Þjóðviljinn - 12.04.1987, Qupperneq 15
GLÆTAN
UÓÐA-
SAMKEPPNI
Glœtan efnirtil Ijóðasamkeppni fyrlr ungt
fólk fœtt 1967 og síðar. Vegleg verðlaun.
Skilafrestur til 1. maí
Glætan hefur ákveðið að efna
til Ijóðasamkeppni ungsfólksí
því skyni að örva skáldskap-
ariðkun þess og gera því kleift
að koma verkum sínum á
framfæri.
Tilhögun verður sem hér segir:
Ljóðin skal póstlegja fyrir 1. maí
og merkt dulnefni. Rétt nafn,
fæðingardagur, heimili og síma-
númer þarf að fylgja í lokuðu um-
slagi.
Þriggja manna ljóðelsk dóm-
nefnd tilnefnir sex bestu ljóðin til
viðurkenninga og verða þau öll
birt á þessum síðum.
Verðlaunin eru ekki af lakari
endanum:
1. íslendingasögurnar, útg.
Svart á hvítu.
2. Kristján Jónsson Fjallaskáld,
útg. Almenna bókafélagið.
3. Kvæði Jóns Helgasonar, útg.
Mál og menning.
4. Drengurinn með röntgenaug-
un, eftir Sjón, útg. Mál og menn-
ing.
5. Kvæði og sögur Jóhanns Jóns-
sonar, útg. Menningarsjóður.
6. Fiugur eftir Jón Thoroddsen,
útg. Bókaforlagið Flugur.
Sem sj á má af þessum lista er til
mikils að vinna auk þeirrar viður-
kenningar sem fylgir. Glætan
hvetur því ungt fólk að taka þátt í
samkeppninni og vera ófeimið
við að koma verkum sínum á
framfæri.
Ljóðin skal senda:
Þjóðviljinn
c/o Glætan
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Snorri Sturluson, Steinn Steinarr og Sjón: Valinkunn sæmdarskáld sem allir
ættu að taka sér til fy rirmyndar. Og nú er spurningin sú hvort nýr snillingur
uppgötvast....
alls ekkert við. Það fær ekkert
húsnæði hvort eð er og óþarfi að
nöldra út af launum í miðju gó-
ðæri.
Það er ungum Framsóknar-
Úr nöldurskjóðunni;
Hrafn Jökulsson
skrifar
mönnum til framdráttar að
sleppa umræðu um jafnréttismál:
Sú staðreynd að kona hefur ekki
setið á þingi fyrir flokkinn í ára-
tugi hefði þó eflaust glatt unga
kjósendur og eins ef fram hefði
komið meðalaldur þingmanna
flokksins.
Stóri-Denni þarf ekki að ör-
vænta þegar hann hættir á þingi
eftir rúmar tvær vikur og snýr sér
að Áheitabankanum. í Fram-
sókn er einvalalið ungmenna sem
mun án nokkurs efa fullkomna
það starf sem hann er svo langt
kominn með: - Að útskrifa Fra-
msókn endanlega.
-Hrafn Jökulsson
Ritfregn
UNG
komið út
Tímaritið UNG kemur á sölu-
staði í næstu viku. Að vanda
kennir margra grasa í blaðinu.en
þema þess er nú: „Ungir (sien'd-
ingar: Fallegir, sterkir, gáfaðir,
listrænir!"
Til þess að færa sönnur á þessa
fullyrðingu er rætt við Jón Pál
Sigmarsson, sterkasta mann í
heimi, Hólmfríði Karlsdóttur,
fyrrum fegurðardrottningu allrar
heimsbyggðarinnar, Jóhann
Hjartarson, einn af framvörðum
íslensku skákbyltingarinnar, Eð-
varð Þór Eðvarðsson, sundkappa
og íþróttamann ársins. Þá eru og
viðtöi við Gyrði Elíasson skáld,
Tómas Ponzi, myndlistarmann
og tölvuséní, Ellu Magg mynd-
listarmann, Hjálmar Hjálmars-
son sem í vor útskrifast úr
Leiklistarskólanum, Guðrúnu
Pálsdóttur úr íslenska dansflok-
knum og Guðjón Bjarnason
myndlistarmann.
UNG heldur áfram að rekja
sögu Rolling Stones, þessara
elstu unglinga rokksins. Einka-
viðtal er við The Smithereens,
sem tóku land á okkur um daginn
við mikinn fögnuð. Einnig er rætt
við íslensku hljómsveitina
„Rauðir fletir,“ en hún er að
margra dómi okkar efnilegasta
sveit. UNG heimsækir Leikfélag
Hafnarfjarðar, sem um þessar
mundir sýnir „Halló litla þjóð,“
og bregður sér á grímuball í
Myndlista- og handíðaskólanum.
Þá er að vanda umfjöllun um
plötur og sitthvað fleira efni.
Það eru þeir Tómas Jónsson og
Ómar Baldursson sem hafa veg
og vanda af útgáfu UNG, sem er
eini vettvangur ungs fólks á stór-
um markaði blaða og tímarita.
-hj.
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJANESSVÆÐI
Til foreldra og aðstandenda fatlaðra
barna og unglinga á Reykjanési.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra, Reykjanes-
svæði, athugar nú þörf fatlaðra barna og ung-
linga í Reykjaneskjördæmi fyrir sumarþjónustu.
Með sumarþjónustu er átt við hvers konar tilboð
sem inniheldur t.d.
störf, tómstundir og lengri dvalir.
Ástæðan fyrir þessari athugun er að Svæðis-
stjórn hyggst gefa hlutaðeigandi sveitarfélögum
og samtökum fatlaðra upplýsingar um þarfir fatl-
aðra barna og unglinga fyrir sumarstarf, áður en
gengið er endanlega fráskipulagi þessarar þjón-
ustu fyrir sumarið.
Nauðsynlegt er að Svæðisstjórn hafi fengið upp-
lýsingar um þessi atriði fyri 15. apríl n.k. í síma
651056 eða 651692 milli kl. 9.00-10.00 virka
daga, eða bréfleiðis til skrifstofu Svæðisstjórnar
Reykjaness, Lyngási 11, 210 Garðabæ.
fc^RARIK
onk. ^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Símavörður
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn-
ar starf símavarðar á aðalskrifstofu í Reykjavík.
Um er að ræða 1/2 dags starf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB og
ríkisins.
Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist starfsmannastjóra fyrir 24. apríl nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
^írarik
^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Tækniteiknari
Rafmagnsveiturríkisins auglýsa lausttil umsókn-
ar starf tækniteiknara við svæðisskrifstofu Raf-
magnsveitnanna í Stykkishólmi.
Umsókn er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf
sendist svæðisrafveitustjóra í Stykkishólmi, sem
jafnframt veitir upplýsingar um starfið. Skilafrest-
ur umsóknar er til 21. apríl n.k.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
ÞÚ LOKAR AUGUNUM OG LÆTUR BRAGÐLAUKANA
SERA PIG UMHVERFISJÖRÐINA Á EINUKVÖLDI
Krákair*^
Laugaveg 22
^ sími 13628.
Spennandi helgarmatsedlar
GRIKKLAND: TARRAMASALADA
KINA: MARENERUÐ SVÍNARIF
MEXÍKÓ: TORTILLAS MEÐ ÝMSUM FYLLINGUM
JAPAN: TERY-YAKI - SAKE NO YUAN-YAKI
INDÓNESÍA SATAYMEÐ SAUS KACANG
INDLAND TANDOORI KJÚKLINGUR
KRÁKAN, FRAKKUR VEITINCASTAÐUR MEÐ FRAMANDI RETTI