Þjóðviljinn - 22.05.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 22. maí 1987 114. tölublað 52. örgangur
Byggingafúskið
Grófar vanrækslusyndir
Embœtti byggingafulltrúa harðlega gagnrýntá borgarstjórnarfundi vegna upplýsinga um burðarþol
bygginga. Stjórnarandstaðan vill gagngera endurskipulagningu embættisins. Fúskarar verði sviptir
réttindum. Uttekt á yfirstandandi framkvœmdum. Sigurjón Pétursson: Þarf aðgerðir strax
„Upplýsingarnar sem koma
fram í þessari skýrslu eru stóral-
varlegar og það er augljóst að við
verðum að grípa til aðgerða
strax,“ sagði Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins m.a. á borgarstjórnarfundi í
gærkvöldi, þar sem fram fóru
langar umræður um þær upplýs-
ingar sem koma fram í skýrslu
félagsmálaráðherra um burðar-
þol húsa í Reykjavík.
Embætti byggingafulltrúa
Reykjavíkurborgar varð fyrir
harðri gagnrýni borgarfulltrúa á
fundinum, þar sem komið hefur í
ljós að byggingar hafa fengið þar
viðurkenningu án þess að
teikningar og útreikningar á
burðarþoli þeirra hafi verið
lagðar fram. Það hefur einnig
komið í ljós að teikningar hafa
fengið þar stimpil þótt þeim hafi
verið mjög ábótavant.
Sigurjón, Bjarni P. Magnús-
son, Össur Skarphéðinsson og
Sigrún Magnúsdóttir gagnrýndu
embættið harðlega fyrir van-
rækslu á því eftirliti sem því er
ætlað að sinna og lýsti Sigurjón
ábyrgð á hendur borginni annars
vegar og hönnuðum hins vegar.
Það er athyglisvert að þetta er í
annað skiptið á nokkrum mánuð-
um sem byggingafulltrúi hefur
verið sakaður um alvarlega van-
rækslu, síðast vegna ónýtrar
. steypu í húsum í borginni.
Borgarfulltrúar minnihluta-
flokkanna lögðu fram tillögu á
fundinum þar sem lagt er til að
þegar verði á vegum bygginga-
fulltrúa gerð úttekt á þolhönnun
húsa sem eru í byggingu í borg-
inni og allar framkvæmdir sem
ekki uppfylla sett skilyrði verði
Heimsmeistaramót
unglinga í skák
Hannes Hlífar
á toppinn
Hcimsmcistaratitillinn í skák
blasir við Hannesi Hlífari Stef-
ánssyni, eftir sigur hans í gær
gegn Bandaríkjamanninum Gur-
evic og er Hannes Hlífar nú efstur
á mótinu, með 8 og Vi vinning.
Síðasta mótsumferð verður tefld
á morgun og etur Hannes þá
kappi við De Graeve, frá Frakk-
landi.
Eftir sigurinn í gær á Hannes
mikla möguleika á að hreppa
heimsmeistaratitil unglinga í
skák. Hálfur vinningur skilur á
milli hans og næstefsta manns,
Adams frá Englandi, er tapaði
sinni skák í gær.
Guðfriður Lilja tapaði sinni
skák í gær, fyrir sovésku skák-
konunni Gaelamoe. ! Frammi-
staða Guðfríðar Lilju hefur verið
með ágætum og er hún með 5 og
Vz vinning og vel fyrir ofan miðju
í röð keppenda í kvennaflokki. f
stöðvaðar. Einnig er lagt til að
hönnuðir sem ítrekað sýna van-
rækslu eða vankunnáttu verði
sviptir réttindum til að leggja
teikningar fyrir byggingafulltrúa.
Þá er lagt til að embætti bygg-
ingafulltrúa verði tekið til
gagngerrar endurskoðunar til að
koma í veg fyrir vanrækslu. Til-
lögunni var vísað til borgarráðs,
sem kemur saman í dag.
Svo var einnig um tillögu Da-
víðs Oddssonar, sem efnislega er
áþekk tillögu minnihlutans, en
gengur ekki eins langt.
Það hefur vakið athygli að í
mars á síðasta ári fékk Alexander
Stefánsson félagsmálaráðherra í
hendur nefndarálit, þar sem fram
kom rökstuddur grunur um að
ástand þessara mála væri með
þeim hætti sem síðar hefur komið
fram, en nefndarálitið var ekki
gert opinbert. Skýrslan sem nú er
til umræðu var Iögð fyrir félags-
málaráðherra fyrir nær tveimur
mánuðum en fór leynt fram í
þessa viku. -fig
Neytendasamtökin
Heildsalar fari
í endurhæfingu
Verðlagsákvœði koma til álita. Jóhannes Gunnarsson
formaður Neytendasamtakanna: Álagningin hefur
hœkkað án þess að innkaupsverð hafi breyst.
