Þjóðviljinn - 12.04.1987, Side 14
GL4STAN
Póker
uppá
krónu
Litið inn á/€skulýðsheimili
Siglufjarðar
Póker upp á krónupeninga í Æskulýðsheimili Siglufjarðar: Jóhann Helgi
Steinarsson, Gísli Valsson, Magnús Jónsson og Sveinn Hjartarson: „Enginn
orðið gjaldþrota ennþá.” Mynd: -hj
„Ég er enginn stjóri hérna, -
við vinnum allt í sameiningu
og krakkarnir ráða mikið ferð-
inni og því hvað þeir taka sér
fyrir hendur," sagði Sigurður
Friðriksson, forstöðumaður
Æskulýðsheimilis Siglufjarð-
ar í samtali við tíðindamann
Glætunnar sem leit þar inn á
dögunum.
Æskulýðsheimilið á Siglufirði
er eitt hið elsta á landinu og sýnir
þó engin ellimerki, enda stöðug
endurnýjun. Á síðasta ári komu
líka ungmennin alls 8.211 sinnum
sem hlýtur að vera dágott í tvö-
þúsund manna bæ.
Heimilið er opið þriðjudaga til
laugardaga, en lokað sunnudag
og mánudag. Starfsemin er tví-
þætt; frá fjögur síðdegis til u.þ.b.
sjö á kvöldin er húsið opið fyrir
krakka allt að 13 ára aldri. Eftir
kvöldverðartíma fjölmenna ung-
lingar staðarins, flestir á aldrin-
um 13-16 ára. Á virkum dögum
er opið til hálfellefu og til mið-
nættis um helgar.
Skemmta sér sjálf
Sigurður sagði að starfsemi
væri frjálsleg, það væru engir
klúbbar starfandi utan um ein-
stök áhugamál, eins og tíðkast í
félagsmiðstöðvunum í Reykja-
vík. Krakkarnir gerðu það sem
þá langaði til hverju sinni; spil-
uðu, tefldu, færu í billjard eða
borðtennis, eins gætu þau horft á
myndband einu sinni í viku.
Heimilið á líka sína eigin upp-
tökuvél og er hún talsvert notuð.
Þá eru og haldin diskótek og við
og við sem eru mjög vel sótt.
í tengslum við heimilið er starf-
andi Æskulýðsfélag kirkjunnar
og eru meðlimir í félagi milli 50
og 60. Á veturna eru fundir
haldnir hálfsmánaðaralega og
hefur sóknarpresturinn, sr. Vig-
fús Þór Árnason yfirumsjón með
starfinu. Unglingarnir sjá hins-
vegar um dagskrána að miku leyti
og sjá um skemmtiatriði.
Kvöldið sem tíðindamann
Glætunnar bar að garði voru
flestir að spila billjard en fjórir
Sigifirskir billjardmeistarar með
forstöðumanni Æskulýðsheimilisins,
Sigurði Friðrikssyni.
Mynd -hj
strákar sátu og spiluðu póker upp
á krónupeninga. Þeir heita Jó-
hann Helgi Steinarsson, Gísli
Valsson, Magnús Jónsson og
Sveinn Hjartarson.
Þeir sögðu að þeir kæmu nokk-
uð oft í æskulýðsheimilið, sem
væri eini samkomustaður ung-
linga á Siglufirði. Þeir sögðu að
lítið væri um boð og bönn og
krakkarnir væru ánægðir með
staðinn - enda gátu þeir ekki bent
á neitt sem betur mætti fara að
þeirra mati.
Hvað pókerinn varðaði
sögðust þeir nú ekki vera for-
fallnir fjárhættuspilarar enda
hefði enginn orðið gjaldþrota
ennþá!
-*y-
Af litlum Dennum og stórum
Nú í vikunni var alvarlegur
misskilningur leiðréttur: Finnur
Ingólfsson er ekki yngsti Fram-
sóknarmaðurinn á landinu eins
og þjóðin hefur haldið síðan þessi
geðþekki glókollur fór að láta að
sér kveða. Þegar Finnur kom
fram á sjónarsviðið lækkaði með-
alaldur Framsóknarmanna til
mikilla muna og Helgi Pétursson
varð næstyngstur í flokknum. En
það eru sem sagt til ennþá yngri
Framsóknarmenn en Finnur sem
er að vísu ekki nema 34 ára.
Misskilningurinn kom semsagt
upp á yfirborðið þegar því var
slegið upp í Tímanum (málgagni
Framsóknarmanna) að sigurveg-
ararnir í spurningakeppni sjón-
varpsins, lið Fjölbrautarskólans í
Breiðholti, ætlaði að kjósa Guð-
mund G. Þórarinsson í kosning-
unum.
Og FB-drengirnir eru hug-
siónamenn upp á gamla móðinn.
Ástæða þess að þeir ætla að kjósa
Framsókn er nefnilega sú að þeir
hétu flokknum atkvæðum sínum
ef þeir ynnu. Og þeir unnu sem
sagt og ætla að kjósa Framsókn.
Þeir setja það ekki fyrir sig þótt
einn úr liðinu sé gallharður
stuðningsmaður Sjálfstæðis-
flokksins (flokks Þorsteins Páls-
sonar) frá gamalli tíð.
Framsóknarmönnum er hér
með óskað til hamingju með liðs-
aukann og strákunum úr FB til
hamingju með nýja sálufélagið.
Framsókn er líka á góðri leið með
að útskrifast af þingi og verður
því að finna sér nýtt hlutverk í
tilverunni. Og það er sem sagt
fundið.
