Þjóðviljinn - 22.05.1987, Qupperneq 11
MYNDLISTIN
Vorsýning Myndlista- og hand-
íöaskóla Islands verður haldin í
húsakynnum skólans að Skipholti
1 á morgun og sunnudag. Sýningin
verður opin frá 14-22 báða dagana
enn alls verða sýnd verk eftir 56
nemendur sem nú eru að Ijúka
námi. Lokaverkefni textíldeildar eru
til sýnis í nýja Seðlabankanum og
Versunarskólanum og er hægt að
skoða þau i dag og á venjulegum
opnunartíma í næstu viku.
Pólski myndlistarmaður-
ínn Jacek Sroka opnar sýningu í
Gallerí HaHgerði á morgun og
stendursýningintil 10. júní. Myndir
Sroka bera með sér ótvíræðan boð-
skap og magnað táknmál.
Edda Jónsdóttir opnarsýn-
ingu á verkum sínum í Gailerí
Borg, nýja sýningasalnum í Austur-
stræti á morgun laugardag. Á sýn-
ingunni verða rúmlega 20 vatnslita-
þrykk og ætingar unnar seinni hluta
ársins 1986 og á þessu ári. Sýning-
in verður opin um helgar frá 14 -18
og virka daga frá 10 -18 fram til 3.
júní.
Yfirlitssýning áverkum Vign-
is Jóhannssonar stendur ný yfir í
Gallerí Borg, Pósthússtræti. A
sýningunni eru olíumyndir og krít-
arteikningar unnar á þessu ári og í
Nýju-Mexico, þar sem Vignir er nú
búsettur. Sýningunni lýkur 2. júní.
Norski myndlistarmaður-
inn Yngve Zakarias opnar sýn-
ingu á málverkum og grafík í Nor-
ræna húsinu á morgun. Hann er
fæddur í Þrándheimi árið 1057 og
hefur haldið sýningar víða í Evrópu.
Sýningin er opin frá 14 -19 daglega
framtil 14. júní.
Þórdís A. Sigurðardóttir
sýnir skúlptúra í Gallerí Gangskör
við Amtmannsstíg. Opið virka daga
frá 12 -18 og 14 -18 um helgar.
Gunnsteinn Gíslason sýnir
veggmyndir á Kjarvalsstöðum.
Veggmyndirnar eru múrristur. Sýn-
ingin stendur út mánuðinn.
Kristján Davíðsson sýnirí
FÍM salnum í Garðastræti 6. Þetta
er fyrsta sýning Kristjáns í 20 ár.
Snædís Þorleifsdóttir sýnir
þurrpastel og olíupastelmyndir í
veitingahúsinu Krákunnl við
Laugaveg til 8. júní.
Halidóra Gísladóttir sýnir
grafík í Héraðsbókasafni Kjósar-
sýslu í Mosfellssveit. Opið virka
daga frá 13 - 20 til mánaðamóta.
Listasafn Einars Jóns-
sonar er opið laugardaga og
sunnudag frá 13.30 -16. Hög-
gmyndagarðurinn eropinn alla
dagafráll -17.
Ásgrímssafn, Bergsstaðast-
ræti 74, er opið sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá 13.30 -16.
Þjóðminjasafn Islands er
opið laugardaga, sunnudaga, þriðj-
udaga og fimmtudaga frá 13.30 -
16.
Árbæjarsafn eropiðeftir
samkomulagi. Símapöntun í síma
84412.
Gallerí íslensk list, vestur-
götu 17, sýnir verkeftirfélaga í
Listmálarafélaginu.
Gallerí Langbrók við Bók-
hlöðustig, sýnir textíl, fatnað og
listmuni kl. 12 -18 virka daga og 11
- 14álaugardögum.
Ingibjörg Styrgerður Har-
aldsdóttir sýnir nú í austurforsal
Kjarvalsstaða 10 vefnaðarverk
sem eru unnin á sl. 2 árum. Uppi-
staðan í verkunum er bómull en
ívafið íslensk ull, sem lituð er með
kemískum litum. Sýningin stendur
útmaímánuð.
Sænska listakonan Ssheiia
Snickars sýnir myndvefnað í
Gamla Lundi á Akureyri um þessa
helgi. Sheila hefur haldið hátt þriðja
tug einkasýninga víðs vegar um
heiminn, en hún vinnur mest með
náttúruleg efni eins og ull. Sýningin
er opin frá I7 - 22 í dag og frá 14 - 22
umhelgina.
Þorlákur Kristinsson -
Tolli, opnar á miðvikudaginn mál-
verkasýningu í AKOGES í
Vestmannaeyjum. Á sýningunni
eru 30 olíuverk máluð á síðustu 3
árum. Sýning Tolla í Eyjum stendur
til mánaðamóta og er opin alla daga
frákl. 14-22.
TONLIST
Tónlistarfélag Krists-
kirkju heldur fimmtu tónleika sína
á þessu starfsári í Kristskirkju kl.
