Þjóðviljinn - 12.04.1987, Blaðsíða 20
Ljósgeisli
frá Spáni
Ljósgeislinn frá Spáni með höfuðfat Lama.
í lok mars átti sér stað virðuleg
athöfn í Dharmsala, friðsælu
þorpi viðfjallsrætur Himalaya í
Norður-lndlandi. Þá var Ljósgeis-
linn frá Spáni tekinn í tölu Lama.
Það einstæða við þessa athöfn
er það að Ljósgeislinn, sem heitir
Osel T orres, er yngsti lama
heimsins, aðeins tveggja ára að
aldri.
Það var árið 1959 að Dalai
Lama og þúsundir búddista flúðu
frá Tíebet vegna trúarbragðaof-
sókna kínverska kommúnista-
flokksins. Þeir settu upp höfu-
ðstöðvar sínar í Dharmsala og
hafa dvalist þar síðan. í síðasta
mánuði söfnuðust svo þúsundir
búddista víðsvegar að úr heimin-
um til þorpsins í þeim tilgangi að
taka þátt í vígslu hins nýja lama
Osel Torres.
Búddistar trúa á endurholdg-
un. Sjaldnast geta þó lifendur
haft áhrif á það í hvaða líkama
þeir setjast að næst, þó eru til
undantekningar þar á. Einstaka
maður er kominn það langt á
þroskabrautinni að hann getur
valið sér líkama fyrir sál sína. Svo
var tilfellið með lamann Yeshe,
sem lést 49 ára í mars 1984. Hann
hafði ólæknanlegan hjartasjúk-
dóm og vissi að dauðastundin
nálgaðist. Hann tjáði bandarískri
búddistanunnu, sem annaðist um
hann, að hann hefði ákveðið að
endurholdgast í syni spánskra
hjóna Paco og Maríu Torres, sem
höfðu snúist til búddisma.
f febrúar 1985, tæpu ári eftir
dauða lamans eignaðist María
Torres son. Honum var gefið
nafnið Osel, sem þýðir ljósgeisli.
Þegar stráksi var 14 mánaða var
móðir hans beðin að koma með
drenginn á fund Dalai Lama. Þar
voru lögð fyrir hann hin margvísl-
egustu próf, þeirra á meðal átti
hann að velja bænabjöllu úr hópi
slíkra bjallna. Að sögn valdi hann
strax þá bjöllu sem tilheyrt hafði
hinum látna.
Hegðun Osel er í fæstu frá-
brugðin hegðan jafnaldra hans.
Hann blaðar í myndabókum og
hefur gaman af sandkassanum.
Við vígsluna sjáifa, sem var mjög
langdregin, þótti hann hinsvegar
sýna óvenju mikið langlundargeð
miðað við aldur.
Þó Osel sé í fæstu frábrugðinn
jafnöldrum sínum þá mun hann
þó eiga í vændum framtíð sem
aðeins þeir útvöldum geta vænst.
Dalai Lama mun hafa umsjón
með kennslu sveinsins en
kennslan mun bæði verða á vest-
ræna og austræna vísu. Þegar hef-
ur verið stofnaður sjóður sem á
að kosta nám hans í Harvard. Til-
gangur kennslunnar verður sá að
undirbúa Ljósgeislann sem best í
því framtíðarhlutverki að boða
vestrænum mönnum boðskap
lamanna. Hans hlutverk verður
að friða ofbeldishneigð
mannkynsins.
-Sáf, byggt á Time
Osköp venjuleg kartafla,en...
Fáðu þér smjör og finnd