Flokkurinn setur upp áheita-
stöð: Strandarkirkja verður
bráðlega úr leik þegar menn fara
að heita á Steingrím Hermanns-
son til þess að fá betri laun,
stöðuhækkanir og jafnvel húsn-
æði. Áheitabanki Denna gæti út-
vegað mönnum kvonfang jafnt
sem nýja bfla, lækkað astma í
köttum og sull í rollum.
En þá er bara eitt vandamál
óleyst. Ef menn vilja stuðla að
því að blómin tali og lífið verði
skemmtilegt er alveg bráðnauð-
synlegt að útskrifa Framsókn af
þingi. Og þess vegna verða menn
eiginlega að lofa Denna ein-
hverju öðru en atkvæðum sínum:
úttekt í kaupfélaginu, grjónag-
raut eða grænum baunum til
dæmis. Þar með þarf þjóðin ekki
að hafa samviskubit þótt forsætis-
ráðherrann falli í kosningunum
eins og allar líkur benda til. Hinn
„mikilhæfi leiðtogi”, svo vitnað
sé orðrétt í Tímann (málgagn
Framsóknarmanna) getur snúið
sér að bissness og líknarmálum
og endar sjálfsagt uppi sem hei-
lagur maður. Sankti Denni.
Ég heiti því hér með að ef ég fæ
fimm rétta í lottóinu nú um helg-
ina þá fær Áheitastöð Denna
helminginn.
Fleiri Dennar
En fleiri eru Dennar en stóri
Denni og margir kallaðir en fáir
útvaldir, því miður. Á dögunum
kom til dæmis út fylgiblað með
Tímanum (málgagni Framsókn-
armanna) sem heitir Denni. Á
forsíðunni er að vísu forljót mynd
af Denna dæmalausa á leið úr
skólanum. Fiestir vita að Denni
dæmalausi er ekki stóri-Denni en
þó er engin furða þó menn vilji
rugla þessum heiðursmönnum
saman.
En Tíma-Denni er málgagn
ungra Framsóknarmanna. Þeir
eru sem sagt enn fleiri en ætlað
var, ábyggilega hátt í tíu samtals
(með Finni Ingólfssyni og Helga
Péturssyni).
Og málgagn ungra Framsókn-
armanna er upp á átta síður og
þær skiptast svona: Forsíðan -
stór mynd af Denna; síða 2: Við-
tal við Bítlavinafélagið, hirð-
hljómsveit Framsóknar; síða 3:
Virðist vera um kristinfræði og
lánasjóðsmálið plús hálfsíðuaug-
lýsing frá KEA; síða 4: Þar er
bent á að Vestmannaeyjar séu
enn á sínum stað og er það rétt-
mæt ábending, samkvæmt heim-
ildum mínum. Auk þess er hálf-
síðuauglýsing um drykkinn
Blöndu; síða 5: Frásögn af spurn-
ingakeppni Denna um tónlist og í
greininni kemur fram að keppnin
heppnaðist frábærlega vel. Síðan
er líka hálfsíðuauglýsing frá Út-
vegsbankanum (ekki h/f); síða 6-
7: Þar eru „nokkrir framámenn
framhaldsskólanna teknir tali”
og rætt er við bankastjóra Sam-
vinnubankans(l) sem átti 25 ára
afmæli á dögunum (þ.e.a.s.
bankinn). í viðtalinu kemur fram
að nauðsynlegt sé fyrir ungt fólk
að velja sér viðskiptabanka; síða
8: er lögð undir grein um lána-
sjóðinn sem er ómerkt. Sem bet-
ur fer er mynd af Finni Ingólfs-
syni að halda ræðu. Honum
mæltist vel að vanda; síða 9:
Grein um eyðni og auglýsing frá
Samvinnuskólanum á Bifröst og
Kaffibrennslu Akureyrar; síða
10: Ungir Framsóknarmenn
heimsækja nýja búð, Kaupstað
og birta fallega og lifandi mynd af
kjötborðinu; síða 11: Halla
Einksdóttir hvetur ungt fólk til
þess að greina kjarnann frá hism-
inu og er það vel. Einnig er aug-
lýsing frá Kaffibrennslu Akur-
eyrar; síðal2: Auglýsing um ferð-
ir Bítlavinafélagsins.
Reynsluheimur
litlu Dennanna
Svo sem sjá má af þessari ítar-
legu upptalningu er reynslu-
heimur litlu Dennanna ótrúlega
fjölskrúðugur og áhugamál
þeirra ættu að vera æsku landsins
til eftirbreytni.
Og ekki er minna um vert að
litlu Dennarnir hafa tileinkað sér
af stakri trúmennsku æðstu list
stóra Denna: Að segja allt um
ekki neitt og ekkert um allt hitt.
Það er ekki örgrannt um að
hinir flokkarnir geti rennt öfund-
araugum til framsækinnar kyn-
slóðar ungra Framsóknarmanna.
Eldmóðurinn og baráttuþrekið á
sér greinilega engin takmörk.
Það er vel til fundið að spjalla við
bankastjóra Samvinnubankans í
blaði fyrir ungt fólk og lýsir meira
hugmyndaflugi en hjá meðal-
mennum. Eins er með heimsókn-
ina í Kaupgarð - hvílíkt leiftrandi
hugarflug. - Aldrei hefði mér
dottið það í hug!
Það er líka vel til fundið að
sleppa allri umræðu um húsnæð-
ismál og kjaramál, enda hund-
leiðinlegt og kemur ungu fólki