17 á morgun laugardag. Húsavík-
urkórinn mun koma fram og flytja
Messu í D dúr op. 86 eftir tékkneska
skáldið Antonin Dvorák. Fjórirein-
söngvararsyngja með kórnum:
Margrét Bóasdóttir, Þuríður Bald-
ursdóttir, Michael Clarke og Robert
Faulkner. Orgelleikari er Björn
Steinar Sólbergsson og stjórnandi
ÚlrikÓlason.
T vennir burlfarartónleikar verða
hjá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík um helgina. Á morgun kl. I7
verða tónleikar Laufeyjar Kristins-
dóttur píanóleikara og flytur hún
verk eftirJ.S. Bach, Beethoven,
Rachmaninoff, Brahms og Ravel. Á
sunnudag kl. 18 verða tónleikar
Einars Steinþórs Jónssonar,
trompetleikara og flytur hann verk
eftirTorelli, Hindemith, Arutunian
og Clarke. Guðrún Guðmundsdóttir
leikurmeðápíanaó.
Kristinn Sigmundsson
heldur tónleika með íslensku ópe-
runni á sunnudag kl. 20.30 og
rennur allur ágóðinn til Óperunnar.
Á efnisskránni verða sönglög og ar-
íureftir Strauss, Wolf, Ives, Hagem-
an, Griffes, Mozart, Wagner, Verdi,
Giordani, Gounod og Bizet, en
meðal þessa eru verk sem Kristinn
er að undirbúa fyrir söngkeppni
ungra óperusöngvara sem haldin
verður í Cardiff í næsta mánuði.
Skólakór Garðabæjar heid-
ur tónleika í Garðakirkju á sunnu-
dag kl. 20.30. Fjölbreytt efnisskrá
verðurátónleikunum.
Norskir harmonikku-
leikarar munu ferðast um landið
næstu daga og halda tónleika með
dansleikjum á eftir. Það er Sigmund
Dehli sem leiðir hljómsveitina sem
samanstendur af fjórum harmoník-
um. Sigmund er margfaldur Nor-
egsmeistari í harmoníkuleik og
einnig tvisvar Norðurlandameistari.
Þeir félagar munu koma við á Húsa-
vík, Akureyri, í Borgarfirði, Reykja-
víkog Rangárvallasýslu.
Norskur áhugamannakór,
Storebrandkoret tekur lagið í Nor-
ræna húsinu í eftirmiðdaginn á
mánudag. Kórinn er hér á ferð til að
halda uppá 40 ára afmæli sitt, en
starfsmenn kórsins eru allir starfs-
menn norska tryggingafélagsins
Storebrand.
Sigrún Eðvaldsdóttirog
Selma Guðmundsdóttir halda
tónleika í Norræna húsinu í kvöld kl.
20.30, en þær stöllur koma síðastar
fram í hópi ungra norrænna ein-
leikara. Á efnisskránni eru verk eftir
Bach, Beethoven, Mozartog
Simbalist/Sarasate.
Júgóslavneski sellósnillingur-
inn Valter Despalj verður einleikari
á síðustu tónleikum Tónlistarfé-
lagsins í Reykjavík sem haldnir
verða í Gamla bíói á morgun kl.
14.30. Despalj spilar á 300 ára gam-
alt hljóðfæri, tónlist eftir Beethoven,
Schumann, Lukas, Fossog
Brahms.
Ellen Kristjánsdóttir, söng-
kona heldur tónleika í „Heita pottin-
um" í Duus-húsi, með strákunum í
Mezzoforte í kvöld kl. 21.30
Kristín Sædal Sigtryggs-
dóttir heldur einsöngstónleika í
Njarðvíkurkirkju á morgun laugar-
dag kl. 16. Píanóleikari er Cather-
ineWilliams.
Vortónleikar Söng-
SkÓlans vegna útskriftar nem-
enda halda áfram um helgina. Á
morgun kl. I6 verða útskrifaðar í
Tónleikasal skólans þær: Sigur-
björg Hv. Magnúsdóttir, Ingunn
Osk Sturludóttir og Andrea Gylfa-
dóttir allar af VIII stigi. Á sunnudag
á sama tíma verða útskrifaðir sem
söngkennarar þau Theodóra Þor-
steinsdóttir, Friðrik S. Kristinsson
og DúfaS. Einarsdóttir.
Kór Langholtskirkju sem er
á leið til Færeyja í söngför heldur
tónleika á þriðjudaginn í Langholt-
skirkju kl. 20.30. [ Færeyjum tekur
UM HELGINA
Einsöngvarar og söngkennarar úr Söngskólanum t Reykjavík sem verða útskrifaðir um helgina. Frá v. Theodóra
Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Marteinsdóttir, Friðrik S. Kristinsson, Dúfa S. Einarsdóttir og Ásdís Benediktsdóttir.
kórinn þátt í kóramóti og heldur auk
þess ferna tónleika.
