Þjóðviljinn - 22.05.1987, Qupperneq 7
Bretland
Verica-
flokki
vex
ásmegin
Stórlega hefur dregið
saman með
Verkamannaflokki og
íhaldsflokki efmarka má
nýja könnun um fylgi
stjórnmálaflokka
Fylgi Verkamannaflokksins
vex frá degi til dags og í gær komu
fyrir sjónir almennings niður-
stöður glænýrrar skoðanakönn-
unar sem benda til að Ihalds-
flokkur Margrétar Thatchers
ryóti aðeins fylgis þriggja af
hundraði kjósenda umfram
Verkó.
Það var Harris fyrirtækið sem
veg hafði og vanda af könnun-
inni. Þúsund Bretar voru spurðir
og veðjuðu 400 þeirra á íhaldið,
370 sögðust ætla að greiða Verka-
mannaflokknum atkvæði en að-
eins 210 játuðu miðjubandalagi
Frjálslynda flokksins og Jafnað-
armannaflokksins ást sína.
Svo virðist sem Neil Kinnock,
formanni Verkamannaflokksins,
hafi tekist að beina kastljósi
kosningabaráttunnar að hinu
mikla atvinnuleysi á Bretlandi.
Frá því Thatcher komst til
valda árið 1979 hefur tala
atvinnulausra þrefaldast og nú
eru þeir þrjár miljónir talsins. Á
fundi í iðnaðarborginni Manc-
hester veittist Kinnock harkalega
að ríkisstjórninni fyrir að láta sér
örlög þessa fólks í léttu rúmi
liggja. Margt ungt fólk sæi ekki
fram á að fá nokkru sinni handtak
að gera og því fyndist samfélagið
hafa brugðist sér. Að auki væri
það á engan hátt hagstætt að
greiða atvinnulausu fólki 21 milj-
ón punda í atvinnuleysisbætur í
stað þess að verja fénu til að
skapa arðbær störf.
Sem kunnugt er hyggst Verka-
mannaflokkurinn skapa miljón
ný störf komist hann til valda eftir
þingkjörið þann ellefta júní.
Teknanna til að standa straum af
kostnaðinum ætlar hann að afla
með því að auka skattheimtu um
tvö prósent en nýlega lækkaði
stjórnin skatta um sömu hlutfalls-
tölu. -ks.
Tamílskir Frelsistígrar" við æfingar. Skærur þeirra og stjórnarhersins færast í vöxt og er búist við hörðum átökum á næstunni.
Sri Lanka
Viðsjár færast í
Yfir þrjátíu manns hafafallið í átökum stjórnarhersins og tamílskra skœru-
liða undanfarna tvo sólarhringa. Fréttir herast um ofsóknir öryggislögreglu
á hendur Tamílum í borginni Battikaloa
Erlendir sendiráðsmenn í Kól-
ombó, höfuðborg Sri Lanka,
segja skærur stjórnarhers lands-
ins og sveita tamflskra aðskilnað-
arsinna, svonefndra Frelsistígra,
færast í vöxt dag frá degi og að
stjórnvöld hafi sent mikinn liðs-
auka, um 2000 manns, til átaka-
svæðanna nærri yfirráðasvæði
skæruliðanna í norðausturhluta
landsins. Það bendi eindregið til
þess að ráðamenn hyggist láta til
skarar skríða svo um muni innan
skamms.
í gær sendu stjórnvöld frá sér
yfirlýsingu þar sem fram kemur
að slegið hafi í brýnu milli óvina-
herjanna í fyrradag með þeim af-
leiðingum að 30 manns hafi fall-
ið, 23 uppreisnarmenn, 6 stjórn-
ardátar og 2 óbreyttir borgarar.
Þrátt fyrir ótryggt ástand ætlar
ríkisstjórnin að efna til sveitar-
stjórnakosninga í ár að sögn Ran-
asinghe Premadasa forsætisráð-
herra sem ávarpaði þing landsins
í gær og fór fram á að neyðar-
ástandi yrði ekki aflétt. Honum
varð að ósk sinni.