Tímabœrt að senda heildsala í endurhcefingu
Mér sýnist tímabært að senda
innflytjendur á íslandi í
endurhæfíngu til kollega sinna er-
lendis þvf þeim hefur greinilega
farið aftur í gerð viðskipta við
fyrirtæki erlendis, sagði Jóhann-
es Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna í gær.
Jóhannes sagði að þegar selj-
endur börðust fyrir afnámi verð-
lagsákvæða hefðu þeir fullyrt að
frelsið í verðlagsmálum myndi
skila sér í lækkuðu vöruverði til
neytenda. Jóhannes sagði að ef,
eins og virðist af könnun Verð-
lagsstofnunar, frjáls álagning
hefði orðið til þess að álagning
Norskur heildsali greiðir 90 kr.
fyrirfilmu sem islenskur heildsali
af rausn sinni greiðir 125 kr.
Norskur heildsali greiðir 2.700 kr.
fyrir útvarpstæki en landinn 3.060
kr. Norski heildsalinn greiðir
2.500 kr. fyrir myndavél sem
landinn greiðir 2.610 kr. fyrir.
Báðir greiða ámóta fyrir dekkið;
Norðmaðurinn 1.400 kr., landinn
1.410 kr. en neglingin kostar okk-
ur 520 kr., Norðmanninn aðeins
130kr.
hér heima hefði hækkað án þess
að nokkur breyting hafi orðið á
innkaupsverði, yrðu innflytjend-
ur að horfast í augu við það að
þeir gætu átt von á því að þess
yrði krafist að verðlagsákvæði
yrðu tekin upp á nýjan leik.
„Þegar svipuð könnun var gerð
1979 kom fram mjög svipaður
verðmunur okkur í óhag. Þá
viðurkenndu innflytjendur að
þeir tækju umboðslaun og kenn-
du verðlagsákvæðum um.
Nú kemur fram sami munurinn
en nú eru engin verðlagsákvæði
til að réttlæta töku umboðslauna
og þá lýsa menn því yfir hver um
annan þveran að umboðslaun séu
ekki tekin,“ sagði Jóhannes.
Stjórn Neytendasamtakanna
samþykkti ályktun í gær í tilefni
af verðkönnuninni og segir í
henni meðal annars:„Ljóst er að
hátt innkaupsverð skýrir að hluta
hið háa vöruverð hér á landi. Þörf
er tafarlausra úrbóta og munu
Neytendasamtökin ekki sætta sig
við óbreytt ástand í þessum efn-
um“. -sá.
Stjórnarmyndun
Kvennaviðreisn reynd
Formlegar stjórnarmyndunarviðrœður Sjálfstœðisflokks, A Iþýðuflokks og Kvennalista hefjast í dag. \
Þorsteinn Pálsson: Langar og erfiðar. Kvennalistakonur: Látum reyna á jákvœðfyrri viðbrögð
Idag klukkan hálftólf hefjast
fyrstu formlegar stjórnar-
myndunarviðræður eftir
kosningarnar í aprfl: Sjálfstæðis-
flokkur, Alþýðuflokkur og
Kvennalisti.
Þingflokkar Kvennalistans og
Alþýðuflokksins gáfu síðdegis í
gær jákvætt svar við bréfi sem
Þorsteinn Pálsson skrifaði þeim
eftir þingflokksfund sjálfstæðis-
fundi í gær að hann byggist við
löngum og erfiðum viðræðum
þarsem verulegur ágreiningur
væri uppi milli aðila. Formaður
Alþýðuflokksins var mun hress-
ari og lýsti því yfir að ef pólitískur
vilji væri fyrir hendi mætti mynda
stjórn á viku. Kristín Halldórs-
dóttir, Kvennalista, sagði í gær að
hún hefði ekki trú á stjórnar-
myndun á viku, en sá tími ætti þó
manna í gærmorgun. Innan for-
ystuhóps Kvennalistans var á-
kveðinn vilji til að reyna myndun
fjögurra flokka stjórnar áður en
kæmi að þessari tilraun, og ræddu
þær í fyrradag við alþýðubanda-
lagsmenn og framsóknarmenn,
en ákváðu að lokum að vilji þar, -
sennilega einkum í Framsókn -,
væri ekki nægur til að hafna boði
Þorsteins.
Þorsteinn sagði á blaðamanna-
að nægja til að skera úr um hvort
þessi kostur væri raunhæfur.
Trú manna á að viðræður þess-
ara afla leiði til ríkisstjórnar er
misjöfn, en ýmsir telja þó pólit-
ískar aðstæður með þeim hætti að'
samstjórn „viðreisnarflokkanna“
með Kvennalista gæti hæglega
orðið að veruleika innan fárra
vikna. -m gjá SÍðu 2