LEIKLIST
Alþýðuleikhúsið ernú að
Ijúka sýningum sínum á verkinu
„Eru tígrlsdýr í Kongó?“ sem
sýnt hefur verið við góða aðsókn I
hádeginu I Kvosinni. Síðustu sýn-
ingar verða á morgun og
fimmtudag og föstudag í næstu
viku.
Leikfélag Reykjavíkursýnir
Djöflaeyjuna í Leikskemmunni v/
Meistaravelli I kvöld kl. 20, á morg-
un á sama tíma og þá einnig Dag
vonar eftir Birgi Sigurðsson í Iðnó.
Á sunnudag er sýning í Iðnó kl. 20 á
Óánægjukórnum. Aðeins þrjár
sýningar eru eftir á þeirri sýningu og
fjórar á Degi vonar á þessu leikári.
Vegna utanfarar LR með Land
míns föður verða engar leiksýning-
arínæstu viku.
Nemendaleikhúsið sýnir
Rúnar og Kyllikki, sem er útskrift-
arverkefni nemendahópsins, á
morgun og sunnudag kl. 20.
Þjóðleikhúsið býður upp á
syningu íslenska dansflokksins í
kvöld en sýningum fer nú óðum
fækkandi. Á laugardagskvöld verð-
ur næstsíðasta sýning á Hallæris-
tenórnum á þessu leikári og á
sunnudag verður síðasta sýning á
barnaleikritinu Rympa á rusla-
haugnum og um kvöldið verður 5.
sýning á Yerma eftir Federico
García Lorca. Stórbrotið verk sem
hefur hlotið góða dóma.
Leikhúsið í kirkjunni sem
hefur sýnt leikritið um Kaj Munk í
vetur við góðar undirtektir verður
með aukasýningu I Hallgríms-
kirkju á sunnudag kl. 16 til ágóða
fyrir leikferð með sýninguna til Dan-
merkur og Svíþjóðar í sumar.
HITT OG ÞETTA
Norræn heimilisiðnaðar-
sýning verður opnuð í Listasafni
ASÍ við Grensásveg á morgun kl.
14.00. Sýningin var unnin í tilefni
norræns heimilisiðnaðarþings í Ku-
opio í Finnlandi en yfirskrift þingsins
var „Vöruþróun í heimilisiðnaði, frá
hugmynd til fullmótaðra hluta."
Sýningin verður opin fram til mán-
aðamóta.
Fáksfélagar ætla á sunnu-
dagsmorgun í messu í Langholts-
klrkju hjá séra Sigurði Hauki Guð-
jónssyni og halda af stað í kirkju-
ferðina á fákum sínum kl. 9.30 frá
Víðivöllum.
Bandalag íslenskra skáta
gengst fyrir miklum hátíðarhöldum í
Oskjuhlíðásunnudag. Dagurinn
ber yfirskriftina „Litli skátadagur-
inn" og er ætlaður skátum á aldrin-
um 7 -10 ára. Dagskráin hefst kl. 11
ogstendurtilkl. 17.
Árlegur bBænadagur
þjóðkirkju nnar er á sunnu-
dag, sem er fimmti sunnudagur eftir
páska. í ár hefur biskup valið bæn-
arefnið: Heimilið og fjölskyldan.
Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands stendurfyrir
gönguferð milli útivistarsvæða og
merkisstaða í Kópavogi í fyrramál-
ið. Gangan hefst á Borgarholtinu
við Kópavogskirkju og ergöngufólk
beðið að mæta kl. 8.45 en þar lýkur
göngunni kl. 12.30.
Áhugahópur um byggingu
náttúrufræðihúss fer í náttúru-
skoðunarferð í fyrramálið til að
skoða lágplöntur. Farið verður á
nokkra flétturíka staði á Innnesjum.
Farið verður í rútu frá Norræna hús-
inu kl. 13.30, Náttúrugripasafninu
kl. 13.45og Náttúrufræðistofu Kóp-
avogskl. 14.
Hana nú hópurinn í Kópavogi fer
í reglulega laugardagsgöngu í
fyrramálið frá Digranesvegi 12 kl. I0
stundvíslega. Garðar bæjarins
skarta nú fegursta sumarskrúða.
Þjóðminjasafnið opnará
morgun sýninguna: „Hvað er á
seyði?“, en á sýningunni er saga
eldhússins rakin frá upphafi byggð-
ar og sýnd eldhúsáhöld f rá ýmsum
tímum. Sýningin stendur fram á
haust.
Sveitakeppni grunnskól-
anna í skák í stúlknaflokki verður
haldin í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur að Grensásvegi 56 á
sunnudag og hefst kl. I4. Þessi
keppni er liður í að efla áhuga
stúlknaáskáklistinni.
Vorsýning Myndlista- og handíðaskólans verður um helgina og þar eru sýnd
lokaverkefni 4. árs nema skólans í húsakynnum skólans við Skipholt.
Föstudagur 22. maí 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11