í síðasta mánuði lét Junius Jay-
ewardene forseti í ljós þá skoðun
sína að það væri glapræði að láta
fara fram kosningar meðan
jafnmiklar væringar væru með
Tamflum og Singhalesum og
skæruliðar úr hópi hinna fyrr-
nefndu fremdu hvert hryðjuverk-
ið öðru blóðugra.
En morð á óbreyttum borgur-
um virðast fleiri kunna að fremja
en Tamflar. Að sögn trúarleið-
toga, mannréttindasamtaka og
verkalýðsforingja í borginni
Battikaloa hafa mörg hundruð
tamflskra þegna horfið sporlaust
eftir að öryggissveitir stjórnvalda
handtók þá.
Battikaloa er borg sem að
mestu er byggð Tamflum þótt
hún lúti stjórn Singhalesa. Þar
hefur ekkert spurst um afdrif 650
karla á aldrinum 14-55 ára sem
numdir voru á brott eigi alls fyrir
löngu af dátum stjórnarinnar.
Yfirvöld í borginni vilja ekki
kannast við að þessir menn gisti
dýflissur sínar en innanríkisráð-
herra Sri Lanka taldi aðspurður
ekki loku fyrir það skotið að fótur
væri fyrir ásökununum.
Hann fordæmdi hinsvegar ætt-
ingja mannanna fyrir að láta hjá
líða að tilkynna hvörfin til lög-
reglunnar en hlaupa í stað þess
með klögumál sín í heimspress-
una og samtök á borð við Amn-
esty International! Það þarf ekki
að taka það fram að lögreglan á
Sri Lanka er einvörðungu skipuð
Singhalesum.
Frá árinu 1983 hafa 1260
óbreyttir borgarar úr röðum Ta-
vöxt
' Junius Jayewardene forseti fordæm-
ir hryðjuverk Tamíla en minnist ekki
einu orði á ofbeldisverk eigin manna.
mfla verið myrtir af öryggis-
sveitunum í Battikaloa og að
minnsta kosti 2000 er haldið í
fangabúðum sunnan höfuðborg-
arinnar. _ks.
Sovét
Samviskufangar
fái frelsi
Andrei Sakharofog kona hans, Jelena Bonner, hafa settsaman listayfir
fanga sem þau vilja að látnir verði lausir í Sovétríkjunum
Sovésku andófsmennirnir og
hjónin Andrei Sakharof og Je-
lena Bonner hafa látið í Ijós ugg
vegna þess að yfirvöld eystra eru
hætt að láta andófsmenn og pólit-
íska fanga lausa. Þau hafa sent frá
sér yfirlýsingu þar sem þau flokka
í fjóra hópa þá einstaklinga sem
þau vilja að ráðamenn leysi úr
haldi.
Forsætisráðherra Hollands,
Ruud Lubbers, kynnti plaggið
við upphaf tveggja daga fundar
um sovésk málefni sem nú fer
fram í Amsterdam að frumkvæði
Bukovskínefndarinnar. Yfirlýs-
ingin barst fundinum eftir króka-
leiðum. Sakharof mun hafa lesið
hana fyrir ættingja í Bandaríkj-
unum í gegnum síma en þeir
komu henni í hendur nefndar-
mönnum.
Sem fyrr segir er í plagginu listi
yfir fjóra hópa samviskufanga
sem hjónin segja enn vera í haldi í
Sovétríkjunum. Þeir eru:
Fangar í sérstökum vinnubúð-
um ríkisins í námunda við borg-
ina Perm við rætur Úralfjalla.
Fangar sem lokaðir eru inni á
geðveikrahælum.
Fangar sem dæmdir hafa verið
eftir 190-1 grein sovéskra hegn-
Andrei Sakharof og Jelena Bonner hafa áhyggjur af þróun mannréttindamála í
Sovétríkjunum og krefjast lausnar allra samviskufanga.
ingarlaga sem fjallar um refsingar
manna sem halda uppi „andsov-
éskum áróðri" og „rógbera" rík-
ið.
Fangar sem dæmdir hafa verið
fyrir ýms brot en allir vita að eru í
haldi vegna skoðana sinna.
-ks.
Föstudagur 22. maí 1987, ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7