Þjóðviljinn - 12.04.1987, Qupperneq 16
Tjðrnin hefur ætið verið vinsæll útivistarstaður að vetri til. Þar hafa margir rennt sér sína fyrstu salíbunu á skautum. Myndin er tekin árið 1915.
Pólitík hins falska góms
Áhugamenn um miðbœ Reykjavíkur funda ó Hressó klukkan þrjú ídag, laugardag.
Komum fveg fyrir að hrapað verði að framkvœmdum sem ógerningur yrði að bœta fyrir síðar
„ Þegar menn heimta að
þessi látlausu hús... á Bern-
höftstorfunni verði afmáð og
bera fyrir sig að þau séu úr sér
gengin þá er það ónóg rök-
semd. Þessi gömlu hús eru
jafn ófúin og þau hefðu verið
reist í gær. Hitt er satt að um
viðhald þeirra hefur verið rek-
in sams konar pólitík og
sveitastúlkur reka þegar þær
láta tennurnar í sér grotna nið-
ur og verða að geiflum svo
þær geti síðan farið suður og
keypt sér falskan góm."
Þessa klausu er að finna í Yfir-
skyggðum stöðum eftir Halldór
Laxness, greinasafni frá 1971, og
er höfundurinn að andæfa hug-
myndum sem þá var mjög haldið
á lofti í þá veru að Bernhöftstorf-
una bæri að rífa og byggja í stað-
inn ríkisstjórnarhöll. Ætli nokk-
ur maður láti sér detta í hug slíkt
niðurrif núna? En það er satt;
það styrkti þessar nýmóðins hug-
myndir þá að torfan var í mikill
niðurníðslu.
Ætli það gildi ekki eitthvað
svipað um ýmis þau hús sem ný-
samþykkt Kvosarskipulag hefur
dæmt til dauða? Hressó, Hótel
Vík, hús Pósts og sírna (gamli
Kvennaskólinn) við Austurvöll,
Ziemsen og ísafold. Kannski of-
býður fólki hvað gamli miðbær-
inn er ósamstæður og áminnst
hús í bágbornu ástandi flest hver.
Er þá ekki bara best að rífa allt
heila klabbið og fá snyrtilegan
nýjan miðbæ í staðinn? Kannski
ekkert ógurlega spennandi, en
góðan fyrir sinn hatt? í þvflíkum
vangaveltum gleymist hver
bæjarprýði verður að gömlu hús-
unum þegar þau hafa fengið þá
umhirðu og viðgerðir sem þau
eiga skilið, og sem betur fer má
sjá mörg dæmi um slíkt núorðið í
gamla bænum. Og fleiri eru á
leiðinni; nærtækasta dæmið er
Bjarnaborgin sem hætt var við að
rífa góðu heilli og á eftir að verða
ein af perlum Reykjavíkur.
Annað atriði, og ekki síður
mikilvægt, virðist hafa farið fyrir
ofan garð og neðan þegar menn
sjá fýrir sér snyrtilegan miðbæ
samkvæmt Kvosarskipulaginu;
þessi miðbær verður aldrei að
veruleika. Af þeirri ofureinföldu
ástæðu að lóðirnar þama eru í
einkaeign upp til hópa og það
apparat er ekki til sem getur
skikkað eigendur til að byggja í
þeim stfl sem er á skipulagstillög-
unni. Húsin sem eiga að hverfa
munu standa mislengi og ef og
þegar þau síðustu verða rifin þá
verður komin einhver allt önnur
tíska í byggingarlist. Fyrir bragð-
ið heldur miðbærinn áfram að
vera jafn ósamstæður og hann er
núna, bara á öðrum nótum.
Kontóristabæli í líki ríkis-
stjórnarhallar í staðinn fyrir
Bemhöftstorfuna? Hugmyndin
vekur fólki hlátur núna. Meira
hvað þær vilja eldast illa þessar
líka fínu skipulagstillögur sem
alltaf koma uppá öðru hverju og
miða að niðurrifi. Tökum dæmi
af nágrenni Tjarnarinnar; hér
áður fyrr vom uppi hugmyndir
um að rífa húsaröðina meðfram
Tjarnargötunni. Varla félli slík
hugmynd í góðan jarðveg í dag.
Og einstök hús; á sínum tíma
keypti borgin Höfða til niðurrifs.
En sniðugt.
Hvers vegna sjá menn þá ekki
ljósið núna þegar gamli miðbær-
inn er undir? Þessi hús geyma
minningar um fortíðina, and-
rúmsloft sem hvergi er til ncma
þar. Margir borgarbúar vilja
koma í veg fyrir að hrapað verði
að framkvæmdum sem ógerning-
ur yrði að bæta fyrir síðar.
Hópur fólks hefur tekið sig til
og boðað til baráttuskemmtunar
á Hressó klukkan þrjú í dag,
laugardag, þar á meðal stjórnir
allra íbúasamtaka gamla bæjar-
ins, og eru þau sem slá vilja
skjaldborg um gamla bæinn hvött
til að láta sjá sig í þessu gamla
veitingahúsi sem Kvosarskipu-
lagið hefur dæmt til dauða.
Kennslustörf í
Ghana
Þróunaraðstoð - menningarsamskipti
AFS félög í Evrópu (EFIL) hafa tekið að sér að
útvega kennara til starfa í Ghana skólaárið 1987-
1988.
AFS á íslandi óskar eftir kennara til að taka þátt í
þessu starfi.
Einkum vantar kennara í raungreinum, stærð-
fræði, landbúnaðarfræðum og til kennaraþjálfun-
ar.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
★ Aldurslágmark 25 ára.
★ Vera starfandi kennari og hafa kennslu-
reynslu.
★ Góð enskukunnátta.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á
skrifstofu AFS á íslandi milli kl. 14 - 17 virka
daga, eða í síma 91-25450.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 24. apríl.
®tfS
áíslandi
Hverfisgötu 39, P.O. Box 753-121 Reykjavfk. Sími 25450.
• Opið daglega milli kl. 14 og 17.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
HS
LAUSAR STOÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
starfsmann til vatns- og hitalagna.
Upplýsingar í síma 82400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
LAUSAR STOÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstrustöður á eftirtalin
heimili:
Dagheimilið Laugaborg v/Leirulæk,
dagheimilið Bakkaborg v/Blöndubakka,
leikskólann Brákarborg v/Brákarsund,
leikskólann Fellaborg, Völvufelli 9,
dagheimilið Efrihlíð v/Stigahlíð.
Upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi
heimila og umsjónarfóstrur í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.