viku. Pað
helgast af því, að viðbrögð þín
verða að liggja fyrir fyrir miðst-
jórnarfund Alþýðubandalagsins
á laugardaginn. Par hlýtur að
verða tekin afstaða til þessara
mála. Verði þín skoðun óbreytt
ofaná á þeim fundi gæti svo farið,
að Alþýðubandalagið yrði 4-5
þingmönnum fátækara að kom-
andi kosningum loknum, í kjör-
dæmum úti á landsbyggðinni.
Virðingarfyllst,
Þorgrímur Starri í Garði
Blaðamannafélag ís-
lands 90 ára í haust
Lúðvík Geirsson, fréttastjóri
Þjóðviljans, var kjörinn nýr for-
maður Blaðamannafélags ís-
lands, á aðalfundi félagsins sl.
laugardag. Omar Valdimarsson,
fréttamaður á Stöð 2, lét af störf-
um eftir sex ára formennsku í BÍ.
Hinn nýi formaður féiagsins
færði Ómari veglegt pennastatíf,
sem örlítinn þakklætisvott frá fé-
laginu, vegna góðs starfs hans í
þágu þess.
Blaðamannafélag íslands á 90
ára afmæli í haust og verður þess
minnst með margvíslegu móti.
-Sáf
FRETTIR
Nautakjöt:
Gmnur um storsmygl
Sala á nautakjöti jókst um 40% eða 70 tonn á meðanfarmenn voru í verkfalli
Eg neita því ekki að það læðist
að manni sá grunur að smygl á
nautakjöti sé stundað með kaup-
skipum þegar nautakjötssalan
eykst þetta mikið á sama tíma og
farmenn eru í verkfalli. En þetta
er alveg ósannað mál. Einnig geta
verið á þessu máli miklu nærtæk-
ari skýringar s.s. aukin nautakj-
ötsneysla vegna árshátíða o.fl. í
þeim dúr þar sem nautakjöt er
haft á matseðlinum. Þó hef ég
heyrt að frystigámar séu notaðir
undir smygl á kjöti, en eins og ég
segi er þetta allt ósannað mál og á
meðan svo er er ekkert hægt að
gera að svo stöddu, - segir Gunn-
ar Guðbjartsson hjá Stéttarsamb-
andi bænda.
í janúar jókst sala á nautakjöti
um 70 tonn miðað við sama tíma í
fyrra.
- Við hjá Tollgæslunni erum
alltaf að heyra þetta út undan
okkur að það sé stundað stórfellt
smygl á nautakjöti hingað til
lands en hingað til höfum við ekki
getað sannað það mál. Það sem
við getum gert er einungis að
herða eftirlit okkar og reyna eftir
fremsta megni að koma höndum
yfir þá sem standa í smygli ef það
er þá árökum reist,-sagði Krist-
inn Ólafsson hjá Tollgæslunni.
Sala á nautakjöti jókst um 70 tonn þann tíma sem farmenn voru í verkfalli nú nýverið.
Reykjavík
Aðalskipulagið að fæðast
Skipulagsnefnd afgreiddi ígœr tillögur að aðalskipulagi til2004 til borgarráðs. Guðrún Ágústsdóttir:
Umferðarmál megindeiluefni. Viljum draga úr umferð einkabíla og hætta við hraðbrautir
Skipulagsnefnd Reykjavíkur-
borgar afgreiddi í gær frá sér til
borgarráðs tillögur að aðalskipu-
lagi höfuðborgarinnar til ársins
2004. Þessar skipulagstillögur
hafa verið vinnslu sl. 3 ár. Til-
lögurnar voru samþykktar með
atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðis-
SAL
Sjóðir fari að lögum
Hrafn Magnússonframkvæmdastjóri SAL: Ekki
íanda húsnœðislaganna að selja réttindi aftur í tímann
þ etta er auðvitað ekki í anda
húsnæðislaganna og þessi
frétt Þjóðviljans kom mér mjög á
óvart. Ég held að það sé hrein
undantekning að lífeyrissjóðirnir
geri þetta en á vissan hátt er þeim
auðvitað vorkunn, sagði Hrafn
Magnússon framkvæmdastjóri
Sambands almennra lífeyrissjóða
í samtali við Þjóðviljann, vegna
fréttar blaðsins um að einstakir
sjóðir selji réttlausum umsækj-
endum um húsnæðislán lífeyris-
sjóðsréttindi aftur í tímann á
Dagsbrúnartaxta.
„Það liggja fyrir þinginu laga-
breytingar sem ættu að koma í
veg fyrir þetta, því þær gera lögin
lítið eitt sveigjanlegri. Þær felast
m.a. í því að fólk öðlast rétt til
láns hafi það greitt í lífeyrissjóð í
20 mánuði á síðustu tveimur
árum, sagði Hrafn. -vd.
flokksins og fulltrúa Framsókn-
arflokksins sem hefur ýmsa fyrir-
vara á samþykki sínu en fulltrúi
Alþýðubandalagsins sat hjá við
afgreiðslu málsins.
-Aðalágreiningurinn snýst um
umferðarforsendur aðalskipu-
lagsins. Við lögðum fram mjög
skýrar tillögur um að dregið verði
úr umferð einkabíla, laða fólk að
almenningssamgöngum og fallið
verði frá áformum um Fos-
svogshraðbraut, Hlíðarfót,
breikkun Sóleyjargötu og Frí-
kirkjuvegar og framhald Höfða-
bakkans vestan Vesturbergs.
Einnig að undirbúinn verði flutn-
ingur Reykjavíkurflugvallar svo
hægt verði að nýta það svæði
undir íbúðabyggð, sagði Guðrún
Ágústsdóttir í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
-Þessarra tillagna okkar treysti
íhaldsmeirihlutinn í skipulags-
nefnd sér ekki til að taka afstöðu
til, heldur vísaði þeim til borgarr-
áðs sem er mjög óvenjulegt, en
segir sína sögu um þann ágreining
sem er uppi innan flokksins um
þessi mál og þá einkum Fossvogs-
hraðbrautina, sagði Guðrún.
í tillögum Alþýðubandalagsins
er lögð áhersla á uppbyggingu
útivistarsvæða, lagst gegn stóriðj-
uframkvæmdum á Geldinganesi
en bent á það svæði sem ákjósan-
legt undir íbúðabyggð og fram-
tíðariðnað s.s. fiskeldi.
~lg-
Vinningstölurnar 28. febrúar 1987
Heildarvinningsupphæð: 5.029.253,-
1. vinningur var kr. 2.519.663,-
Þar sem enginn fékk fyrsta vinning, færist hann yfir á fyrsta vinninq í
næsta útdrætti.
2. vinningur var kr. 753.936,- og skiptist hann á 417 vinninqshafa kr
1.808,-á mann.
3. vinningur var kr. 1.755.654,- og skiptist á 9439 vinningshafa, sem fá 186
krónur hver.
Upplýsingarsími:
685111.
0#2fctttUhBiíc
iJ'Wr <\OV(ívlir
dlag^krá hefsi
tl.21.' 15 (stwndvísle^a)
Kristín Ömar^d.
Bergþóra Ingólfíd.
(fuoberqur Berass.
IsaK Hatfðar^. ^
■ff&SgFtíif1
Ossur Sfarp,Ihgilt>jörq
Sólrún, Runólfur Agústss
i Edda Pötursd.-* Kynnir
Gnafík tíl Kl. 02.00
félag vinstnmanna-—f
Þriðjudagur 3. mars 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3